Vísitalan búin að ná hámarki 12. júní 2004 00:01 "
Það munar aðallega um hvað húsnæðisverð hefur verið að hækka mikið," segir Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Íslands. Neysluvöruverðsvísitalan hækkaði um 0,77 prósent milli mánaða og hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði. "Það eru almennar hækkanir á mörgum liðum en þessi hækkun á húsnæðisverði er út úr kortinu," segir Edda Rós. Að sögn Eddu Rósar hefur verð á fasteignum hafa tekið mikinn kipp síðustu þrjá mánuði. Hækkunin nemur tæpum sex prósentum sem er 25 prósent hækkun á ársgrundvelli. Edda Rós segist þó gera ráð fyrir því að vísitalan sé búin að ná hámarki sínu í bili. "Í næsta mánuði kemur væntanlega inn einhver bensínlækkun og því ætti að draga úr hækkun vísitölunnar. Þrátt fyrir það eigum við von á að vísitalan verði jafnvel svona há næsta hálfa árið." Lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu á síðustu dögum kemur þó ekki inn í þessa nýjustu mælingu Hagstofunnar á neysluvöruverðsvísitölunni, samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu. Haldi lækkunin áfram getur það dregið úr verðlagshækkun ársins að því er fram kemur í vefriti ráðuneytisins.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira