Lífið

Sænskir áhrifavaldar hrifnir af klæðaburði íslenskra kvenna
Það var margt um manninn í verslun FOU22 á dögunum þegar sænsku áhrifavaldarnir og athafnakonurnar, Thérése Hellström og My Andrén, tóku á móti tískuunnendum og kynntu þeim fyrir vörum frá sænsku merkjunum Ávora og Le Scarf.

Sveppi og Karen Björg skrifa leikna þætti um Orra óstöðvandi
Orri óstöðvandi, bókaflokkurinn um vinina Orra og Möggu, er íslenskum krökkum afar vel kunnugur. Nú á að gera leikna sjónvarpsþætti um Orra og vini hans.

Tilkynna óléttu tveimur mánuðum eftir brúðkaup
Breski leikarinn Ed Westwick og leikkonan Amy Jackson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Jackson einn dreng, Andreas sem er fimm ára.

Björgólfur Thor selur 200 fermetra glæsiíbúð við höfnina
Eignahlutfélag Björgólfs Thors Björgúlfssonar, Novathor F11 ehf, hefur sett glæsiíbúð við Austurhöfn í Reykjavík á sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Félagið festi kaup á eigninni árið 2022 og greiddi 310 milljónir.

Eyddi Youtube síðu sonarins
Bandaríska athafnakonan Kim Kardashian eyddi Youtube síðu elsta sonar síns hins átta ára gamla Saint West eftir að hann birti tvennar færslur um Kamölu Harris þar sem vísað var til hennar með niðrandi hætti.

Prestur og brauðterta í tíu þúsund manna fermingarveislu FM95BLÖ
Fermingarveisla FM95BLÖ verður haldin á næsta ári. Útvarpsþátturinn er að verða fjórtán ára og því tilvalið að skella í fermingu.

Þakklátur starfsfólki Landspítalans eftir mótorhjólaslys
Bandaríski ferðamaðurinn Timothy Bradley sendi starfsfólki Landspítalans hjartnæmt bréf og gjöf í þakklætisskyni fyrir að hafa hlúð að honum eftir að hann lenti í mótorhjólaslysi í grennd við Gullfoss í september síðastliðnum. Hann gaf starfsmönnum sérmerktan kaffibolla og súkkulaði.

Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus
Nói Síríus opnaði nýjan og glæsilegan uppskriftarvef í gær sem ber nafnið Ljúfa líf. Þar má finna fjölda klassískra og nýrra uppskrifta auk hinna sívinsælu kökubæklinga sem hafa komið úr árlega síðan 1992.

COD Black Ops 6: Myrkraverkin hafa sjaldan verið betri
Call of Duty: Black Ops 6, eða Skyldan kallar: Myrkraverk 6, er að mínu viti meðal betri COD-leikja sem ég hef spilað um árabil. Einspilunin er sérstaklega skemmtilegt að þessu sinni en ég hef lengi verið mikill aðdáandi þeirra hluta þessara leikja.

Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans
Á menningarvefnum Lestrarklefinn er fjallað um allskonar bækur allt frá fræðibókum til fagurbókmennta. Jana Hjörvar fjallar hér um skáldsögu Nönnu Rögnvaldardóttur, Þegar sannleikurinn sefur.

„Hæfileikarnir hafa ekkert með kílóin að gera“
„Ég hef alltaf verið með mikla tjáningarþörf. Það er smá pönkari í mér og mér finnst mikilvægt að pota aðeins, því ég vil að við séum stöðugt að vaxa,“ segir leikkonan Birna Rún sem er viðmælandi í Einkalífinu.

Vekur athygli á einkennum heilaslags í minningu móður sinnar
Móðir Birnu Drafnar Jónasdóttur lést af völdum heilaslags. Birna starfar í dag að innleiðingu FAST aðferðar sem kennir börnum hver einkenni heilaslags eru. Heilaslag er ein af algengustu dánarorsökunum á Vesturlöndum.

Danakonungur sagður hafa daðrað við Þórdísi
Ástralski slúðurmiðillinn Now to Love segir Friðrik Danakonung hafa daðrað við Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands, á kvöldverði til heiðurs Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í byrjun mánaðar

Játning í Svörtum söndum
Önnur þáttaröð af Svörtum söndum fór í loftið á Stöð 2 fyrir nokkrum vikum en í þáttunum liggur áfallið enn þungt á bæjarbúum Glerársands.

Tóm hamingja hjá forsetanum
Gleðin var við völd á föstudagskvöld þegar Gaflaraleikhúsið frumsýndi leikverkið Tóm hamingja. Um er að ræða verk sem leiki er á tveimur sviðum í einu og skipta áhorfendur um sal í hléi.

Hafi áður tekið of stóran skammt
Breski söngvarinn Liam Payne hafði áður tekið of stóran skammt eiturlyfja þannig að honum varð að bjarga. Hann er sagður hafa verið í engu ástandi til þess að taka þátt í upptökum á raunveruleikaþáttum Netflix sem fram fóru fyrr á þessu ári.

Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund?
„Við ætlum að segja sögu Ladda. Þetta er ævisöguleikrit eins og Elly og Níu líf og Ásta og karakterar og persónur Ladda þær halda svolítið á því að segja söguna. Þannig við fáum að sjá Ladda á sviðinu hitta Eirík Fjalar, Dengsa, Hallgrím, Mófreð.“

Er einfaldlega að finna út úr kynhneigð sinni
Tónlistarmaðurinn Shawn Mendes opnaði sig á dögunum um innri ferðalag sitt í átt að því að skilja betur hver hann er. Mendes skaust upp á stjörnuhimininn á unglingsárunum og hefur verið í samböndum með stórstjörnum á borð við Camilu Cabello og Hailey Bieber. Stjarnan opnaði sig við aðdáendur sína á dögunum á tónleikum í Colorado þar sem hann sagðist enn vera að finna út úr kynhneigð sinni.

Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól
Stórstjarnan Laufey Lín skein skært á rauða dreglinum í fyrradag á tískuverðlaunahátíð CFDA sem haldin er af vinsælustu tískuhönnuðum Bandaríkjanna.

Kynntust í fyrri seríunni
Önnur þáttaröðin af Svörtu Söndum er farin í loftið á Stöð 2 en fyrri serían naut mikilla vinsælda.

Unnur Eggerts og Travis eiga von á öðru barni
Unnur Eggertsdóttir, leikkona og verkefnastjóri og hugmynda- og textasmiður hjá Maurum auglýsingastofu, á von á sínu öðru barni með unnusta sínum Travis. Hún deilir gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram.

Skylduð til að bæta Baltasarsdóttir við
Dóttir leikstjórans Baltasars Kormáks og Sunnevu Ásu Weisshappel, myndlistarkonu og leikmyndahönnuðar var skírð þann 5. október síðastliðinn og fékk hún nafnið Kilja Kormákur. Parið þurfti að sækja um sérstakt leyfi til Mannanafnanefndar og segir að það hafi komið þeim á óvart að Kilja væri ekki til sem íslenskt kvenmannsnafn.

„Verð hálf abbó þegar steggjamyndböndin eru sýnd“
„Við höfum mikla ástríðu fyrir því að efla tengslanet kvenna,“ segja vinkonurnar og þjálfararnir Lilja Sigurgeirsdóttir og Unnur María Pálmadóttir. Stöllurnar hafa í gegnum tíðina verið duglegar að ferðast saman, bæði á sólríka staði og yfir hálendi Íslands.

„Ég sparka bara í þig á eftir“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er ekki til í að fallast á að alþingismenn séu drykkfelldari en aðrar starfsstéttir. Hún segir þvert á það sem margir haldi sé mikil gleði á þingi og segist hún sjá ákveðna fegurð í því þegar þingmenn fá sér í glas saman.

Sögð hafa slitið trúlofuninni
Bandarísku stórleikararnir Channing Tatum og Zoe Kravitz eru hætt saman og slitið trúlofun sinni.

Er endaþarmsörvun bara fyrir homma?
Spurning barst frá lesenda svo hljóðandi: „Mér finnst gott að nota dildó á sjálfan mig. Mér finnst það mjög tabú meðal gagnkynhneigðra karla, en er það algengt eða er það bara fyrir samkynhneigða karla?” - 30 ára karl

Teri Garr látin
Leik- og söngkonan Teri Garr er látin 79 ára að aldri. Hún greindist með MS sjúkdóminn árið 2002 og árið 2006 fékk hún blóðtappa. Teri var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni Tootsie. Þá lék hún einnig í Young Frankenstein og lék móður Phoebe í þáttaröðinni Friends.

Gerður í Blush gladdi konur í Köben
Mikil stemning ríkti á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn liðna helgi þegar 120 íslenskar konur komu saman til að heiðra framúrskarandi fyrirmyndir. Viðburðurinn, Seigla og sigrar, var á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku.

Magnað að aðdáendur flúri textana á sig
Í haust eru tíu ár frá því að tónlistarmaðurinn Jón Jónsson gaf út plötuna Heim og ætlar hann að flytja hana í heild sinni næstkomandi laugardagskvöld í Salnum í Kópavogi. Hann segir að margt hafi drifið á daga sína frá því að platan kom út en á plötunni flutti hann í fyrsta skiptið lög á móðurmálinu.

Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur fengið nafnið Kilja Kormákur.