Lífið
„Verð ekki stressaður, ég er vanur sjónvarpsmaður“
Fréttir með Finnboga hafa slegið í gegn á Instagram. Eva Laufey hitti fólkið á bakvið miðilinn, Finnboga og Melkorku, í Íslandi í dag á Stöð 2 á miðvikudagskvöldið og fékk að kynnast þeim báðum.
„Bless“
Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres hefur nú kvatt þáttinn sinn í síðasta skipti eftir nítján þáttaraðir. Hún bauð Jennifer Aniston velkomna sem síðasta gest þáttarins en hún var einnig fyrsti gesturinn þegar þættirnir hófu göngu sína árið 2003.
„Annars deyr maður út af þessu“
Róbert Jóhannsson, fréttamaður og þjálfari, greindist með krabbamein í ristli og við endaþarm undir lok síðasta árs. Valdimar Högni Róbertsson, sonur hans er aðeins níu ára og byrjaði með hlaðvarpið „Að eiga mömmu eða pabba með krabba“ til þess að hjálpa sér og öðrum að komast í gegnum veikindin.
„Þá opnaði ég bara orðabók undir M og leitaði að einhverju sniðugu“
Tónlistarmaðurinn Magnús Thorlacius hefur gert garðinn frægann undir listamannanafninu Myrkvi og einnig með hljómsveitinni Vio en nú er komið nýtt lag frá honum sem heitir Villt fræ.
Trommari Yes er fallinn frá
Breski tónlistarmaðurinn Alan White, sem var trommari í rokksveitinni Yes, er látinn, 72 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Bandaríkjunum í gær eftir glímu við veikindi.
Andrew Fletcher látinn sextugur að aldri
Andrew Fletcher, hljómborðsleikari og stofnmeðlimur bresku raftónlistarsveitarinnar Depeche Mode er látinn. Hljómsveitin tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær en Fletcher var sextíu ára að aldri.
Ray Liotta látinn
Stórleikarinn Ray Liotta er látinn 67 ára að aldri.
„Ungir strákar eru oft að verða gerendur án þess að átta sig á því“
Aktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Suncity, segir fólk oft ekki átta sig á því hvað felst í kynfræðslu og tengi það aðeins við kynferðislegar athafnir en hún leggur til að fræðslan fari fram á öllum skólastigum.
Leikari afhjúpaður fyrir að leika nýja persónu í hverju viðtali
Allt er þegar þrennt er, eins og sannast í máli Hákonar Jóhannessonar leikara sem var „afhjúpaður“ í Íslandi í dag fyrir að setja upp sakleysislegan en fjölbreyttan leikþátt í hvert sinn sem fjölmiðlamaður gerist svo óheppinn að beina að honum hljóðnema.
Björg og Tryggvi eiga von á barni
Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson eiga von á barni. Frá þessu greinir Björg á Instagram.
Höddi Magg til liðs við RÚV
Sparkspekingurinn Hörður Magnússon verður álitsgjafi á RÚV í umfjöllun ríkisútvarpsins um Mjólkurbikarinn, deildarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu.
„Enginn vill vinna með stelpum sem líta út eins og þú“
Vanity Fair fékk nokkrar stjörnur úr stærstu sjónvarpsþáttunum í dag til þess að svara spurningum um leiklistarferilinn sinn. Þau fara yfir erfiðasta atriðið sem þau hafa leikið í, prufur fyrir hlutverk og hvaða mótleikurum þau hafa lært mest af.
Skipti samkynhneigð út fyrir krullurnar í ritskoðaðri ræðu
Nemandi sem flutti ræðu við útskrift í framhaldsskóla á Flórída í Bandaríkjunum vakti mikla athygli fyrir hvernig honum tókst að koma skilaboðum sínum til skila þrátt fyrir að skólastjórinn hefði bannað honum að tala um samkynhneigð sína.
Hagkaup opnar stærstu snyrtivöruverslun landsins á netinu
Hagkaup hefur opnað stærstu snyrtivöruverslun landsins á netinu samkvæmt nýrri fréttatilkynningu. Í vefversluninni má finna mörg stærstu snyrtivörumerki heims.
Steven Tyler í meðferð og Aerosmith fellir niður tónleika
Hljómsveitin Aerosmith hefur fellt niður alla tónleika í sumar. Aerosmith mun því ekki byrja að koma fram í Las Vegas fyrr en í september.
Fáránlegt að ófaglærðir fái að stinga sprautu inn
Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir, ræddi við Sindra Sindrason um húðmeðferðir eins og bótox í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.
Heimsmet: Big Mac á hverjum degi í fimmtíu ár
Suma daga eru það jafnvel tveir Big Mac hamborgarar sem seðja hungur Bandaríkjamannsins Donald Gorske sem fagnaði á dögunum fimmtíu árum af daglegu Big Mac áti.
Íslendingar bera af í Eurovision-glápi
Íslendingar eru sú þjóð sem horfði hlutfallslega mest á Eurovision í ár. Samkvæmt mælingum sem Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hafa birt á vef sínum var áhorf á keppnina hér á landi 96,4 prósent, meira en á nokkrum öðrum markaði.
Typpi Jimi Hendrix á leið til landsins
Afsteypa af getnaðarlim rokkarans Jimi Hendrix er á leið til landsins. Afsteypan verður til sýnis á Hinu Íslenzka Reðasafni en safnið fékk afsteypun að gjöf frá Cynthiu „Plaster Caster“ Albritton heitinni.
Stjörnuframherjinn og Blikanaglinn njóta saman utan vallar
Katrín Ásbjörnsdóttir, framherji Stjörnunnar, og Damir Muminovic, miðvörður Breiðabliks, eru að hittast. Bæði spila þau í Bestu deild í íslenska fótboltanum.
Íslendingar yfirtaka Cannes
Það er margt um Íslendinginn í Cannes þetta árið en Volaða land eftir Hlyn Pálmason er heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes í flokknum Un Certain Regard í aðaldagskrá hátíðarinnar.
Bjarni vill frekar kvöldstund með Ingó Veðurguð en Gunnari Smára
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kveðst frekar myndu vilja verja kvöldstund með söngvaranum Ingólfi Þórarinssyni Veðurguð en Gunnari Smára Egilssyni sósíalista.
Magnús og Hrefna selja einbýlishúsið í Skerjafirðinum
Magnús Scheving og Hrefna Björk Sverrisdóttir hafa sett glæsilegt einbýli sitt að Bauganesi 22 í Skerjafirði á sölu.
Camilla Rut og Rafn skilja
Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Rafn Hlíðkvist Björgvinsson hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að skilja eftir þrettán ára samband. Þau tilkynntu skilnaðinn á hugljúfan hátt, saman, á miðli Camillu.
Stjörnuspekingurinn Jara Giantara skoðar stjörnumerki og samvinnu mögulegrar borgarstjórnar
Hvað segja stjörnumerkin um oddvitana í Reykjavík? Ég fékk stjörnuspekinginn Jöru Giantöru til að skoða stjörnumerki nokkurra einstaklinga sem börðust um borgina.
Lífið er núna: Myndaveisla frá helginni
Kraftur stóð fyrir risa perluviðburði í Hörpu þann 22. maí þar sem þátttakendur perluðu af fullum krafti armbönd sem á stendur „Lífið er núna“ og eru seld til styrktar félagsins.
Fyrsti rafmagnsflugmaður Íslands: „Ótrúlega spennandi að vera partur af þessari þróun“
Eyleif Ósk er 25 ára gömul og starfar sem flugkennari og flugmaður í Svíþjóð, þar sem hún sérhæfir sig í að fljúga rafmagns flugvélum. Eftir að hafa spurst fyrir hér heima segir hún ljóst að hún sé fyrsti rafmagns flugmaður Íslands. Blaðamaður hafði samband við Eyleif og fékk að skyggnast inn í hennar spennandi heim.
Chris Pratt og Katherine Schwarzenegger eignuðust aðra stúlku
Leikarinn Chris Pratt og eiginkona hans Katherine Schwarzenegger tóku á móti sinni annarri dóttur um helgina. Stúlkan hefur fengið nafnið Eloise Christina Schwarzenegger Pratt en saman eiga þau fyrir Lylu Mariu sem fæddist í ágúst árið 2020.
„Bíddu! Varst þú ekki í sjónvarpinu? Hvað veist þú um pólitík?“
„Dragðu Gumma Ben og Felix með þér í Framsókn...Þá kannski breyti ég um skoðun!“ Símahrekkir oddvita vöktu mikla kátínu í þættinum Veislan á FM957 rétt fyrir kosningarnar.
Kourtney og Travis gift: Dolce & Gabbana styrktaraðili þriðja brúðkaupsins á Ítalíu
Um helgina átti sér stað þriðja og síðasta brúðkaup Kourtney Kardashian og Travis Barker. Þema dagsins virðist hafa verið gothic-glam og klæddist Kourtney stuttum Dolce & Gabbana korselett kjól og voru dætur þeirra blómameyjar.