
Leikjavísir

Wii U hittir í mark
Svo virðist sem að neytendur vestanhafs hafi tekið nýjustu leikjatölvu Nintendo, Wii U, með opnum örmum. Leikjatölvan fór í almenna sölu í nóvember. Japanska tæknifyrirtækið hefur nú birt fyrstu sölutölur.

Þetta er DUST 514
Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur birt nýtt kynningarmyndband fyrir skotleikinn DUST 514.

Nintendo kynnir Wii U í Bretlandi
Nú styttist í nýjasta leikjatölva japanska tæknifyrirtækisins Nintendo fari í almenna sölu. Fyrirtækið hefur nú frumsýnt nýja auglýsingu þar sem einstakir eiginleikar Wii U leikjatölvunnar eru kynntir.

Norrænir tölvuleikjaframleiðendur taka höndum saman
Samtök norrænna leikjaframleiðenda, Nordic Game Institude, verða stofnuð á mánudaginn næstkomandi. Fulltrúar samtaka leikjaframleiðenda í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi skrifa undir stofnsamninginn. Formaður IGI, Icelandic Game Industry, skrifar undir fyrir hönd Íslands.

"Aðeins Íslendingar nógu brjálaðir fyrir svona verkefni“
Hugmyndir íslenska tölvuleikjaframleiðandans CCP um nýjasta leik sinn, DUST 14, eru sannarlega stórhuga. CCP hefur nú þegar sett saman fimm ára áætlun um tölvuleikinn en fyrirtækið vonast til að reka leikinn í 20 ár.

Wii U lendir í nóvember
Nýjasta leikjatölva Nintendo, Wii U, fer í almenna sölu 30. nóvember næstkomandi. Með þessu vill fyrirtækið skjóta samkeppnisaðilum sínum, Sony og Microsoft, ref fyrir rass en rúm fimm ár eru síðan fyrirtækin tvö opinberuðu núverandi kynslóð leikjatölva.

Tölvuþrjótar játa sök - ætluðu að ráðast á EVE Online
Ryan Cleary játaði í dag að hafa ásamt Jake Davis hakkað sig inn í heimsíður stórra stofnanna í Bandaríkjunum og Bretlandi. Meðal annars réðust þeir inn í tölvur Bandaríksa flughersins sem staðsettar eru í Pentagon.

Brautryðjendur í tölvuleikjagerð
Milljónum tölvuleikjaunnenda um allan heim verður á næstu mánuðum gefinn kostur á að hala niður glænýjum tölvuleik CCP að nafni DUST 514. Leikurinn er að mörgu leyti einstakur en hann er beintengdur EVE-online tölvuleiknum sem CCP hefur haldið úti síðastliðin níu ár. Magnús Þorlákur Lúðvíksson ræddi við Hilmar Veigar Pétursson , framkvæmdastjóra CCP, um nýja leikinn og áskoranirnar fram undan.

DUST 514 einn af þeim efnilegustu
PlayStation Official Magazine hefur valið nýjasta tölvuleik CCP, DUST 514, einn af tíu efnilegustu og gróðavænlegustu leikjum E3 ráðstefnunnar (Electronic Entertainment Expo), sem er stærsta tölvuleikjaráðstefnu heims og fer nú fram í Los Angeles. CCP stendur þar fyrir kynningu á leiknum fyrir blaðamönnum. Ráðgert er að DUST 514 komi á markað síðar í ár fyrir PlayStation leikjatölvur SONY.

DUST 514 vekur hrifningu á E3
Bandaríska leikjasíðan IGN hefur valið DUST 514, nýjasta afsprengi tölvuleikjafyrirtækisins CCP, sem einn besta leik E3 tölvuleikjaráðstefnunnar.

Hogwarts vaknar til lífsins í Galdrabókinni
Tæknifyrirtækið Sony opinberaði nýtt jaðartæki fyrir PlayStation 3 leikjatölvuna á E3 leikjaráðstefnunni í Los Angeles í dag. Tækið er kallað Wonderbook og er í raun gagnvirk bók sem spilarar nota samhliða leikjatölvunni.

CCP fer mikinn á E3
Tölvuleikjafyrirtækið CCP tekur nú þátt í einni stærstu leikjaráðstefnu veraldar, E3, í Los Angeles. Fjöldi blaðamanna og talsmanna tölvuleikjafyrirtækja eru á ráðstefnunni en kaupendur og dreifingaraðilar eru einnig á staðnum.

Rekstrartap Sony aldrei verið hærra
Náttúruhamfarir í Asíu á síðasta ári og sterk staða japanska jensins eru sögð vera helstu ástæðurnar fyrir rekstrartapi tæknifyrirtækisins Sony á síðasta ári.

Angry Birds Space niðurhalað 50 milljón sinnum
Angry Birds Space, nýjasta viðbótin við Angry Birds tölvuleikinn, hefur verið niðurhalað 50 milljón sinnum frá því að hún fór í almenna sölu í síðasta mánuði.

Versta rekstrarár í sögu Nintendo
Japanski tölvuleikjaframleiðandinn Nintendo tapaði 533 milljónum dollara á síðasta ári eða um 67 milljörðum íslenskra króna.


Næsta PlayStation kölluð "Orbis"
Tæknifréttasíðan Kotaku greindi frá því fyrr í vikunni að næsta PlayStation leikjatölvan verði kölluð "Orbis.“

"Besta Fanfestið til þessa"
„Þetta var besta Fanfestið til þessa," segir Oddur Örn Halldórsson, Fanfest stjórnandi og viðburðarstjóri CCP. Rúmlega þúsund EVE Online spilarar og tölvuleikjaaðdáendur heimsóttu Hörpuna um helgina og áttu þar góða stund saman.

Angry Birds niðurhalað 10 milljón sinnum á þremur dögum
Finnski tölvuleikjaframleiðandinn Rovio tilkynnti á samskiptasíðunni Twitter um helgina að nýjastu útgáfunni af Angry Birds tölvuleiknum hefði verið niðurhalað tíu milljón sinnum á þremur dögum.

Einn vinsælasti tölvuleikur veraldar uppfærður
Ný útgáfa af tölvuleiknum Angry Birds fór í almenna sölu í dag. Tvö ár eru síðan finnski tölvuleikjaframleiðandinn Rovio kynnti fyrstu útgáfu leiksins og hafa vinsældir þessa krúttlega tölvuleiks aukist gríðarlega.

Árshátíð CCP - DUST 514 heimsfrumsýndur
"Við erum beinlínis að taka yfir Hörpuna," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar CCP. Fanfest hátíðin hófst í dag en þar mun tölvuleikjaframleiðandinn CCP heimsfrumsýna nýjustu afurð sína - DUST 514.

Lego framleiðir geimskip byggt á tölvuleiknum EVE
"Það er verið að fljúga inn módeli sem verður til sýnis á Fanfest,“ segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar hjá CCP.

Geimfari kynnti nýjasta Angry Birds tölvuleikinn
Bandarískur geimfari um borð í Alþjóðlegu Geimstöðinni var fenginn til að opinbera nýjustu viðbót við Angry Birds tölvuleikina. Geimfarinn notaði tækifærið og upplýsti áhorfendur um grunnkenningar eðlisfræðinnar.

Nota Angry Birds til að koma í veg fyrir ofbeldi
Lögregluyfirvöld í Suður-Kóreu hafa opinberað nýja herferð gegn ofbeldi í skólum landsins. Leitað var til tölvuleikjaframleiðandans Rovio eftir aðstoð.

CCP með 8 milljarða í tekjur á síðasta ári
Tekjur tölvuleikjaframleiðandans CCP námu 66 milljónum dollara á síðast ári eða um 8 milljörðum íslenskra króna.

Apple og Sony á lista yfir verstu tæknimistök 2011
Það má segja að tækniiðnaðurinn hafi blómstrað á árinu 2011. En þrátt fyrir miklar framfarir í snjallsímatækni er ljóst að mörg feilspor voru tekin. Vefsíðan Engadget hefur tekið saman það helsta sem fór úrskeiðis hjá tæknifyrirtækjum á árinu.

Playstation Vita vinsæl en þó gölluð
Þrátt fyrir gríðarlegar vinsældir leikjatölvunnar Playstation Vita hafa notendur hennar lýst yfir vonbrigðum með snertiskjá tölvunnar. Playstation Vita fór í sölu um helgina og er hefur nú þegar selst í rúmlega 300.000 eintökum.

Fengu verðlaun fyrir tölvuleikinn Relocator
Nýverið lauk leikjahönnunarkeppninni Game Creator á vegum Icelandic Gaming Industry. Keppnin hófst formlega í byrjun september, að því er fram kemur í tilkynningu, „þar sem keppendur áttu kost á því að mæta á vinnustofur á vegum IGI til að fá aðstoð og álit á sinni vinnu. Vinnustofurnar voru fjórar í heild sinni þar sem fjallað var um leikjahönnun, forritun, frumgerðarsmíði og lokavinnustofa tileinkuð ahliða aðstoð og álitagjöf. Umsjón vinnustofanna var í höndum reyndra aðila úr iðnaðinum, m.a. frá fyrirtækjunum CCP Games og Gogogic.“

Tölvuþrjótar ráðast á Steam
Kreditkorta- og persónuupplýsingar tæplega 35 milljón notenda tölvuleikjaþjónustunnar Steam eru í hættu. Þetta tilkynnti Gabe Newell, stofnandi og stjórnarformaður Valve.

Angry Birds er vinsælasti tölvuleikur veraldar
Tölvuleikurinn Angry Birds er sá vinsælasti í heimi. Í tilkynningu frá framleiðanda leiksins, Rovio, kemur fram að náð hefur verið í leikinn 500 milljón sinnum.