Erlent
70 71 72 73 74 75 76 77 78 … 334 ›
Austin aftur inn á sjúkrahús og aðstoðarráðherrann tekinn við í bili Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur falið aðstoðarráðherra sínum að sinna embættisskyldum sínum á meðan hann dvelst á spítala vegna vandamála í þvagblöðru. Erlent 12.2.2024 08:58
Trump harðlega gagnrýndur fyrir boð til Rússa um að ráðast gegn Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir bandalagið reiðubúið og viljugt til að vernda alla bandamenn sína, eftir að greint var frá því að Donald Trump hefði eggjað Rússa til að ráðast á þau ríki sem ekki legðu nægt fjármagn til varnarmála. Erlent 12.2.2024 07:24
Sprengjuregn á Rafah og tveimur gíslum bjargað Ísraelar segjast hafa bjargað tveimur gíslum sem verið hafa í haldi Hamas samtakanna frá því í október. Erlent 12.2.2024 07:13
Stubb bar nauman sigur úr býtum Önnur umferð forsetakosninga Finnlands fór fram í dag. Kosningabaráttan stóð milli Alexanders Stubb fyrrverandi forsætisráðherra og Pekka Haavisto fyrrverandi utanríkisráðherra en sá fyrrnefndi sigraði. Erlent 11.2.2024 21:14
Starfsmenn flóttamannaaðstoðarinnar hafi verið reknir án sönnunargagna Philippe Lazzarini yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar segist hafa rekið starfsmenn sem sakaðir voru um hollustu við Hamas án nokkurra sönnunargagna og án þess að hafa rannsakað ásakanirnar á hendur þeim. Erlent 11.2.2024 10:40
Segja göng Hamas liggja undir höfuðstöðvum UNRWA Talsmenn Ísraelshers segja að mörg hundruð metra langt ganganet Hamas hafi fundist á Gasa. Göng hryðjuverkasamtakanna liggi meðal annars undir höfuðstöðvum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA. Erlent 11.2.2024 08:39
Matarbirgðir til sveltandi Gasabúa sitja fastar í ísraelska tollinum Matarbirgðir ætlaðar rúmri milljón Palestínumönnum á vergangi eru fastar í ísraelskri höfn vegna boða ísraelskra yfirvalda. Erlent 10.2.2024 15:02
Skipar hernum að tæma Rafa fyrir innrás Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur skipað ísraelska hernum að gera áætlun um brottflutning allra íbúa frá Rafah. Það á að gera áður en gerð verður allsherjar innrás í borgina en þangað hafa fjölmargir íbúar Gasastrandarinnar flúið á undanförnum mánuðum. Erlent 9.2.2024 16:34
Vill morðingja fyrir blaðamann Vladimír Pútin, forseti Rússlands, segist mögulega tilbúinn í fangaskipti vegna bandarísks blaðamanns sem haldið hefur verið í rússnesku fangelsi í tæpt ár vegna ásakana um njósnir. Í staðinn vill hann fá rússneskan njósnara sem situr í fangelsi í Þýskalandi fyrir morð. Erlent 9.2.2024 16:00
Biden brást reiður við skýrslu um leyniskjöl Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem rannsakað hefur opinber og leynileg skjöl sem fundust í vörslu Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, frá þeim tíma er hann var óbreyttur borgari, birti í gær skýrslu um rannsókn sína. Þar sagði hann ekki tilefni til að ákæra Biden en sagði hann hafa vísvitandi haldið eftir leynilegum gögnum og jafnvel sýnt öðrum þau. Erlent 9.2.2024 13:45
Gíslatökumaður skotinn til bana í Sviss Lögregluþjónar í Sviss skutu í gærkvöldi 32 ára mann frá Íran eftir að hann tók fimmtán manns í gíslingu í lest. Maðurinn var vopnaður hníf og öxi og hélt fólkinu í gíslingu í tæpar fjórar klukkustundir. Erlent 9.2.2024 11:18
Pútín segir Musk óstöðvandi Erfðatækni, gervigreind og Elon Musk var á meðal þess sem bar á góma í viðtali bandaríska sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem var birt á samfélagsmiðlinum X í nótt. Erlent 9.2.2024 09:00
Fékk þrjátíu mínútna sögukennslu í tveggja tíma viðtali Fyrstu þrjátíu mínútur tveggja klukkustunda langs viðtals sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladimir Pútín Rússlandsforseta fóru í yfirferð forsetans yfir sögu Rússlands, frá 9. öld og fram til valdatíma Leníns. Erlent 9.2.2024 06:44
Rúmur helmingur allra mannvirkja í Gasa eyðilagður Rúmur helmingur allra mannvirkja á Gasasvæðinu hafa orðið fyrir skemmdum eða eyðilagst aljgörlega síðan innrás Ísraela hófst þann 7. október á síðasta ári. Erlent 8.2.2024 23:22
Selenskí vék yfirherforingja úr starfi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur vikið Valerí Salúsjní yfirmanni úkraínska hersins úr starfi. Erlent 8.2.2024 22:55
Kjörgengi Trumps rætt í Hæstarétti Málflutningur um það hvort ríki Bandaríkjanna hafi rétt til að meina Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að vera á kjörseðlum þar í forsetakosningunum sem haldnar verða í nóvember, stendur nú yfir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Erlent 8.2.2024 16:12
Tusk segir Repúblikönum að skammast sín Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Repúblikönum í öldungadeild Bandaríkjaþings að skammast sín. Er það í kjölfar að þingmennirnir felldu frumvarp sem þeir höfðu sjálfir beðið um og komið að því að semja. Það frumvarp sneri meðal annars að hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Erlent 8.2.2024 16:02
Felldu einn af leiðtogum Kataib Hezbollah í drónaárás Einn af æðstu leiðtogum vígahópsins Kataib Hezbollah var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna í Bagdad í Írak í gær. Hann er sagður hafa komið með beinum hætti að skipulagningu og framkvæmd árása á bandaríska hermenn í Írak, Sýrlandi og Jórdaníu. Erlent 8.2.2024 09:46
Hafnar kröfum um vopnahlé og spáir fullnaðarsigri Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael hafnaði í dag vopnahléstillögu Hamas. Þá sagði hann fullnaðarsigur á Gasa væntanlegan á næstu mánuðum. Erlent 7.2.2024 23:08
Segir alþjóðasamfélagið gleyma Súdan og vill 570 milljarða í aðstoð Yfirmaður hjálparsamtaka sameinuðu þjóðanna biðlaði í dag til a að gleyma ekki því neyðarástandi sem nú stendur yfir í Súdan, en þar hefur stríð geisað í landinu í tíu mánuði. Erlent 7.2.2024 19:29
Sár árásarmannsins gætu reynst banvæn Maðurinn sem skvetti sýru framan í 31 árs gamla konu og tvær dætur hennar í Lundúnum síðasta miðvikudag áður en hann lagði á flótta, er enn ófundinn. Sár hans gætu að sögn lögreglu reynst banvæn komist hann ekki undir læknishendur. Erlent 7.2.2024 17:59
Leitin hefur ekki borið árangur Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Færeyjum í gær hefur ekki skilað árangri í dag. Leitað hefur verið úr lofti og á sjó en einn neyðarsendir úr skipinu hefur fundist. Erlent 7.2.2024 17:00
Hlakkar í Rússum vegna heimsóknar Carlson Tucker Carlson, fyrrverandi sjónvarpsmaður Fox News, hefur tekið viðtal við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þetta er fyrsta viðtal forsetans af þessu tagi frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu í febrúar 2022. Erlent 7.2.2024 16:28
Höfðar mál gegn Disney og Lucasfilm með stuðningi Musks Leikkonan Gina Carano hefur höfðað mál gegn Walt Disney og Lucasfilm, með stuðningi auðjöfursins Elons Musk. Carano heldur því fram að hún hafi ranglega verið rekin frá þáttunum Mandalorian árið 2021 vegna þess að hún hafi dreift íhaldssömum stjórnmálaskoðunum sínum á samfélagsmiðlum. Erlent 7.2.2024 14:24
Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni. Erlent 7.2.2024 11:49
Leit haldið áfram við Færeyjar í dag Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Suðurey í Færeyjum í gær verður haldið áfram í dag. Sextán manns voru um borð í skipinu þegar það fékk á sig brotsjó í gærmorgun og mikil slagsíða kom á það. Erlent 7.2.2024 10:22
Tucker Carlson í Moskvu til að taka viðtal við Vladimir Pútín Hinn umdeildi sjónvarpsmaður Tucker Carlson er staddur í Moskvu, að eigin sögn til að taka viðtal við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nauðsynlegt að upplýsa Bandaríkjamenn um stríð sem þeir eru að fjármagna en vita fátt eitt um. Erlent 7.2.2024 08:06
Móðir dæmd samsek fyrir skotárás sem sonurinn framdi í skóla Kviðdómur í Michigan í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona á fimmtugsaldri væri sek um manndráp af gáleysi, fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir það þegar sonur hennar skaut fjóra samnemendur sína til bana í gagnfræðaskóla í bæ þeirra. Erlent 7.2.2024 07:53
Laut í lægra haldi fyrir valkostinum „Enginn af þessum frambjóðendum“ Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, mátti þola mikla niðurlægingu í gær þegar forval fyrir forsetakosningarnar fór fram í Nevada í gær. Erlent 7.2.2024 07:23
Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. Erlent 7.2.2024 06:52