Erlent
321 322 323 324 325 326 327 328 329 … 334 ›
Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. Erlent 26.11.2021 08:40
Flugmaður sakaður um morð á tveimur Áströlum í gæsluvarðhald Flugmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna morða á eldri manni og eldri konu sem voru á tjaldferðalagi í Ástralíu og hurfu sporlaust fyrir tæpum tveimur árum. Erlent 26.11.2021 08:07
Frakkar aflýsa flóttamannafundi með Bretum vegna bréfs Johnsons Innanríkisráðherra Frakka hefur aflýst fyrirhuguðum fundi með kollega sínum frá Bretlandi þar sem ræða átti flóttamannamálin á Ermarsundi. Ástæðan mun vera bréf sem Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sendi Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem þess er krafist að Frakkar taki aftur við því fólki sem kemst yfir Ermarsundið til Bretlands. Erlent 26.11.2021 07:57
Bretar bregðast við nýju afbrigði kórónuveirunnar Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að setja takmarkanir á ferðamenn frá ákveðnum löndum í Suður-Afríku vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar. Flug frá tilgreindum löndum til Bretlands verður lagt niður. Erlent 25.11.2021 23:15
Rúmlega fimmtíu námuverkamenn í Síberíu taldir af Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tugir eru taldir af eftir eldsvoða í námu í Síberíu. Yfirvöld í Rússlandi hafa hætt leit vegna hættu á sprengingu í námunni. Erlent 25.11.2021 20:30
Fleiri fóru yfir Ermarsundið í dag og tala látinna hækkar Fleiri Farand- og flóttamenn hafa lagt leið sína yfir Ermarsundið við erfiðar aðstæður í dag. Það er degi eftir að minnst 27 drukknuðu eftir að loftið fór úr slöngubát þeirra á Ermarsundinu. Meðal þeirra sem dóu voru ólétt kona og minnst þrjú börn. Erlent 25.11.2021 16:38
Telja ekki ástæðu til að fagna þakkargjörðarhátíðinni Bandarískir frumbyggjar ætla að minnast þakkargjörðarhátíðarinnar í dag með því að koma saman í bænum Plymouth í Massachusetts þar sem enskir landtökumenn tóku fyrst land. Þar ætla þeir að syrgja aldalanga kynþáttahyggju og ofbeldi sem þeir hafa mátt þola. Erlent 25.11.2021 15:39
Ætla að banna helstu mannréttindasamtök Rússlands Rússneskir saksóknarar kröfðust þess í dag að hæstiréttur leysti upp ein helstu mannréttindasamtök landsins. Þau afhjúpuðu meðal annars voðaverk hersins í Téténíustríðunum og rannsaka kúgun andófsfólks í Sovétríkjunum. Erlent 25.11.2021 14:55
Tilnefnir Andersson á nýjan leik Forseti sænska þingsins hefur aftur tilnefnt Magdalenu Andersson, formann sænskra Jafnaðarmanna, sem nýjan forsætisráðherra landsins. Atkvæðagreiðslan mun fara fram í sænska þinginu næsta mánudag. Erlent 25.11.2021 14:41
Losun í Kína dróst saman í fyrsta skipti eftir efnahagsbatann Koltvísýringslosun í Kína dróst lítillega saman á þriðja ársfjórðungi en það er í fyrsta skipti sem það gerist eftir að efnahagslífið tók við sér eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Samdrátturinn er rakinn að hluta til minni byggingaframkvæmda og kolaskorts. Erlent 25.11.2021 14:21
Morðingjarnir hefðu líklega aldrei verið handteknir án myndbandsins Feðgarnir Greg og Travis McMichael og nágranni þeirra William Bryan voru í gær dæmdir sekir um morð. Það er fyrir að hafa elt og setið fyrir hinum 25 ára gamla Ahmaud Arbery í febrúar í fyrra. Erlent 25.11.2021 13:00
Meintur mannréttindabrjótur kjörinn forseti Interpol Undirhershöfðingi við innanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem er sakaður um pyntingar og gerræðislegar handtökur í heimalandinu var kjörinn forseti alþjóðalögreglunnar Interpol. Hann hefur verið kærður í fimm löndum. Erlent 25.11.2021 12:50
Lyfjastofnun Evrópu mælir með bólusetningu fimm til ellefu ára Lyfjastofnun Evrópu hefur gefið grænt ljós á að börn á aldrinum fimm til ellefu ára verði bólusett gegn Covid-19. Á leyfið þó einungis við um bóluefni Pfizer en þegar hefur notkun þess verið heimiluð öllum tólf ára og eldri. Erlent 25.11.2021 12:02
Ætla ekki að verða við kröfu Kína og fjarlægja strandað skip í Suður-Kínahafi Ríkisstjórn Filippseyja ætla ekki að fjarlægja gamalt herskip sem er strand á rifi í Suður-Kínahafi, eins og Kínverjar krefjast. Her Filippseyja hefur notað skipið sem varðstöð á yfirráðasvæði landsins í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til. Erlent 25.11.2021 10:48
Squid Game smyglari dæmdur til dauða Karlmaður, sem smyglaði afritum af vinsælu Netflix-þáttunum Squid Game til Norður-Kóreu, hefur verið dæmdur til dauða. Upp komst um manninn eftir að stjórnvöld gómuðu gagnfræðiskólanema við að horfa á þættina. Erlent 25.11.2021 10:13
James Webb fær heilbrigðisvottorð eftir uppákomu sem seinkaði geimskoti Verkfræðingar hafa nú lokið prófunum á James Webb-geimsjónaukanum og staðfest að allt sé til reiðu að skjóta honum út í geim í næsta mánuði. Ákveðið var að fresta geimskotinu um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning á dögunum. Erlent 25.11.2021 09:44
Kelfing og bráðnun vegna sjávar aldrei meiri á Grænlandi Grænlandsjökull tapaði um 166 milljörðum tonna af ís frá september í fyrra til ágúst á þessu ári, tuttugasta og fimmta árið í röð sem jökullinn tapaði meiri ís en hann bætti við sig. Aldrei hefur verið meira massatap vegna kelfingar og bráðnun af völdum hlýsjávar en í ár. Erlent 25.11.2021 09:14
Mildaður dómur í barnaníðsmáli vekur reiði Áfrýjunardómstóll á Indlandi hefur mildað dóm yfir manni sem var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa neytt tíu ára dreng til að hafa við sig munnmök. Dómurinn féll degi áður en hæstiréttur landsins felldi úr gildi dóm þar sem maður hafði verið sýknaður af kynferðisbrotum gegn tólf ára stúlku þar sem „húð mætti ekki húð“. Erlent 25.11.2021 08:42
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. Erlent 25.11.2021 07:25
Hafa áhyggjur af nýju og mikið stökkbreyttu afbrigði SARS-CoV-2 Vísindamenn fylgjast nú vel með nýju afbrigði SARS-CoV-2, sem hefur 32 stökkbreytingar á bindiprótíni (e. spike protein) og er mögulega betur í stakk búið en önnur afbrigði veirunnar til að komast framhjá ónæmisvörnum líkamans. Erlent 25.11.2021 06:59
MeToo mætt af hörku í Kína Yfirvöld í Kína hafa mætt MeToo hreyfingunni af hörku. Þegar tennisstjarnan Peng Shuai sakaði einn af valdamestu mönnum Kommúnistaflokks Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, og hvarf í kjölfarið, vakti það gífurlega athygli á heimsvísu. Erlent 24.11.2021 22:00
Tugir flóttamanna fórust á Ermarsundi í morgun Að minnsta kosti þrjátíu flóttamenn létu lífið á Ermarsundi eftir að bátur þeirra sökk nærri Calais í Frakklandi. Um fimmtíu voru um borð í bátnum og einhverra er enn leitað. Aldrei hafa fleiri flóttamenn látið lífið á Ermarsundi. Erlent 24.11.2021 21:47
Engar ákærur vegna smita í skíðabænum Ischgl Saksóknari hefur tekið ákvörðun um að ákæra ekki vegna fjölda Covid-smita í skíðabænum Ischgl í Austurríki. Níu einstaklingar, þar af fjórir embættismenn, höfðu verið til rannsóknar eftir þúsundir ferðamanna smituðust af kórónuveirunni í bænum. Erlent 24.11.2021 20:44
Þremenningarnir sakfelldir fyrir morðið á Ahmaud Arbery Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæpi og morð, fyrir að hafa skotið hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery til bana vegna litarháttar hans. Erlent 24.11.2021 19:02
Tólf ákærðir vegna Kardashian ránsins í París Tólf hafa verið ákærðir vegna ráns sem framið var í íbúð raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian í París árið 2016. Rannsókn málsins hefur tekið rúmlega fimm ár en yfirvöld í Frakklandi gefa ekki upp hvenær til standi að taka málið til meðferðar. Erlent 24.11.2021 18:34
Andersson segir af sér eftir sjö tíma í embætti Magdalena Andersson hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar eftir sjö tíma í embætti. Þetta gerir hún í kjölfar þess að Græningjar tilkynntu að þeir segi skilið við ríkisstjórn landsins eftir að fjárlagafrumvarp borgaralegu flokkanna á þingi, stjórnarandstöðuflokkanna, náði fram að ganga á þinginu í dag. Erlent 24.11.2021 16:31
Senda hundruð Talibana gegn Íslamska ríkinu Talibanar ætla að auka á þrýsting þeirra gegn Íslamska ríkinu í Afganistan. Hundruð Talibana hafa verið sendir til austurhluta landsins þar sem þeir eiga að herja á vígamenn ISIS. Erlent 24.11.2021 16:19
Faldi milljónir á klósettinu í forsetahöllinni Jafnvirði rúmlega 2,6 milljóna íslenskra króna fannst falið á baðherbergi skrifstofustjóra forseta Perú í forsetahöllinni í Lima þegar saksóknarar gerðu húsleit þar fyrir helgi. Skrifstofustjórinn er til rannsóknar fyrir spillingu og sagði af sér á föstudag. Erlent 24.11.2021 15:49
Kóralrifið í blóma eftir mikla fölnun Vísindamenn sem fylgjast með Kólalrifinu mikla undan ströndum Ástralíu fagna nú að það stendur í blóma eftir ítrekuð fölnunartímabil sem ógnuðu lífi stórs hluta þess. Hrygningartímabil hófst í gærkvöldi sem gæti staðið í tvo til þrjá daga. Erlent 24.11.2021 15:00
Áhersla á „grænt hagkerfi“ í stjórnarsáttmála nýrrar Scholz-stjórnar Þýski Jafnaðarmaðurinn Olaf Scholz mun gegna embætti kanslara í nýrri ríkisstjórn Jafnaðarmanna, Græningja og Frjálslyndra demókrata í Þýskalandi. Stjórnarsáttmáli var kynntur til sögunnar í dag eftir um tveggja mánaða viðræður – sáttmáli sem verður nú lagður fyrir flokksstofnanir til samþykktar. Erlent 24.11.2021 14:46
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent