Erlent
298 299 300 301 302 303 304 305 306 … 334 ›
Vill selja bíla mótmælenda í Ottawa Jim Watson, borgarstjóri Ottawa höfuðborgar Kanada, segist vilja selja bíla sem yfirvöld hafa lagt hald á við lögregluaðgerðir gegn mótmælendum í borginni. Lögreglan hefur á undanförnum dögum stöðvað mótmælin eftir að neyðarástandi var lýst yfir. Erlent 20.2.2022 17:02
Rannsaka salmonellusýkingu í Evrópu - hópsýking kom upp á Íslandi á sama tíma Grunur leikur á að uppruna hundruða salmonellusýkinga á meginlandi Evrópu megi rekja til þriggja eggjabúa á Spáni. Umfangsmikil rannsókn stendur yfir, en tilkynnt hefur verið um smit í sex löndum. Hópsýking á salmonellu kom upp á Íslandi í fyrrahaust, á sama tíma og fyrstu tilfellanna varð vart á meginlandinu. Erlent 20.2.2022 14:31
Elísabet Bretadrottning með Covid Elísabet Bretadrottning hefur greinst með kórónuveiruna. Í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni segir að hún sé með væg kvefeinkenni eins og er. Erlent 20.2.2022 12:15
Fannst á lífi eftir 53 tíma um borð í logandi skipi Einn af tólf farþegum sem saknað var eftir að eldur kviknaði um borð í farþegaskipi fannst á lífi í morgun, 53 klukkustundum eftir að eldurinn kviknaði. Björgunaraðilar vonast til þess að hinir séu einnig á lífi. Erlent 20.2.2022 11:37
Segir Pútín hyggja á mesta stríð Evrópu frá 1945 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sé að undirbúa mesta stríð Evrópu frá 1945. Þar að auki sé útlit fyrir að þær áætlanir séu þegar komnar af stað. Erlent 20.2.2022 10:12
Samstarfsmaður Epstein fannst látinn í fangaklefa Franski tískumógúllinn Jean-Luc Brunel fannst látinn í fangaklefa sínum í París í gær. Brunel var náinn vinur bandaríska auðkýfingins og kynferðsibrotamannsins Jeffrey Epstein. Hafði Brunel verið handtekinn í tengslum við rannsókn franskra yfirvalda á kynferðisbrotum Epstein. Erlent 20.2.2022 08:08
Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi á næstu dögum og hefði hörmulegar afleiðingar, að mati leiðtoga sem sótt hafa öryggisráðstefnu í Munchen í dag. Íslenskur sérfræðingur segir ómögulegt að segja til um hvað Pútín ætli sér. Erlent 19.2.2022 20:50
Sökuð um spillingu í upphafi Covid farsóttarinnar Forseti heimastjórnarinnar í Madrid er sökuð um að hafa látið heilbrigðisyfirvöld í höfuðborginni kaupa sóttvarnagrímur fyrir andvirði 200 milljónir króna af fyrirtæki besta vinar síns og bróður síns og fullyrt er að bróðir hennar hafi hagnast um andvirði 40 milljóna króna á viðskiptunum. Erlent 19.2.2022 14:30
Aðskilnaðarsinnar setja á almenna herkvaðningu Leiðtogar aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu, sem studdir eru af Rússlandi, hafa lýst yfir allsherjar herkvaðningu í Donetsk og Luhansk. Í gær tilkynntu þeir að almennir borgarar yrðu fluttir úr héruðunum og til Rússlands. Erlent 19.2.2022 10:32
Hvert áfallið á fætur öðru hjá Trump Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna hefur staðfest að Donald Trump, fyrrverandi forseti, tók leynileg gögn með sér þegar hann flutti úr Hvíta húsinu til Flórída í byrjun árs í fyrra. Trump hefur orðið fyrir hverju lagalegu áfallinu á fætur öðru í vikunni. Erlent 19.2.2022 09:48
Földu hernaðarleyndarmál í samloku og tyggjópakka og reyndu að selja Bandarísk hjón hafa verið dæmd í fangelsi fyrir að hafa reynt að selja hernaðarleyndarmál um bandaríska kjarnorkukafbáta til erlends ríkis. Eiginmaðurinn faldi gagnakort sem geymdi trúnaðarskjöl meðal annars inn í samloku og tyggjópakka. Erlent 19.2.2022 08:25
Minnst níu hafa látist af völdum Eunice í Evrópu Í fyrsta sinn í sögunni var rauð viðvörun gefin út í Lundúnarborg í dag vegna stormsins Eunice sem gekk yfir Bretlandseyjar og meginland Evrópu. Að minnsta kosti fjórir hafa látist á Bretlandseyjum og fimm á meginlandinu. Erlent 18.2.2022 23:52
Sannfærður um að Pútín hafi ákveðið að ráðast inn í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín þegar hafa ákveðið að gera frekari innrás í Úkraínu, meðal annars inn í höfuðborgina Kænugarð. Erlent 18.2.2022 23:08
Blinken segir Vesturlönd standa saman hvað sem Putin geri Stjórnvöld í Rússlandi hvetja rússneskumælandi Úkraínumenn til að flýja austurhéruð landsins yfir til Rússlands og heita þeim stuðningi. Sendiherra Rússlands er vonsvikinn yfir því sem hann kallar einhliða stuðning forseta Íslands og utanríkisráðherra við málstað Úkraínu. Erlent 18.2.2022 19:20
Leiðtogar aðskilnaðarsinna skipa borgurum að flýja til Rússlands Denisi Pushilin, leiðtogi aðskilnaðarsinna Donetsk í austurhluta Úkraínu, tilkynnti í dag að almennir borgarar héraðsins yrðu fluttir til Rússlands. Leiðtogar Lunhansk, hins héraðsins þar sem aðskilnaðarsinnar sem studdir eru af Rússum stjórna, hafa einnig tilkynnt að flytja eigi íbúa á brott. Erlent 18.2.2022 15:35
Kýldi 65 ára mann ítrekað í andlitið við handtöku og ákærður fyrir líkamsárás Lögregluþjónn var í vikunni ákærður í Flórída í Bandaríkjunum fyrir líkamsárás, eftir að hann sló 65 ára gamlan svartan mann ítrekað í andlitið við handtöku. Þá setti lögregluþjónninn hné sitt á andlit mannsins, þegar búið var að handjárna hann. Erlent 18.2.2022 15:06
Fönguðu stærðarinnar sólblossa á filmu Nokkrir gervihnettir sem beint er að sólinni greindu á þriðjudaginn stóran sólblossa eða sólgos. Hann er einn sá stærsti sem hefur nokkurn tímann verið fangaður á filmu en blossinn náði milljónir kílómetra út í sólkerfið. Erlent 18.2.2022 13:38
Rússar æfa notkun kjarnorkuvopna Ráðamenn í Rússlandi tilkynntu í morgun að halda ætti umfangsmikla kjarnorkuvopnaæfingu þar í landi um helgina. Æfingarnar hefjast á morgun en samkvæmt yfirlýsingu frá Varnarmálaráðuneyti Rússlands munu þær meðal annars fela í sér að skjóta eldflaugum sem geta borið kjarnorkuvopn á loft. Erlent 18.2.2022 12:03
Tæplega þrjú hundruð í björgunarbátum eftir að kviknaði í ferju á Miðjarðarhafi 288 voru um borð í ferju, sem kviknaði í á leiðinni frá Grikklandi til Ítalíu í morgun. Gríska landhelgisgæslan segir að allir farþegar séu öryggir um borð í björgunarbátum. Erlent 18.2.2022 09:07
Leiðtogar mótmælanna í Kanada handteknir Lögreglan í kanadísku höfuðborginni Ottawa hefur handtekið tvo einstakling sem sagðir eru leiðtogar mótmælanna sem verið hafa í borginni síðustu vikur. Erlent 18.2.2022 07:47
Milljónum sagt að halda sig heima vegna veðurofsa á Bretlandseyjum Milljónum manna á Bretlandseyjum hefur verið sagt að halda sig innandyra en von er á einu mesta óveðri síðari tíma. Óveðrinu, sem fengið hefur nafnið Eunice, geta fylgt vindhviður sem ná fjörutíu metrum á sekúndu. Erlent 18.2.2022 07:28
Hafi verið að verja sjálfan sig þegar hann skaut níu ára stelpu til bana Verjendur karlmanns sem er sakaður um að hafa skotið níu ára stúlku segja hann einungis hafa verið að verja sjálfan þegar hann skaut í áttina að ræningja sem ógnaði honum með byssu. Erlent 18.2.2022 00:05
Lögreglan hótar tafarlausum aðgerðum gegn mótmælendum Lögreglan í Ottawa í Kanada segja aðgerðir gegn mótmælendum þar í borg yfirvofandi. Mótmælendum hafa nú verið sagt að yfirgefa svæðið ella sæta handtöku. Erlent 17.2.2022 23:40
Segja Rússa nær því að gera innrás í Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir enn líklegt að Rússar ætli sér að ráðast á Úkraínu og að það gæti gerst á næstu dögum. Þá segja Rússar að þeir neyðist til að bregðast við, verði kröfum þeirra ekki svarað, kröfum sem hefur þegar verið hafnað. Erlent 17.2.2022 16:30
Flytja alla hermenn frá Malí vegna versnandi samskipta við herstjórnina Franskir hermenn og bandamenn þeirra munu yfirgefa Malí eftir nærri því tíu ára baráttu við vígamenn íslamista þar og í öðrum ríkjum Vestur-Afríku. Ástæðan er versnandi pólitískt samstarf með herstjórn Malí sem tók þar völd árið 2020. Erlent 17.2.2022 14:58
Breskum manni banað af hákarli í Ástralíu Maðurinn sem dó í hákarlaárás í Sydney í Ástralíu í gær var 35 ára Breti. Hann hét Simon Nellist og bjó í Ástralíu þar sem hann starfaði við að kenna köfun. Breskir miðlar segir Nellist hafa verið að æfa sig fyrir góðgerðasund þegar hákarl réðst á hann. Erlent 17.2.2022 12:59
Saka hvora aðra um að brjóta gegn vopnahléi Stjórnarher Úkraínu segir aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins hafa skotið sprengjum að leikskóla. Aðskilnaðarsinnarnir, sem eru studdir af Rússlandi, segja stjórnarherinn hafa skotið sprengjum á þá fyrst. Erlent 17.2.2022 12:05
Kalla enn eftir því að losna við konur og börn Íslamska ríkisins Þremur árum eftir fall kalífadæmis Íslamska ríkisins eru tugir þúsunda fyrrverandi meðlima hryðjuverkasamtakanna enn í búðum og fangelsum sem sýrlenskir Kúrdar reka í norðausturhluta landsins. Að miklu leyti er um erlenda vígamann að ræða og eiginkonur þeirra og börn sem heimaríki þeirra vilja ekki taka við á nýjan leik. Erlent 17.2.2022 10:40
Bakarísferð fjármálaráðherra Færeyja varð honum að falli Jørgen Niclasen, fjármála- og samgönguráðherra Færeyja, hefur sagt af sér embætti eftir að hann var gripinn af lögreglu fyrir ölvunarakstur. Erlent 17.2.2022 10:33
Skírði sóknarbörnin vitlaust í sextán ár Kaþólskur prestur í Arizona í Bandaríkjunum gerði reginmistök við störf sín í sextán ár. Hann skírði sóknarbörnin vitlaust og telur kaþólska kirkjan nú að allir þeir sem hann skírði séu ekki skírðir í Guðs augum. Erlent 17.2.2022 08:32