Erlent
143 144 145 146 147 148 149 150 151 … 334 ›
Björgunaraðgerðum lokið og nær 300 sagðir látnir Tala staðfestra dauðsfalla í kjölfar lestarslyssins í Odisha-ríki í Indlandi í gær hefur hækkað upp í yfir 260 manns. Björgunaraðgerðum á slysstað er lokið og um þúsund manns eru sagðir slasaðir. Erlent 3.6.2023 10:58
Úkraínumenn tilbúnir til að hefja gagnsóknina Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn tilbúna til gagnsóknar gegn Rússum. Hann segir að sóknin verði erfið og kostnaðarsöm en hann hafi trú á því að hún muni heppnast, þó hún gæti tekið langan tíma. Erlent 3.6.2023 09:22
Tvö hundruð látnir hið minnsta í lestarslysi Að minnsta kosti 207 manns létust í lestarslysi í Odisha-ríki á austur-Indlandi í dag þegar þrjár lestar skullu saman. Erlent 2.6.2023 23:36
Leyniskjöl Trump finnast ekki Lögfræðiteymi Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, segist ekki finna leynileg skjöl sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu. Alríkissaksóknarar komust yfir hljóðupptöku þar sem Trump heyrist ræða um þessi leyniskjöl. Erlent 2.6.2023 20:24
Hundruð fórnarlamba kaþólskra presta á Spáni Rannsókn kaþólsku kirkjunnar á Spáni á misnotkun presta og annarra þjóna kirkjunnar á börnum hefur afhjúpað 728 meinta gerendur og 927 fórnarlömb frá fimmta áratug síðustu aldar. Meira en helmingur meintra gerenda voru prestar en flest brotin áttu sér stað á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum. Erlent 2.6.2023 15:44
Ný gögn varpa ljósi á hinstu daga Epsteins Jeffrey Epstein þjáðist af svefnleysi og átti erfitt með að aðlagast lífi í fangelsi áður en hann svipti sig lífi árið 2019. Hann var skilinn eftir einn í klefa og fangaverðir trössuðu að fylgjast með honum þrátt fyrir að hann hefði reynt að hengja sig skömmu áður. Erlent 2.6.2023 10:15
Öldungadeildin samþykkti frumvarpið um hækkun skuldaþaksins Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti frumvarp um hækkun skuldaþaks bandaríska ríkisins í nótt. Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur sagst nú munu staðfesta frumvarpið þannig að koma megi í veg fyrir greiðslufall bandaríska ríkisins. Erlent 2.6.2023 06:38
Umfangsmikil eldflaugaárás á Kænugarð í morgun Íbúar um gervalla Úkraínu vöknuðu upp við loftvarnaflautur snemma í morgun vegna umfangsmikillar árásar Rússa og fólki sagt að leita skjóls. Erlent 2.6.2023 06:35
Tæmdi uppistöðulón til að finna símann sinn Indverskur embættismaður hefur verið sektaður um það sem nemur 90 þúsund krónum fyrir að tæma uppistöðulón í Chattisgarh-héraði á Indlandi. Það gerði hann í leit að farsíma sínum sem hann fann að lokum. Erlent 1.6.2023 22:42
Óttast kínverskar eldflaugar Æðstu menn herafla Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að herstöðvar ríkisins í Kyrrahafinu séu berskjaldaðar gagnvart kínverskum eldflaugum. Unnið er að því að dreifa úr vopnum, vistaverum hermanna, stjórnstöðvum og öðrum hergögnum til að gera eldflaugaárásir erfiðari. Erlent 1.6.2023 22:30
Biden féll á sviði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, féll á sviði í Colorado í kvöld, þar sem verið var að útskrifa fólk úr skóla flughers Bandaríkjanna. Forsetann sakaði ekki. Erlent 1.6.2023 21:29
Úkraínuforseti segir stund ákvarðana runna upp Forseti Úkraínu segir Evrópuríki sem eiga landamæri að Rússlandi einungis hafa um tvennt að velja; opið stríð og hægfara hernám Rússa eða aðild að NATO og Evrópusambandinu. Nú væri stund ákvarðana varðandi aðild landsins að þessum samtökum runnin upp. Forsætisráðherra segir mikinn vilja meðal NATO ríkja að leiðtogafundur þess marki tímamót varðandi Úkraínu. Erlent 1.6.2023 19:20
Stærsti „garðúðari“ sólkerfisins við Satúrnus Hátt í tíu þúsund kílómetra langur vatnsstrókur frá Enkeladusi, ístungli Satúrnusar, sést teygja sig um reikistjörnukerfið eins og gusa úr garðúðara á nýlegum myndum James Webb-sjónaukans. Aldrei áður hefur slíkur strókur sést spanna svo miklar vegalengdir. Erlent 1.6.2023 15:18
Ætla að takmarka aðgang Rússa að færeyskum höfnum Færeyska heimastjórnin ætlar að takmarka aðgang rússneskra skipa að höfnum á eyjunum og banna viðgerðir á þeim nema í neyðartilfellum. Þá ætlar hún að ákveða það fyrir haustið hvort að umdeildur fiskveiðisamningur við Rússa verði framlengdur. Erlent 1.6.2023 14:04
Upptaka til af Trump ræða um leyniskjölin Bandarískir alríkissaksóknarar hafa komist yfir hljóðupptöku þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseti, heyrist ræða um leyniskjöl sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu. Orð Trump á henni benda til þess að hann hafi vitað að leynd ríkti yfir skjölunum, þvet á það sem hann hefur haldið fram opinberlega. Erlent 1.6.2023 09:09
Sextíu kornabörn látist við hræðilegar aðstæður Að minnsta kosti sextíu nýburar, kornabörn og ung börn hafa látist við hræðilegar aðstæður á munaðarleysingjahæli í súdönsku höfuðborginni Kartúm á undanförnum sex vikum. Erlent 1.6.2023 08:41
Ellefu ára stúlka í hópi látinna í eldflaugaárás á Kænugarð Ellefu ára stúlka, 34 ára móðir hennar og önnur 33 ára kona létust í eldflaugaárásum Rússa í Kænugarð snemma í morgun. Auk þess særðust tólf manns í árásunum. Erlent 1.6.2023 07:37
Samþykktu frumvarp um hækkun skuldaþaksins Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti með miklum meirihluta að hækka skuldaþak bandaríska ríkisins í nótt. Er talið að með þessi verði hægt að komast hjá greiðslufalli bandaríska ríkisins. Erlent 1.6.2023 06:40
„That 70s Show“ leikari dæmdur fyrir nauðgun Leikarinn Danny Masterson, sem er hvað þekktastur fyrir að leika í þáttunum That ’70s Show, sem nutu mikilla vinsælda um og eftir aldarmótin síðustu, hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga tveimur konum. Kviðdómendur komust ekki að niðurstöðu varðandi þriðju nauðgunina sem hann var ákærður fyrir. Erlent 31.5.2023 22:16
Armie Hammer ekki ákærður fyrir nauðgun Leikarinn Armie Hammer verður ekki ákærður fyrir nauðgun. Hann var sakaður um nauðgun árið 2021 en saksóknarar í Los Angeles hafa ákveðið að ákæra ekki vegna skorts á sönnunargögnum. Hammer hefur verið sakaður um ofbeldi, líkamlegt og kynferðislegt, af mörgum einstaklingum. Erlent 31.5.2023 21:32
Skipa Rússum að loka fjórum af fimm ræðismannsskrifstofum Yfirvöld í Þýskalandi hafa gert Rússum að loka fjórum af fimm ræðismannsskrifstofum þeirra þar í landi. Það er í kjölfar þess að ráðamenn í Rússlandi settu takmark á fjölda starfsmanna sendiráðs og ræðismannsskrifstofa Þjóðverja í Rússlandi. Erlent 31.5.2023 20:27
Ranglega sakaður um þjófnað og skotinn í bakið Eigandi bensínstöðvar í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum elti fjórtán ára dreng, sem hann grunaði ranglega um þjófnað í versluninni, og skaut hann til bana. Hann var ákærður fyrir morð þegar í ljós kom að táningurinn hafði verið skotinn í bakið. Erlent 31.5.2023 17:57
NATO sendir fleiri hermenn til Kósovó vegna óróa Um sjö hundruð hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins verða sendir til Kósovó og önnur liðsveit sett í viðbragðsstöðu vegna vaxandi óróa þar á undanförnum dögum. Tugir NATO-hermanna og heimamanna særðust í átökum í norðanverðu Kósovó á öðrum degi hvítasunnu. Erlent 31.5.2023 15:56
Christie sagður ætla að lýsa yfir framboði Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey og ráðgjafi Donalds Trump, er sagður ætla að lýsa yfir forsetaframboði í næstu viku. Stuðningsmenn Christie hafa hleypti nýrri pólitískri aðgerðanefnd af stokkunum til þess að styðja framboðið. Erlent 31.5.2023 12:05
Utanríkisráðherrann verður næsti forseti Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, verður næsti forseti Lettlands. Hann tekur við embættinu af Egils Levits sem hafði gegnt því frá árinu 2019. Erlent 31.5.2023 11:44
Ásakandi Bidens leitar skjóls í Rússlandi Kona á sextugsaldri sem sakaði Joe Biden Bandaríkjaforseta um kynferðisofbeldi í aðdraganda forsetakosninganna 2020 segist flutt til Rússlands og ætla að sækja um ríkisborgararétt þar. Hún segist upplifa sig öruggari í Rússlandi en heimalandinu. Erlent 31.5.2023 11:33
„Fjölskyldumeðlimur“ Charles Manson á rétt á reynslulausn Áfrýjunardómstóll í Kaliforníu í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona sem myrti hjón að fyrirskipan Charles Manson á 7. áratug síðustu aldar ætti rétt á reynslulausn. Konan hefur setið í fangelsi undanfarin fimmtíu ár og hefur ítrekað verið neitað um lausn gegn reynslu. Erlent 31.5.2023 09:04
Kínverjar þurfi að leiðrétta kynjahalla Sameinuðu þjóðirnar leggja til að Kína setji á kynjakvóta fyrir þingmenn og æðstu embættismenn landsins. Alvarlegur kynjahalli sé á stjórn landsins. Erlent 31.5.2023 07:45
Norður-Kóreumönnum mistókst að koma gervihnetti út í geim Tilraun stjórnvalda í Norður-Kóreu til að koma njósnagervihnetti á loft fóru út um þúfur í nótt. Honum var skotið upp með eldflaug en njósnagervihnötturinn lenti að endingu í hafinu. Erlent 31.5.2023 07:00
McCarthy stendur frammi fyrir uppreisn Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir mótmælum frá hægri sinnuðustu þingmönnum í þingflokki hans vegna samkomulags sem hann hefur gert við Joe Biden, forseta, um skuldaþakið svokallaða. Þingmönnunum þykir hann ekki hafa gengið nógu hart fram gegn Biden og náð fram þeim niðurskurði sem þeir vilja. Erlent 30.5.2023 22:36