Erlent
113 114 115 116 117 118 119 120 121 … 334 ›
Breti fannst látinn bundinn á höndum í Úkraínu Breskur fyrrverandi hermaður fannst myrtur, með hendur bundnar á bak aftur, í Úkraínu í ágúst. Hann hafði gengið til liðs við her Úkraínumanna til aðstoðar gegn Rússum. Erlent 9.9.2023 21:07
Senda tíu milljónir króna til Marokkó vegna skjálftans SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda að lágmarki tíu milljónir króna til neyðaraðstoðar í Marokkó. Söfnun hefur verið hrundið af stað. Erlent 9.9.2023 19:01
Ása opnar sig um lífið eftir handtökuna Ása Ellerup, eiginkona hins grunaða raðmorðingja Rex Heuermann, segir dagana eftir handtöku Heuermann hafa verið ólýsanlega. Hún hafi ekki vitað hvar hún væri. Ása þakkar almenningi fyrir veittan stuðning. Erlent 9.9.2023 17:34
Lögregla sprautaði vatni á aðgerðasinna Lögreglan í Haag í Hollandi beittu vatnssprautum á loftslagsaðgerðarsinna sem mótmæltu á hraðbraut skammt frá borginni í dag. Erlent 9.9.2023 17:03
Tilvistarkreppa ólífuolíunnar Ólífuuppskeran á Spáni hefur hrunið á undanförnum mánuðum vegna viðvarandi þurrka. Verð hefur hækkað upp úr öllu valdi og neytendur segjast þurfa að skera niður innkaup á annarri matvöru til að hafa efni á ólífuolíunni. Erlent 9.9.2023 14:45
„Fólk var hérna öskrandi og æpandi á göngunum úr hræðslu“ Yfir þúsund fórust þegar gríðarlegur jarðskjálfti að stærð 6,8 reið yfir í Atlasfjöllum í Marokkó seint í gærkvöldi. Íslendingur rétt utan við Marrakesh lýsir mikilli skelfingu þegar jörð tók að hristast. Hann sé ýmsu vanur þegar kemur að jarðskjálftum en skjálftinn í gær hafi verið sá allra stærsti sem hann hafi upplifað. Erlent 9.9.2023 13:39
Alræmdi strokufanginn handtekinn Strokufanginn Daniel Abed Khalife hefur verið handtekinn í London. Hans hafði verið leitað síðan á miðvikudagsmorgun eftir að í ljós kom að hann hafði sloppið úr fangelsinu HMP Wandsworth í suðvesturhluta höfuðborgar Bretlands. Erlent 9.9.2023 11:19
Rúmlega áttahundruð látnir eftir jarðskjálfta í Marokkó Rúmlega áttahundruð manns eru látnir, og meira en þrjúhundruð særðir eftir jarðskjálfta sem reið yfir í gærkvöldi í Marokkó. Erlent 9.9.2023 08:08
Mjög öflugur jarðskjálfti reið yfir í Marokkó Jarðskjálfti 6,8 að stærð reið yfir í Marokkó í kvöld. Skjálftinn átti upptök sín á 18,5 kílómetra dýpi, í um 56 kílómetra vestur af Oukaimeden. Skjálftinn fannst vel í Marrakesh. Erlent 8.9.2023 23:51
Þrjár milljónir í fundarlaun fyrir strokufangann Löggæsluyfirvöld í Bretlandi bjóða tuttugu þúsund pund, eða rúmar þrjár milljónir, fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku manns sem strauk úr fangelsi í vikunni. Gríðarmikil leit hefur staðið yfir síðustu daga, mest í Lundúnum en raunar um gjörvallt land. Erlent 8.9.2023 21:47
Lögðu einnig til að ákæra Lindsay Graham og fleiri Meðlimir svokallaðs ákærudómstóls í Georgíu í Bandaríkjunum lögðu til að töluvert fleiri yrðu ákærðir með Donald Trump fyrir að reyna að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Trump og átján aðrir hafa verið ákærðir en einnig var lagt til að Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, Kelly Loeffler og David Perdu, fyrrverandi öldungadeildarþingmenn, og Micheal Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, yrðu ákærð vegna málsins. Erlent 8.9.2023 16:49
Tíu látnir í flóðunum í Grikklandi og fleiri saknað Tala látinna í flóðunum í Grikklandi hækkar enn. Nú eru tíu taldir af og fjögurra til viðbótar er saknað. Björgunarlið flytur enn hundruð íbúa þorpa á hamfararsvæðinu burt með þyrlum og bátum. Erlent 8.9.2023 15:48
Sjósettu kafbát sem borið getur kjarnorkuvopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður Kóreu opinberaði í vikunni nýjan kafbát sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Kóreumenn hafa lengi unnið að þróun slíkra kafbáta. Erlent 8.9.2023 15:10
Barist um Wagner-veldið Eftir að rússneski auðjöfurinn og stríðsherrann Jevgení Prígósjín dó í Rússlandi í síðasta mánuði hafa mismunandi fylkingar í Rússlandi barist um yfirráð yfir viðskiptaveldi hans. Barátta þessi fer fram í þremur heimsálfum en verðmætasti hluti veldis Prígósjíns var í Afríku. Erlent 8.9.2023 12:45
Ár frá andláti Elísabetar og Karli vegnar bara nokkuð vel Ár er liðið frá því að Karl III tók við konungstigninni af móður sinni Elísabetu II Bretadrottningu, við fráfall hennar hinn 8. september 2022. Karl virðist hafa tekist nokkuð vel að feta í fótspor móður sinnar en nýtur engu að síður töluvert minni vinsælda. Erlent 8.9.2023 11:32
Tugir borgara féllu í árás hryðjuverkamanna í Malí Herforingjastjórn Malí segir að 49 borgarar og fimmtán hermenn hafi fallið í árásum hryðjuverkamanna í norðurhluta landsins í gær. Hryðjuverkamenn sem tengjast al-Qaeda eru sagðir hafa ráðist á ferju nærri Timbuktu og á varðstöð í Gao-héraði. Erlent 8.9.2023 10:57
Handtökur á Kúbu vegna mansals til Rússlands Yfirvöld á Kúbu segjast hafa handtekið sautján manns sem tengjast mansalshring sem er sakaður um að tæla unga Kúbverja til þess að berjast fyrir hönd Rússlands í Úkraínu. Þeir handteknu gætu átt yfir höfði sér þunga fangelsisdóma eða jafnvel dauðarefsingu. Erlent 8.9.2023 09:15
Ráðgjafi Trump dæmdur fyrir að óhlýðnast þinginu Fyrrverandi viðskiptaráðgjafi Donalds Trump frá því að hann var Bandaríkjaforseti var fundinn sekur um að óhlýðnast Bandaríkjaþingi fyrir að neita að verða við stefnu í tengslum við rannsókn á árás stuðningsmanna Trump á þinghúsið. Hann bar fyrir sig trúnað við Trump. Erlent 8.9.2023 08:38
Mesta rigning í Hong Kong í 140 ár Gríðarlegar rigningar í Hong Kong og í fleiri borgum í suðurhluta Kína hafa framkallað mikil flóð víða en rigningin er sú mesta sem riðið hefur yfir svæðið í manna minnum. Erlent 8.9.2023 08:13
Segir málamiðlun ómögulega og að lokamarkmiðið sé tortíming Úkraínu Oleksii Reznikov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur hvatt til samstöðu gegn Rússlandi til að bjarga heimsbyggðinni frá þriðju heimsstyrjöldinni. Hann segir lokamarkmið Rússa að útrýma Úkraínu. Erlent 8.9.2023 07:55
Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður. Erlent 7.9.2023 19:10
Næsti forseti Mexíkós að öllum líkindum kona Allt útlit er fyrir að næsti forseti Mexíkós verði í fyrsta skipti kona eftir að tveir stærstu flokkar landsins tilnefndu konu sem frambjóðanda sinn. Misrétti og karlremba er þó enn almenn í mexíkósku samfélagi. Erlent 7.9.2023 15:50
Sanna Marin hverfur af þingi Sanna Marin, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, hefur sagt af sér þingmennsku. Sanna, sem hefur setið á þingi fyrir Jafnaðarmannaflokkinn, hefur ráðið sig í starf hjá Stofnun Tony Blair. Erlent 7.9.2023 15:37
Slökkti á Starlink fyrir árás Úkraínumanna Elon Musk, auðugasti maður heims, skipaði starfsmönnum sínum að slökkva á netþjónustu Starlink undan ströndum Krímskaga í fyrra. Það gerði hann til að stöðva leyniárás Úkraínumanna á rússneska flotann, þar sem notast var við dróna sem stýrt var með nettengingu í gegnum Starlink. Erlent 7.9.2023 14:56
Fundu vel varðveitt rómversk sverð í helli Fornleifafræðinar í Ísrael tilkynntu í gær að fjögur 1.900 ára gömul rómversk sverð hefðu fundist í helli nærri Dauðahafinu. Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir veruna í hellinum en auk þeirra fannst spjótsoddur, sem Rómverjar kölluðu pilum. Erlent 7.9.2023 11:21
Freista þess að tryggja að nafn Trump rati ekki á kjörseðla Sex kjósendur í Colorado í Bandaríkjunum hafa höfðað mál til að freista þess að koma í veg fyrir að nafn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og núverandi forsetaframbjóðanda, nái inn á atkvæðaseðilinn í ríkinu fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Erlent 7.9.2023 09:12
Boðar nýja ákæru á hendur syni Biden Sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins segist stefna að því að gefa út nýja ákæru á hendur Hunter Biden, syni Bandaríkjaforseta, fyrir lok þessa mánaðar. Biden hafði áður samþykkt að játa sig sekan um skatta- og skotvopnalagabrot en sáttinni var spillt í sumar. Erlent 7.9.2023 08:50
Gekkst undir fullt brjóstnám og greindist svo í annað sinn Ofurfyrirsætan Linda Evangelista hefur greint frá því að hafa tvívegis greinst með krabbamein og hafa gengist undir fullt brjóstnám. Hún segir horfurnar ágætar en ekki frábærar. Erlent 7.9.2023 07:36
Drónaárásir í Rússlandi og Úkraínumenn fá umdeild skotfæri Úkraínumenn eru sagðir hafa gert drónaárásir í nótt á rússnesku landsvæði. Erlent 7.9.2023 07:31
Þungunarrof afglæpavætt í Mexíkó Hæstiréttur Mexíkó fjarlægði í dag þungunarrof úr alríkishegningarlögum. Mikill fögnuður hefur orðið meðal Mexíkóbúa í kjölfarið. Erlent 7.9.2023 00:03