Veiði
125 126 127 128 129 130 131 132 133 … 133 ›
Veiðin að glæðast í Soginu Veiðin í Soginu hefur farið hægt af stað, en nú berast þær fréttir að laxinn sé mættur. Veiðimenn í Ásgarði tóku tvo laxa á sunnudag við Frúarstein og í gær landaði slyngur veiðimaður þremur löxum af Ystunöf. Veiði 6.7.2011 06:42
Styttist í opnun Setbergsár Árnefnd Setbergsár vinnur nú hörðum höndum að undirbúningi opnun árinnar. Áin opnar þann 15.júlí næstkomandi. Miklar lagfæringar hafa verið gerðar á veiðihúsinu, sem satt best að segja var orðið dálítið þreytt. Veiði 6.7.2011 06:40
Gljúfurá opnar vel eins og flestar ár á landinu Veiði hófst í Gljúfurá á föstudaginn síðastliðinn. Eftir sem við komumst næst veiddust sex laxar fyrstu þrjár vaktirnar. Veiði 3.7.2011 16:18
Norðurá komin í 400 laxa Það hefur mikið breyst við Norðurá undanfarna tvo daga. Veiðin hefur tekið mikinn kipp í kjölfarið á fyrstu alvöru laxagöngum sumarsins. Veiði 3.7.2011 16:15
Góð veiði í Veiðivötnum en þó lakari en í fyrra Föstudaginn 17. júní hófst veiði í Veiðivötnum en opnunin er ein sú rólegasta í nokkur ár. Það munar mestu um færri veidda fiska úr Litla Sjó en núna komu á land 1621 fiskur en 2735 í fyrra. Á engum mælikvarða er þetta slök veiði, bara minna en árið áður. Veiði 3.7.2011 07:14
Flott opnun í Breiðdalsá Breiðdalsá opnaði með stæl eftir hádegi í dag er veiði hófst í ánni. Sett var í 10 laxa á vaktinni en 6 náðust á land og voru þeir af stærðinni 7-12 pund. Veiði 2.7.2011 11:16
Tungufljót í Biskupstungum opnað í morgun Tungufljót opnaði í morgun og er bara bísna líflegt uppfrá, menn eru aðalega að setja í fisk og missa en það er mjög hvast og leiðindaveður þessa stundina. Félagarnir voru búnir að missa 5 laxa það sem af er að degi 2 í Faxa, 2 á fossbrotinu og 1 lax austan megin í Gljúfrinu. það verður spennandi að heyra í mönnum eftir seinni vaktina í dag hvort menn geti ekki látið laxinn tolla á stönginni. Veiði 1.7.2011 17:52
Svartá opnaði í morgun, komnir tveir á land. Við heyrðum í félögunum sem eru í Svartá í A-hún, en Svartá opnaði í morgun og náðu félagarnir 1 laxi fyrir framan veiðihúsið og mistu tvo í Ármótahyl á fyrstu vakt. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig gengur næstu daga en það er greinilega eitthvað af laxi í Ármótahyl. Veiði 1.7.2011 17:49
Ágætis gangur í Ytri Rangá Við heyrðum í Matthíasi veiðiverði í Ytri Rangá í morgun og sagði hann vera stígandi í veiðinni þessa dagana. Frá opnunardeginum hafa verið að koma 2-3 laxar á dag en í gær tók veiðin kipp og alls veiddust 9 laxar í gær, margir misstir og sáu menn töluvert af fiski. þess má geta að flestir laxanna voru lúsugir. Það er stórstreymi næstu daga og er þá hægt að gera ráð fyrir því að það muni koma töluvert af laxi næstu daga. Veiði 1.7.2011 12:22
94 sm hængur úr Laxá í Kjós Nú er enn eitt tröllið komið á land og nú úr Laxá í Kjós. Áætluð þyngd laxins var um 16 pund að sögn Gylfa Gauts Péturssonar, staðarhaldara í Kjósinni, en viðureignin tók alls um 45 mínútur. Veiði 30.6.2011 16:52
Stærsti lax sumarsins 25 pund úr Vatnsdalsá Þá er fyrsta tröllið komið á land í sumar. Laxinn mældist 104 sm og 12.5 kíló. Það var Björn K. Rúnarsson leiðsögumaður sem tók laxinn í Hnausa á fluguna Blue Belly númer 16. Hnausastrengur er frægur fyrir sína stórlaxa og það er klárt mál að þetta verður ekki eini laxinn í þessum stærðarflokki sem kemur upp úr þeim veiðistað í sumar en spurning hvort hann verður sá stærsti. Veiði 30.6.2011 16:43
Veiðisögur úr Blöndu og Víðidalsá Þórður Sigurðsson leiðsögumaður sendi okkur eftirfarandi rapport af veiðum norðan heiða, en þar er hann að leiðsegja þjóðverja sem er í annarri heimsókn sinni til landsins. Við gefum Þórði orðið: Veiði 30.6.2011 16:39
9 laxar á land í Hítará Hollið sem er við veiðar á aðalsvæði Hítarár þessa stundina er komið með 9 laxa á stangirnar fjórar. Allir eru þeir teknir í heimahyljunum. Veiði 30.6.2011 16:35
Veiði hafinn í Laxá í Dölum Veiði hófst í Laxá í Dölum í gærdag. Í morgun kom svo fyrsti laxinn á land, tíu punda hrygna úr Brúarstreng. Mjög fínt vatn er í ánni en kalt líkt og víða. Veiði 29.6.2011 17:50
Fjórir laxar fyrsta daginn í Bíldsfelli Opnunardagurinn í Bílsfelli var góður. Sett var í sex laxa í gær og var fjórum þeirra landað. Byrjunin lofar sem sagt góðu í Soginu. Veiði 29.6.2011 17:46
Fyrsti laxinn kominn úr Andakílsá Fyrsti laxinn kom úr Andakílsá í gær samkvæmt upplýsingum frá veiðimönnum. Var þar á ferðinni 82 cm hrygna sem veiddist um miðbik árinnar. Veiði 29.6.2011 00:01
Veiðisaga úr Blöndu Eins og við sögðum frá fyrr í dag þá er Blanda 1 að detta í 200 laxa, það telst svosem ekki neitt júnímet en er í góðu meðallagi. Eins og fyrri daginn er talsvert um að stórir fiskar séu að rétta upp króka og láta sig hverfa. Veiði 28.6.2011 21:00
Fréttir héðan og þaðan af veiðisvæðum Lax-Á Svæði 1 í Blöndu er að nálgast 200 laxana, voru komnir 191 á land í gær og e-ð bæst við síðan þá. Af svæði 3 er búið að skrá einhverja laxa en af svæðum 2 og 4 eru litlar fréttir. Líkast til hefur verið talsvert hark þar í kulda og leiðinda veðri. Veiði 28.6.2011 20:56
Engin lax gengin í Leirvogsá? Svo virðist sem að lax sé ekki genginn í Leirvogsá. Í það minnsta hefur enginn slíkur verið færður til bókar fyrstu þrjá daga tímabilisins. Veiði 28.6.2011 20:52
Góður gangur í Elliðaánum Í gærkveldi voru komnir 65 laxar á land úr Elliðaánum. Þetta samsvarar rúmlega tveimur löxum á hverja dagsstöng frá því að veiði hófst þann 21. júní. Veiði 28.6.2011 20:48
Laxinn mættur í Stóru Laxá Freyr H. Guðmundsson skyggndi Klaufina á svæði 4 í Stóru Laxá núna í gær og sá a.m.k. tvo laxa sem báðir voru 2ja ára. Laxinn er því greinilega mættur í Stóru og má búast við skemmtilegri opnun þar á morgun. Veiði 27.6.2011 10:20
Metopnun í Selá Selá opnaði í morgun og var metveiði miðað við fyrri opnanir, alls veiddust tuttugu laxar í ánni í dag og muna menn ekki annað eins! Veiði 26.6.2011 12:48
Flott opnun í Víðidalsá Eftir 2 vaktir eru a.m.k. 9 stórlaxar komnir á land í Víðidalsá og veiddist víðsvegar um ánna. Harðeyrarstrengur, Efri Garðar, Ármót og Laxapollur gáfu t.a.m. allir fiska og er víst talsvert af laxi í Laxapolli. Laxarnir sem komu á land voru allir á bilinu 80 – 85 cm að lengd og var öllum sleppt aftur enda sleppiskylda á stórlaxi í Víðidalnum. Veiði 26.6.2011 12:45
Miðfjarðará opnaði með 30 laxa holli Eins og við gátum um, þá var opnun Miðfjarðará afar góð og þegar upp var staðið hafði opnunarhollið landað 30 löxum á 6 stangir á tveimur og hálfum degi. Veiði 26.6.2011 12:41
Mögnuð veiði í Litluá í Keldum Veiði hefur verið með afbrigðum góð í Litluá í Kelduhverfi í allt vor og ekki síður það sem af er sumri. Framan var um blandaðan afla, sjóbirting, staðbundinn urriða og bleikju að ræða, en upp á síðkastið, aðalega urriði. Veiði 26.6.2011 12:38
Ytri Rangá endaði í 10 löxum á opnunardaginn Ytri Rangá opnaði í gær og komu 10 laxar á land víðsvegar um ána. Ægissíðufoss (ásamt Klöpp) var að venju sterkur og einnig Djúpós en þrír laxar komu upp af Rngárflúðunum og við munum hreinlega ekki eftir því að svo margir laxar hafi veiðst fyrir ofan foss í opnun. Veiði 25.6.2011 13:29
Ung og efnileg veiðikona með stórlax úr Elliðaánum Stórveiðikonan Hekla Sólveig Gísladóttir veiddi í gær, föstudag, stærsta laxinn sem fengist hefur í Elliðaánum í sumar. Hekla er 14 ára gömul og strax orðin vön veiðikona og hefur komið í Elliðaárnar áður og þekkir því nokkuð til. Veiði 25.6.2011 13:26
Laxveiðinámskeið Veiðiheims í Elliðaánum. Næstkomandi fimmtudag þann 30. júní fer fram laxveiðinámskeið í Elliðaánum. Farið verður yfir lífsferil laxa, veiðistaðalestur, allar helstu flugurnar, veiðiplanið og meðhöndlun á fiski. Einnig verður farið ítarlega yfir alla helstu veiðistaðina í Elliðaánum, bæði í myndum sem og gengið verður með neðri part ánna. Að loknum veiðistaðalestri verður svo farið í fluguköstin. Veiði 24.6.2011 13:08
Ein öflugasta flugan í göngulax Núna þegar laxinn er farinn að hellast í árnar er ágætt að taka fyrir eina gamla og góða flugu sem hefur reynst mönnum afskaplega vel við veiðar snemma á tímabilinu. Það er Collie Dog. Þessi fluga hefur verið mikið notuð hér á landi en notkun hennar þó minnkað mikið eftir að túbuvæðingin ýtti henni aðeins til hliðar. Veiði 24.6.2011 12:44
Fljúgandi start í Ytri Rangá Veiðar hófust í Ytri Rangá í morgun og laxinn var svo sannarlega mættur. Lax-á á er með sína fulltrúa á svæðinu, þá Stefán Pál Ágústsson og Stefán Sigurðsson. Stefán Sig var nú rétt í þessu að landa 12 punda hrygnu en nafni hans Ágústsson var enn fisklaus. Alls voru komnir 6 laxar á land en það er ein besta byrjun í Ytri Rangá í mörg ár. Veiði 24.6.2011 12:09