Fréttir
280 281 282 283 284 285 286 287 288 … 334 ›
Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði forsætisráðherra að því hvort það hafi verið með vilja og vitund ríkisstjórnarinnar, að utanríkisráðherra hafi farið til Georgíu og tekið þátt í mótmælum. Bjarni sagði Ísland og aðrar þjóðir sem þarna væru ekki taka afstöðu gegn þarlendum stjórnvöldum. Innlent 16.5.2024 17:33
Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Viktor Traustason forsetaframbjóðandi er afar ósáttur við að honum, sem og helmingi þeirra sem í forsetaframboði eru, sé ekki boðið til þátttöku í kappræðum Stöðvar 2 og hvetur til sniðgöngu. Innlent 16.5.2024 16:32
Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Skipstjóri skipsins Longdawn hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í nótt. Allt bendir til þess að fraktskipið hafi rekist í strandveiðibát manns sem lenti í sjónum en var naumlega bjargað. Auk skipstjórans eru tveir stýrimenn í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 16:16
Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Líkamsræktarþjálfari á rétt á bótum frá tryggingafélaginu Sjóvá vegna slyss sem hann varð fyrir í æfingasal líkamsræktarstöðvar árið 2021 þar sem hann var yfirþjálfari. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem komst að þessari niðurstöðu. Innlent 16.5.2024 16:11
Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í stöðu aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá og með 17. maí 2024, til fimm ára. Innlent 16.5.2024 15:56
Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Valdimar O. Hermannsson hefur verið ráðinn sem sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið. Sveitastjórn hreppsins samþykkti ráðninguna á fundi í gær 15. maí. Innlent 16.5.2024 15:05
Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Tekist var á um bók sem forsætisráðuneytið í samstarfi við Forlagið hyggst gefa út um fjallkonuna á þingi í dag. Inga Sæland spurði hvort til stæði að rífa formálann úr í hvert skipti sem nýr forsætisráðherra sest í stólinn? Innlent 16.5.2024 15:04
Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Þórey Einarsdóttir hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga. Þórey hefur starfað í Konukoti, fyrsta og eina athvarfinu fyrir heimilislausar konur á Íslandi, frá opnun þess. Innlent 16.5.2024 14:57
Nafnið Hroði of hroðalegt Mannanafnanefnd birti í dag þrjá úrskurði sína þar sem tvö nöfn voru samþykkt og einni beiðni hafnað. Innlent 16.5.2024 14:23
Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem hvolfdi í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn. Sjálfur var hann nýkominn í land úr veiðitúr þegar Margrét Björk Jónsdóttir hitti hann í Sandgerði. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af. „Þetta fer ekki alltaf svona vel.“ Innlent 16.5.2024 14:18
Hver er Robert Fico? Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, er ekki lengur talinn vera í lífshættu eftir skotárás í gær, en lítið annað er meira um áverka og ástand hans. Hann er sagður hafa verið skotinn fimm sinnum. Grunaður árásarmaður er ljóðskáld á áttræðisaldri sem var handtekinn skömmu eftir verknaðinn. Erlent 16.5.2024 14:01
Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Kærunefnd útlendingamála hafði í upphafi maí á þessu ári 920 óafgreidd mál á sínu borði. Vegna þessa mikla fjölda hefur meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar lagt til tímabundna breytingu á fyrirhuguðum breytingum á útlendingalögunum. Innlent 16.5.2024 13:39
Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna skemmda á þeirri lögn sem flytur vatn til neyslu og húshitunar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 12:32
Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir að leiguverð sem fasteignafélagið Þórkatla hafi sett á seldar eignir í bænum alltof hátt - og alls ekki til þess fallið að fá fólk til að snúa aftur í bæinn. Hann reiknar ekki með að margir nýti sér úrræðið en fyrri eigendum húsanna býðst að leigja þau á 625 krónur fermetrann. Innlent 16.5.2024 11:42
Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Lögreglan rannsakar hvort erlent flutningaskip tengist því að að strandveiðibát hvolfdi norðvestur af Garðskaga í nótt. Manni var bjargað úr sjónum en litlu mátti muna að illa færi. Skemmdir á stefni flutningaskipsins benda til áreksturs. Innlent 16.5.2024 11:42
Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Ómar Torfason, meðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista, hefur kært stjórn kirkjunnar, þau Gavin Anthony, Jedel Oriel Ditta og Þóru Sigríði Jónsdóttur fyrir auðgunarbrot. Innlent 16.5.2024 11:39
Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Í hádegisfréttum verður rætt við upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar en Gæslan hefur stefnt flutningaskipi til hafnar í Vestmannaeyjum vegna gruns um að það hafi átt þátt í að strandveiðibátur sökk í gærkvöldi. Innlent 16.5.2024 11:36
Kvikusöfnunin áfram stöðug Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur áfram haldist stöðug og eru taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á næstu dögum. Líklegast er að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni og er fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Innlent 16.5.2024 11:23
Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum þar sem tekin var niður vefsíða, breachforums.is, sem var meðal annars notuð til að selja stolin gögn úr innbrotum í tölvukerfi. Innlent 16.5.2024 11:10
Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Neyðarástandi var lýst yfir á Nýju-Kaledóníu í gær en hundruð franskra lögreglumanna er á leið til eyjaklasans eftir miklar óeirðir þar sem fjórir hafa látið lífið og fjöldi slasast. Erlent 16.5.2024 11:07
Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Vegagerðin hefur hafnað öllum tilboðum sem þeim bárust þeim í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði í vetur. Opnað var fyrir tilboð þann 30. apríl, en þrjú tilboð bárust sem öll voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Til stendur að bjóða tilboðsaðilum til samningaviðræðna, en núgildandi samningur rennur út 30. ágúst 2024. Innlent 16.5.2024 10:46
Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að það sé ekki rétt að það sé til skoðunar hjá borginni að taka upp gjaldskyldu á notkun nagladekkja í höfuðborginni. Innlent 16.5.2024 10:45
„Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Sigurði Ágúst Sigurðssyni, formanni Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB), var hafnað sem stjórnarmanni á ársfundi Landssambands eldri borgara (LEB) i vikunni. Þetta er líklegt að dragi dilk á eftir sér. Það hriktir í stoðum landsambandsins. Innlent 16.5.2024 10:32
Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Utanríkisráðuneytið hefur lagt til að opnað verði sendiráð Íslands í Madríd á Spáni. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir ákall frá Íslendingum sem þar búa og þangað ferðast um að þeim sé betur sinnt. 25 Íslendingar létust á Spáni 2022 og þúsundir búa þar. Innlent 16.5.2024 08:53
Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Sundrung innan ríkisstjórnar Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, virðist nú vera að brjótast upp á yfirborðið en varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefur kallað eftir svörum um framtíð Gasa. Erlent 16.5.2024 07:52
Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Geert Wilders, leiðtogi hollenska popúlistaflokksins Frelsisflokksins, segir að fjórir hægriflokkar hafi loks náð saman um myndun nýrrar samsteypustjórnar. Wilders mun ekki gegna embætti forsætisráðherra í þeirri stjórn. Erlent 16.5.2024 07:46
Víða gola og dálítil væta Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag þar sem verður suðlæg eða breytileg átt. Víða má reikna með golu eða kalda og dálítilli vætu, en yfirleitt þurrt um landið austanvert. Veður 16.5.2024 07:18
Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Dregið hefur úr skjálftahrinunni við Sýlingarfell sem hófst í gærkvöldi. Innlent 16.5.2024 07:18
Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 16.5.2024 07:09
Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Mikil mildi var að rúmlega fertug kona slasaðist ekki lífshættulega þegar ekið var á kyrrstæðan bíl hennar á Suðurlandsvegi síðdegis á mánudag. Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem fyrir hendingu var í loftinu á æfingu þegar útkallið barst. Innlent 16.5.2024 07:00