Fréttir
232 233 234 235 236 237 238 239 240 … 334 ›
Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum. Erlent 26.5.2024 10:15
Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar. Innlent 26.5.2024 09:45
Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Lögregla mun mögulega í dag ræða við bílstjóra rútunnar sem valt á Rangárvallavegi við bæinn Stokkalæk í Rangárþingi ytra í gær. Rútan var á vegum Guðmundar Tyrfingssonar ehf. Um borð í rútunni voru 26 manns í hópferð. Allt Íslendingar. Innlent 26.5.2024 08:34
Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Fólk virðist víða hafa verið að skemmta sér í gær í höfuðborginni miðað við það sem kemur fram í dagbók lögreglunnar. Alls bárust níu hávaðakvartanir til lögreglu víða um borgina auk þess sem töluverður fjöldi var stöðvaður við akstur vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Innlent 26.5.2024 08:03
Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Í það minnsta tólf eru látin eftir loftárás Rússa á byggingavöruverslun í Karkív í gær. Tugir eru auk þess særðir. Saksóknari í Úkraínu sagði í morgun að fjöldi látinna myndi líklega hækka en tvær árásir voru gerðar á borgina í gær. Erlent 26.5.2024 07:50
Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni sem hann er sakaður um að hafa framið á heimili þeirra. Innlent 26.5.2024 07:30
Um 18 stig á Norðausturlandi í dag Í dag verður suðaustanátt og þrír til tíu metrar á sekúndu. Það væri verið skýjað og sums staðar lítilsháttar væta eða stöku skúrir en bjart með köflum norðaustanlands. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að þar sem að vindur er hægari í dag en í gær sé líklegt að hafgolan nái sér á strik á Norðausturlandi. Veður 26.5.2024 07:13
„Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Talsmaður íslenska náttúruverndarsjóðsins segir að fingraför Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hafi orðið sífellt meira áberandi við þróun frumvarps um lagaraeldi. Iðnaðurinn sé með allt niður um sig og stór meirihluti þjóðarinnar á móti honum. Innlent 25.5.2024 23:26
Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglíman, var haldin í Háskólanum í Reykjavík í dag. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til að kynna sér netöryggi og auka áhuga þess á því að starfa á þeim vettvangi. Formaður félagsins sem stendur að keppninni segir vöntun á yngra fólki. Innlent 25.5.2024 21:26
Allir um borð í rútunni Íslendingar Allir þeir 27 sem slösuðust þegar rúta valt á Rangárvallavegi nálægt Stokkalæk rétt fyrir 17 í dag eru Íslendingar. Áverkar á fólki voru mismunandi, frá minniháttar meiðslum upp í meiriháttar áverka, en allir voru fluttir á sjúrahús til aðhlynningar. Innlent 25.5.2024 20:49
Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Íslenskir brimbrettakappar hafa verulegar áhyggjur af áhugaleysi bæjarstjórnar í Ölfusi á áhrifum fyrirhugaðrar landfyllingar á einstaka öldu við Hafnarnesvita. Þeir óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar. Innlent 25.5.2024 19:53
Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, Geir H. Haarde og Jóhanna Sigurðardóttir, hafa lýst yfir stuðningi við Höllu Hrund Logadóttur til embættis forseta Íslands. Innlent 25.5.2024 18:59
Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Forstjóri Hagkaups segir áhyggjur af áformum um netsölu áfengis í verslun keðjunnar skiljanlegar að einhverju leyti. Þess vegna verði gerðar ítrustu kröfur til þeirra sem vilja versla þar áfengi, sem hann segir meiri en aðrir á áfengismarkaði geri. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 25.5.2024 18:02
Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Rútuslys varð í Rangárvallasýslu rétt fyrir klukkan fimm í dag. Hópslysaáætlun var virkjuð í kjölfarið. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út og fluttu sjö til Reykjavíkur. Allir farþegar rútunnar hafa verið fluttir af vettvangi. Innlent 25.5.2024 17:36
Lögreglan náði lausum grís Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um að grís eða lítið svín sem virðist hafa sloppið og hafnað í bakgarði í Kjarnagötu á Akureyri. Ekki liggur fyrir hver eigandi gríssins er eða þá hvernig grísnum tókst að sleppa. Innlent 25.5.2024 16:41
Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Rússneskar eldflaugar hæfðu stóra byggingarvöruverslun í Karkív fyrr í dag og ollu miklum skaða. Að minnsta kosti tveir létu lífið og myndefni frá vettvangi sýnir stærðarinnar eldsvoða loga í versluninni. Erlent 25.5.2024 15:50
Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Framkvæmdastjóri rannsóknafyrirtækisins Prósents segir að þrátt fyrir að boðið sé upp á að fólk skrái sig sjálft í könnunarhóp sem skoðanakannanir eru lagðar fyrir komist enginn þangað inn sjálfkrafa. Möguleikinn sé til staðar til að ná til hópa sem erfitt sé annars fá í hópinn. Innlent 25.5.2024 15:30
Halda áfram árásum á Rafah Í það minnsta þrjátíu manns hafa látið lífið í árásum Ísraelsmanna á Gasasvæðinu síðan alþjóðadómstóllinn í Haag skipaði Ísrael að stöðva innrás sína á Rafah á sunnanverðri Gasaströndinni. Erlent 25.5.2024 14:59
Líst illa á áfengissölu Hagkaups: „Ég tel bara að það þurfi að fara að lögum“ Heilbrigðisráðherra segir fyrirhugaða netsölu Hagkaups á áfengi vera klárt lögbrot. Dómsmálaráðherra segir það ekki rétt, netsala sé leyfileg í gegnum EES samninginn en setja þurfi skýran lagaramma um söluna. Innlent 25.5.2024 14:15
Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Mývetningar eru margir hverjir afar ósáttir með tilætlaða framkvæmd forsetakosninga í Þingeyjarsveit. Aðeins einn kjörstaður verður í sveitinni og verður hann í Félagsheimilinu Breiðumýri nálægt Laugum. Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir, íbúi á svæðinu segir segir fólk ekki ánægt. Innlent 25.5.2024 13:52
Enginn einn frambjóðandi augljós keppinautur Katrínar Prófessor í stjórnmálafræði segir nokkuð flókna stöðu vera að málast upp í aðdraganda forsetakosninga. Enginn einn frambjóðandi hafi markað sér stöðu sem augljós keppinautur Katrínar Jakobsdóttur. Innlent 25.5.2024 13:16
„Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“ Skjálftavirkni á Hengilssvæðinu er ekkert annað en strangheiðarleg jarðskjálftahrina, sem stafar sennilega af niðurdælingu frá Hellisheiðarvirkjum, að sögn sérfræðings. Fólk fylgist vel með vef Veðurstofunnar og því hafa vaknað spurningar um virknina. Innlent 25.5.2024 12:03
Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun Dómari við bandarískan dómstól hefur hafnað beiðni leikarans Alec Baldwin um að vísa frá ákæru um manndráp af gáleysi þegar Halyna Hutchins lést vegna voðaskots á tökustað myndarinnar Rust. Baldwin leikskýrði og lék í myndinni og hleypti skotinu af byssunni. Erlent 25.5.2024 11:56
Segir fyrirhugaða áfengissölu Hagkaups lögbrot og jarðskjálftahrina í Hengli Heilbrigðisráðherra segir fyrirhugaða netsölu Hagkaups á áfengi vera klárt lögbrot. Dómsmálaráðherra segir það ekki rétt, netsala sé leyfileg í gegnum EES samninginn en setja þurfi skýran lagaramma um söluna. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 25.5.2024 11:31
„Við munum vinna þennan slag“ Færeyingar búa við eina ströngustu löggjöf er varðar þungunarrof í Evrópu. Dönsk lög frá árinu 1956 gilda þar enn þrátt fyrir að danskar konur hafi getað síðan 1973 undirgengst þungunarrof af eigin frumkvæði til allt að tólftu viku meðgöngu. Hervør Pálsdóttir, þingflokksformaður Þjóðveldisflokksins og meðstjórnandi í samtökunum Frítt Val, frjálst val, segir núverandi lög stuðla að óöryggi og að færeyskar konur muni vinna þennan slag. Erlent 25.5.2024 10:51
Bjarkey kemur starfsfólki matvælaráðuneytisins til varnar Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, segir vegið að æru embættismanna í umræðu um breytingar á umgjörð um lagareldi á Íslandi. Hún geti ekki orða bundist og ítrekar að allt sé uppi á borði. Það hafi verið unnin vönduð og góð vinna sem skili sér í því frumvarpi sem sé til umræðu. Innlent 25.5.2024 10:18
Málþing um stöðluð greiningar- og meðferðarferli Í dag fer fram málþing um stöðluð greiningar- og meðferðarferli á milli klukkan 10 og 12 í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 4. hæð. Á málþinginu verður fjallað um ferlið allt frá því að grunur vaknar um krabbamein. Málþinginu er einnig í streymi hér að neðan. Innlent 25.5.2024 10:01
Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Breskir þingmenn kalla nú eftir því að farsímar verði alfarið bannaðir fyrir börn sem eru 16 ára og yngri og bannaðir alveg í skólum. Þá er einnig kallað eftir því að aðgangur að samfélagsmiðlum verði bundinn við sama aldur. Erlent 25.5.2024 08:53
Spá goslokum á Sundhnúksgígaröð í lok júlí Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur telja líklegt að öll virkni undir Sundhnúksgígaröðinni muni stöðvast í lok júlí á þessu ári. Þetta kemur fram á bloggi Haraldar en þar fer hann yfir þróun kvikugangsins frá því í nóvember 2023 þegar fyrsta eldgosið hófst. Innlent 25.5.2024 08:10
Sagður hafa slegið eiginkonu sína ítrekað með steikarpönnu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni, en meint brot áttu sér stað á heimili þeirra í Kópavogi árið 2022, þegar þau voru enn gift. Innlent 25.5.2024 08:01