Það sem við vitum og vitum ekki í máli Ásthildar Lóu Barnsfaðir Ásthildar Lóu Þórsdóttur var nýorðinn sextán ára og lögráða þegar barn kom undir. Forsætisráðuneytið segir engum trúnaði hafa verið heitið konunni sem vakti athygli á málinu þvert á fullyrðingar hennar. Konan segist nýverið hafa komist að því að Ásthildur Lóa væri konan sem átti barnið, verið misboðið og því sett sig í samband við ráðuneytið. Innlent 25.3.2025 10:19
Áföll hafa mótað Guðmund Inga: „Ég læt ekki valta yfir mig“ Guðmundur Ingi Kristinsson, sem tók um helgina við embætti mennta- og barnamálráðherra, hefur marga fjöruna sopið. Hann hefur mætt ýmsu mótlæti í gegnum tíðina, slysum sem leiddu til örorku og hefur verið lýst sem „sjálflærðum sérfræðingi“ en hann lauk ekki stúdentsprófi. Innlent 25.3.2025 08:02
Af hverju talar Áslaug Arna um „smjörklípumenn“? Þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins stóð í ritdeilum við Össur Skarphéðinsson í gær, kallaði hún Össur „þrautreyndan smjörklípumann.“ Íslenskum stjórnmálamönnum er enda tíðrætt um smjörklípur og smjörklípuaðferðir, gjarnan þegar erfið pólitísk mál eru í deiglunni. Lífið 23.3.2025 17:09
Ísland gæti orðið leiðandi í notkun hugvíkkandi efna Mikil og velheppnuð ráðstefna þar sem notkun hugvíkkandi efna í lækningaskyni fór fram um síðustu helgi. Þar talaði meðal annarra Rick Doblin sálfræðingur - afar þekktur meðal þeirra sem hafa gefið hugvíkkandi efnum í tengslum við meðferðarstarf gaum. Hann taldi Ísland hafa allt til að taka forystu á heimsvísu í þessum efnum. Og sá engin tormerki á því. Innlent 4. mars 2025 07:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sýndi á spilin fyrir viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vann líklega stóran sigur í gær. Hann gerði það ekki á víglínunni í Úkraínu eða í Kúrsk, heldur á alþjóðasviðinu og hafa málpípur hans fagnað ákaft. Erlent 13. febrúar 2025 14:11
Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Enginn veit hvað verður með meirihlutann í borgarstjórn eftir að Einar Þorsteinsson sleit meirihlutasamstarfinu í borginni. Afdráttar- og fordæmalaus yfirlýsing Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, hefur heldur betur sett strik í reikninginn. Eins og staðan er núna er líklegast að vinsælasti borgarfulltrúinn: Sanna Magdalena Mörtudóttir verði næsti borgarstjóri. Innlent 10. febrúar 2025 10:55
Framsókn nær andanum þökk sé óvæntri ákvörðun Þegar Einar Þorsteinsson borgarstjóri tilkynnti oddvitum meirihlutans í borginni í gærkvöldi að hann ætlaði að sprengja samstarfið var fullkomlega óljóst hvort hann héldi velli sem borgarstjóri eða yrði dæmdur til starfa í minnihluta. Hann gaf flokknum sínum aftur á móti nauðsynlegt súrefni. Innlent 8. febrúar 2025 18:24
Hvað gengur Trump til með tollum? Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill beita Kanada, Mexíkó og Kína umfangsmiklum tollum og segir tolla gegn Evrópu væntanlega á næstunni. Viðbrögð markaða hafa að mestu verið á einn veg, þar sem flest ljós loga rauð í kauphöllum heimsins. Erlent 3. febrúar 2025 11:40
„Líklegt að framganga Ingu liggi þungt á mörgum samráðherrum“ Henry Alexander Henrysson siðfræðingur telur skorta nokkuð uppá að Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, átti sig til fulls á því hvað felst í hinu nýja (ráðherra)hlutverki. Ársæll Guðmundsson skólastjóri Borgarholtsskóla fagnar afsökunarbeiðni Ingu. Innlent 28. janúar 2025 17:07
Klukkan tifar en kandídatar undir hnausþykkum feldi Þeir sem helst eru nefndir sem hugsanlegir frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins liggja nú undir hinum fræga feldi – hnausþykkum því vart mótar fyrir þeim þar undir. Innlent 15. janúar 2025 13:09
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Heimurinn er að breytast, hvað sem er getur gerst“ Væntanleg embættistaka Donalds Trump í Bandaríkjunum hefur enn áhrif á stríðið í Úkraínu en Trump hefur sagt að það gæti tekið sex mánuði að binda enda á átökin. Þá eru valdamiklir menn í Rússlandi sagðir óánægðir með það hvað dregið hefur úr stríðinu og þau slæmu áhrif sem það hefur haft á hagkerfi Rússlands. Erlent 11. janúar 2025 10:31
Græna „gímaldið“ við Álfabakka: Hvernig gat þetta gerst? Búið var að samþykkja að sameina fjórar lóðir við Álfabakka 2-4 í eina og gefa grænt ljós á kjötvinnslu á reitnum þegar gengið var frá úthlutun lóðarinnar og sölu byggingarréttar til félagsins Álfabakka 2 ehf. í júní 2023. Innlent 9. janúar 2025 06:17
Af hverju langar Trump í Grænland? Donald Trump, sem tekur aftur við embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar, hefur ítrekað talað fyrir því undanfarnar vikur að Bandaríkin „eignist“ Grænland. Landið gæti reynst stórveldinu Bandaríkjunum stór fengur í samkeppninni við Kína og Rússland en líklegt er að Trump sækist hvað mest eftir svokölluðum sjaldgæfum málmum. Erlent 8. janúar 2025 14:31
Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Nokkur nöfn hafa verið nefnd þegar talið berst að hugsanlegum arftaka Bjarna Benediktssonar sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni tilkynnti í dag að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins, en hann hefur verið formaður í tæp sextán ár og er einn þaulsetnasti formaður Sjálfstæðisflokksins í sögunni. Sjálfstæðismenn bæði innan og utan þingflokksins hafa verið orðaðir við embættið. Innlent 6. janúar 2025 17:30
Utan vallar: Þetta er að gerast aftur Sléttur áratugur er þar til heimsmeistaramót karla fer fram í Sádi-Arabíu. Það hefst að líkindum í desember 2034. En hvernig kom þetta til? Hvað gengur á hjá Sádum annars vegar og FIFA hins vegar? Hvernig getur verið að Sádar fái mótið án mótframboðs? Tilraun er gerð til að svara helstu spurningum sem málinu viðkoma hér að neðan. Fótbolti 15. desember 2024 08:32
Sýrlenska þjóðin á krossgötum: Hver er Abu Mohammed al-Jolani? Abu Mohammed al-Jolani er fyrirferðarmikill þessa dagana enda leiddi skyndisókn hans og bandamanna hans í gegnum varnir Aleppo, Hama og Homs í Sýrlandi til falls einræðisstjórnar sem hafði verið við völd í Sýrlandi í meira en hálfa öld. Þykir hann líklegur til að reyna að mynda nýja ríkisstjórn í Sýrlandi en hvort honum takist það og hvernig sú ríkisstjórn mun líta út er erfitt að segja til um. Erlent 9. desember 2024 11:13
Hver er Assad? Læknaneminn sem varð að einræðisherra Stjórn Bashar al-Assad í Sýrlandi var steypt af stóli í morgun af uppreisnarmönnum eftir borgarastríð sem hefur geisað þar í þrettán ár. Þar með lauk 24 ára valdatíð hans en jafnframt fimmtíu ára valdatíð Assad-fjölskyldunnar. Erlent 8. desember 2024 23:38
Mestu flokkaflakkararnir Minnkandi flokkshollusta í íslenskri pólitík og lítill munur á stefnumálum hefur gert það að verkum að stjórnmálamenn eru farnir að flakka í meiri mæli á milli flokka. En spurningin er hver er mesti flokkaflakkarinn? Innlent 30. nóvember 2024 02:05
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Úkraínumenn búast við enn umfangsmeiri árásum Rússa á næstu mánuðum í aðdraganda þess að Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, tekur aftur við völdum í lok janúar. Báðar fylkingar vilja styrkja stöðu sína áður en Trump kemur sér fyrir í Hvíta húsinu en hann hefur sagt að hann vilji binda skjótan enda á stríðið. Erlent 16. nóvember 2024 08:03
Vill sýna þinginu hver ræður Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur á dögunum opinberað hverja hann ætlar að tilnefna í nokkur mikilvæg embætti í ríkisstjórn sinni. Þrjár af þessum tilnefningum eru umdeildari en aðrar og er Trump sagður mana þingmenn Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni til að standa í vegi sér. Erlent 14. nóvember 2024 13:33
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Eftir að hafa verið 25 stigum á eftir Víkingi í fyrra tryggði Breiðablik sér Íslandsmeistaratitilinn eftir sannfærandi sigur í úrslitaleik liðanna á sunnudaginn. En hvernig fóru Blikar að því að endurheimta titilinn? Tímabilið 2024 í Kópavoginum er meðal annars saga af upprisu leikmanna, lykilbreytingu á miðju tímabili, breyttum áherslum og draumaendi. Íslenski boltinn 31. október 2024 10:00
Klaustursveinar allir mættir sex árum síðar Klausturmálið er enn og aftur að lauma sér í umræðuna og ekki að ófyrirsynju. Allir þeir karlar sem þá voru í deiglunni, þeir sem fyrir sex árum höfðu setið að sumbli og sagt eitt og annað sem betur hefði verið látið ósagt, eru komnir í framboð. Það virðist vera gaman á Alþingi. Og þeir líta svo á að það mál sé afgreitt og horfið í gleymskunnar dá. Innlent 29. október 2024 10:57
Þrúgandi þögn fyrir stóru ákvörðun Kristrúnar Yfirleitt spyrst út þegar einhverjir eru á framboðsskóm og berast þá jafnan inn á ritstjórnargólf. En ekki hjá Samfylkingu nú um stundir. Þar halda menn spilum þétt að sér. Víst er að þar er við nokkurn vanda að etja þegar raða skal í efstu sæti í Reykjavíkurkjördæmunum norður og suður. Innlent 25. október 2024 13:25
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Einstaklega blóðugur“ september Harðir bardagar eiga sér stað víðsvegar í austurhluta Úkraínu og í Kúrsk-héraði í Rússlandi þessa dagana. Þá eru hermenn frá Norður-Kóreu sagðir í Rússlandi og fleiri á leiðinni og ráðamenn í Kænugarði hafa reynt að sýna bakhjörlum sínum hvernig þeir geta í sameiningu bundið enda á stríðið og skapað frið til langs tíma. Erlent 24. október 2024 09:02