Kosningar 2009
1 2 3 4 5 6 7 … 16 ›
Kosningavaka á Vísi í alla nótt Fréttamenn Vísis verða á kosningavaktinni í alla nótt þar sem fylgst verður með gangi mála. Von er á fyrstu tölum upp úr klukkan 22:00 í kvöld og munum við strax í kjölfarið leita viðbragða hjá hinum ýmsu aðilum. Stjórnmálamenn, stjórnmálafræðingar og ýmsir aðrir sérfræðingar munu spá í spilin fram eftir nóttu. Fréttavaktin mun síðan halda áfram strax í fyrramálið þar sem atburðir næturinnar verða gerðir upp. Innlent 25.4.2009 14:13
Segir styrkjamálin hafa verið Sjálfstæðisflokknum erfið Björn Bjarnason fyrrum ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir allt tal um Evrópusambandið í aðdraganda kosninganna vera mikla blekkingu þar sem íslendingar séu ekki að fara inn. Hann segist ekki hafa góða tilfinningu fyrir hönd síns flokks og segir margt að finna í aðdraganda kosninga sem hafi komið flokknum illa. Björn segist ekki hafa gert upp við sig hvað hann taki sér nú fyrir hendur en hann hefur látið af þingmennsku. Innlent 25.4.2009 14:04
Guðjón Arnar búnn að kjósa Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslyndaflokksins mætti á kjörstað á Ísafirði um klukkan 10:15 í morgun. Fyrsti kjósandinn á kjörstað mætti klukkan 09:00 jafnvel þótt kjörfundur hæfist ekki fyrr en klukkan 10:00. Eftir að Guðjón Arnar hafði skilað atkvæði sínu í kassan hitti hann yfirkjörstjórn til þess að koma utankjörfundaratkvæði til skila. Innlent 25.4.2009 12:48
Upp úr sauð í kosningaþætti í gærkvöldi Upp úr sauð milli leiðtoga stjórnarflokkanna annars vegar og formanns Framsóknarflokksins hins vegar þegar tekist var á um fullyrðingar formanns Framsóknarflokksins í kosningaþætti Stöðvar tvö í gærkvöldi, um að annað bankahrun væri yfirvofandi. Innlent 25.4.2009 12:12
Kosningadagurinn fer vel af stað Tvöhundruð tuttugu og átta þúsund manns eru á kjörskrá fyrir Alþingiskosningarnar í dag. Kjörsókn hefur verið með ágætum það sem af er degi. Innlent 25.4.2009 11:58
Sigmundur á kjörstað: Eina vitið að kjósa framsókn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mætti á einum af nýju framsóknarbílunum í kjörstað fyrir stundu en hann kýs í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hann sagðist vera búinn að ákveða sig eftir ágætis yfirlegu og ekkert vit væri í öðru en að kjósa Framsóknarflokinn þar sem hann væri eini flokkurinn sem boðaði raunhæfar aðgerðir. Þetta kom fram í máli Sigmundur sem ræddi við strákana á Bylgjunni í Ráðhúsinu. Innlent 25.4.2009 11:15
Kosningabíll Sturlu skemmdur Sturla Jónsson efsti maður á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður hefur keyrt um á vörubíl með auglýsingu frá sjálfum sér í aðdraganda kosninganna. Honum brá því heldur betur í brún þegar hann ætlaði af stað í morgun og búið var að losa gám sem var á vagni aftan á bílnum. Litlu munaði að gámurinn færi af vagninum en það var fyrir snarræði Sturlu að ekki fór verr. Hann segir að einnig hafi verið búið að særa slöngu sem liggur úr bílnum í vagninn. Innlent 25.4.2009 10:58
Jóhanna á kjörstað: Ákvað sig fyrir þrjátíu árum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar sagðist hafa ákveðið hvað hún ætlaði að kjósa fyrir þrjátíu árum síðan þegar hún mæti á kjörstað í Hagaskóla fyrir stundu. Hún sagði sumar í lofti og að Samfylkingin ætlaði að vinna kosningarnar. Innlent 25.4.2009 10:39
Ástþór æfur út í Rúv - ætlar ekki að mæta í þáttinn í kvöld Ástþór Magnússon talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar hvetur fólk til þess að kjósa sinn flokk frekar en að skila auðu og fá þannig sína málpípu inn á Alþingi. Ástþór er hundfúll yfir leiðtogaumræðunum á Rúv í gærkvöldi og hann ætlar ekki að mæta í þáttinn í kvöld. Innlent 25.4.2009 09:45
Bjarni á kjörstað: Atvinnan er stærsta velferðarmálið Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins mætti ásamt fjölskyldu sinni á kjörstað í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ fyrir stundu. Með í för var framtíðin eins og hann orðaði það og hann sagði framtíðina bjarta. Hann sagði nokkuð öruggt hvað hann væri að fara að gera í kjörklefanum og vonaði að flokkurinn fengi fleiri atkvæði en kannanir hafa sýnt upp á síðkastið. Innlent 25.4.2009 09:16
Jóhanna kýs í Hagaskóla Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík ætlar að mæta í Hagaskóla klukkan 10:30 og kjósa. Áætlað var að Jóhanna myndi kjósa klukkan 9:00 en hún mun ekki mæta fyrr en 10:30. Innlent 25.4.2009 09:13
Búast við sögulegum kosningum Stjórnmálafræðingar segja kosningarnar um margt sögulegar. Landsmönnum bjóðist að kjósa um stjórn um langa hríð og útlit sé fyrir sögulegt lágmark Sjálfstæðisflokksins. Ýmislegt geti breyst. Innlent 24.4.2009 22:41
Hyggjast borða kjörseðlana Hópur fólks hefur tekið sig saman og mun stunda atkvæðaandóf í kosningunum í dag. Það felst í því að taka sér góðan tíma í kjörklefanum til að ákveða hvernig atkvæðisréttinum verður beitt. Annar hópur hyggur á kjörseðlaát þannig að seðlarnir skili sér ekki í kjörkassann. Innlent 24.4.2009 22:40
Algengast að merkt sé við tvo á kjörseðli Fjölmargir ógildir kjörseðlar rata í kjörkassana í hverjum kosningum. Sumir eyðileggja kjörseðlana með því að skrifa vísur eða texta á þá. Aðrir merkja við einn lista en strika yfir frambjóðanda á öðrum lista, sem ógildir alltaf atkvæðið. Innlent 24.4.2009 22:41
Átján oddvitar geta ekki kosið sjálfa sig Í kosningunum í dag eru fjölmargir í framboði sem ekki geta kosið sjálfa sig. Helgast það af því að þeir hafa lögheimili í öðru kjördæmi en þeir eru í framboði í. Innlent 24.4.2009 22:40
9.398 fá að kjósa í fyrsta sinn Í takt við fjölgun þjóðarinnar hafa aldrei jafn margir verið á kjörskrárstofni fyrir kosningar og nú. Alls eru 227.896 á kjörskrárstofni en sú tala segir ekki til um endanlegan fjölda kosningabærra manna. Tekið verður tillit til látinna og þeirra sem fengið hafa nýtt ríkisfang að kosningunum afstöðnum. Í kosningunum 2007 voru 221.330 á kjörskrá. Neyttu þá 83,6 prósent atkvæðisréttar síns. Í kosningunum 2003 voru 211.304 á kjörskrá og kosningaþátttakan 87,7%. Innlent 24.4.2009 22:41
Engin blá kjörklefatjöld í ár Blá kjörklefatjöld munu ekki skýla kjósendum í Reykjavíkurborg í ár, segir Gunnar Eydal, staðgengill skrifstofustjóra hjá borginni. Þau verði þess í stað gráleit. Innlent 24.4.2009 22:40
Sumir syrgja á meðan aðrir fagna Á kosninganótt má búast við heldur meiri ölvun á landinu en venjulega. Það þýðir þó ekki endilega meiri annir hjá lögreglu. Leigubílstjórar mega búast við nægri vinnu, en flestir kjósendur sækja samkvæmi eða halda sig heima fyrri hluta kvölds. Innlent 24.4.2009 22:41
Kannanir samhljóma um meginlínurnar Skoðanakannanir Fréttablaðsins og Capacent Gallup voru mjög samhljóma í gær og spá meirihlutafylgi Samfylkingar og Vinstri grænna. Báðar kannanir sýna einnig versta afhroð Sjálfstæðisflokksins frá stofnun flokksins. Innlent 24.4.2009 22:41
Rúm 12 þúsund hafa kosið Fjöldi atkvæða sem greidd höfðu verið utan kjörstaða var 12.359 þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til Bergþóru Sigmundsdóttur kjörstjóra klukkan rúmlega átta í gærkvöld. Þá var aðsóknin heldur að detta niður eftir annasaman dag. „Í þessari viku eru fleiri búnir að kjósa en í vikunni fyrir síðustu kosningar fyrir tveimur árum,“ segir Bergþóra. Innlent 24.4.2009 22:40
Nýir kjörseðlar sendir til Árósa Íslendingar sem þurftu frá að hverfa þegar þeir ætluðu að greiða atkvæði í alþingiskosningum á ræðismannsskrifstofu Íslands í Árósum á fimmtudag fengu nýtt tækifæri til að kjósa í gær. Þá höfðu nýir kjörseðlar verið sendir frá sendiráðinu í Kaupmannahöfn til Árósa. Á vef Íslendingafélagsins í Árósum sagði að gert væri ráð fyrir að kjörseðlarnir bærust um hádegisbil í gær og því ætti fólk að geta nýtt kosningarétt sinn. Fram kom hjá mbl.is að íslenski sendiráðspresturinn myndi síðan sjá um að koma atkvæðaseðlum landa sinna í tæka tíð heim. - gar Innlent 24.4.2009 22:40
Tíundi hver skili auðu Tíu til fimmtán prósent kjósenda munu skila auðu ef marka má skoðanakannanir síðustu vikna. Í kosningunum árið 2003 skiluðu 1,01 prósent auðum seðli. Það árið voru 0,19 prósent seðla ógildir. Innlent 24.4.2009 22:40
Ekki hugmynd um styrkina Kjartan Gunnarsson, þáverandi varaformaður bankaráðs Landsbankans, segist ekki hafa hugmynd um hvaða stjórnmálamenn voru styrktir af bankanum árið 2006. Hann segist heldur ekki vita hversu margir frambjóðendur voru styrktir eða hve mikið var veitt í heildina. Innlent 24.4.2009 22:40
Segja nýtt hrun ekki blasa við Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra kveðst algerlega ósammála þeirri niðurstöðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, að hrun blasi við íslenska efnahagskerfinu. Innlent 24.4.2009 22:40
Kosningaeftirlit ÖSE minna í sniðum en oft áður Kosningaeftirlit Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu fyrir Alþingiskosningarnar á morgun er minna í sniðum en oft áður. Kosningalöggjöfin íslenska, kjördæmaskipan og aðgangur að fjölmiðlum er það sem helst verður skoðað. Innlent 24.4.2009 21:22
Kjörstaðir opna klukkan níu í fyrramálið Landsmenn ganga að kjörborðinu á morgun þegar kosið verður til þings. Kjörstaðir opna víðast hvar klukkan níu í fyrramálið. Alls eru um 228 þúsund manns á kjörskrá að þessu sinni. Undanfarna daga og vikur hafa skoðanakannanir bent til þess að kosningarnar verði sögulegar. Innlent 24.4.2009 22:10
Skýrsla um verðmat á bönkunum komin í ráðuneytið Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir að skýrsla Oliver Wyman um verðmat á bönkunum hafi komið í fjármálaráðuneytið í morgun. Hvorki hann né Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hafa séð skýrsluna. Innlent 24.4.2009 20:47
Ástþór ætlar að setja útrásarvíkinga í gæsluvarðhald Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar, vill setja hryðjuverkalög á útrásarvíkinga og jafnframt að þeir verði settir í gæsluvarðhald. Þetta kom fram í formannaþættinum Hvernig á að bjarga Íslandi á Stöð 2 í kvöld. Innlent 24.4.2009 19:54
Endurskipulagning bankakerfisins afar mikilvæg Formenn Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar telja eitt af mikilvægustu verkefnunum sem tilvonandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir vera að endurreisa bankakerfið. Þetta kom fram í formannaþættinum Hvernig á að bjarga Íslandi á Stöð 2 í kvöld. Innlent 24.4.2009 19:11
Geir tjáir sig ekki um risastyrkina Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokks, vill ekki tjá sig við fjölmiðla um risaframlög Landsbankans og FL Group. Innlent 24.4.2009 18:52