Orkumál

Fréttamynd

Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð

Hvað gerist þegar þú skrúfar frá krananum, kveikir ljós eða sturtar niður? Flest okkar hugsa aldrei um það en á bak við þetta er samspil orku, vatns, tækni og fólks sem vinnur saman á hverjum degi til að halda lífæðum samfélagsins gangandi. Þetta eru kerfi sem styðja heimili, atvinnulíf og daglegt líf.

Samstarf
Fréttamynd

Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þor­láks­höfn

Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu.

Innlent
Fréttamynd

Tak­markaður á­hugi Pet­oro á Dreka­svæðinu

Áhugi norska ríki­solíufélagsins Pet­oro á frekari olíu­leit á Dreka­svæðinu virðist tak­markaður ef marka má svar þess við fyrir­spurn Austur­fréttar. Félagið hafi skilað inn rannsóknar­leyfi sínu því ekki væri talið að þar leyndist ein­hver olía að ráði.

Innlent
Fréttamynd

Meitlarnir komust loks í for­gang eftir stefnu­breytingu

Orkuveitan telur sig nú hafa fundið nýtt og afar vænlegt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði sem gæti skipt verulegu máli fyrir orkuöflun á höfuðborgarsvæðinu. Tvær borholur hafa gefið mjög lofandi niðurstöður og hitinn á svæðinu mælist um 275 gráður. Enn á þó eftir að staðfesta fundinn með frekari rannsóknum, meðal annars þriðju borholu, áður en hægt verður að fullyrða um hversu stór auðlindin er og hvernig best verði staðið að nýtingu hennar.

Innlent
Fréttamynd

Orkan sem skapar verð­mæti

Aukin orkuöflun og ábyrg nýting auðlinda eru ekki markmið í sjálfu sér heldur forsenda lífsgæða, samkeppnishæfni og verðmætasköpunar til framtíðar.

Skoðun
Fréttamynd

Rjúfum víta­hring olíunnar

Bróðurpart þessarar aldar hef ég fylgst með og stutt þá vegferð að nýta innlenda orku í stað innfluttrar. Í upphafi aldarinnar skrifaði ég íslenskuverkefni um möguleikann á að knýja bíla með vetni. Um svipað leyti og Guð var svo eftirminnanlega beðinn um að blessa Ísland, komu fyrstu Lithium-rafhlöðurnar í bíla sem breyttu leiknum algjörlega.

Skoðun
Fréttamynd

Hafa fundið nýtt jarðhita­svæði á Hellis­heiði

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir Orkuveituna hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Það eigi enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir verði staðfestar verði það stórkostleg tíðindi fyrir þjóðina.

Innlent
Fréttamynd

Milljarðar gætu farið í að flytja ís­lenskt sorp úr landi

Milljarðar króna gætu farið árlega í að flytja íslenskt sorp úr landi til brennslu á næstu árum verði ekki ráðist í nýja innviði hér heima. Sorpa og undirbúningsfélag um hátæknisorpbrennslu telja hagkvæmara að reisa stöð á Suðvesturlandi, nýta orkuna hér innanlands og draga þannig úr kostnaði til lengri tíma.

Innlent
Fréttamynd

Vinna á­fram að alþjóðahöfn og iðnaðar­svæði í Finnafirði

Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis.

Innlent
Fréttamynd

Fögnum úr­bótum án afslátta

Ferli leyfisveitinga vegna nýrra virkjana er komið í óefni og full ástæða til að fagna því að nú skuli loks stigin markviss skref til úrbóta. Allt of flókið og tímafrekt ferli er engum til góða, það hefur þvert á móti neikvæð áhrif á framþróun og atvinnuuppbyggingu.

Skoðun
Fréttamynd

Valdið í reyk­fylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst upp­skurðar

Íslenskt samfélag glímir ekki við tímabundinn hughrifsvanda, heldur djúpan og kerfislægan meinbug. Það er valdakerfi sem hefur þróast í átt að ógagnsæi, hagsmunatengslum og algjöru ábyrgðarleysi. Ákvarðanir sem varða lífsafkomu almennings eru teknar utan sviðsljóssins, þar sem formlegar reglur víkja fyrir óformlegum tengslum.Þetta er ekki spurning um einstaka stjórnmálamenn, heldur stjórnkerfi sem hefur fjarlægst lýðræðislegar grunnstoðir sínar.

Skoðun
Fréttamynd

Frá há­sæti orkudrottningar

Á rúmlega 60 ára starfsævi sinni hefur orkufyrirtæki þjóðarinnar unnið mjög ötullega að ýmiss konar umhverfismálum, náttúruvernd og loftslagsmálum. Við hjá Landsvirkjun gerum okkur mjög vel grein fyrir áhrifum starfsemi okkar á umhverfið og leitumst við að lágmarka þau með öllum ráðum.

Skoðun
Fréttamynd

Stórt skref í ein­földun leyfis­veitinga fyrir orkuverkefni: „Við erum rétt að byrja“

Alþingi hefur samþykkt víðtækar breytingar á regluverki í umhverfis- og orkumálum sem eiga að hraða leyfisveitingum, fækka afgreiðslustöðum og færa stærri hluta ferlisins inn á eitt borð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Kjarni breytinganna er sá að umsækjendur eigi síður að fara milli margra stjórnvalda og að afgreiðsla orku- og umhverfismála verði samræmdari og skilvirkari.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Þungaflutningarnir með þeim mestu á Ís­landi

Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakka­föll

Áhrif orkukreppunnar vegna árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran nú eru meiri en tveggja olíukreppa á 8. áratugnum og innrásarinnar í Úkraínu samanlagt. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur þjóðarleiðtoga hafa ekki gert sér greint fyrir alvarleikanum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fram­kvæmdir auka losun en að­eins tíma­bundið

Loftslagsbókhald Landsvirkjunar sýnir að losun vegna orkuvinnslu fyrirtækisins var 3,1 gramm koldíoxíðsígilda á hverja unna kílówattstund á árinu 2025. Losunin er með því lægsta sem þekkist innan orkugeirans.

Skoðun