West Ham United

West Ham United

Fréttir af enska fótboltaliðinu West Ham United FC frá London.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Standa á kross­götum og eig­enda­skipti lík­leg

Í ljósi afsagnar stjórnarformannsins David Sullivan hjá West Ham United stendur félagið á krossgötum. Sullivan hefur stýrt félaginu í 16 ár, lengst af ásamt David Gold, sem keypti félagið með honum árið 2010. Tékkneskur milljarðamæringur gæti nú tekið við stjórnartaumunum.

Enski boltinn
Fréttamynd

West Ham kvartar til dómaranefndar

Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni.

Enski boltinn
Fréttamynd

Tap West Ham gefur Tottenham von

Brentford vann langþráðan sigur eftir dræmt gengi, 3-0 á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Brentford komst í Evrópusæti en West Ham gæti farið í fallsæti á morgun vegna úrslitanna.

Enski boltinn
Fréttamynd

Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti

Þrátt fyrir að vinna loks sinn fyrsta deildarleik á árinu 2026 í dag er Tottenham enn í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sigurmark Callums Wilson fyrir West Ham United gegn Everton skyggði á gleði Tottenham-manna.

Enski boltinn
Fréttamynd

West Ham felldi Wolves

West Ham United fékk stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Crystal Palace á Selhurst Park í kvöld. Úrslit leiksins þýða að Wolves er fallið eftir átta ár í ensku úrvalsdeildinni.

Enski boltinn
Fréttamynd

Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham

Breska frjálsíþróttakonan Keely Hodgkinson er ein stærsta íþróttastjarna Breta en hún stóðst ekki mátið að skjóta á enska úrvalsdeildarfélagið West Ham þegar fréttist af því að fótboltafélagið stæði í vegi fyrir að HM í frjálsum yrði haldið í London.

Enski boltinn
Fréttamynd

Mörkin úr enska: Sex­tán ára skrifaði söguna með Arsenal

Gærdagurinn var sögulegur fyrir Max Dowman og Arsenal. Þessi sextán ára strákur varð yngsti markaskorari sögunnar í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði seinna mark Arsenal í sigri gegn Everton. Toppliðin áttu bæði leik í gær og þá var Anthony Gordon hetja Newcastle gegn Chelsea. 

Enski boltinn
  • «
  • 1
  • 2