Hvalveiðar
1 2 3 4 5 6 7 … 26 ›
Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Dómsmálaráðherra segir Landhelgisgæsluna vera búna að undirbúa viðbrögð við mismunandi sviðsmyndum vegna veru skipsins Bandero í lögsögu Íslands. Ógn felist í hótunum skipverjanna. Innlent 30.6.2026 22:21
Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust. Innlent 30.6.2026 20:31
„Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Atvinnuvegaráðherra gagnrýnir harðlega hegðun starfsmanna Hvals hf. sem sveifluðu getnaðarlim hvals og biður þá um „að haga sér eins og fullorðið fólk“. Slíkur fíflaskapur sé ekki gerður með orðspor þjóðarinnar á erlendri grundu í huga. Innlent 30.6.2026 18:53
Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar. Innlent 30.6.2026 14:54
Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Sérfræðingur í hafrétti segir hótanir einar og sér ekki nægja til að Landhelgisgæslan geti vísað Bandero úr íslenskri lögsögu. Aðra sögu sé að segja um landhelgina þar sem gæslan hafi auknar valdheimildir. Innlent 30.6.2026 11:15
„Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Paul Watson-samtökin boða atlögu að olíufélaginu sem þjónustar Hval hf, í færslu á samfélagsmiðlum. Samtökin segja þar að önnur langreyðanna sem veidd hafi verið í gær hafi verið kálffull. Innlent 30.6.2026 08:49
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til. Innlent 30.6.2026 06:24
Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgist enn grannt með ferðum Bandero, skips Paul Watson samtakanna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir að Landhelgisgæslan skuli ekki vísa skipinu frá. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna ekki hafa lagalega heimild til þess. Innlent 29.6.2026 21:05
„Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar. Innlent 29.6.2026 17:42
„Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu. Innlent 29.6.2026 09:07
Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Varðskipið Þór sem lét úr höfn í gær og sigldi á slóðir hvalveiðiskipa Hvals hf. vegna hótana aðgerðarsinnans Paul Watsons fylgir nú skipinu Bandero eftir. Innlent 29.6.2026 07:40
Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Umræðan um hvalveiðar snýst í raun ekki aðeins um hvali. Hún snýst um tvær ólíkar heimsmyndir. Önnur lítur á náttúruna sem auðlind sem okkur ber að nýta. Hin lítur á manninn sem hluta af vistkerfi sem hefur eigið gildi. Skoðun 28.6.2026 21:44
Sérsveitarmenn um borð í Þór Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu. Innlent 28.6.2026 20:28
Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína Skipið Bandero deilir nú staðsetningu sinni með Landhelgisgæslunni en skipið er í eigu samtaka hvalveiðiandstæðingsins Paul Watson. Innlent 28.6.2026 16:15
Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins. Innlent 28.6.2026 13:11
Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Bandero, skip hvalaverndaraktívistans Paul Watsons, sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu fyrr í dag. Watson segir skipinu beint til landsins til að takast á við hvalveiðar Hvals og Kristjáns Loftssonar. Innlent 27.6.2026 21:44
„Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi. Innlent 27.6.2026 13:43
Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Farþegum og leiðsögumönnum um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar varð hverft við þegar við þeim blasti dauð langreyður í eftirdragi hvalveiðiskips í Faxaflóa í gær. Leiðsögumaður segi suma farþega hafa orðið skelfingu lostna. Framkvæmdastjóri Eldingar segir að lifandi hvalir séu einnig auðlind og hvalaskoðun líka vertíð. Innlent 26.6.2026 15:47
Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Í umræðunni um hvali er oft talað eins og verðmætin verði fyrst til þegar dýrin eru veidd. En lifandi hvalir skapa líka verðmæti. Í kringum þá hefur byggst upp öflug atvinnugrein sem skapar störf, gjaldeyri og líf við hafnir víða um land. Skoðun 26.6.2026 08:30
Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Fleiri eru andvígir veiðum á langreyðum en hlynntir samkvæmt nýrri könnun. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir stórskrýtið að stjórnvöld hafi ekki lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar og vonar að því verði breytt sem fyrst. Innlent 25.6.2026 11:43
Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Alls eru um 41 prósent andvíg veiðum á langreyðum og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Niðurstöður sýna einnig að 33 prósent eru fylgjandi veiðunum. Innlent 25.6.2026 09:04
Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa á Íslandsmiðum síðan 2023, voru dregnar á land snemma í morgun í Hvalfirði. Tvær langreyðar hafi verið veiddar í nótt. Innlent 23.6.2026 14:32
„Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Formaður Dýraverndarsamtaka Íslands vill að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar með því að afnema undanþágu Hvals hf. til að verka matvæli undir berum himni. Dýravernd séu ekki öfgaskoðanir og stöðva beri starfsemi sem feli í sér dýraníð. Innlent 23.6.2026 12:02
Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Dýraverndarsamband Íslands hvetur stjórnvöld til að binda enda á „ónauðsynlegar og ómannúðlegar“ hvalveiðar hið fyrsta. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að ekki sé hægt að lýsa veiðunum öðruvísi en „villimannslegum“. Innlent 23.6.2026 10:32
Langreyðarnar komnar á land Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, komu á land í Hvalfirði snemma í morgun. Innlent 23.6.2026 07:18
Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur. Innlent 22.6.2026 20:53
Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023. Innlent 22.6.2026 11:14
Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Það eru fá mál þar sem Ísland stendur jafn augljóslega röngum megin við söguna og þegar kemur að hvalveiðum. Skoðun 21.6.2026 18:43
Mótmæla hvalveiðum Fimm samtök munu mótmæla hvalveiðum við Reykjavíkurhöfn í dag. Formaður Hvalavina segir von á einhverjum atriðum eða ræðum en vill ekki gefa upp um eðli þeirra. Innlent 21.6.2026 12:55
Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Hvalveiðibátar Hvals hf. eru sagðir haldnir til veiða í fyrsta sinn í tvö ár. Innlent 20.6.2026 07:44