Sveitarstjórnarkosningar 2026
1 2 3 4 5 6 7 8 … 10 ›
Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Fjögur sækjast eftir oddvitasætinu hjá Viðreisn í borgarstjórnarkosningum í vor. Þau mættust í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi í dag. Innlent 29.1.2026 13:08
Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Félögum í Viðreisn fjölgaði um helming frá því fyrir prófkjör og þar til skráningu lauk í gær fyrir prófkjör flokksins í Reykjavík. Alls eru félagar núna 2.943 en voru um 1.900 áður en prófkjörsbaráttan hófst. Innlent 29.1.2026 13:05
Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann kallar eftir því að farið verði í prófkjör og segir trúnaðarbrest að fyrrverandi formaður fulltrúaráðs, sem tók ákvörðun um röðun á lista, bjóði sig nú fram til oddvita. Innlent 29.1.2026 11:01
Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Frambjóðendur til oddvitasætis Viðreisnar í Reykjavík gerðu sitt besta til að halda dyrum opnum þegar þau voru spurð í kappræðum flokksins í kvöld hvort þau gætu frekar hugsað sér samstarf með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni. Oddvitar mættust í kappræðum í Austurbæjarbíó í kvöld. Innlent 28.1.2026 21:56
Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún gefi kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þá segir hún ekki hafa verið ákveðið hvort bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey tefli fram lista í kosningunum. Innlent 28.1.2026 13:56
Karlarnir leiða að ósk kvennanna Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali leiðir lista Okkar borgar – Þvert á flokka í sveitarstjórnarkosningum í vor. Baldur Borgþórsson mun skipa annað sæti listans. Tilkynnt var um framboðið í október í fyrra. Hlynur Áskelsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla, tekur þriðja sæti á listanum. Sigfús og Baldur voru til viðtals um væntanlegt framboð í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 28.1.2026 10:35
Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026 hefur verið samþykktur. Fundur félgasmanna fór fram í gærkvöldi. Innlent 28.1.2026 10:08
Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur engar kveðjur fengið frá flokksforystunni í Samfylkingunni eftir prófkjörið um helgina þar sem hún laut í lægra haldi gegn Pétur Marteinssyni í oddvitaslag. Hún segist spennt fyrir komandi baráttu og hlakka til að kynnast Pétri betur. Innlent 27.1.2026 17:40
Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Magnús Davíð Norðdahl borgarfulltrúi Pírata sækist ekki eftir sæti á framboðslista Pírata í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Við lok kjörtímabils ætlar hann að segja skilið við þátttöku í skipulögðu stjórnmálastarfi og þar með einnig samtökum Pírata. Þetta tilkynnti Magnús á Facebook-síðu sinni í dag. Innlent 27.1.2026 15:27
Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Miðflokkurinn byrjaði í fyrradag að kynna fólk á lista flokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og hyggst halda áfram að kynna einn frambjóðenda á dag á næstu dögum. Ekki liggur endanlega fyrir hvenær fullur listi verður kynntur eða hulunni svipt af því hver verður oddviti flokksins í Reykjavík. Innlent 27.1.2026 14:41
Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætlar að taka 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hún tryggði sér í prófkjöri flokksins á laugardaginn, þegar hún tapaði slagnum um oddvitasætið. Hún óskar Pétri Marteinssyni aftur til hamingju með sigurinn og öllum þeim sem tryggðu sér sæti á lista og segist áfram ætla að vinna í þágu borgarinnar á grundvelli hugsjóna sinna og jafnaðarstefnunnar. Innlent 27.1.2026 12:55
Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa enn ekki borist svör um hvort að Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri þiggi annað sætið á lista flokksins fyrir komandi kosningar. Nefndin kallar nú eftir tilnefningum í sætin fyrir neðan sjötta sæti. Innlent 27.1.2026 11:53
„Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, gefur ekkert upp um það hvernig hún greiddi atkvæði í nýafstöðnu prófkjöri flokksins í Reykjavík. Hún segir þátttökuna í prófkjörinu vera glæsilega fyrir flokkinn en ríflega fimm þúsund flokksfélagar tóku þátt í því, margir hverjir spánnýir í flokknum. Þá vill Kristrún ekki tjá sig sérstaklega um orð borgarstjóra um að flokksfélagar hafi hafnað reyndri konu. Innlent 27.1.2026 11:26
Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin í Reykjavík óskar nú eftir tilnefningum á lista flokksins fyrir kosningarnar í vor. Um helgina var valið í efstu sex sætin á lista flokksins, en nú leitar uppstillingarnefndin að fólki sem vill sitja í sætum 7. til 46. á lista. Enn liggur ekki fyrir hvort Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætli að taka 2. sætið á listanum sem hún tryggði sér í prófkjörinu um helgina þar sem hún tapaði oddvitasætinu. Gert er ráð fyrir að endanlegur listi verði kynntur í síðasta lagi í lok febrúar. Innlent 27.1.2026 10:51
Veitir ekki viðtöl að sinni Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun ekki veita viðtöl um úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar í dag. Enn er óvíst hvort hún þiggi annað sætið á lista flokksins í vor. Innlent 26.1.2026 17:49
Fyrir heimabæinn minn Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í daglegu lífi fólks. Þar mætast þjónusta, menning, menntun og velferð - þeir þættir sem móta samfélagið okkar til framtíðar. Víða um land hefur þróunin verið hröð undanfarin ár, íbúum fjölgað og kröfur til þjónustu aukist. Slíkar breytingar kalla á skýra sýn, forgangsröðun og samvinnu. Skoðun 26.1.2026 17:31
„Margt óráðið í minni framtíð“ Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og áður Pírata, segir margt óráðið um sína framtíð eftir að niðurstöður prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík lágu fyrir um helgina. Dóra sóttist eftir 3.-4. sæti á lista en hafði ekki erindi sem erfiði. Hvort sem hún fái tækifæri til að taka sæti á lista eða ekki segist Dóra ætla að leggja hönd á plóg í kosningabaráttu Samfylkingarinnar í vor og segist styðja nýjan oddvita flokksins. Innlent 26.1.2026 15:40
Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, verður sjálfkjörinn á lista flokksins í Reykjavík til framboðs í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi verður einnig sjálfkjörin í annað sætið. Aðrir fulltrúar verða kynntir á kjördæmisþingi Framsóknar þann 7. febrúar. Innlent 26.1.2026 12:26
Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir segist ekki merkja það innan Samfylkingarinnar að konum sé ekki treyst fyrir ábyrgðastöðum eða að það halli á konur. Hún segist ekki taka undir greiningu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur á því af hverju hún hlaut ekki næga kosningu til oddvita. Steinunn segist brenna fyrir leikskóla- og velferðarmálum. Innlent 26.1.2026 09:37
Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Farið var með ungmenni á kjörstað eftir vísindaferð í gær á vegum Vilhjálms Árnasonar, ritara Sjálfstæðisflokksins og frambjóðanda í Reykjanesbæ, þar sem boðið var upp á áfengi. Skipuleggjandi segir fólk hafa verið með lögaldur „eftir [sinni] bestu vitund.“ Innlent 25.1.2026 20:57
„Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segist í sínu lífi hafa þurft að þola verri og harkalegri skelli en að ná ekki settu markmiði í forvali Samfylkingarinnar sem lauk í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins en endaði í því sjöunda með 1700 atkvæði. Innlent 25.1.2026 14:16
Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Heimir Örn Árnason, sitjandi oddviti flokksins á Akureyri og formaður bæjarráðs, ætla að styðja hvort annað í komandi sveitarstjórnarkosningum. Berglind mun styðja Heimi í annað sæti lista flokksins og Heimir mun styðja að Berglind fái oddvitasætið. Innlent 25.1.2026 13:31
„Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Stjórnmálafræðiprófessor segir Samfylkinguna hafa hafnað sitjandi oddvita og borgarstjóra í prófkjörinu í gær. Niðurstaðan sýni að ákall flokksmanna hafi verið um umskipti. Litlu munaði að ekki aðeins einum nýliða tækist að skáka sitjandi borgarstjóra heldur tveimur. Innlent 25.1.2026 12:43
Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Bjarni Halldór Janusson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar og aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, ætlar í framboð með Samfylkingunni í Reykjanesbæ. Innlent 25.1.2026 12:15
Segir Heiðu hafa átt betra skilið Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík í gær, segist ætla að taka sætið þó að hann hafi ekki náð markmiði sínu, en hann sóttist eftir öðru sætinu. Innlent 25.1.2026 11:46
Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, sem hafnaði í þriðja sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í kvöld, var einungis fimmtán atkvæðum frá því að lenda sæti ofar en Heiða Björg Hilmisdóttir sitjandi borgarstjóri. Innlent 24.1.2026 23:24
Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Pétur Marteinsson nýkjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir stærsta verkefni flokksins í komandi kosningum að vinna traust borgarbúa til baka. Hann segir gott gengi í prófkjörinu til marks um að fólk vilji breytingar í borginni. Innlent 24.1.2026 20:50
Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst „Þetta eru bara gríðarleg vonbrigði, vissulega. En líka þakklæti fyrir mikinn stuðning. Í rauninni er ég stolt af mínum baráttumálum og minni vinnu. Þetta er tvíbent, en auðvitað eru vonbrigði að vera ekki treyst fyrir fyrsta sætinu. Ég hélt að Samfylkingin væri komin á þann stað.“ Innlent 24.1.2026 20:03
Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Pétur Marteinsson hefur verið kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í maí. Úrslit leiðtogarprófkjörsins voru kunngjörð rétt í þessu. Innlent 24.1.2026 19:09
Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Pétur Marteinsson skákaði sitjandi borgarstjóra og verður oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 2026. Niðurstöður flokksvals Samfylkingarinnar í Reykjavík voru kynntar í kvöld. Innlent 24.1.2026 16:58