Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur „
1 2 3 4 5 6 … 111 ›
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls. Innlent 26.10.2026 18:16
Runólfur verður áfram forstjóri Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, hefur fallist á beiðni ráðherra um að sinna áfram starfi forstjóra og hefur skipun hans verið framlengd til ársloka 2029. Innlent 26.10.2026 15:44
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Varaformaður þingflokks Viðreisnar segist ekki hafa sóst eftir því að verða gerð að þingflokksformanni. Aðspurð hvernig hún svari gagnrýni Jóns Gnarr segir hún að engar athugasemdir hafi verið gerðar við stöðu hennar innan þingflokksins að henni vitandi. Innlent 26.10.2026 12:06
„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu. Innlent 26.10.2026 11:49
Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu. Innlent 26.10.2026 08:34
„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Meðlimir skólamálanefndar Skólastjórafélags Íslands segja að nemendur í útskriftarárgangi næsta vors í grunnskólum landsins hafi verið gerðir að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar á einkunnakerfi grunnskóla. Þá fagnar hópurinn því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi hafið frumkvæðisathugun á innleiðingu nýs einkunnakerfis. Innlent 26.10.2026 08:22
Er þetta ekki nóg? Síðustu dagar Gnarrsins hafa sýnt með óyggjandi hætti að þörf er á vinnustaðasálfræðingi á ríkisstjórnarskrifstofurnar. Hitt opinberast þó, með sífellt skýrari hætti, að þörf er á klínískum sálfræðingi líka, til að greina hið stæka landsbyggðahatur sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er heltekin af. Skoðun 26.10.2026 07:03
Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Jón Gnarr útilokar ekki að endurmeta stuðning sinn við ríkisstjórnina komi upp sú staða að honum finnist sér ekki lengur stætt á honum. Hann segir Viðreisn í krísu og að þverpólitískur starfshópur sem hann stóð að hafi ekki verið fundarfær vegna mætingar. Innlent 25.10.2026 21:17
Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Hafsteinn Dan Kristjánsson lagaprófessor telur ekki mikinn vafa leika á því að hægt sé að lögfesta svokallaða bókun 35 án þess að brjóta gegn stjórnarskrá. Hann segir þó líklegt að látið verði reyna á málið mjög fljótlega fyrir dómstólum verði frumvarpið samþykkt. Innlent 25.10.2026 18:33
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Formaður Sjálfstæðisflokksins segir enga tryggingu fyrir því að gjaldtaka á ferðamannastaði verði eyrnamerkt innviðauppbyggingu. Um sé að ræða skatt á eina sveit. Innlent 25.10.2026 16:30
Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist vera með til skoðunar að breyta fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkerfi Loftbrúarinnar og hækka afsláttinn á hvern fluglegg um tvö þúsund krónur. Innlent 25.10.2026 16:19
Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fyrirhuguð breyting dómsmálaráðherra á umdæmum lögreglunnar hefur sætt töluverðri gagnrýni víðs vegar um landið. Ráðherrann segir að skoðanir verði alltaf skiptar en þessi breyting er niðurstaða ítarlegrar greiningarvinnu. Hvorki lögreglumönnum né starfsstöðvum verði fækkað. Innlent 25.10.2026 11:33
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir fyrirhugaða breytingu á afsláttarkerfinu Loftbrú ekki duga nóg. Hún hafi miklar áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins. Innlent 24.10.2026 16:03
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd segir landsbyggðina brjálaða vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Samgönguráðherra hafi lofað samráði um málið í óundirbúnum fyrirspurnartíma í apríl og því sé samráðsleysi í málinu sérstaklega alvarlegt. Innlent 24.10.2026 15:05
Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta. Að mati starfsmanna hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra. Innlent 24.10.2026 13:57
„Ég er bara svolítið sár“ Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina. Innlent 24.10.2026 12:23
Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Lögreglufélag Vestfjarða lýsir áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú og telur brýnt að endurskoða fyrirætlanir dómsmálaráðherra. Það telur það ekki séð hvernig breytingarnar muni bæta löggæslu á landsbyggðinni og tryggja öryggi. Innlent 24.10.2026 08:49
Sigmar snýr aftur Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, tekur sæti á ný á Alþingi í dag eftir réttrúmlega mánaðar fjarveru, vegna veikindaleyfis. Innlent 23.10.2026 17:43
Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Enn er ekki búið að ráða alla þá heilbrigðisfulltrúa sem sagt var upp um mánaðamótin í ný störf hjá ríkinu. Forstjóri Stofnunar atvinnuvega vonast til að lágmarka allt hökt þegar stofnunin tekur til starfa og hefur lagt mikið upp úr mannauðsmálum frá því að hann hóf störf. Innlent 23.10.2026 15:20
Föst krónutala í stað hlutfalls Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent. Innlent 23.10.2026 11:29
Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Samkvæmt frumvarpsdrögum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fá stjórnvöld auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri. Til að mynda fær Nátturuverndarstofnun heimild til að senda þeim sem valda náttúruspjöllum reikning fyrir úrbótum og lögregla fær heimild til að gera bíla þeirra sem ráðherra kallar „skussana“ upptæka. Innlent 23.10.2026 10:40
Ekkert um að fjalla Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins skilar auðu í umfjöllun um Alþingi, í orðsins fyllstu merkingu. Innlent 23.10.2026 09:51
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Formaður ME-félagsins á Íslandi fagnar nýrri skýrslu sem segir að gríðarlega sjúkdómbyrði vera á þeim sem eru með ME, langvinnt covid, POTS og skylda sjúkdóma. Félagið muni sjá til þess að niðurstöður skýrslunnar gleymist ekki ofan í skúffu. Innlent 22.10.2026 16:31
Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Fallið verður frá áformum um að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps og alvarlegra líkamsárása í þjónustu við fatlað fólk. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hyggst fella breytinguna úr frumvarpsdrögum til að mæta áhyggjum fatlaðs fólks af öryggi sínu. Innlent 22.10.2026 16:01
Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Það er athyglisverð þversögn að ríkisstjórn sem leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um EES samninginn og bókun 35 skuli nú leggja á ferðamenn innviðaskatt í formi náttúrupassa. Sérstök gjaldtaka á að vera á þrjá fjölsóttustu ferðamannastaði Íslands, sem allir eru í Bláskógabyggð. Þar með er einu sveitarfélagi gert að bera hitann og þungann af þessari nýju gjaldtöku. Skoðun 22.10.2026 16:01
Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Geðrofslyfið quetiapín er algengasta geðrofslyfið meðal íbúa hjúkrunarheimila hér á landi. Rúmlega þriðjungur íbúanna fékk geðrofslyf í fyrra. Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að bæta eftirlit með lyfjagjöfum eldra fólks. Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að bæta eftirlit með lyfjagjöfum á hjúkrunarheimilum. Fara eigi reglulega yfir lyfjanotkun íbúa hjúkrunarheimila og bæta skráningu á því hvaða lyf þeir fá og hvers vegna. Innlent 22.10.2026 15:44
Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var erlendis samtals í 100 daga á síðasta ári og fór í 27 ferðir. Það sem af er þessu ári hefur hún samtals verið erlendis í 63 daga og farið í sautján ferðir. Innlent 22.10.2026 15:02
Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Vinnuhópur heilbrigðisráðherra lagði fram 42 tillögur til að bæta þjónustu við þá sem eru með ME, langvinnt covid, POTS og skylda sjúkdóma. Ráðast þurfi í töluvert af umbótum, þar á meðal aukna vitundarvakningu um tilvist sjúkdómanna. Vinnan tók mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. Innlent 22.10.2026 14:11
Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Dóttir formanns velferðarnefndar er meðal undirritenda gagnrýninnar umsagnar Seðlabankans um leigubremsu ríkisstjórnarinnar. Bankinn varar við því að breytingarnar geti fækkað leiguíbúðum og dregið úr húsnæðisöryggi. Móðir hennar er framsögumaður nefndarinnar í málinu. Innlent 22.10.2026 13:50
Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar er að verða hálfnuð á ferðalagi sínu í Asíu. Hún undirritaði fríverslunarsamning við Víetnam og heldur nú til Kína. Innlent 22.10.2026 10:06