10 bestu liðin
Tíu bestu liðin (1984-2023): Uppgjör Vísir stóð fyrir vali á bestu liðum í íslenskum karlafótbolta undanfarin fjörutíu ár, eða frá 1984 þegar þriggja stiga reglan var tekin upp. Hér má sjá niðurstöður kosningarinnar. Íslenski boltinn 10.2.2024 08:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1993 | Hinir ósnertanlegu ÍA varð Íslandsmeistari með gríðarlegum yfirburðum 1993 og vann bikarkeppnina að auki. Skagamenn jöfnuðu stigamet og fjölga þurfti leikjum um níu til að markamet þeirra yrði slegið. ÍA kórónaði svo frábært tímabil með glæstum sigri á Hollandsmeisturum Feyenoord þar sem Ólafur Þórðarson skoraði frægt skallamark. Íslenski boltinn 9.2.2024 11:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): FH 2005 | Skrifað í sögu stórum stöfum FH varð Íslandsmeistari annað árið í röð undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. FH-ingar höfðu gríðarlega yfirburði í deildinni, unnu fyrstu fimmtán leiki sína og tryggðu sér titilinn með sigri á sínum helsta andstæðingi. Tryggvi Guðmundsson og Auðun Helgason sneru heim með sannkölluðum glæsibrag og áttu frábært tímabil. Íslenski boltinn 9.2.2024 10:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): Víkingur 2023 | Héldu áfram að skína Víkingur vann tvöfalt í annað sinn á þremur árum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Víkingar höfðu gríðarlega yfirburði í deildinni, unnu fyrstu átta leiki sína, fengu bara tvö mörk á sig í þeim og urðu Íslandsmeistarar þegar fjórar umferðir voru eftir. Þeir fengu ellefu stigum meira en næsta lið. Víkingur varð einnig bikarmeistari fjórða sinn í röð. Íslenski boltinn 8.2.2024 10:01
Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1995 | Scania og Ferrari á Skaganum ÍA varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð og jafnaði stigamet liðsins frá því tveimur árum áður. Skagamenn unnu fyrstu tólf leiki sína og unnu deildina með fjórtán stiga mun. Ólafur Þórðarson var í aðalhlutverki fyrri hluta tímabilsins en seinni hlutann stal Arnar Gunnlaugsson fyrirsögnunum og hirti gullskóinn þrátt fyrir að spila bara sjö deildarleiki. Íslenski boltinn 7.2.2024 10:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): Fram 1988 | Ókleifur hamarinn Fram varð Íslandsmeistari 1988, í annað sinn á þremur árum, með fáheyrðum yfirburðum og setti stigamet sem stendur enn í tíu liða deild með þriggja stiga reglunni. Fram-vörnin óvinnandi vígi og Birkir Kristinsson hélt tólf sinnum hreinu í átján leikjum. Framar á vellinum voru Pétur Ormslev og Guðmundur Steinsson aðalmennirnir. Íslenski boltinn 6.2.2024 10:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): KR 1999 | Þetta er KR, það er enginn einn Á aldarafmæli félagsins braut KR loks ísinn og varð Íslandsmeistari í fótbolta karla eftir 31 árs bið. KR-ingar urðu einnig bikarmeistarar í þriðja sinn á sex árum. Guðmundur Benediktsson fór á kostum en koma tveggja Skagamanna gerði gæfumuninn fyrir KR-inga sem náðu toppsætinu snemma móts og létu það ekki af hendi eftir það. Íslenski boltinn 5.2.2024 10:06
Tíu bestu liðin (1984-2023): Stjarnan 2014 | Sú tilfinning er engu lík Undir taktföstum tónum Silfurskeiðarinnar vann Stjarnan sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil á eins ævintýralegan hátt og mögulegt var. Stjörnumenn fóru einnig lengra í Evrópukeppni en íslenskt lið hafði áður farið og mætti meðal annars Inter í tveimur leikjum. Úrslitaleik FH og Stjörnunnar gleymir svo enginn sem hann sá. Íslenski boltinn 2.2.2024 10:01
Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1996 | Á degi eins og þessum Eftir stormasamt tímabil lauk glæsilegri sigurgöngu ÍA á eftirminnilegan hátt, með fimmta Íslandsmeistaratitlinum á jafn mörgum árum og bikarmeistaratitli. Nýjar stjörnur komu fram og kjarnastarfsmenn stóðu áfram fyrir sínu. Æsilegu kapphlaupi Skagamanna og KR-inga um Íslandsmeistaratitilinn lauk með úrslitaleik á Akranesi. Íslenski boltinn 1.2.2024 10:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍBV 1998 | Komu fagnandi Eftir að hafa verið hársbreidd frá því að vinna tvöfalt árið á undan afrekaði ÍBV það tímabilið 1998. Steingrímur Jóhannesson fyllti skarð Tryggva Guðmundssonar með glæsibrag og skoraði grimmt fyrir Eyjamenn sem lentu í þrengingum um sumarið en tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á KR-ingum í úrslitaleik í Frostaskjólinu. Íslenski boltinn 31.1.2024 10:00
Tíu bestu liðin (1984-2023): Breiðablik 2022 | Háflug á vængjum Hrafnsins Breiðablik missti af Íslandsmeistaratitlinum 2021 á grátlegan hátt en kom öflugt til baka og vann titilinn með talsverðum yfirburðum árið eftir. Blikar, með Ísak Snæ Þorvaldsson í feiknaformi, byrjuðu tímabilið af gríðarlegum krafti, unnu fyrstu átta leiki sína og voru alltaf fremstir í kapphlaupinu um titilinn. Þá gerðu þeir sig gildandi í Evrópukeppni. Íslenski boltinn 30.1.2024 10:01
Tíu bestu liðin (1984-2023): Fylgt úr hlaði Vísir fékk valinkunna sérfræðinga til að velja bestu liðin í íslenskum karlafótbolta undanfarin fjörutíu ár. Umfjöllun um tíu bestu liðin birtist á næstu dögum. Íslenski boltinn 29.1.2024 10:01