
Sendiráð á Íslandi

Áreitið hafði mikil áhrif
Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Moskvu urðu fyrir ítrekuðu áreiti áður en því var lokað fyrir tæpum tveimur árum. Starfsmenn hafi fundið augljós ummerki um að brotist hafi verið inn til þeirra. Utanríkisráðherra segir áreitið stóran hluta þess að sendiráðinu var lokað.

Starfsmenn sendiráðsins í Moskvu hafi verið áreittir
Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Moskvu urðu fyrir kerfisbundnu og ítrekuðu áreiti af hálfu rússneskra meðlima leyniþjónustunnar í aðdraganda þess að sendiráðinu var lokað árið 2023.

Mætti með fertugan Paddington á forsýninguna
Þriðja og nýjasta myndin um krúttlega marmelaði- elskandinn björninn Paddington, Paddington í Perú, var frumsýnd með fyrir fullum sal áhorfenda í Smárabíói í gær. Myndin er fyrir alla fjölskylduna og voru því börn í miklum meirihluta á meðal áhorfenda.

Starfsmaður sendiráðs hafi skilið við íbúðina í óviðunandi ástandi
Kærunefnd húsamála hefur vísað frá máli leigusala þar sem hann fór fram á bætur vegna leigjanda íbúðar og skemmda sem hafi orðið á íbúðinni á leigutíma.

Sendiherrann vinsæli á útleið
Ryotaro Suzuki, sendiherra Japans á Íslandi, hefur verið skipaður sendiherra Japans á Samóa og mun því yfirgefa landið á næstunni.

Ég skvetti málningu á bandaríska sendiráðið en hér er opið bréf til utanríkisráðherra
Þórdís Kolbrún, ég, Margrét Rut Eddudóttir hef nú mótmælt aðgerðaleysi þínu og ábyrgðarleysi í að verða eitt ár. Í eitt ár hafa þú og Bjarni Benediktsson lagt ykkur fram við að viðhalda þjóðarmorðinu í Palestínu og nú Líbanon.

Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið
Mótmælendur sem kröfðust aðgerða í málefnum Palestínu fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig skvettu málningu á vegg sendiráðsins fyrr í dag. Þá virðist hafa komið til smávægilegra átaka milli lögreglu og mótmælenda.

Fara í saumana á sendiherraskipunum
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur óskað eftir svörum frá utanríkisráðuneyti um verklag þáverandi utanríkisráðherra Bjarna Benediktssonar við skipun sendiherra í Róm og Washington D.C. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir nefndarmaður segir að taka verði til skoðunar hvort skipanirnar standist lög.

Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs
Björgólfur Guðmundsson athafnamaður seldi í síðasta mánuði einbýlishús sitt að Vesturbrún 22 í Laugardalnum til sendiráðs Japans. Kaupverðið er 540 milljónir króna og var fasteignin afhent í síðasta mánuði.

Segist hafa barist við Kína á Íslandi og borið sigur úr býtum
„Þetta er Jeff Gunter: vinnuveitandi, læknir og fjölskyldumaður. Sem sendiherra barðist hann við Kína og vann. Þegar mikið var í húfi valdi Trump Gunter til að koma fram fyrir hönd Bandaríkjanna. Nú býður Gunter sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings til að berjast enn og aftur fyrir málstaðnum um að setja Ameríku í fyrsta sæti. Hann mun þurrka upp fenið og berjast við öfgafullan „Woke“-boðskap Demókrata. Kjóstu 110 prósent stuðningsmann Trump, sendiherrann Jeff Gunter.“

Rússneska sendiráðið þakkar Íslendingum fyrir stuðninginn
Rússneska sendiráðið í Reykjavík segist vera þakklátt Íslendingum sem samhryggjast rússnesku þjóðinni vegna hryðjuverkaárása Ríkis íslams í Moskvu í gær. 133 létust í árásinni og fleiri særðust.

Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla
Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina”, Bretinn Nick Chambers, var í hópi fólks sem heimsótti 5. bekk Landakotsskóla í Reykjavík í gær þar sem spjallað var um starfstækifæri framtíðarinnar, fjölbreytileika og framtíðardrauma nemenda. Auk Chambers heimsótti breski sendiherrann Bryony Mathew og Sævar Helgi Bragason nemendurna.

Syrgja Navalní í dag „en baráttan heldur áfram á morgun“
Hópur fólks mætti á minningarstund vegna andláts Alexei Navalní við rússneska sendiráðið í dag. Einn syrgjenda segir andlátið óhugsanlegt.

Sendiherrann segist staðráðin í að verða góður nágranni
Carrin Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, segist staðráðin í því að verða góður nágranni Vesturbæinga á Sólvallagötu. Sendiherrabústaður að Sólvallagötu 14 eigi að verða vitnisburður um tengsl Bandaríkjanna og Íslands og birtir sendiráðið tölvuteiknaðar myndir af því hvernig hann mun koma til með að líta út í götunni.

Reiði og piparúðabrúsar á mótmælum við bandaríska sendiráðið
Fundargestir reiddust mikið á mótmælum félagsins Ísland-Palestína við sendiráð Bandaríkjanna við Engjateig í Reykjavík seinnipartinn í dag. Á myndskeiði sjást lögreglumenn beina brúsum af piparúða í átt að mótmælendum. Að sögn sjónarvottar hrópuðu lögreglumenn „Gas! Gas!“ meðan þeir héldu uppi brúsunum.

Ógn og öryggi í Vesturbæ
Íbúar á Íslandi og í Reykjavík búa við þau miklu, en alls ekki sjálfsögðu, lífsgæði að hér ríkir öryggi, traust, jafnræði, frelsi og ekki síst sakleysi. Þessi gæði eru mikill auður sem við verðum öll að standa vörð um.

Sendiherrann fær ekki vakthús á Sólvallagötu
Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi fær ekki að byggja vakthús fremst á lóð sinni við Sólvallagötu 14 í vesturbæ Reykjavíkur. Skipulagsfulltrúi borgarinnar er þó opinn fyrir ýmsum öðrum breytingum á lóðinni.

Fjölmennt á mótmælum við bandaríska sendiráðið
Dágóður fjöldi fólks mætti að bandaríska sendiráðinu við Engjateig seinni partinn í dag á mótmælastöðu undir yfirskriftinni „vopnahlé strax“.

Fuglaáhugamaður sakaður um alþjóðlegar njósnir og kallaður í skýrslutöku
Líffræðingur var kallaður í skýrslutöku hjá lögreglu, sakaður um njósnir við finnska sendiráðið vegna rannsóknar hans á mállýsku skógarþrasta. Mállýska fuglanna er nokkuð mismunandi eftir svæðum og jafnvel hverfum.

Bandaríkjamenn leita að bílstjóra á brynvarinn bíl í borginni
Bandaríska sendiráðið á Íslandi hefur auglýst eftir einkabílstjóra til að aka sendiherranum og öðrum starfsmönnum sendiráðsins í brynvörðum bíl.

„Mér finnst þetta algjörlega fjarstæðukennt“
Nágrannar sendiherrabústaðar Bandaríkjanna við Sólvallagötu eru uggandi yfir hugmyndum sendiráðsins um að stórefla öryggisvarnir við bústaðinn. Íbúi í hverfinu segir hugmyndirnar fráleitar.

Sendiherrann sagður farinn úr landi
Rússneski sendiherrann á Íslandi er sagður farinn úr landi. Íslensk stjórnvöld mæltust til þess að sendiherrann færi heim þegar þau ákváðu að loka íslenska sendiráðinu í Moskvu í síðasta mánuði.

Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands
And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna.

Fagna brottför rússneska sendiherrans
Í kvöld fögnuðu mótmælendur ákvörðun utanríkisráðherra Íslands um að loka sendiráðinu í Moskvu og skipa Rússum að fækka starfsmönnum í sendiráðinu hér og að sendiherrann færi heim.

Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót
Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu.

Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga
Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi.

Loka sendiráðinu í Moskvu og takmarka umsvif Rússa hérlendis
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Þá hefur sendiherra Rússlands hér á landi verið tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland minnki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Sömuleiðis hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun.

Áttatíu flóttamenn flytja í gamla bandaríska sendiráðið
Allt að áttatíu flóttamenn munu búa í húsunum sem áður hýstu sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg næstu tvö árin. Miðast er við að dvalartími einstaklings í húsnæðinu verði sex mánuðir.

Fyrstu rannsóknir benda til að efnið hafi verið hættulaust
Fyrstu niðurstöður greiningar Háskóla Íslands á innihaldi sendingarinnar sem var fjarlægð úr bandaríska sendiráðinu í gær sýna fram á að innihaldið sé hættulaust.

Hjálparköll sendiráða setja skýrt verklag í gang hjá lögreglu
Runólfur Þórhallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, segir að reglulegt verklag hafi farið af stað á þriðja tímanum í dag þegar boð barst frá bandaríska sendiráðinu um dularfulla pakkasendingu. Tveir starfsmenn sendiráðsins voru sendir á sjúkrahús í varúðarskyni. Ekkert amar að þeim.