Skotárás í Grafarholti

Tvöfölduðu refsinguna fyrir skotárásina við Silfratjörn
Shokri Keryo, 21 árs sænskur karlmaður, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi í Landsrétti fyrir skotárás í Úlfarsárdal í nóvember 2023 þegar hann skaut fjórum skotum að jafnmörgum mönnum. Héraðsdómur dæmdi Shokri í þriggja og hálfs árs fangelsi í apríl í fyrra.

Dómur vegna skotárásar þyngdur verulega
Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Landsrétti fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra.

Hrannar dæmdur í átta ára fangelsi
Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra. Hann þarf að greiða fólkinu sem hann skaut 3,3 milljónir króna annars vegar og 1,2 milljónir króna hins vegar. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Verjandi Hrannars segir að dómnum verði áfrýjað.

Segja Hrannar hafa boðið þeim peninga fyrir að breyta framburði
Stúlka sem var skotin í skotárás fyrrverandi kærasta í Grafarholti í fyrra sagði manninn hafa hótað sér og beitt ofbeldi á meðan á sambandi þeirra stóð. Hún hefur átt erfitt með svefn og óttast um öryggi sitt og heilsu eftir árásina. Hún og kærasti hennar segja kærastann fyrrverandi hafa boðið sér peninga gegn því að breyta framburði sínum fyrir dómi.

Skaut fyrrverandi kærustu sína og yfirlýstan „óvin“
Karlmaður sem skaut fyrrverandi kærustu sína og annan karlmann í Grafarholti í fyrra segist ekki hafa vitað af því að hann hafi skotið hana fyrr en að atlögunni lokinni. Afbrýðisemi hafi ekki haft neitt með árásina að gera.

Bíll ömmunnar leiddi lögreglu á slóð byssumanna
Tveir ungir karlmenn sem grunaðir eru um skotárás við á bílastæði í Grafarholti í Reykjavík í febrúar skutu karlmann í lærið og konu í kviðinn. Konan var fyrrverandi kærasta annars hinna grunuðu.

Árásarmaður í Grafarholti þarf að afplána níu hundruð daga af fyrri dómi
Maðurinn sem grunaður er um tilraun til manndráps í tengslum við skotárás á bílastæði í Grafarholti í Reykjavík í febrúar síðastliðnum þarf að afplána 900 daga eftirstöðvar af fimm ára fangelsisdómi sem hann hlaut árið 2018.

Skotárásin í Grafarholti: Tveir úrskurðaðir í áframhaldandi varðhald
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag tvo karlmenn í áframhaldandi gæsluvarðhald til föstudagsins 4. mars vegna rannsóknarinnar á skotárásinni í Grafarholti í Reykjavík að morgni 10. febrúar síðastliðinn.

Þvertaka fyrir að sérsveitin hafi miðað byssu á íbúa
Samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra þvertekur fyrir að sérsveitarmaður hafi beint vopni að húsráðanda við húsleit í Kórahverfinu í Kópavogi aðfaranótt fimmtudagsins 10. febrúar. Íbúi fullyrti í viðtali á Vísi í gær að sérsveitarmaður hefði miðað á hann vopni.

Vaknaði við þungvopnaða sérsveitarmenn: „Sá þriðji stóð þarna og miðaði á mig með byssu“
Sigurður Kristján Grímlaugsson, íbúi í Kópavogi, var vakinn laust eftir klukkan hálf sex um nótt af þremur vopnuðum sérsveitarmönnum aðfararnótt fimmtudags í síðustu viku. Sérsveitarmennirnir leituðu árásarmannsins úr skotárásinni í Grafarholti sem hafði átt sér stað um klukkustund áður en Sigurður kveðst enga tengingu hafa við málið.

Kalla eftir fjölgun lögreglumanna og auknum rannsóknarheimildum
Stjórn Landssambands lögreglumanna hefur gefið út ályktun þar sem hún lýsir yfir þungum áhyggjum af öryggi lögreglumanna í kjölfar atvika þar sem skotvopnum hefur verið beitt.

Skotárásir tengist oftast deilum milli aðila en almenningur geti hlotið skaða af
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir skipta miklu máli að vopnalöggjöf hér á landi sé sterk og lögregla geti með skilvirkum hætti fylgt henni eftir. Þó skotárásir hér á landi hafi almennt beinst að ákveðnum aðilum sé alltaf hætta á að almenningur hljóti skaða af. Skotvopnið sem notað var í árás í miðbæ Reykjavíkur um helgina var þrívíddarprentuð byssa, en legið hefur fyrir um nokkurt skeið að nú sé hægt að nýta tæknina til slíks.

Mögnuð tækni misnotuð: Byssur þrívíddarprentaðar á Íslandi
Skotvopnið sem notað var í árás í miðbæ Reykjavíkur um helgina var þrívíddarprentuð byssa. Slík lífshættuleg vopn er, eins og tæknin er orðin, hægt að prenta í ódýrum prenturum heima við — prenturum sem hægt er að kaupa í íslenskum raftækjaverslunum.

Vill skoða að vopna lögregluna með rafbyssum
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra vill skoða að vopna almenna íslenska lögreglumenn með rafbyssum. Hann segir tölur yfir vélbyssur hér á landi sláandi en 252 sjálfvirk skotvopn voru flutt inn til landsins árið 2020.

„Meiri harka í þessum glæpaheimi”
Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útlit sé fyrir að aukin harka sé að færast í undirheimana. Þróunin sé óhugnanleg og að mikilvægt sé að brugðist verði við. Hins vegar sé staðan ekki orðin þannig að fólk þurfi að óttast um öryggi sitt.

Tveir nú í gæsluvarðhaldi vegna árásarinnar í Grafarholti
Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsókar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás í Grafarholti í Reykjavík í fyrrinótt.

Meintur skotmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald
Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið karl og konu með skammbyssu í Grafarholti í fyrrinótt hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Hinn maðurinn sem talinn er tengjast árásinni verður að líkindum leiddur fyrir dómara síðar í dag. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu.

Konan alvarlega slösuð eftir skammbyssuskot í kviðinn
Ung kona liggur alvarlega særð á Landspítalanum eftir að hafa verið skotin í kviðinn í Grafarholti í nótt. Annar maður særðist einnig illa í árásinni eftir að hafa verið skotinn í fótinn. Lögregla lítur málið alvarlegum augum, ekki síst í ljósi þess að þetta er í annað sinn á innan við ári sem manneskja hér á landi er skotin.

Tveir nú í haldi í tengslum við skotárásina í Grafarholti í nótt
Tveir karlar eru í haldi lögreglu í þágu rannsóknar á skotárás í Grafarholti í nótt. Annar var handtekinn í morgun líkt og áður hefur komið fram en hinn var handtekinn á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi. Báðir mennirnir eru á þrítugsaldri.

Byssumaðurinn er góðkunningi lögreglunnar
Karlmaðurinn sem er í haldi lögreglu grunaður um að hafa skotið á karl og konu í Grafarholtinu í nótt hefur þrátt fyrir ungan aldur endurtekið komið við sögu lögreglu og hlotið dóma fyrir vopnaburð án tilskilinna leyfa.

Karlmaður sem skaut á fólk í Grafarholti í haldi lögreglu
Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu eftir að tilkynnt var um skotárás í Grafarholti á fjórða tímanum í nótt. Skotið var á karl og konu sem stödd voru utandyra í hverfinu og voru þau flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum þeirra. Þau eru ekki í lífshættu.