Kaup og sala fyrirtækja
8 9 10 11 12 13 … 13 ›
Hagnaður LEX jókst um 40 prósent, besta afkoman frá 2009 Hagnaður LEX, einnar stærstu lögmannsstofu landsins, nam tæplega 269 milljónum króna eftir skatt á síðasta ári og jókst um 40 prósent frá fyrra ári. Tekjur félagsins hækkuðu um nærri 90 milljónir á milli ára og voru samtals 1.342 milljónir króna. Innherji 4.4.2022 14:07
Fjögur iðnfyrirtæki sameinast undir nafni Kamba Glerverksmiðjan Samverk á Hellu, Trésmiðjan Börkur Akureyri, Gluggasmiðjan Selfossi og Sveinatunga hafa nú sameinast undir einu nafninu Kambar. Viðskipti innlent 24.3.2022 09:54
Marel borgaði yfir fimm milljarða fyrir hátæknifyrirtækið Völku Áætlað kaupverð Marels á íslenska hátæknifyrirtækinu Völku, sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað, er samtals vel á sjötta milljarð króna. Tilkynnt var um kaup Marels á fyrirtækinu um mitt síðasta ár en þau kláruðust undir lok nóvembermánaðar eftir að Samkeppniseftirlitið hafði gefið samþykki sitt fyrir samruna félaganna. Innherji 21.3.2022 11:54
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup ríkisins á Auðkenni Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup ríkisins á Auðkenni ehf. á grundvelli skilyrða í sátt sem samrunaaðilar gerðu við Samkeppniseftirlitið. Auðkenni veitir rafræna auðkenningar- og traustþjónustu á Íslandi og gefur út rafræn skilríki. Viðskipti innlent 21.3.2022 10:58
Cintamani tekur yfir rekstur hjólabúðarinnar GÁP Cintamani hefur keypt húsnæði og rekstur hjólabúðarinnar GÁP í Faxafeni 7 í Reykjavík. Í kjölfar kaupanna var gerður samstarfssamningur um rekstur vefverslunarinnar Adidas.is sem rekin hefur verið í Faxafeni af Sportmönnum, umboðsaðila Adidas á Íslandi, undanfarinn áratug. Viðskipti innlent 14.3.2022 17:18
Hafa samið um kaup á Eldum rétt Hagar hf. og eigendur Eldum rétt ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt. Viðskipti innlent 11.3.2022 14:28
Gunnar og Þórarinn nýir eigendur Hótel Flateyjar Félag í eigu viðskiptafélaganna Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævarssonar, sem eru meðal annars eigendur fasteignasölunnar RE/MAX á Íslandi, hefur fest kaup á hótel Flatey á Breiðafirði. Þetta herma heimildir Innherja. Klinkið 4.3.2022 07:31
Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í S4S, metið á um fjóra milljarða Nýr sjóður í stýringu Landsbréfa, Horn IV, hefur gengið frá kaupum á 22 prósenta hlut í fata- og útivistarsamstæðunni S4S, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Ellingsen, Steinars Waage og AIR. Fyrirtækið velti meira en fjórum milljörðum króna á árinu 2020. Innherji 12.2.2022 11:55
Samkeppnishæfari eftir sameininguna Fagverk verktakar, Malbik og völtun, og Malbikstöðin hafa sameinast undir merkjum Malbikunarstöðvarinnar en þau eru öll í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar. Sameiningin er sögð liður í uppbyggingu fyrirtækins og aukningu markaðshlutdeildar á malbiksmarkaðnum. Viðskipti innlent 11.2.2022 13:46
Skeljungur bætti við hlut sinn í móðurfélagi Heimkaupa Skeljungur er kominn með þriðjungshlut í Wedo ehf., móðurfélagi Heimkaupa, Hópkaupa og Bland.is, eftir að hafa tekið þátt í hlutafjáraukningu félagsins í janúar. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Skeljungs. Innherji 9.2.2022 15:20
KPMG kaupir OZIO KPMG á Íslandi hefur keypt rekstur OZIO, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hugbúnaðarþróun á starfrænum lausnum fyrir Microsoft-vinnuumhverfið. Hjá OZIO starfa í dag fjórir starfsmenn en forsvarsmaður fyrirtækisins er Sigurjón Hákonarson. Viðskipti innlent 9.2.2022 11:44
Erlendir sjóðir keyptu þrjú íslensk gagnaver fyrir meira en 100 milljarða undir lok ársins Afar samkeppnishæft og stöðugt orkuverð, sem varð á skömmum tíma talsvert lægra hér á landi í samanburði við Evrópu þar sem það hefur hækkað skarpt á tímum faraldursins, ásamt ört vaxandi áhuga alþjóðlegra fjárfestingarsjóða á gagnaversiðnaði skilaði sér í því að þrjú stærstu gagnaverin sem eru starfrækt á Íslandi voru seld fyrir samanlagt yfir 100 milljarða króna á síðustu mánuðum ársins 2021. Innherji 9.2.2022 06:02
Krúnudjásnin í hendur hugsjónalausra stórkapítalista með brú út í heim Eins og að selja kvótann úr byggðarlaginu. Tækifæri til að auka hlut íslenskrar menningar á heimssviðinu og ávísun á aukna fjárfestingu og tekjur fyrir listamenn. Skýrt dæmi um gjörsamlega brotið viðskiptafyrirkomulag tónlistarbransans. Viðskipti innlent 30.1.2022 09:31
Nefco eignast hlut í banka Margeirs í Úkraínu Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (Nefco) hefur eignast tæplega 14 prósenta hlut í úkraínska bankanum Bank Lviv, sem er að stórum hluta í eigu Margeirs Péturssonar, stórmeistara í skák og stofnanda MP banka. Innherji 28.1.2022 16:50
„Alveg eins gott að sleppa hríslunni á bjargbrúninni“ Veitingastaðnum Bike Cave í Skerjafirði hefur verið lokað um óákveðinn tíma. Hjördís Andrésdóttir, eigandi Bike Cave, segir að persónulegar frekar en rekstrarlegar ástæður ráði för en mikil óvissa hafi fylgt faraldrinum. Viðskipti innlent 24.1.2022 16:21
Rapyd tvöfaldaði hlutdeildina á tæpum tveimur árum Færsluhirðirinn Rapyd hefur tvöfaldað markaðshlutdeild sína hér landi frá því að fyrirtækið kom inn á markaðinn með kaupum á KORTA fyrir tæpum tveimur árum síðan. Á sama tíma hefur markaðshlutdeild Saltpay, sem áður hét Borgun, dregist verulega saman. Innherji 24.1.2022 14:09
„Ég segi bara húrra Ísland“ Gengið hefur verið frá sölu á íslenska útgáfufyrirtækinu Öldu Music til Universal Music/InGrooves, stærsta tónlistarfyrirtækis heims. Alda er rétthafi að stærstum hluta allrar íslenskrar tónlistar sem gefin hefur verið út. Viðskipti innlent 24.1.2022 13:06
Travel Connect nýr risi á íslenskum markaði Móðurfélag Nordic Visitor, Iceland Travel og Terra Nova hefur hlotið nafnið Travel Connect. Við sameininguna verður til eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Viðskipti innlent 24.1.2022 10:45
Stór hluti íslenskrar tónlistar komin í eigu erlendra aðila Gengið hefur verið frá sölu á íslenska útgáfufyrirtækinu Öldu Music til Universal Music /InGrooves, stærsta tónlistarfyrirtækis heims. Universal Music/InGrooves segir kaupin til marks um mikilvægi íslenskrar tónlistar á alþjóðavísu og hyggst samsteypan fjárfesta í aukinni útgáfu íslenskra listamanna, bæði innanlands og utan. Viðskipti innlent 24.1.2022 10:10
Opin Kerfi og Premis sameinast Framtakssjóðurinn VEX I, sem keypti í desember allt hlutafé í Opnum Kerfum, og hluthafar upplýsingatæknifélagsins Premis hafa undirritað samning um að sameina félögin og eignarhald þeirra. Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Viðskipti innlent 20.1.2022 20:40
Hætta aðkomu að Límtré Vírneti eftir ellefu ár Stekkur fjárfestingarfélag ehf. hefur keypt 35% hlut í iðnfyrirtækinu Límtré Vírneti. Fyrir átti Stekkur 45% hlut í félaginu og nemur eignarhlutur Stekks 80% eftir viðskiptin. Viðskipti innlent 20.1.2022 19:05
Skoða sölu á Malbikunarstöðinni Höfða sem er á leið til Hafnarfjarðar Borgarráð Reykjavíkurborgar afgreiddi í dag samning um brottflutning Malbikunarstöðvarinnar Höfða frá Sævarhöfða í Reykjavík þar sem til stendur að koma á nýrri byggð. Sömuleiðis var ákveðið að kanna kosti og galla þess að selja hundrað prósenta hlut borgarinnar í Malbikunarstöðinni líkt og kveðið er á í meirihlutasáttmálanum. Innlent 20.1.2022 13:28
Metfé til framtakssjóða og vísissjóða svalar uppsafnaðri þörf Nýir framtakssjóðir og vísissjóðir hafa á undanförnum tólf mánuðum safnað samtals 90 milljörðum króna frá fjárfestum. Aldrei áður hefur jafnmikið fjármagn leitað í fjárfestingafélög af þessum toga . Innherji 19.1.2022 07:01
Framtakssjóðurinn VEX fjárfestir í hugbúnaðarfyrirtækinu Annata Framtakssjóðurinn VEX I ásamt öðrum fjárfestum hafa gert bindandi samkomulag um kaup á allt að helmingshlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Annata. Það er í dag að fullu í eigu starfsmanna sem munu áfram leiða frekari uppbyggingu félagsins. Innherji 13.1.2022 08:25
Vogunarsjóðurinn Taconic kaupir fimm prósenta hlut í Skeljungi Bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital, sem var stærsti hluthafi Arion banka um nokkurt skeið, hefur keypt rúmlega fimm prósenta hlut í Skeljungi sem rekur meðal annars 60 bensínstöðvar undir merkjum Orkunnar á Íslandi. Innherji 6.1.2022 14:24
Rússneskur risi kaupir meirihluta í Vélfagi Rússneska sjávarútvegsfyrirtækið Norebo hefur keypt meirihluta í Vélfagi ehf. Akureyringurinn Finnbogi Baldvinsson, sem rekur ráðgjafafyrirtæki í Þýskalandi, hafði milligöngu um kaupin og sest í stjórn Vélfags fyrir hönd stofnendanna, hjónanna Bjarma Sigurgarðarssonar og Ólafar Ýrar Lárusdóttur. Þau eiga eftir viðskiptin 45,5% í félaginu. Viðskipti innlent 5.1.2022 15:28
Fjármálastjóri Eskju og eigandi ÞG Verks taka sæti í stjórn Magns Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju, og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri og eigandi verktakafélagsins ÞG Verks, hafa tekið sæti í stjórn færeyska félagsins P/F Magn. Þetta kemur fram í frétt færeyska miðilsins KVF. Innherji 4.1.2022 14:00
Partners Group kaupir atNorth Alþjóðlega fjárfestingafélagið Partners Group hefur samið um kaup á hátæknifyrirtækinu atNorth sem rekur í dag þrjú gagnaver á Íslandi og í Svíþjóð. Viðskipti innlent 21.12.2021 08:55
Síminn segir „fjarstæðukennt“ að ríkið fái heimild til að láta kaup ganga til baka Síminn gagnrýnir harðlega þær breytingar sem eru lagðar til á lögum um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri í frumvarpi sem nú er til meðferðar á Alþingi en fjarskiptarisinn segir þær varasamar fyrir ásýnd Íslands gagnvart erlendum fjárfestum. Innherji 20.12.2021 11:31
Kaupir norskt öryggisfyrirtæki Advania hefur keypt norska fyrirtækið Painkiller sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hugbúnaðarlausnum á sviði öryggis í upplýsingatækni. Viðskipti innlent 20.12.2021 08:26