Sólin
1 2 3 … 3 ›
Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Margir spyrja sig eflaust hvað eigi að gera við gleraugun nú þegar almyrkvanum er lokið. Á að geyma þau? Henda þeim? Ef svo, hvernig á að flokka þau? Innlent 12.8.2026 19:49
Bein útsending: Almyrkvi á sólu Líkt og alþjóð veit mun almyrkvi á sólu verða á vestanverðu landinu í dag. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá þessum atburði í spilaranum hér fyrir neðan. Innlent 12.8.2026 16:02
Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur. Innlent 12.8.2026 11:30
Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Almyrkvi á sólu sést á vestanverðu Íslandi síðdegis í dag. Við fylgjumst með í vaktinni hér á Vísi. Innlent 11.8.2026 09:30
Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Vísindamenn á vegum geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, eru staddir hér á landi til að nýta almyrkvann á morgun með það að markmiði að rannsaka hvers vegna ysti lofthjúpur sólarinnar er margfalt heitari en yfirborð hennar. Fjórar myndavélar um borð í rannsóknarþotu NASA munu mynda kórónu sólarinnar úr fimmtán kílómetra hæð. Innlent 11.8.2026 18:32
Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Útlit er fyrir rigningu á höfuðborgarsvæðinu á meðan að almyrkvi verður á sólu síðdegis á morgun. Veðurfræðingur segir eitthvað rof kunna að verða í skýjum á Vestfjörðum og norðanlands. Innlent 11.8.2026 08:38
Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Norðurslóðir þann 12. ágúst en liðin eru 72 ár síðan síðast sást til almyrkva frá Íslandi og hefur mikið kapp verið lagt á að miðvikudagurinn gangi sem best fyrir sig. Eitt sem er þó úr okkar höndum er veðrið en Stjörnu-Sævar segir skýjaðan almyrkva vera stórkostlegan þrátt fyrir að það sé þá ekki hægt að fylgjast með tunglinu ganga fyrir sólina. Þá séu gæludýr í engri hættu og grillkjöt geti með engu móti orðið óætt af völdum sólargeisla. Innlent 10.8.2026 20:32
Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Þann 12. ágúst næstkomandi munu augu allra landsmanna beinast að himni, eða í það minnsta flestra. Þegar næturmyrkur skellur á löngu fyrir sólsetur gæti fólk komið auga á í það minnsta fjórar reikistjörnur og næstum því eins mörg stjörnumerki. Einhverjir munu eflaust freistast til að slíta augun af almyrkvanum til að virða eitt eða fleiri þeirra fyrir sér. Innlent 9.8.2026 11:33
Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Útlit er fyrir að skil fari yfir landið á miðvikudaginn, þann 12. ágúst, og er reiknað með að skýjað verði víða en nýjustu spár herma að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum þegar tekur að kvölda. Í dag má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á norðanverðu landinu en sunnan- og vestanlands verður bjart og hlýrra en hiti fer víða yfir tíu stig. Veður 9.8.2026 07:24
72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Þann 29. október árið 878 sást fyrsti almyrkvi sem samtímaheimildir eru um hérlendis en hann gekk yfir Bjargtanga, ytri hluta Snæfellsness og Reykjanesskaga um kl. 12:55. Síðan þá hafa ellefu almyrkvar sést frá Íslandi en þann 12. ágúst næstkomandi mun sá tólfti ganga yfir. Þá tekur við löng bið fram að þeim næsta. Innlent 8.8.2026 11:30
Óvissa með sólmyrkvaveður Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings. Innlent 7.8.2026 12:40
Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? Innlent 7.8.2026 11:31
Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur. Innlent 6.8.2026 11:32
Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. Innlent 5.8.2026 11:31
„Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Á sama tíma og hitabylgju er spáð á austanverðu landinu varar Vegagerðin við miklu hvassviðri á Snæfellsnesi á morgun. Stjórnarmaður Þjónustusamfélagsins á Héraði segir tjaldsvæði fyrir austan vera að fyllast. Innlent 10.7.2026 12:08
Fólk komi rautt í framan eins og humar Margir mættu eflaust rauðir í framan í vinnuna í morgun eftir góða veðrið um helgina. Lyfsali hjá Lyfju segir að fólk hafi komið unnvörpum í apótekið í leit að sólarvörn eða kælikremi vegna sólbruna. Margir hafi vanmetið íslensku sólina. Innlent 15.6.2026 23:26
NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. Innlent 10.6.2026 21:20
Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Stjórnvöld hafa opnað sérstaka upplýsingagátt um almyrkvann sem verður á sólu í ágúst. Þá hafa þau samið við Sævar Helga Bragason, vísindamiðlara, um ráðgjöf varðandi fræðslu um myrkvann og undirbúning stjórnvalda. Viðskipti innlent 1.6.2026 15:29
Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Eftirspurn eftir sólarferðum fyrir sumarið er þegar farin að taka við sér og samkvæmt Hjördísi Hildi Jóhannsdóttur, deildarstjóra sölu Úrvals Útsýnar, er skýrt mynstur að myndast. Lífið samstarf 2.4.2026 09:06
Skammdegið víkur með hækkandi sól Dagsbirtan í Reykjavík í dag varði fimm mínútum lengur en í gær og hefur daginn núna lengt um rúma klukkustund í borginni frá stysta degi ársins. Lenging dagsins er mismunandi eftir því hvar menn eru staddir á landinu en landsmenn ættu samt flestir að vera farnir að finna fyrir því að skammdegið sé að víkja. Innlent 12.1.2026 22:11
Býst við fleiri hlýjum árum og hitametum Árið 2025 var það hlýjasta hér á landi frá upphafi mælinga og sérfræðingur veðurstofunnar segir meiri líkur en minni á fleiri hlýindaárum í nánustu framtíð. Hún telur líklegt að fleiri hitamet verði slegin hér á landi á næstu árum. Innlent 5.1.2026 23:21
Morgundagurinn sá stysti á árinu Dagurinn á morgun, sunnudagur, verður sá stysti á árinu á norðurhveli jarðarinnar. Hér á Íslandi fáum við dagsbirtu í eingöngu rétt rúma fjóra tíma á morgun en við getum þó huggað okkur við það að eftir það verður hver dagurinn lengri en sá sem kom á undan. Innlent 20.12.2025 11:26
Skipa stýri- og aðgerðahóp vegna almyrkvans en eiga ekki fyrir verkefnastjóra Forsætisráðherra skipaði í vikunni stýrihóp innan Stjórnarráðsins til að samhæfa og samræma undirbúning fyrir almyrkva 12. ágúst 2026. Með stýrihópnum mun starfa aðgerðahópur undir forystu almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og mun dómsmálaráðherra skipa þann hóp. Fram kemur í svarinu að þörf sé á að tryggja að verkefnastjóri verði til starfa hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra en að ekki sé til fjármagn fyrir því innan dómsmálaráðuneytisins. Innlent 28.11.2025 10:05
Sól, borg, skíði og flug á einum stað Nýr og glæsilegur vefur Sumarferða fór í loftið í sumar. Þar má nú finna enn meira úrval spennandi ferða sem þú setur saman eftir þínu höfði. Sérstaða nýja vefsins er sú að bókunarvélin finnur lægsta flugverðið og bestu hótel verðin og setur saman í einn pakka. Ef um tengiflug er að ræða þá eru flugtengingar tryggðar í einum flugmiða sem veitir meira öryggi og þægindi fyrir þann sem ferðast. Lífið samstarf 5.11.2025 12:49
„Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Þörf er á átaki gegn notkun ljósabekkja að sögn húðlæknis sem vill að þeir verði einfaldlega bannaðir. Rannsóknir sýni að bekkirnir valdi fleiri krabbameinum en sígarettur. Innlent 15.7.2025 19:36
Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Það er varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól, segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir. Þannig sé mikið brún húð í mikilli vörn. Hún segir fáránlegt að ekki sé búið að banna ljósabekki á Íslandi. Innlent 15.7.2025 10:23
Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Rétt rúmt ár er nú þar til almyrkvi frá sólu mun sjást á íslandi í fyrsta sinn í 72 ár. Almyrkvinn verður 12. ágúst og hafa nú verið birt kort af Íslandi sem sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi og hvar gott verður að vera til að sjá hann. Kortin eru gerð af Sævari Helga Bragasyni og Andreas Dill. Innlent 7.7.2025 11:27
Konur og karlar fái sortuæxli á ólíkum stöðum Algengustu staðir líkamans þar sem sortuæxli myndast eru mismunandi milli kynja. Karlar fá helst sortuæxli á búkinn meðan konur fá helst sortuæxli á mjaðmir og fótleggina. Erlent 26.5.2025 09:09
Hitabylgjan sú mesta í maímánuði svo vitað sé Hitabylgjan sem reið yfir landið dagana 13. til 22. maí er sú mesta sem vitað er um í maímánuði hér á landi. Tíu daga í röð mældist hiti 20 stig eða hærri einhvers staðar á landinu og fjöldi hitameta í maímánuði var sleginn. Veður 24.5.2025 08:59
Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Íslendingar nota fæstir nægilega mikla sólarvörn að mati lækna sem vara við því að það geti tekið óvarið fólk skamman tíma að brenna þessa dagana. Slíkt getur haft alvarleg áhrif síðar. Þeir hvetja fólk til að bera á sig sólarvörn og velja hana vel. Innlent 20.5.2025 20:33