Grunnskólar
1 2 3 4 5 6 … 48 ›
Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Ekkert skólahald verður í grunnskólanum á Raufarhöfn næsta vetur. Skólanum var lokað í haust en aðeins tvö börn verða á grunnskólaaldri í Raufarhöfn á næsta skólaári. Innlent 29.3.2026 18:24
Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Foreldrar barna í Urriðaholtsskóla saka skólann og Garðabæ um ábyrgðarleysi eftir að börnin þeirra lentu í árekstri á leið í skólasund. Börnin voru send fótgangandi í sund og þegar eitt foreldrið bað um að haldinn yrði foreldrafundur sagði skólastjórinn ekki telja ástæðu til. Þau ætla að biðja um fund með Garðabæ til að fá lausn í málinu. Innlent 29.3.2026 15:03
Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Formaður Kennarasambands Íslands furðar sig á fullyrðingum menntamálaráðuneytisins um lengd skólaársins í íslenskum grunnskólum. Lögbundnir kennsludagar á Íslandi séu 180 talsins, það viti allir foreldrar grunnskólabarna, og það sé sambærilegt hinum Norðurlöndunum. Innlent 28.3.2026 11:43
Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra Stóra páskaeggjahallærið virðist há fleirum en starfsmönnum Landspítalans. Skólastjóri Laugarnesskóla furðar sig á því að menntamálaráðuneytið hafi varið tæplega sjö hundruð þúsund krónum í páskaegg frá Nóa Siríus af stærðinni sjö í sérútbúnum, litprentuðum umbúðum á meðan starfsmenn Laugarnesskóla urðu að láta sér duga páskaegg númer eitt sem foreldrar í hverfinu gáfu þeim. Innlent 27.3.2026 23:17
Dönsk börn fá sem nemur fjórum auka kennsluárum Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vill lengja skólaár íslenskra grunnskólanemenda og fjölga kennslustundum. Fjöldi kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum á Íslandi er einn sá minnsti í Evrópu. Á sama tíma eru útgjöld á hvern nemanda þau mestu innan OECD en árangur nemenda í íslenskum grunnskólum undir meðaltali. Innlent 27.3.2026 19:05
Óþarfi að fella niður allt skólahald Ég er kennari í Reykjavík. Kenni unglingum sem ljúka grunnskóla í vor. Sultuslakur eftir að hafa í rólegheitum drukkið kaffi með konunni í morgun – því ekki fór ég í vinnuna enda engir nemendur sem biðu mín. Skoðun 26.3.2026 15:16
Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Skólastjóri Laugarnesskóla þakkar Google Translate fyrir að engin börn séu í skólanum í dag. Starfsfólkið ætlar að nýta daginn í að undirbúa flutninga. Innlent 26.3.2026 10:31
Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Biðlað er til foreldra á höfuðborgarsvæðinu að hafa börn sín heima meðan óveður ríður yfir landshlutann. Töluvert rask verður á skólastarfi en skólar og leikskólar verða opnir til þess að framlínustarfsmenn geti sinnt störfum sínum. Veður 25.3.2026 19:31
Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25.3.2026 14:05
Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Fulltrúar Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að einkaskólinn reki nýjan leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Skólagjöld verða ekki rukkuð af Kópavogsbúum í nýja skólann. Innlent 25.3.2026 10:46
Kveikjum neistann í Lindaskóla Undanfarin þrjú ár hefur Lindaskóli unnið markvisst eftir hugmyndafræðinni Kveikjum neistann á yngsta stigi skólans. Markmiðið er skýrt; að efla námsgetu, líðan og sjálfstraust nemenda. Skoðun 21.3.2026 07:32
Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Grunnskólinn á og getur verið eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Skólinn á að tryggja að öll börn hafi jafna stöðu, aðgang og möguleika, óháð efnahag foreldra/forráðamanna, bakgrunni eða búsetu. Skoðun 19.3.2026 11:06
Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Kópavogsbær ætlar að ganga til samninga við Ísaksskóla um að reka nýjan leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Menntaráð bæjarins samþykkt viljayfirlýsingu þess efnis í gær. Innlent 18.3.2026 15:41
Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Skólastjóri Laugarnesskóla segir það mikinn létti að geta loks tekið nýtt skólaþorp í gagnið en þau hafa beðið í þrjú ár eftir lausn á húsnæðisvanda skólans. Gripið verður til ráðstafanna til að bæta umferðaröryggi fyrir börnin við Reykjaveg. Innlent 13.3.2026 19:16
Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Kópavogsleiðin er svolítið merkilegt fyrirbæri. Ég finn mig knúna til að tjá mig um hana og hvernig hún reynist mér, einstæðri móður tveggja stúlkna sem eru í leikskóla annars vegar og grunnskóla hins vegar. Skoðun 13.3.2026 09:03
Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, snýr ekki aftur til starfa í skólanum. Hún var send í leyfi í nóvember á meðan ráðist var í úttekt á stjórnunarháttum í skólanum. Úttekt sem kostaði 3,9 milljónir króna. Innlent 10.3.2026 11:10
Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Í Reykjavík eru tæplega 40 grunnskólar, hver með sína sérstöðu og styrkleika. Sú sérstaða birtist meðal annars í fjölbreytni nemendahóps, öflugu starfsfólki, aðstöðu og staðsetningu skólanna. Allir grunnskólar borgarinnar leggja ríkan metnað í að skapa fjölbreytt og skapandi námsumhverfi í takt við Menntastefnu Reykjavíkur – Láttu draumana rætast. Skoðun 9.3.2026 09:33
Önnur hver stelpa beðin um nektarmyndir og fær klámfengin skilaboð Ofbeldi í nánum samböndum unglinga er risastórt mál að mati ungmenna sem komu saman í Hafnarfirði dag til að ræða málið og finna lausnir. Verkefnastýra hjá Barnaheillum segir birtingarmyndir ofbeldisins oft grófari í dag en áður. Brýnt sé sé að stjórnvöld bregðist við. Innlent 4.3.2026 19:31
Niðurstöður samræmdu prófanna birtar eftir skólum Niðurstöður samræmdra prófa grunnskólabarna verða birtar opinberlega eftir skólum. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðherra um fyrirkomulag samræmds námsmats í grunnskólum. Innlent 4.3.2026 11:44
Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Samræmd próf verða í marsmánuði lögð fyrir grunnskólanemendur í fyrsta sinn í fimm ár. Skólastjóri segist heilt yfir sáttur við nýtt fyrirkomulag prófanna, þó ýmsir vankantar séu til staðar. Nemendur séu rólegir vegna prófanna. Innlent 3.3.2026 12:01
Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Í fyrsta skipti í fimm ár voru samræmd próf lögð fyrir grunnskólanemendur landsins. Þrátt fyrir minni háttar tæknivandræði fyrri hluta dags segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að próftakan hafi almennt gengið vel. Innlent 2.3.2026 20:38
Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Lögmaður telur Reykjavíkurborg hafa bakað sér margra milljóna skaðabótaskyldu í kjölfar uppsagnar verktaka við Ölduselsskóla. Engar upplýsingar sé að fá um ástæðuna. Loka þurfti skólanum vegna öryggismála eftir uppsögnina. Borgin biðst afsökunar á því hvernig staðið var að málinu. Innlent 27.2.2026 19:52
„Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu“ Reykjavíkurborg harmar hvernig staðið var að uppsögn verktaka í Ölduselsskóla, en starfsmenn skólans urðu vitni að orðaskaki fulltrúa beggja aðila í kjölfar uppsagnar. Verktakinn hafnar því að borgin hafi margoft krafist úrbóta. Innlent 27.2.2026 12:01
Segja verktakann hafa fallið á prófinu Reykjavíkurborg segir að verktaki sem kom að framkvæmdum í Ölduselsskóla í Breiðholti hafi ekki uppfyllt gæðakröfur við frágang á verkinu. Vegna þessa var ákveðið að slaufa samstarfinu og fá annan í staðinn. Hættuástand skapaðist við skólann eftir að verktakinn tók saman búnað sinn í gær. Til stendur að hefja skólastarf samkvæmt stundatöflu á mánudag. Innlent 27.2.2026 10:35
„Fyrir löngu búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla“ Embættismenn á vegum Reykjavíkurborgar og fulltrúar verktaka sem hefur verið við framkvæmdir í Ölduselsskóla hnakkrifust á kaffistofu kennara á miðvikudag, að viðstöddum kennurum. Innlent 27.2.2026 06:41
Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningarmerki Skólahald í öllum tíu árgöngum Ölduselsskóla í Breiðholti í Reykjavík hefur verið fellt niður á morgun með skömmum fyrirvara með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi. Foreldrar barna í skólanum skilja hvorki upp né niður og velta fyrir sér hvað hafi eiginlega komið upp á. Innlent 26.2.2026 22:12
Vilja finna unglingaskóla nýjan stað Borgarráð samþykkti í morgun að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardal á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina. Huga á að annarri staðsetningu og fara í samráðsferli að nýju með helstu hagaðilum í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu. Innlent 26.2.2026 15:58
Tína rusl til að komast á Reyki Krakkar í sjöunda bekk í Laugalækjarskóla fundu upp á nýrri leið til að safna fyrir ferðalagi þeirra í skólabúðirnar á Reykjum. Þau ætla að verja degi í að týna rusl í almenningsrýmum hverfisins og safna áheitum. Innlent 25.2.2026 21:51
Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis. Innlent 25.2.2026 10:17
Hvernig nýtist Matsferill barninu þínu? Við viljum öll að börnin okkar fái að njóta sín í skólanum - að þau finni styrkleika sína og fái þann stuðning sem þau þurfa, þegar þau þurfa á honum að halda. Sem foreldrar og uppalendur vitum við að ekkert skiptir meira máli en velferð þeirra og framtíð. En til þess að við getum stutt þau rétt, þurfum við að hafa skýra mynd af því hvar þau standa og hvernig þeim miðar áfram. Skoðun 25.2.2026 08:15