
Morð í Rauðagerði

Atburðarásinni í Rauðagerðismálinu lýst í ákæru
Morðið á Armando Beqirai var skipulagt og fylgst var með ferðum hans kvöldið sem hann var myrtur, ef marka má ákæru héraðssaksóknara í Rauðagerðismálinu svokallaða.

Ákærðu krafin um tæplega 70 milljónir í bætur
Þau fjögur sem ákærð eru fyrir að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn eru sameiginlega krafin um rúmlega 68 milljónir í bætur ásamt vöxtum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur fjórmenningunum sem Vísir hefur undir höndum.

Þingmenn þungt hugsi eftir umfjöllun Kompáss: „Vægast sagt sláandi“
Þingmönnum var mörgum hverjum mikið niðri fyrir þegar skipulögð glæpastarfsemi var rædd á þinginu í dag. Upphafsmaður umræðunnar var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sem telur ástæðu til að óttast að Íslendingar séu að missa tökin á skipulagðri glæpastarfsemi.

Segir að Íslendingurinn í Rauðagerðismálinu muni leita réttar síns
„Þetta er enn eitt augljósa dæmið um hvernig lögreglan fer stundum offari í rannsóknum sínum og yfirlýsingum,“ segir Steinbergur Finnbogason lögmaður um rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu.

Þrír karlar og ein kona ákærð í Rauðagerðismálinu
Þrír karlar og ein kona hafa verið ákærð í Rauðagerðismálinu. Þetta herma heimildir fréttastofu en fjórmenningarnir eru allir ákærðir fyrir 221. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um manndráp og á það að hafa verið unnið í samverknaði.

Fjórir hafa verið ákærðir vegna morðsins í Rauðagerði
Fjórir hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara vegna morðsins á Armando Beqiri, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem skotinn var til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.

Deilir áhyggjum lögreglu af albönsku mafíunni
Dómsmálaráðherra tekur undir áhyggjur lögreglu um að albanska mafían fari að láta til sín taka hér á landi. Það þurfi með öllum mætti að tryggja öryggi borgaranna með því að styrkja lögregluna.

Skorar á ríkisstjórnina að opna augun eftir umfjöllun Kompáss
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórnina hafa brugðist því að verja þjóðina gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta sagði hún eftir að hafa horft á umfjöllun Kompáss um málefnið.

„Þetta var bara aftaka“
Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi.

Rauðagerðismálið til héraðssaksóknara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur afhent embætti héraðssaksóknara gögn vegna rannsóknar Rauðagerðismálsins. Mun það falla í hlut embættisins að ákveða hvort ákærur verða gefnar út í málinu.

Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum
Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands.

Rauðagerðismálið til ákærusviðs á morgun
Rannsókn á morðinu í Rauðagerði er að mestu lokið og stefnt er að því að senda málið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Þetta segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, í samtali við fréttastofu.

Lögregla sviðsetur morðið í Rauðagerði
Töluverður fjöldi lögreglumanna er við störf í Rauðagerði í tengslum við morðið sem þar var framið í febrúar. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir að um sé að ræða vettvangsvinnu í tengslum við rannsókn málsins.

Meintir gerendur í tveimur andlátsmálum tengjast
Tengsl eru á milli mannsins sem játað hefur að hafa orðið manni að bana í Rauðagerði og manns sem nú sætir gæsluvarðhaldi vegna dauða manns í Kópavogi á föstudag. Lögregla telur málin þó ekki tengjast. Farbann verður ekki framlengt yfir tveimur mönnum sem hafa stöðu sakbornings í rauðagerðismálinu.

Höfnuðu beiðninni því endanlegur dómur í máli meints morðingja lá ekki fyrir
Albanskur karlmaður á fertugsaldri var ekki framseldur til Albaníu árið 2017 vegna þess að endanlegur dómur lá ekki fyrir í sakamáli hans í heimalandinu. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.

Meintur morðingi eftirlýstur í Albaníu en íslensk stjórnvöld höfnuðu framsali
Albanskur karlmaður sem lögregla segir að hafi játað að hafa banað samlanda sínum í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn er eftirlýstur í heimalandi sínu fyrir vopnað rán og hefur verið um árabil. Fréttablaðið greindi fyrst frá.

Telja sig vita hver hlutdeildarmaðurinn er
Játning liggur fyrir í Rauðagerðismálinu og eru fjórtán aðilar með réttarstöðu sakbornings. Rannsókn lögreglu snýr einnig að mögulegum hefndaraðgerðum gegn þeim sem liggja undir grun í málinu. Yfirlögregluþjónn segir að um sé að ræða flóknustu morðrannsókn hér á landi í seinni tíð.

Játning liggur fyrir í Rauðagerðismálinu
Einstaklingur í haldi hefur játað að hafa banað fertugum albönskum karlmanni þann 13. febrúar síðastliðinn. Lögregla telur játninguna passa við gögn og kenningar lögreglu. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglu eftir hádegið.

Svona var blaðamannafundurinn vegna Rauðagerðismálsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 14:03 vegna morðsins sem framið var í Rauðagerði í Reykjavík í síðasta mánuði. Til umfjöllunar verður rannsókn embættisins á málinu.

Boða til blaðamannafundar vegna morðsins í Rauðagerði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 14:03 vegna morðsins sem framið var í Rauðagerði í Reykjavík í síðasta mánuði. Til umfjöllunar verður rannsókn embættisins á málinu.

Tveir úrskurðaðir í tíu vikna farbann
Tveir voru úrskurðaðir í tíu vikna farbann í Héraðsdómi Reykjavíkur að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna manndrápsins við Rauðagerði í síðasta mánuði.

Morðvopnið í Rauðagerðismálinu fundið
Lögregla hefur lagt hald á byssu sem talið er að hafi verið notuð til að bana albönskum karlmanni í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi.

Brutu upp dyr snemma morguns í miðbæ Reykjavíkur
Sérsveit ríkislögreglustjóra braut upp útidyr í fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur í gærmorgun. Um var að ræða hluta af aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsóknina í Rauðagerðismálinu.

Fjórar handtökur og húsleit á sex stöðum í tengslum við morðið í Rauðagerði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra í morgun í tengslum við rannsókn Rauðagerðis-málsins svokallaða og framkvæmdi húsleit á sex stöðum í umdæminu og utan þess.

Níu skotáverkar á líkama hins látna
Í bráðabirgðaskýrslu réttarmeinafræðings vegna réttarkrufningar á Armando Beqirai, mannsins sem skotinn var til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar, kemur fram að hann hafi hlotið níu skotáverka, meðal annars í höfuð, bol og lífsnauðsynleg líffæri. Þá fundust níu skothylki á vettvangi glæpsins.

Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna Rauðagerðismorðsins
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald vegna aðildar að morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum átti að renna út í dag.

Landsréttur segir lögreglu heimilt að kalla verjanda í skýrslutöku
Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um heimild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að taka skýrslu af verjanda Íslendings sem sætir nú farbanni vegna rannsóknar á hinu svokallaða Rauðagerðismáli.

Úrskurðaður í lengra gæsluvarðhald vegna morðsins
Einn var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar á morði í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar.

Krafa lögreglu um að fella niður skipun Steinbergs sem verjanda samþykkt
Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í morgun kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að fella niður skipun Steinbergs Finnbogasonar sem verjanda Íslendingsins í Rauðagerðismálinu svokallaða.

Þrír úrskurðaðir í fjögurra vikna farbann í tengslum við morðið í Rauðagerði
Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag farbann yfir þremur einstaklingum í tengslum við morðið í Rauðagerði. Voru einstaklingarnir þrír úrskurðaði í fjögurra vikna farbann, eða til þriðjudagsins 6. apríl.