Spænski boltinn

Gæti orðið einn launahæsti varnarmaður heims fari hann á frjálsri sölu
Antonio Rüdiger, varnarmaður Chelsea og þýska landsliðsins, verður samningslaus í sumar. Fari svo að hann fari á frjálsri sölu frá félaginu gæti hann orðið einn af launahærri varnarmönnum heims.

Alexia Putellas: Óumdeilanlega best í heimi
Hin 27 ára gamla Alexia Putellas er besta knattspyrnukona í heimi árið 2021, það er óumdeilanlegt. Hún hlaut Gullknöttinn, Balldon d‘Or, nýverið ásamt því að vera valin best að mati Guardian en hvað er það sem gerir hana jafn góða og raun ber vitni?

Spænski kvennaboltinn útilokaður frá mögulegri fjárfestingu upp á mörg hundruð milljónir
Það virðist sem spænsk knattspyrna gæti farið að blómstra á ný en talið er að félög í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni, séu við það að fá innspýtingu upp á þrjá milljarða evra á komandi árum. Kvennaboltinn mun hins vegar ekki fá sjá krónu af þessari upphæfð.

Fyrrverandi yngri liða þjálfari hjá Barcelona ásakaður um misnotkun á börnum
Albert Benaiges, fyrrverandi þjálfari yngra liða Barcelona, hefur verið ásakaður um að hafa misnotað allt að 60 börnum á tíma sínum hjá félaginu. Benaiges er með þekktari yngra liða þjálfurum Spánar.

Kænn sem refur þegar hann skoraði og meiddist
Iago Aspas, fyrrverandi leikmaður Liverpool, náði sér viljandi í gult spjald í leik með Celta Vigo gegn Valencia í spænsku 1. deildinni í fótbolta á sunnudag.

Sjötti sigur Madrídinga í röð
Real Madrid vann sinn sjötta leik í röð í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið heimsótti Real Sociedasd í kvöld. lokatölur urðu 0-2, en Madrídingar hafa ekki tapað í deildinni síðan í byrjun október.

Börsungar misstigu sig gegn Real Betis
Real Betis tók stigin þrjú er liðið vann virkilega góðan 0-1 útisigur gegn Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Betis er nú sjö stigum fyror ofan Barcelona sem situr í sjöunda sæti deildarinnar.

Tók Börsunga sinn tíma að brjóta ísinn
Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona unnu sannfærandi 4-0 sigur á Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Sigurinn var þó ef til vill ekki jafn sannfærandi og raun bar vitni.

Mörk Ronaldo krufin: Flest með hægri fæti og meira en helmingur í treyju Real
Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis í 3-2 sigri Manchester United á Arsenal er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Var hinn 36 ára gamli Portúgali að skora sitt 800. og 801. mark á ferlinum.

Xavi heldur áfram að taka til hendinni á Nývangi
Xavi Hernández, nýráðinn þjálfari Barcelona, virðist allt annað en sáttur með hvernig er haldið um taumana hjá uppeldisfélaginu.

Benzema hélt sigurgöngu Real áfram
Sigurganga Real Madríd heldur áfram þökk sé franska sóknarmanninum Karim Benzema. Liðið er nú með sjö stiga forystu á toppi La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar.

Zlatan sagði Mbappé að fara til Real en ráðlagði PSG að selja hann ekki
Hinn fertugi Zlatan Ibrahimović getur verið skondinn þegar sá gállinn er á honum. Hann hefur nú lagt orð í belg varðandi framtíð hins franska Kylian Mbappé.

Lögreglan þurfti að stíga inn í rifrildi Xavi og Emery
Barcelona vann dramatískan 3-1 sigur á Villareal í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á laugardagskvöld. Er liðin gengu til búningsherbergja sauð allt upp úr milli stjóra liðanna.

Ancelotti: Markið hans Vinicius Junior sýnir að hann getur orðið sá besti í heimi
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, var heldur betur sáttur með brasilíska framherjann Vinicius Junior eftir dramatískan 2-1 sigur Real Madrid í toppslag á móti Sevilla í gær.

Vinicius hetjan í dramatískum sigri Real Madrid
Það var boðið upp á dramatískar lokamínútur þegar Real Madrid fékk Sevilla í heimsókn í toppbaráttuslag í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Atletico heldur áfram að þjarma að grönnum sínum
Atletico Madrid átti ekki í miklum vandræðum með Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Dramatískur sigur Barcelona á Villarreal
Barcelona vann góðan útisigur á Villarreal í bráðfjörugum leik í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og eru enn taplausir undir stjórn Xavi.

Líkir því að þjálfa Real Madrid við að keyra Ferrari bíl
Carlo Ancelotti er ekki á því að það sé erfitt starf að vera þjálfari Real Madrid liðsins og notaði sérstaka myndlíkingu til að sanna mál sitt.

Benzema sekur í fjárkúgunarmálinu og fær skilorðsbundinn fangelsisdóm
Karim Benzema, leikmaður Real Madrid, hefur verið fundinn sekur um að taka þátt í að reyna kúga fé út úr Matieu Valbuena, fyrrverandi samherja sínum í franska landsliðinu, með kynlífsmyndbandi. Benzema fékk eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm og 75 þúsund evra sekt sem nemur rúmlega ellefu milljónum íslenskra króna.

Real Madrid lyfti sér á toppinn með stæl
Real Madrid átti ekki í teljandi vandræðum með Granada þegar liðin áttust við í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Barca vann 1-0 sigur í fyrsta leiknum undir stjórn Xavi
Barcelona goðsögnin Xavi Hernández stýrði liði Barcelona í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið fékk Espanyol í heimsókn í borgarslag í spænsku úrvalsdeildinni.

Felipe kom Atletico til bjargar á ögurstundu
Atletico Madrid vann nauman en mikilvægan sigur á Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Í leit að fullkomnun: Ekkert fær ofurlið Barcelona stöðvað
Hvernig má það vera að allt sé í hers höndum hjá karlaliði félags á meðan kvennalið þess blómstrar og er besta lið álfunnar og mögulega sögunnar? Þegar stórt er spurt er fátt um svör en hér að neðan verður kafað ofan í kvennalið Barcelona og ótrúlegan árangur þess undanfarið.

Dani Alves snúinn aftur til Barcelona
Hinn 38 ára Dani Alves hefur náð samkomulagi við sitt fyrrum félag, Barcelona, um að leika með liðinu út tímabilið. Hann mun byrja að æfa með liðinu í næstu viku, en má ekki spila fyrr en í janúar.

Gæti þurft að leggja skóna á hilluna eftir að hafa greinst með hjartsláttatruflanir
Sergio Agüero, framherji Barcelona, gæti þurft að hætta knattspyrnuiðkun eftir að hann greindist með hjartsláttatruflanir. Agüero var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fundið fyrir verkjum í brjósti í leik gegn Alaves í síðasta mánuði.

Dani Alves snýr líklega aftur til Barcelona
Hinn 38 ára Dani Alves gæti snúið aftur til Barcelona í janúar.

Nýi harðstjórinn af Nývangi: Reglur Xavi leka út
Xavi Hernandez hefur snúið aftur til Barcelona og er tekinn við sem þjálfari liðsins á miklu ólgutímum. Hann var fljótur að setja sitt mark á liðið með því að setja harðar reglur fyrir leikmenn sína.

Mo Salah og Benzema báðir á toppnum á báðum listum
Framherjarnir Mohamed Salah og Karim Benzema hafa verið í miklum ham með liðum sínum í byrjun tímabilsins og þá skiptir engu hvort það er að skora sjálfir eða leggja upp fyrir liðsfélagana.

Xavi ætlar að hrista upp í leikmannahópnum | Pique, Alba, Roberto og Busquets á útleið
Svo virðist sem nýr þjálfari Barcelona ætli sér að taka til hendinni og losa sig við suma af sínum reynslumestu leikmönnum.

Real vill losna við sex leikmenn
Spænska knattspyrnufélagið Real Madríd stefnir á að losa sig við sex leikmenn sem fyrst til þess að lækka launakostnað félagsins og búa þannig til pláss fyrir leikmenn á borð við Kylian Mbappé.