Umferð
1 2 3 4 5 6 … 15 ›
Búið að opna Reykjanesbraut á ný Reykjanesbraut hefur verið opnuð á nýjan leik. Loka þurfti brautinni í átt til Reykjavíkur vegna gámabíls sem þveraði veginn. Betra færi er á brautinni en í morgun. Innlent 30.1.2025 10:52
Þorir loksins að hlusta á útvarpið í bíl mömmu sinnar Ágúst Borgþór Sverrisson blaðamaður og rithöfundur er orðinn óhræddur við að kveikja á útvarpinu í bílnum. Hann fékk bílpróf fyrir rúmum þremur árum síðan, segist vera afleitur ökumaður og keyrði lengi vel í þögninni einni. Vinnufélagi segir hann hafa stórbætt sig frá því hann hafi varla þorað að keyra út úr Vesturbæ Reykjavíkur. Lífið 27.1.2025 07:04
Valt inn á byggingarsvæði eftir árekstur við strætó Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árekstri jepplings og strætisvagns sem varð á gatnamótum Snorrabrautar og Bergþórugötu í Reykjavík í morgun. Jepplingurinn, nánar tiltekið Suzuki Jimny, valt inn á byggingarsvæði eftir áreksturinn. Innlent 24.1.2025 15:08
Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Við samþykktum í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í gær að setja forgangsakrein fyrir strætó á 500 metra kafla vestanmegin á Kringlumýrarbraut í suðurátt milli Miklubrautar og Háaleitisbrautar í samvinnu við Vegagerðina. Þetta mun stytta ferðatíma strætófarþega á háannatíma verulega eða um allt að 4-5 mínútur á sumum leiðum. Sérakreinar koma almennt í veg fyrir að farþegar almenningssamgangna sitji fastir í umferðarsúpu og gera leiðirnar og þjónustuna áreiðanlegri. Skoðun 23.1.2025 12:32
Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Uppbygging forgangsakreinar fyrir strætisvagna á Kringlumýrarbraut er í undirbúningi á um fimm hundruð metra kafla á milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar. Umferð fjölskyldubílsins þarf ekki að víkja fyrir akreininni heldur verður miðeyja minnkuð. Innlent 23.1.2025 11:20
Landið mest allt gult í dag Gular viðvaranir hafa tekið gildi eða munu taka gildi seinna í dag um stærstan hluta landsins. Von er á nokkuð hvassri austan- og norðaustanátt í dag og gæti orður stormur eða rok syðst á landinu.Þá er von á úrkomu á austanverðu landinu í dag, slyddu eða snjókomu, og á hún að aukast töluvert seinnipartinn. Innlent 19.1.2025 07:43
Veðurviðvaranir og vegalokanir Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víðs vegar um landið. Margir vegir eru á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara. Innlent 18.1.2025 09:42
Brúin yfir Ferjukotssíki fallin Brúin yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði er fallin í talsverðum vatnavöxtum. Brúin var reist árið 2023 í kjölfar þess að eldri brú skemmdist í vatnavöxtum. Heimamenn á svæðinu gagnrýndu smíði brúarinnar á sínum tíma og töldu víst að hún myndi ekki endast. Innlent 15.1.2025 10:24
Rúntað um borgina í leit að holum Fjöldi bíla hefur orðið fyrir tjóni eftir að hafa verið ekið ofan í holur á vegum. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg segir sitt fólk bæði leita að holum til þess að fylla upp í og sinna tilkynningum sem telja tugi. Innlent 13.1.2025 12:49
Tjón varð á yfir 20 bifreiðum vegna hola í höfuðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust fjölmargar tilkynningar og aðstoðarbeiðnir í gær og nótt vegna bifreiða sem höfðu tjónast eftir að hafa verið ekið ofan í holur. Innlent 13.1.2025 06:15
Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Tvær rútur, með um fimmtíu manns innanborðs, skullu saman á þjóðveginu inni á Hellu. Hópslysaáætlun var virkjuð vegna árekstursins. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en síðar afturkölluð þegar í ljós kom að engin alvarleg slys urðu á fólki. Fimm voru þó fluttir á sjúkrahús til skoðunar. Innlent 10.1.2025 09:14
Biðtíminn í umferðinni hvergi lengri en í Lundúnum Hvergi í Evrópu þurfa ökumenn að bíða lengur í umferðinni en í Lundúnum, þar sem meðalbiðtíminn var 101 klukkustund í fyrra samkvæmt greiningarfyrirtækinu Inrix. Erlent 6.1.2025 07:26
„Mjög margir sem gleyma því og eru þá eins og beljur á svelli“ „Þetta er búið að ganga lygilega vel. Það voru fjórir til fimm árekstrar í morgun en síðan hefur ekkert verið kallað í okkur. Við héldum að það yrði meira, sérstaklega þegar að menn voru að fara í vinnuna. Það varð ekki raunin, vegna þess að þegar það bætist í umferðina, hægist á öllu, því sumir eru verr útbúnir en aðrir.“ Innlent 30.12.2024 14:30
Þróuðu vefsíðu sem segir til um umferð Ungur forritari hvetur fólk til að nota nýja vefsíðu sem segir til um hve mikil umferð er á höfuðborgarsvæðinu. Vefsíðan geti komið sér vel, nú þegar fólk er í óða önn að undirbúa áramótin. Innlent 29.12.2024 23:01
Ófært í Ísafjarðardjúpi Ófært er í Ísafjarðardjúpi og á Dynjandisheiði á Vestfjörðum. Þá er ófært um Breiðdalsheiði á Austurlandi og á Fróðárheiði á Vesturlandi. Innlent 28.12.2024 10:27
Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Þeir sem hafa átt leið í Kringluna fyrir opnun verslana í vikunni hafa orðið varir við unga og vaska verði sem inna þá eftir erindi sínu. Þar eru á ferðinni bílastæðaverðir sem passa upp á að hundruð starfsmanna Kringlunnar leggi ekki í stæði viðskiptavina í mestu jólaösinni. Viðskipti innlent 20.12.2024 11:50
Fastir í Múlagöngum í tvo tíma Starfsmenn úr áhöfn Freyju, nýjasta varðskipi Landhelgisgæslunnar, voru fyrir örskömmu að losna úr Múlagöngum, sem liggja á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Innlent 18.12.2024 16:39
Styttum biðtímann í umferðinni Biðtíminn og pirringurinn í umferðinni eykst með hverju ári. Ástæðan er að ekki hefur verið farið í uppbyggingu nauðsynlegra samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á síðustu áratugum, á sama tíma hefur bifreiðaeign á svæðinu margfaldast. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins tekur að einhverju leiti á þessu máli. Ár og áratugir munu líða þar til allar væntingar um framkvæmd samgöngusáttmálans nái fram að ganga, á meðan munum við íbúar á höfuðborgarsvæðinu vera áfram í umferðarteppum. Skoðun 5.12.2024 15:03
Tveggja bíla árekstur við Holtagarða Betur fór en á horfðist þegar sendibíll og fólksbíll rákust á við gatnamót Sæbrautar og Holtavegar í austurhluta Reykjavíkur á tíunda tímanum. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum. Innlent 5.12.2024 09:52
Gekk betur en óttast var Umferðin á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld virðist hafa gengið betur en óttast var, þó hún hafi farið hægar en gengu og gerist. Segja má að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi upplifað sinn fyrsta vetrardag í dag. Innlent 2.12.2024 19:33
Ástand á Reykjanesbrautinni Viðbragðsaðilar eru á fjórum vettvöngum á Reykjanesbraut þar sem árekstrar eða óhöpp hafa orðið. Ekki er vitað um slys á fólki. Innlent 2.12.2024 15:58
Vegir víða á óvissustigi Vegir á Suðurlandi, Vesturlandi og á Vestfjörðum verða á óvissustigi síðdegis vegna gulrar veðurviðvörunar og geta lokað með stuttum fyrirvara. Líkt og fram hefur komið er spáð suðaustan hríð síðdegis upp úr klukkan 14:00. Innlent 2.12.2024 11:35
Þriggja bíla árekstur og mikil umferðarteppa Þrír bílar lentu saman í árekstri á Hafnarfjarðvegi við Arnarnesbrú upp úr fimm síðdegis. Fjórir voru fluttir á bráðamóttöku til skoðunar en meiðsli virðast vera lítilháttar. Umferðarteppa hefur myndast niður að Hamraborg. Innlent 30.11.2024 18:34
Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Styrkur svifryks sem kemur frá bílaumferð hefur mælst hár á nokkrum stöðum í Reykjavík í dag. Búast má við áframhaldandi loftmengun næstu daga vegna umferðar, kulda og þurrks og eru borgarbúar hvattir til að draga úr notkun einkabíla. Innlent 29.11.2024 13:58
Þveraði Krýsuvíkurveg í mikilli hálku Krýsuvíkurvegur er lokaður vegna bíls sem þverar veginn. Innlent 27.11.2024 08:16
Ölvunarakstur á Arnarnesbrú Um þessar mundir eru fjögur ár liðin frá hörmulegum árekstri á Arnarnesbrú, sem átti sér stað laugardaginn 28. nóvember 2020. Ölvuð kona fór út í umferðina í alls óhæfu ástandi til að geta ekið bifreið örugglega. Hún ók norður Hafnarfjarðarveg og yfir á rauðum umferðarljósum hennar megin inn í umferðina á Arnarnesbrú. Á sama tíma var ég á leið yfir gatnamótin á grænu umferðarljósi. Skoðun 26.11.2024 16:47
Þéttingarstefnan í Reykjavík er efnahagslegt vandamál Íbúar í Reykjavík sitja alltof margir fastir í umferðaröngþveiti á leið til og frá vinnu og skóla. Jafnframt er íbúða- og lóðaskortur áberandi sem og ásælni borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Framsóknar, í að fórna grænum svæðum í borginni fyrir skammvinnan gróða. Þessi staða skýrist alfarið af stefnu borgaryfirvalda í skipulags- og samgöngumálum. Ef ekki verður breytt um stefnu er morgunljóst að staðan mun versna stöðugt næstu árin með enn þyngri umferðarhnútum og íbúðaskorti. Við svo verður ekki búið. Skoðun 26.11.2024 16:30
Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Hlutfall fólks sem á það til að lesa skilaboð við akstur lækkar úr 40,1 prósent í 35,8 prósent á milli ára. Hlutfall þeirra sem á það til að skrifa skilaboð við akstur lækkar úr 31,8 prósent í 27,7 prósent. Innlent 12.11.2024 09:02
Ók á sjö kindur og drap þær Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu. Innlent 11.11.2024 15:07
Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Aðalvarðstjóri hefur áhyggjur af fjölgun tilvika þar sem ökumenn aka yfir á rauðu ljósi. Fleiri og fleiri ökumenn séu annars hugar í umferðinni og jafnvel að horfa á kvikmyndir í símanum á meðan þeir keyra. Innlent 9.11.2024 22:52