Skoðanakannanir

Fréttamynd

Græningjar teknir fram úr Verka­manna- og Íhalds­flokki

Umbrot í stjórnmálalandslagi Bretlands halda áfram ef marka má nýja skoðanakönnun þar sem Græningjar mælast næstvinsælasti flokkur landsins og stærri en bæði Verkamanna- og Íhaldsflokkurinn. Græningjar njóta mest stuðnings fólks sem er yngra en fimmtugt.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta verða mjög spennandi kosningar“

Það eru verulega spennandi kosningar í vændum í Reykjavík að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings, en spennan gæti magnast enn frekar eftir að kosningaúrslitin liggja fyrir í vor. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna í borginni og hið nýja Vinstri gæti náð inn að minnsta kosti tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri.

Innlent
Fréttamynd

Tvö­falt fleiri karlar en konur kjósa Mið­flokkinn

Samkvæmt nýrri könnun Prósents á fylgi flokka er Samfylkingin með mesta fylgið, eða 30,1 prósent. Miðflokkurinn er þar næststærsti flokkurinn með 19,6 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn nánast með sama fylgi, 13,7 og 13,5. 

Innlent
Fréttamynd

Enginn meðal­maður eða meðal­kona til í al­vörunni

Hagstofan birti á konudaginn samantekt á tölum um það hvernig konur verja degi sínum. Upplýsingarnar eru fengnar úr tímarannsókn sem framkvæmd var af Hagstofunni fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið árið 2023. Deildarstjóri hjá Hagstofunni segir meðaltal í raun ekki lýsa neinum einum. Svarhlutfall í rannsókninni hafi verið afar lágt og því ekki hægt að birta niðurstöður nema við eina breytu. 

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkurinn ekki í sam­keppni og „al­veg slök“ í Miðflokknum

Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vill ekki meina að flokknum sé að fatast flugið eftir að fylgi við flokkinn mældist í fyrsta sinn í hálft ár á niðurleið. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig fylgi í sömu könnun en Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, segist vona að það sé til marks um að hann sé að ná vopnum sínum á ný og að bjartari tímar séu framundan. Þótt hreyfing sé á fylgi við flokkana vill hvorug þeirra fullyrða að þeir séu í beinni samkeppni um fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Mið­flokki fatast flugið

Miðflokknum fatast flugið og Sjálfstæðisflokkurinn nær vopnum sínum í nýrri könnun Maskínu. Niðurstöðurnar voru birtar í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en meðal annarra tíðinda eru þau að Píratar mælast í þetta skiptið með meira fylgi en Flokkur fólksins.

Innlent
Fréttamynd

Mikill meiri­hluti vill banna sölu á orku­drykkjum til barna

Mikill meirihluti, eða 83 prósent, eru hlynnt því að sala á orkudrykkjum verði bönnuð börnum og ungmennum undir átján ára aldri samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents. Þrettán prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og fjögur prósent aðspurðra eru andvíg.

Innlent
Fréttamynd

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Lífið
Fréttamynd

Þjóðin klofin gagn­vart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu

Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja turna tal í Reykja­vík

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.

Innlent
Fréttamynd

Litlar breytingar á fylgi flokkanna

Litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokkanna milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Gallup. Breytingarnar eru á bilinu 0,1 til 0,8 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og Miðflokkurinn næststærstur. Meirihluti styður störf ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Al­gjör­lega óásættan­leg staða

„Það kemur mér auðvitað pínulítið á óvart ef kjósendur vilja frekar kjósa einhvern veginn afsprengi Framsóknarflokksins heldur en Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður þess síðarnefnda. Miðflokkurinn sé afturhaldssamur þjóðernisflokkur sem sæki innblástur til Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekki laust við að það fari um mann“

Miðflokkurinn mælist nú með rúmlega 22 prósenta fylgi, aðeins fimm prósentum minna en Samfylking og mun meira en næstu flokkar á eftir. Varaformaðurinn segir að hann finni fyrir ákalli um breytt stjórnmál og að mikilvægt sé að Miðflokksmenn haldi áfram að tala skýrt um þau.

Innlent
Fréttamynd

Mið­flokkurinn nálgast Sam­fylkingu

Miðflokkurinn mælist með 22,2 prósent í nýrri könnun Maskínu og eykst fylgið um þrjú prósent milli mánaða. Samfylkingin mælist með 27 prósent og því munar einungis tæpum fimm prósentustigum á flokkunum. Viðreisn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. 

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“

Meirihluti landsmanna er hlynntur upptöku viðræðna við Evrópusambandið samkvæmt könnun Maskínu. Könnunin var gerð í desember og prófessor í stjórnmálafræði telur líklegt að afstaða fólks sé að taka hröðum breytingum samhliða vendingum á alþjóðavísu. Geri megi ráð fyrir algjörri uppstokkun í umræðu um kosti og galla aðildar.

Innlent
Fréttamynd

Mikill meiri­hluti vill lög­festa rétt barna til leikskólavistar

Alls eru 74 prósent hlynnt því að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur á Íslandi. 18 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og átta prósent eru andvíg. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar á vegum Prósents en nýlega voru kynntar tillögur frá aðgerðahópi á vegum stjórnvalda í leikskólamálum.

Innlent
Fréttamynd

Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í fram­kvæmd

Fleirum finnst Flokki fólksins ganga illa heldur en vel að koma málum sínum til framkvæmda í núverandi stjórnarsamstarfi, samkvæmt nýrri könnun. Alla jafna þykir almenningi samt núverandi stjórnarflokkum ganga betur að hrinda málum sínum í framkvæmd saman borið við fyrrverandi ríkisstjórn í desember 2023.

Innlent