Hnífjafnt í nýrri könnun Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. ágúst 2026 22:10 Kjósendur eru klofnir í afstöðu sinni til mögulegra viðræðna við ESB. Mynd er úr safni. Vísir/Viktor Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei.
Gengið verður til þjóðaratkvæðis um hvort hefja skuli á ný aðildarviðræður við ESB í lok mánaðar og virðist aukinn hiti vera að færast í kosningabaráttuna nú þegar nær líður kjördegi og sumarfríum er lokið hjá mörgum. Mjótt hefur verið á munum í könnunum en já-hliðin hefur hingað til haft naumt forskot. Miðað við þessar nýjustu tölur hefur dregið saman með hliðunum tveimur. Könnunin var gerð dagana 15.–30. júlí fyrir Áfram Ísland, samtök á nei-hlið umræðunnar. Það er Morgunblaðið sem greinir frá en í frétt sinni bendir blaðið á að það séu einungis 40% sem tóku afstöðu til spurningarinnar, sem telst lágt. Er því velt upp hvort það merki að mörg eigi enn eftir að ákveða sig. Munur er á afstöðu íbúa höfuðborgarsvæðisins og íbúa landsbyggðarinnar. Á höfuðborgarsvæðinu hyggjast 55 prósent segja já en á landsbyggðinni hyggjast 56 prósent segja nei. Sé litið til aldurs er mest neikvæðni meðal hinna elstu og hinna yngstu en þau sem eru á miðjum aldri eru almennt jákvæðari gagnvart viðræðum. Ekki þykir teljandi munur á afstöðu karla og kvenna en fleiri konur eru þó enn óákveðnar. Vísir birti í gær niðurstöður úr skoðanakönnun Maskínu þar sem meðal annars kom fram að fjörutíu prósent þjóðarinnar telja að innganga í ESB muni ekki hafa áhrif á matvælaverð.
Skoðanakannanir Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira