Innlent Fimmfaldur pottur: stefnir í 35 milljónir Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út um helgina og er því fimmfaldur laugardaginn 10. mars og stefnir í 35 milljónir sem er stærsti fimmfaldi fyrsti vinningur frá upphafi. Innlent 10.3.2007 15:11 Ætla að læra í sólarhring Nemendur Menntaskólans Hraðbraut ætla að læra í 24 tíma til að safna sér fyrir útskriftarferðinni sinni. Kennarar og foreldrar gefa vinnu sína og sitja yfir þeim til að tryggja að allt fari rétt fram. Þau hafa fengið þónokkurn styrk frá stórum fyrirtækjum. Innlent 10.3.2007 13:39 Forritunarkeppni framhaldsskóla haldin í sjötta sinn Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík heldur forritunarkeppni framhaldsskólanna í sjötta sinn í dag. Átján lið frá tíu framhaldsskólum keppa að þessu sinni. Keppt er í þremur þyngdarflokkum en keppnin skiptist í tvo hluta. Innlent 10.3.2007 12:51 Betur má ef duga skal Konum fjölgaði um 4% í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Annað hvert sveitarfélag hefur nu komið sér upp jafnréttisáætlun en betur má ef duga skal, segir Jafnréttisstofa. Innlent 10.3.2007 12:41 Gengi DeCode hækkar Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hækkuðu um tíu prósent á NASDAQ hlutabréfamarkaðnum fyrir helgi, eftir að greiningaraðili uppfærði bréfin vegna væntinga um jákvæðar fréttir af fyrirtækinu á næstunni. Hlutabréfin hækkuðu um 35 sent á hlut, eða um 10 prósent. Innlent 10.3.2007 12:33 Rafrænum skilríkjum dreift í haust Meirihluti landsmanna verður kominn með rafræn skilríki í seðlaveskið á næsta ári. Þau ættu að einfalda fólki lífið og auka öryggi barna og unglinga sem vilja spjalla saman á netinu. Innlent 10.3.2007 12:09 Sýningin tækni og vit er um helgina Sýningin tækni og vit er opin almenningi um helgina en á sýningunni kynna mörg helstu hátæknifyrirtæki landsins það nýjasta í tækni og þekkingu. Sýningin stærsti viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði. Innlent 10.3.2007 12:05 Fertugum er ekki allt fært Fertug kona var flutt á lögreglustöðina í Reykjavík eftir umferðaróhapp á Kringlumýrarbraut í gær vegna gruns um að hún væri undir áhrifum lyfja. Sama kona var stöðvuð við akstur í Lönguhlíð síðar um daginn og þá þótti einsýnt að hún væri undir áhrifum lyfja. Aksturslag hennar var stórhættulegt en konan virtist vera við það að sofna þegar að var komið. Hún var færð á lögreglustöð þar sem læknir úrskurðaði að konan væri óhæf til aksturs. Innlent 10.3.2007 10:12 Vinnuslys í Sorpu í gær Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir vinnuslys í Sorpu í Gufunesi rétt eftir hádegi í gær. Verið var að færa sýningarbás til eyðingar þegar óhappið varð. Básinn kom með flutningabíl og átti lyftari að taka hann úr bílnum. Svo illa vildi til að básinn datt af lyftaranum í miðju verki og lenti á fæti mannsins. Innlent 10.3.2007 10:10 Ísfirsk rokkhátíð lengd um einn dag Ísfirska rokkhátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið lengd um einn dag vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum og áhuga hljómsveita á að koma fram á hátíðinni. Fyrirhugað var að hátíðin hæfist á Ísafirði laugardaginn 7. apríl, en nú hafa skipuleggjendur ákveðið að hefja hátíðina degi fyrr, eða föstudaginn 6. apríl. Innlent 10.3.2007 10:02 15 fíkniefnamál í miðbænum í nótt Lögreglan í Reykjavík fór í fíkniefnaeftirlit á skemmtistöðum í miðbæ Reykjavíkur í nótt.Farið var inn á alla skemmtistaði í miðbænum og voru alls 15 mál færð til bókar eftir hana. Öll málin voru vegna fíkniefna sem voru ætluð til neyslu. Fólkið verður ákært fyrir vörslu fíkniefna og má búast við sektum. Innlent 10.3.2007 10:00 Skíðasvæði opin um land allt Skíðasvæði um allt land eru opin í dag. Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið frá til tíu til sex í kvöld. Veðrið er skaplegt, suðvestan átt, átta metrar á sekúndu og frost. Búast má við því að það hvessi síðar í dag. í dag er opið í Eldborgargili í Bláfjöllum í fyrsta skipti í vetur en þar er æfinga- og keppnisaðstaða skíðafélaganna. Engin æfingaaðstaða hefur verið í vetur, en í dag verður æft frá tíu til tvö. Innlent 10.3.2007 09:55 Umboðsmaður barna aðhefst ekki vegna forsíðu Umboðsmaður barna telur ekki ástæðu til að bregðast við ábendingum doktors í fjölmiðlafræði um að forsíða auglýsingabæklings Smáralindar feli í sér klámfengnar vísanir. Fjórtán ára fyrirsæta er á forsíðunni. Innlent 9.3.2007 18:24 Vistmenn Byrgis orðnir sakborningar Fyrrverandi vistmenn í Byrginu hafa verið boðaðir í yfirheyrslu til Skattrannsóknarstjóra með réttarstöðu sakbornings. Svo virðist sem nýverið hafi verið skráðar á þá launagreiðslur og þeir grunaðir um að hafa ekki gefið þær upp. Konur sem kært hafa Guðmund fyrir kynferðisbrot eru meðal þeirra sem boðaðir eru í yfirheyrslu. Innlent 9.3.2007 18:20 Ný byggingavöruverslun Innlent 9.3.2007 16:23 Íbúðalánasjoður hækkar útlánsvexti Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákvaðið að hækka útlánsvexti sjóðsins úr 4,7 prósentum í 4,75 prósent. Um er að ræða útlán sem einungis má greiða upp gegn greiðslu uppgreiðsluálags. Sambærileg kjör hjá bönkunum liggja á bilinu 4,95-5 prósent. Viðskipti innlent 9.3.2007 16:18 Vilja snjóbyssur í Bláfjöll og Skálafell Íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt að óska eftir viðræðum við Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Orkuveitu Reykjavíkur um könnun á snjóveitu á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli til framleiðslu á snjó. Innlent 9.3.2007 15:46 Industria meðal 50 framsæknustu fyrirtækja Evrópu Viðskiptatímaritið CNBC European Business hefur í viðamikilli úttekt sem birt er í marshefti tímaritsins útnefnt íslenska fyrirtækið Industria sem eitt af 50 framsæknustu fyrirtækjum í Evrópu ásamt fyrirtækjum á borð við netsímafyrirtækið Skype Technologies. Í umsögn blaðsins segir að Industria geti reynst eitt mikilvægasta fyrirtækið í samruna sjónvarps og stafrænna miðla í Evrópu. Viðskipti innlent 9.3.2007 13:49 Kviknaði í út frá eldavél Eldur kom upp í íbúð á Holtsgötu í vesturbæ Reykjavíkur um áttaleytið í kvöld. Kviknað hafði í hlut sem skilinn var eftir á eldavél. Slökkvilið var kallað á staðinn en íbúum hafði tekist að slökkva eldinn áður en það kom á staðinn. Slökkviliðið er núna að reykræsta íbúðina. Eitthvað var um skemmdir vegna reyks en umfang þeirra er óvíst sem stendur. Innlent 8.3.2007 21:21 Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi og mælist suma daga jafnmikil og í evrópskum milljónaborgum. Svo kann að fara að bæjarbúar þurfi að ganga með rykgrímur, verði vandinn ekki leystur. Innlent 8.3.2007 19:20 Bjarni segir jafnréttisfrumvarp of róttækt Nýtt jafnréttisfrumvarp er of róttækt, segir Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins en hann samdi frumvarpið ásamt fulltrúum annarra flokka. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Innlent 8.3.2007 19:14 Erlend lántaka eykst milli ára Gengisbundin lán til íslenskra heimila hafa aukist verulega á síðastliðnum tveimur árum. Þá eru vísbendingar uppi um að fasteignalán í erlendri mynt hafi aukist að undanförnu til viðbótar við gengisbundin bílalán eftir að krónan veiktist og innlendir vextir á íbúðalánum hækkuðu. Upphæð lána í erlendri mynt jókst um 150 prósent frá janúarlokum í fyrra til sama tíma á þessu ári. Viðskipti innlent 8.3.2007 16:50 Björgólfur hótar að flytja Straum úr landi Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka, gagnrýndi íslensk stjórnvöld í aðalfundi Straums í dag og sagðist hóta að flytja bankann úr landi vegna aðgerða stjórnvalda, sem hafi fyrirvaralaust breytt og þrengt reglur varðandi uppgjör fjármálafyrirtækja í erlendri mynt. Viðskipti innlent 8.3.2007 16:24 Viðsnúningur hjá HB Granda Útgerðafélagið HB Grandi skilaði tapi upp á 1.980 milljónir króna í fyrra samanborið við 549,3 milljóna króna hagnað árið áður. Viðskipti innlent 8.3.2007 16:07 Tillögur um jafnréttislög of róttækar Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðismanna við endurskoðun jafnréttislaga, segir tillögur nefndarinnar of róttækar. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur hefur síðan í sumar setið við endurskoðun jafnréttislaga, sem fyrst voru sett fyrir 30 árum. Innlent 8.3.2007 12:21 Tap hjá Orkuveitu Reykjavíkur Orkuveita Reykjavíkur (OR) tapaði 1.756 milljónum króna á síðasta árið samanborið við 4.359 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta skýringin á muninum er gengistap vegna langtímaskuldbindinga. Viðskipti innlent 8.3.2007 09:44 Hagnaður hjá Hitaveitu Rangæinga Hitaveita Rangæinga skilaði 51,1 milljóna króna hagnaði í fyrra samanborið við 38,8 milljóna tap árið 2005. Hitaveita Rangæinga sameinaðist Orkuveitu Reykjavíkur við upphaf þessa árs. Viðskipti innlent 8.3.2007 09:35 Securitas kaupir 30 prósenta hlut í ND á Íslandi Öryggisfyrirtækið Securitas hf. hefur keypt 30 prósenta hlut í þekkingar- og tæknifyrirtækinu ND á Íslandi, sem hefur fundið upp, þróað og selt tæki til sjálfvirkrar skráningar á aksturslagi bíla með sérstökum ökurita. Kaupverð er trúnaðarmál en með kaupunum er Securitas orðinn stærsti hluthafinn í ND á Íslandi. Viðskipti innlent 7.3.2007 22:15 Sátt um auðlindaákvæðið á næstu dögum Formenn stjórnarflokkanna stefna að sameiginlegri niðurstöðu um auðlindaákvæðið sem framsóknarmenn hafa lagt þunga áherslu á að fari inn í stjórnarskrá. Forsætisráðherra á von á því að lending náist í málinu á næstu dögum. Innlent 7.3.2007 19:00 Fundað með samgöngunefnd Alþingis Borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaga krefjast þess að framlög ríkisins til samgöngumála á höfuðborgarsvæði verði ríflega tvöfölduð frá því sem áformað er í samgönguáætlun Innlent 7.3.2007 18:51 « ‹ 102 103 104 105 106 107 108 109 110 … 334 ›
Fimmfaldur pottur: stefnir í 35 milljónir Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út um helgina og er því fimmfaldur laugardaginn 10. mars og stefnir í 35 milljónir sem er stærsti fimmfaldi fyrsti vinningur frá upphafi. Innlent 10.3.2007 15:11
Ætla að læra í sólarhring Nemendur Menntaskólans Hraðbraut ætla að læra í 24 tíma til að safna sér fyrir útskriftarferðinni sinni. Kennarar og foreldrar gefa vinnu sína og sitja yfir þeim til að tryggja að allt fari rétt fram. Þau hafa fengið þónokkurn styrk frá stórum fyrirtækjum. Innlent 10.3.2007 13:39
Forritunarkeppni framhaldsskóla haldin í sjötta sinn Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík heldur forritunarkeppni framhaldsskólanna í sjötta sinn í dag. Átján lið frá tíu framhaldsskólum keppa að þessu sinni. Keppt er í þremur þyngdarflokkum en keppnin skiptist í tvo hluta. Innlent 10.3.2007 12:51
Betur má ef duga skal Konum fjölgaði um 4% í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Annað hvert sveitarfélag hefur nu komið sér upp jafnréttisáætlun en betur má ef duga skal, segir Jafnréttisstofa. Innlent 10.3.2007 12:41
Gengi DeCode hækkar Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hækkuðu um tíu prósent á NASDAQ hlutabréfamarkaðnum fyrir helgi, eftir að greiningaraðili uppfærði bréfin vegna væntinga um jákvæðar fréttir af fyrirtækinu á næstunni. Hlutabréfin hækkuðu um 35 sent á hlut, eða um 10 prósent. Innlent 10.3.2007 12:33
Rafrænum skilríkjum dreift í haust Meirihluti landsmanna verður kominn með rafræn skilríki í seðlaveskið á næsta ári. Þau ættu að einfalda fólki lífið og auka öryggi barna og unglinga sem vilja spjalla saman á netinu. Innlent 10.3.2007 12:09
Sýningin tækni og vit er um helgina Sýningin tækni og vit er opin almenningi um helgina en á sýningunni kynna mörg helstu hátæknifyrirtæki landsins það nýjasta í tækni og þekkingu. Sýningin stærsti viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði. Innlent 10.3.2007 12:05
Fertugum er ekki allt fært Fertug kona var flutt á lögreglustöðina í Reykjavík eftir umferðaróhapp á Kringlumýrarbraut í gær vegna gruns um að hún væri undir áhrifum lyfja. Sama kona var stöðvuð við akstur í Lönguhlíð síðar um daginn og þá þótti einsýnt að hún væri undir áhrifum lyfja. Aksturslag hennar var stórhættulegt en konan virtist vera við það að sofna þegar að var komið. Hún var færð á lögreglustöð þar sem læknir úrskurðaði að konan væri óhæf til aksturs. Innlent 10.3.2007 10:12
Vinnuslys í Sorpu í gær Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir vinnuslys í Sorpu í Gufunesi rétt eftir hádegi í gær. Verið var að færa sýningarbás til eyðingar þegar óhappið varð. Básinn kom með flutningabíl og átti lyftari að taka hann úr bílnum. Svo illa vildi til að básinn datt af lyftaranum í miðju verki og lenti á fæti mannsins. Innlent 10.3.2007 10:10
Ísfirsk rokkhátíð lengd um einn dag Ísfirska rokkhátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið lengd um einn dag vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum og áhuga hljómsveita á að koma fram á hátíðinni. Fyrirhugað var að hátíðin hæfist á Ísafirði laugardaginn 7. apríl, en nú hafa skipuleggjendur ákveðið að hefja hátíðina degi fyrr, eða föstudaginn 6. apríl. Innlent 10.3.2007 10:02
15 fíkniefnamál í miðbænum í nótt Lögreglan í Reykjavík fór í fíkniefnaeftirlit á skemmtistöðum í miðbæ Reykjavíkur í nótt.Farið var inn á alla skemmtistaði í miðbænum og voru alls 15 mál færð til bókar eftir hana. Öll málin voru vegna fíkniefna sem voru ætluð til neyslu. Fólkið verður ákært fyrir vörslu fíkniefna og má búast við sektum. Innlent 10.3.2007 10:00
Skíðasvæði opin um land allt Skíðasvæði um allt land eru opin í dag. Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið frá til tíu til sex í kvöld. Veðrið er skaplegt, suðvestan átt, átta metrar á sekúndu og frost. Búast má við því að það hvessi síðar í dag. í dag er opið í Eldborgargili í Bláfjöllum í fyrsta skipti í vetur en þar er æfinga- og keppnisaðstaða skíðafélaganna. Engin æfingaaðstaða hefur verið í vetur, en í dag verður æft frá tíu til tvö. Innlent 10.3.2007 09:55
Umboðsmaður barna aðhefst ekki vegna forsíðu Umboðsmaður barna telur ekki ástæðu til að bregðast við ábendingum doktors í fjölmiðlafræði um að forsíða auglýsingabæklings Smáralindar feli í sér klámfengnar vísanir. Fjórtán ára fyrirsæta er á forsíðunni. Innlent 9.3.2007 18:24
Vistmenn Byrgis orðnir sakborningar Fyrrverandi vistmenn í Byrginu hafa verið boðaðir í yfirheyrslu til Skattrannsóknarstjóra með réttarstöðu sakbornings. Svo virðist sem nýverið hafi verið skráðar á þá launagreiðslur og þeir grunaðir um að hafa ekki gefið þær upp. Konur sem kært hafa Guðmund fyrir kynferðisbrot eru meðal þeirra sem boðaðir eru í yfirheyrslu. Innlent 9.3.2007 18:20
Íbúðalánasjoður hækkar útlánsvexti Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákvaðið að hækka útlánsvexti sjóðsins úr 4,7 prósentum í 4,75 prósent. Um er að ræða útlán sem einungis má greiða upp gegn greiðslu uppgreiðsluálags. Sambærileg kjör hjá bönkunum liggja á bilinu 4,95-5 prósent. Viðskipti innlent 9.3.2007 16:18
Vilja snjóbyssur í Bláfjöll og Skálafell Íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt að óska eftir viðræðum við Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Orkuveitu Reykjavíkur um könnun á snjóveitu á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli til framleiðslu á snjó. Innlent 9.3.2007 15:46
Industria meðal 50 framsæknustu fyrirtækja Evrópu Viðskiptatímaritið CNBC European Business hefur í viðamikilli úttekt sem birt er í marshefti tímaritsins útnefnt íslenska fyrirtækið Industria sem eitt af 50 framsæknustu fyrirtækjum í Evrópu ásamt fyrirtækjum á borð við netsímafyrirtækið Skype Technologies. Í umsögn blaðsins segir að Industria geti reynst eitt mikilvægasta fyrirtækið í samruna sjónvarps og stafrænna miðla í Evrópu. Viðskipti innlent 9.3.2007 13:49
Kviknaði í út frá eldavél Eldur kom upp í íbúð á Holtsgötu í vesturbæ Reykjavíkur um áttaleytið í kvöld. Kviknað hafði í hlut sem skilinn var eftir á eldavél. Slökkvilið var kallað á staðinn en íbúum hafði tekist að slökkva eldinn áður en það kom á staðinn. Slökkviliðið er núna að reykræsta íbúðina. Eitthvað var um skemmdir vegna reyks en umfang þeirra er óvíst sem stendur. Innlent 8.3.2007 21:21
Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi og mælist suma daga jafnmikil og í evrópskum milljónaborgum. Svo kann að fara að bæjarbúar þurfi að ganga með rykgrímur, verði vandinn ekki leystur. Innlent 8.3.2007 19:20
Bjarni segir jafnréttisfrumvarp of róttækt Nýtt jafnréttisfrumvarp er of róttækt, segir Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins en hann samdi frumvarpið ásamt fulltrúum annarra flokka. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Innlent 8.3.2007 19:14
Erlend lántaka eykst milli ára Gengisbundin lán til íslenskra heimila hafa aukist verulega á síðastliðnum tveimur árum. Þá eru vísbendingar uppi um að fasteignalán í erlendri mynt hafi aukist að undanförnu til viðbótar við gengisbundin bílalán eftir að krónan veiktist og innlendir vextir á íbúðalánum hækkuðu. Upphæð lána í erlendri mynt jókst um 150 prósent frá janúarlokum í fyrra til sama tíma á þessu ári. Viðskipti innlent 8.3.2007 16:50
Björgólfur hótar að flytja Straum úr landi Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka, gagnrýndi íslensk stjórnvöld í aðalfundi Straums í dag og sagðist hóta að flytja bankann úr landi vegna aðgerða stjórnvalda, sem hafi fyrirvaralaust breytt og þrengt reglur varðandi uppgjör fjármálafyrirtækja í erlendri mynt. Viðskipti innlent 8.3.2007 16:24
Viðsnúningur hjá HB Granda Útgerðafélagið HB Grandi skilaði tapi upp á 1.980 milljónir króna í fyrra samanborið við 549,3 milljóna króna hagnað árið áður. Viðskipti innlent 8.3.2007 16:07
Tillögur um jafnréttislög of róttækar Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðismanna við endurskoðun jafnréttislaga, segir tillögur nefndarinnar of róttækar. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur hefur síðan í sumar setið við endurskoðun jafnréttislaga, sem fyrst voru sett fyrir 30 árum. Innlent 8.3.2007 12:21
Tap hjá Orkuveitu Reykjavíkur Orkuveita Reykjavíkur (OR) tapaði 1.756 milljónum króna á síðasta árið samanborið við 4.359 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta skýringin á muninum er gengistap vegna langtímaskuldbindinga. Viðskipti innlent 8.3.2007 09:44
Hagnaður hjá Hitaveitu Rangæinga Hitaveita Rangæinga skilaði 51,1 milljóna króna hagnaði í fyrra samanborið við 38,8 milljóna tap árið 2005. Hitaveita Rangæinga sameinaðist Orkuveitu Reykjavíkur við upphaf þessa árs. Viðskipti innlent 8.3.2007 09:35
Securitas kaupir 30 prósenta hlut í ND á Íslandi Öryggisfyrirtækið Securitas hf. hefur keypt 30 prósenta hlut í þekkingar- og tæknifyrirtækinu ND á Íslandi, sem hefur fundið upp, þróað og selt tæki til sjálfvirkrar skráningar á aksturslagi bíla með sérstökum ökurita. Kaupverð er trúnaðarmál en með kaupunum er Securitas orðinn stærsti hluthafinn í ND á Íslandi. Viðskipti innlent 7.3.2007 22:15
Sátt um auðlindaákvæðið á næstu dögum Formenn stjórnarflokkanna stefna að sameiginlegri niðurstöðu um auðlindaákvæðið sem framsóknarmenn hafa lagt þunga áherslu á að fari inn í stjórnarskrá. Forsætisráðherra á von á því að lending náist í málinu á næstu dögum. Innlent 7.3.2007 19:00
Fundað með samgöngunefnd Alþingis Borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaga krefjast þess að framlög ríkisins til samgöngumála á höfuðborgarsvæði verði ríflega tvöfölduð frá því sem áformað er í samgönguáætlun Innlent 7.3.2007 18:51