Lög og regla
84 85 86 87 88 89 90 91 92 … 120 ›
Játar aðild að lyfjaráni Ungur maður hefur játað aðild að ráninu í Árbæjarapóteki á laugardag þar sem tveir grímuklæddir menn rændu lyfjum. Lögreglan í Reykjavík handtók í gær mann grunaðan um aðild að ráninu og játaði hann við yfirheyrslur í gærkvöldi. Hinn maðurinn er ófundinn en lögregla veit hver hann er. Hins vegar eru sjoppuræningjarnir sem frömdu rán í Kópavogi og Reykjavík í fyrrakvöld enn ófundnir. Innlent 13.10.2005 18:49
Dæmdir fyrir fjölda brota Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrir stundu tvo karlmenn um þrítugt í 9 og 6 mánaða fangelsi fyrir fjölda brota. Þeir voru dæmdir fyrir margvísleg umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og þjófnaði þar sem meðal annars var stolið tölvubúnaði úr bíl sem var að verðmæti um 10 milljónir króna með því sem í henni var. Bótakrafa vegna þess taldist vanreifuð og var því vísað frá dómi. Innlent 13.10.2005 18:49
Mesta magn LSD sem fundist hefur "Fjögur þúsund skammtar eru ákaflega mikið magn efna og gætu verið í sölu mánuðum saman ef því er að skipta," segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar hjá lögreglunni í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 18:49
Fékk bætur fyrir gæsluvarðhald Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið í morgun til að greiða karlmanni á fertugsaldri 500 þúsund krónur í bætur fyrir ólögmætt gæsluvarðhald sem hann sat í. Innlent 13.10.2005 18:49
Fékk þrjú ár fyrir fíkniefnasmygl Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Árna Geir Norðdahl Eyþórsson í þriggja ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl, en hann var sakfelldur fyrir að flytja til landsins rúmlega 800 grömm af hassi og 236 grömm af kókaíni. Árni Geir var á skilorði sem hann rauf með þessu broti og var ekki talið tilefni til að skilorðsbinda refsinguna. Innlent 13.10.2005 18:49
Ölvun ógildir ekki bótarétt Þótt fólk sé drukkið þegar það verður fyrir óhappi missir það ekki sjálfkrafa rétt til slysa- eða dánarbóta. Hæstiréttur tók af öll tvímæli um þetta þegar Tryggingamiðstöðin var dæmd til að greiða sjö milljónir í dánarbætur vegna konu sem lést þegar henni var ýtt fram af svölum á Kanaríeyjum. Innlent 13.10.2005 18:49
Með falsað vegabréf Rúmlega þrítugur útlendingur sótti um pólitískt hæli þegar hann kom úr ferjunni Norrænu á þriðjudagsmorgun. Við komuna til landsins hafði hann framvísað ungversku vegabréfi sem grunur lék á að væri falsað. Hann viðurkenndi að svo væri og óskaði hælis hér á landi sem pólitískur flóttamaður. Innlent 13.10.2005 18:49
Fjölmargir árekstrar í gær Fjöldi árekstra varð í Reykjavík í gærdag en engin slasaðist alvarlega þrátt fyrir talsvert eignatjón í sumum þeirra. Lögregla kann enga skýringu á þessu því þótt þoka hafi verið í borginni var hún ekki svo svört að hún hafi átt að byrgja ökumönnum sýn. Innlent 13.10.2005 18:49
Sýknaður af tilraun til manndráps Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði fyrir hádegi tæplega fimmtugan karlmann af ákæru um tilraun til manndráps. Innlent 13.10.2005 18:49
Orðlaus yfir sýknudómi Leigubílstjóri sem var skorinn á háls í lok júlí í fyrra sagðist hafa orðið gjörsamlega orðlaus þegar maðurinn sem var ákærður fyrir árásina var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Einn af þremur dómurunum taldi manninn sekan og vildi dæma hann í fimm ára fangelsi fyrir þessa stórhættulegu árás. Innlent 13.10.2005 18:49
Skólastjórinn fann drenginn Fjórtán ára pilturinn, sem leitað hefur verið að undanfarna viku, er fundinn. Skólastjórinn hans fann hann í gærmorgun Innlent 13.10.2005 18:49
Lögmaður dæmdur fyrir auðgunarbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag starfandi lögmann í átta mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot þegar hann reyndi að skerða rétt þrotabús. Maðurinn bjó til kröfu og falsaði dagsetningu til að koma í veg fyrir að þrotabú gæti gert kröfu í eign skjólstæðinga hans. Innlent 13.10.2005 18:49
Rannsókn lögreglu ábótavant Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði tæplega fimmtugan karlmann af ákæru um tilraun til manndráps. Dómurinn segir rannsókn lögreglu á málinu stórlega ábótavant en þær rannsóknir sem hefði átt að gera í tengslum við málið, en voru ekki gerðar, hefðu ein eða fleiri getað haft úrslitaáhrif á niðurstöðu þess. Innlent 13.10.2005 18:49
Ákærður fyrir bílbrennur Ríkissaksóknari hefur ákært 22 ára gamlan mann fyrir að kveikja í bílum og að hafa með því stofnað lífi níu manna í hættu. Maðurinn er einnig ákærður fyrir vopnalagabrot og akstur undir áhrifum deyfandi lyfja. Innlent 13.10.2005 18:49
Neitar klámfengnum skilaboðum Fyrrum kennari í Grunnskólanum í Stykkishólmi er ákærður af ríkissaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn tveimur nemendum sínum. Aðalmeðferð málsins er lokið og verður dómur kveðinn upp þann 28. febrúar næstkomandi. Innlent 13.10.2005 18:49
Mistök í útkalli Bæjarstjórinn í Bolungarvík og forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur voru meðal þeirra sem funduðu með Ólafi Þórhallssyni, forstjóra Neyðarlínunnar, á mánudag. Innlent 13.10.2005 18:49
Tvö rán framin í gærkvöld Tvö rán voru framin á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og eru vísbendingar um að sami maður hafi verið á ferð í báðum tilvikum. Rétt fyrir klukkan tíu hótaði maður með hulið andlit afgreiðslustúlku í söluturni við Borgarholtsbraut og sprautaði á hana úr meisúðabrúsa, en úði úr þeim hálfblindar fólk. Síðan hrifsaði hann peninga úr peningakassanum og hljóp á brott. Innlent 13.10.2005 18:49
Birtingin gæti verið lögbrot Svo virðist sem birting myndbands á netinu þar sem ungur maður verður fyrir banvænni líkamsárás samrýmist ekki lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Innlent 13.10.2005 18:49
Hass og smygl á Reyðarfirði Lögreglan á Eskifirði lagði í gær hald á fíkniefni og smyglvarning í vöruskemmu á Reyðarfirði um hádegisbilið í gær. Innlent 13.10.2005 18:49
Voru með ófullnægjandi skilríki Fimm Portúgalar sem lögreglan á Selfossi stöðvaði síðdegis í gær eftir að bíll þeirra hafði mælst á of miklum hraða reyndust vera með ófullnægjandi skilríki. Tveir þeirra höfðu engin skilríki, þrír höfðu aðeins dvalarleyfi og aðeins einn hafði atvinnuleyfi þótt þeir væru allir í fullri vinnu sem smiðir austur í Rangárvallasýslu. Innlent 13.10.2005 18:49
Sektuð vegna samráðs Samkeppnisráð dæmdi í dag þrjú tryggingafélög til að greiða 60,5 milljónir króna í sekt vegna ólögmæts verðsamráðs. Félögin sem um ræðir eru Sjóvá-Almennar, Tryggingamiðstöðin og VÍS. Innlent 13.10.2005 18:49
Sektuð um 60,5 milljónir Tryggingafélögin voru í gær sektuð um 60,5 milljónir af samkeppnisráði vegna ólöglegs verðsamráðs. Tryggingamiðstöðin hefur fallist á að greiða 18,5 milljónir í sekt og VÍS hefur fallist á að greiða 15 milljónir. Sjóvá-Almennar tryggingar eru sektuð um 27 milljónir, en tryggingafélagið hyggst áfrýja niðurstöðunni. Innlent 13.10.2005 18:49
Beitti úðavopni á afgreiðslukonu Eigandi Bettís við Borgarholtsbraut í Kópavogi var að vinna í fyrrakvöld þegar dökkklæddur ræningi með úðavopn ruddist inn og heimtaði peninga. Hann spreyjaði úðanum í andlit hennar. Sami ræninginn er talinn hafa verið verki í söluturninum Videospólunni við Holtsgötu í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 18:49
Ræningi enn ófundinn Tvö rán voru framin á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og eru vísbendingar um að sami maður hafi verið á ferð í báðum tilvikum. Hann er ófundinn þrátt fyrir mikla leit. Innlent 13.10.2005 18:49
Segir sönnunarbyrði óeðlilega Klúður í rannsókn lögreglu varð til þess að maður, sem sakaður var um manndrápstilraun var sýknaður í dag. Óeðlileg sönnunarbyrði, segir varalögreglustjóri. Innlent 13.10.2005 18:49
Höfðu samráð í nýju tjónakerfi Tryggingafélögin höfðu með sér ólögmætt verðsamráð þegar þau tóku í notkun samræmt kerfi til að meta tjón. Samkeppnisráð sektar félögin um sextíu milljónir króna. Innlent 13.10.2005 18:49
Endurupptaka ekki útilokuð Í dag eru 25 ár síðan Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, en þá héldu margir að lokið væri einhverju umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar. Sex sakborningar voru dæmdir í fangelsi allt frá einu ári og upp í sautján ár. Sú var þó ekki raunin. Gerð var árið 1997 tilraun til endurupptöku, sem var hafnað. Síðan hafa verið gerðar lagabreytingar og enn eru uppi ráðagerðir um að fá málin tekin upp. Innlent 13.10.2005 18:48
Sjö króna sekt fyrir grammið Bannað er með lögum að flytja inn munntóbak sem engu að síður margir nota. Allt munntóbak sem finnst er gert upptækt á Keflavíkurflugvelli og er sjö króna sekt á hvert gramm sem næst. Heildsali sem blaðið veit um selur um 125 kíló af munntóbaki á tveggja vikna fresti. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:48
Ökumaður virtist látinn Lögreglan og sjúkrabíll voru send með hraði á Vogastapa um hádegisbil eftir að tilkynnt var um kyrrstæða bifreið þar sem ökumaðurinn virtist ekki vera með lífsmarki. Því var neyðarlið sent á staðinn í flýti. Í þann mund er hjálpin barst varð vart við lífsmark í bílnum. Innlent 13.10.2005 18:49
Götueftirlit komið til að vera 32 fíkniefnamál hafa komið upp í götueftirliti fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík frá 1. febrúar og hafa 35 verið kærðir í kjölfarið. Innlent 13.10.2005 18:49