Lög og regla

Flúði út um glugga
"Ég var bara heppin að vakna við hitann því í kjallaranum er hvorki reykskynjari, né slökkvitæki," segir Rakel Sara Ríkharðsdóttir, tæplega sautján ára gömul stúlka sem forðaði sér út um lítinn kjallaraglugga eftir að kviknaði í út frá kerti í herbergi þar sem hún sofnaði út frá sjónvarpi, á Selfossi á miðvikudagskvöld.

Ríkislögreglustjóri verst frétta
Ríkislögreglustjóri verst allra frétta af húsleit efnahagsbrotadeildar í gær sem gerð var að beiðni bresku lögreglunnar, enda sé aðgerðin ekki að frumkvæði Ríkislögreglustjóra.

Fundað um fjárnámskröfu
Lögmenn Jóns Ólafssonar og Hannesar Hólmsteins funda nú um fjárnámskröfu Jóns á hendur Hannesi í húsakynnum sýslumannsins í Reykjavík. Hannes hefur lýst því yfir að hann muni láta lögmann sinn gera þá kröfu að fjárnámskröfu á hendur sér verði vísað til héraðsdóms.
Hæstiréttur ómerkti sýknudóm
Hæstiréttur ómerkti og vísaði heim í hérað til aðalmeðferðar sýknudómi héraðsdóms yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps í júlí í fyrra. Maðurinn var sakaður um að hafa lagt til leigubílstjóra með óþekktu eggvopni, með þeim afleiðingum að bílstjórinn hlaut átján sentimetra langan skurð á hálsi.

Vestmannaeyjabær vill út
Vestmannaeyjabær á í málaferlum til að losna út úr rekstri fyrirtækisins Skúlason ehf. sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá í gær að beiðni bresku lögreglunnar.

Hitti vafasama menn í leit að fé
Eigandi fyrirtækisins Skúlason, sem gerð var húsleit hjá vegna breskrar rannsóknar á fjársvikum og peningaþvætti, segist hafa kynnst vafasömum mönnum í fjárfestaleit sinni í Bretlandi. Það sé líklega skýringin á því að fyrirtækið flækist í málið.
Slapp ómeidd úr eldsvoða
Sautján ára stúlka slapp ómeidd út úr logandi kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi í gærkvöldi en mikill eldur var í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang. Allur stigagangurinn var rýmdur þar sem reykur barst um en slökkvistarf gekk vel.
Komu í veg fyrir eldsvoða
Starfsmönnum Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði tókst fyrir snarræði að koma í veg fyrir eldsvoða undir kvöld í gær þegar kviknaði í stórri rafmagnstöflu í fiskverkunarhúsi, rétt í þann mund sem vinnu var lokið.

Tekur við fjárnámskröfu Jóns
Sýslumaðurinn í Reykjavík mun eftir hádegið í dag taka við fjárnámskröfu Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor vegna skaðabóta sem Hannesi var gert að greiða Jóni í Bretlandi nýverið.

Segir hervæðingu óskiljanlega
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir hervæðingu Íslands með öllu óskiljanlega. Meðan skortur sé á almennri löggæslu og sakamál séu látin klúðrast vegna manneklu sé verið að eyða á annað hundrað milljónum króna í að efla sérsveitina og kaupa vopn.

Fjárnámskrafa á hendur Hannesi
Jón Ólafsson, fyrrum eigandi Norðurljósa og Skífunnar, muni á næstu dögum leggja fram fjárnámskröfu á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í <em>Blaðinu</em> í dag.
Bauðst tvisvar til að aðstoða
Lögregla hafnaði boði vaktmanns á vegum skemmtibátafélagsins Snarfara um aðstoð nóttina sem sjóslysið varð á Viðeyjarsundi, aðfaranótt 10. september. Hafþór Lyngberg Jónsson, formaður Snarfara, segist hafa rætt atvikið við yfirlögregluþjón rannsóknardeildar lögreglu í Reykjavík og fengið þau svör að atvikið yrði skoðað.

Ramsey fékk 18 mánaða dóm
Scott Ramsey, sem ákærður var fyrir að bana manni með hnefahöggi á skemmtistað í Keflavík á síðasta ári, fékk 18 mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 15 mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir.

Erindi auki líkur á fjárnámi
Hefði Hannes Hólmsteinn ekki flutt umdeilt erindi sitt og látið falla meiðandi ummæli um Jón Ólafsson á ensku, væru meiri líkur á því að hann slyppi við að greiða Jóni Ólafssyni kaupsýlsumanni 12 milljónir króna. Þetta er mat prófessors í lögum.

Gerðu húsleit í Reykjavík í dag
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði í dag húsleit á einkaheimili og fyrirtæki í Reykjavík í dag að beiðni breskra lögregluyfirvalda vegna rannsóknar á skipulögðum fjársvikum og peningaþvætti. Að sögn Arnars Jenssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns standa aðgerðir íslensku lögreglunnar enn.
Lá við stórslysi
Tilviljun og heppni réðu því, að mati lögreglu, að ekki varð stórslys þegar ökumaður í annarlegu ástandi ók gegn rauðu ljósi inn á gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar um klukkan hálfellefu í gærkvöldi, og lenti þar utan í tveimur bílum sem óku eftir Miklubrautinni.
Slasaðist alvarlega í árekstri
Kona slasaðist alvarlega þegar jeppi og fólksbíll lentu í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi skammt norðan við Borgarnes á áttunda tímanum í gærkvöldi. Karlmaður, sem var farþegi í bíl konunnar, slasaðist líka og var lagt af stað með þau áleiðis til Reykjavíkur í sjúkrabíl.

Getur ekki samþykkt kröfuna
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, segist ekki trúa því að sýslumaðurinn í Reykjavík geti samþykkt fjárnámskröfu Jóns Ólafssonar á hendur sér. Jón hyggst fá aðstoð sýslumanns við að ná tólf milljónum króna af Hannesi sem hann var dæmdur til að greiða í Englandi vegna meiðandi ummæla um Jón.

Grunaðir um aðild að peningaþvætti
Húsleit var í dag gerð hjá fyrirtæki og á einkaheimili í Reykjavík að beiðni breskra yfirvalda. Íslendingar eru grunaðir um aðild að skipulögðum fjársvikum og peningaþvætti. Aðgerðirnar í Reykjavík tengjast víðtækum aðgerðum bresku efnahagsbrotalögreglunnar sem hófust í morgun.

Ramsey fékk 18 mánaða fangelsi
Scott Mckenna Ramsey var dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundið, í héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til mannsbana. Hann var einnig dæmdur til að greiða rúmlega tvær milljónir króna í skaða- og miskabætur.

Hælisleitandi grunaður um morð
Erlendur karlmaður, sem hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi hér á landi, er grunaður um morð í heimalandi sínu Grikklandi. Maðurinn kom hingað til lands 20. september. Við komuna framvísaði hann vegabréfi sem reyndist vera falsað. Hann óskaði þá eftir hæli hér á landi og eftir að hælismeðferð var maðurinn ákærður fyrir skjalafals.

Kærður fyrir að áreita stúlkur
Karlmaður á Akranesi hefur verið kærður til lögreglu fyrir að senda ungum stúlkum í bænum kynferðisleg skilaboð í gegnum farsíma. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa beitt unga frænku sína grófu kynferðislegu ofbeldi um sex ára skeið fyrir nokkrum árum, en sýknaður í Hæstarétti vegna slælegra vinnubragða við rannsókn málsins.

Hrappar féfletta fólk
"Þeir hringdu í mig, rosalega ýtnir og frekir eftir að ég sendi póst út til að forvitnast um þetta," segir Karen Rut Konráðsdóttir, sem fékk tilkynningu um stóran vinning frá erlendu svikalottói. Karen til mikillar furðu fékk hún senda tilkynningu um að hún hefði unnið „þann stóra“ í alþjóðlegu lottói. Þar var ekki um neina smáræðis upphæð að ræða, því vinningurinn var sagður 1,5 milljónir evra, sem samsvarar 110 milljónum íslenskra króna.
Piltarnir þrír sæta varðhaldi
Þrír átján ára karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi í kjölfar líkamsárásar sem framin var í samkvæmi í Garðabæ á sunnudagsmorgun. Einn þeirra situr í varðhaldi í fimm daga, hinir tveir í þrjá daga. Mennirnir voru færðir fyrir dómara á níunda tímanum á sunndagskvöld og var þinghaldi ekki lokið fyrr en um klukkan eitt um nóttina.
Engin framsalskrafa komin fram
Ekki hefur enn komið fram framsalskrafa á albanskan mann sem kom hingað til lands á fölsuðum skilríkjum og er grunaður um morð í Grikklandi. Maðurinn kom hingað til lands hinn 20. september og hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi hér á landi. Við komuna framvísaði hann vegabréfi sem reyndist vera falsað.
Brotist inn í tölvuverslun
Brotist var inn í tölvuverslun í austurborginni um fimmleytið í nótt og þaðan stolið að minnsta kosti þremur fartölvum. Þjófavarnakerfi fór í gang en þrátt fyrir það voru þjófarnir á bak og burt þegar öryggisverðir og lögregla komu á vettvang örskammri stund síðar.
Lögregla leitar enn brennuvargs
Lögregla rannsakar enn tilurð nokkurra bruna sem urðu í Reykjavík fyrstu helgina í september. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir ekkert að frétta af rannsókn málsins enn sem komið er.
RNS skoðar sjóslys nánar
Rannsóknarnefnd Sjóslysa ætlar að kanna nánar þætti sjóslyssins á Viðeyjarsundi þar sem smábátur steytti á Skarfaskeri. Jón A. Ingólfsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar segir þá rannsókn kunna að taka vikur eða jafnvel mánuði til viðbótar.

Ferðafrelsi flóttamanna verði heft
Á að hefta ferðafrelsi þeirra sem leita eftir hæli hér á landi sem flóttamenn? Fulltrúi sýslumanns telur það hljóta að koma til álita, þar sem það færist í vöxt að glæpamenn misnoti kerfið og gangi lausir hér á landi meðan hælisumsókn er afgreidd.

Meint brot ekki fyrnd
Meint brot einstaklinga í tengslum við Lífeyrissjóð Austurlands, sem varða almenn hegningarlög, eru ekki fyrnd, þótt meint brot stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og endurskoðanda sem varða við lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða séu fyrnd.