Erlent
76 77 78 79 80 81 82 83 84 … 334 ›
Tesco búðir opnaðar á ný Breska lögreglan hefur opnað fjórtán Tesco verslanir sem lokað var af öryggisástæðum í framhaldi af hótunum sem bárust lögreglu og fyrirtækinu. Erlent 15.7.2007 09:59
Nýtt myndband með Osama Nýtt myndband Osama Bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, var birt á netinu í gær. Ekki er vitað hvenær myndbandið var útbúið en þar upphefur Bin Laden píslarvættisdauða og talar um Múhameð spámann. Erlent 15.7.2007 09:58
Forseti Tanzaníu undirgengst alnæmispróf Forseti Tanzaníu og leiðtogar stjórnarandstöðunnar í landinu fóru í dag í opinbert alnæmispróf. Þjóðaráták gegn HIV/AIDS er nú að hefjast í landinu og með þessu vildu þeir hvetja landsmenn til þess að gangast undir sams konar próf. Erlent 14.7.2007 20:13
Tesco búðum í Bretlandi lokað í varúðarskyni Lögregla í Bretlandi hefur lokað að minnsta kosti 11 Tesco kjörbúðum víðsvegar um landið í dag. Lögregla sagði aðgerðirnar vera gerðar í varúðarskyni. Erlent 14.7.2007 18:17
Norður-Kórea hefur lokað kjarnakljúfi sínum við Yongbyon Bandarísk yfirvöld skýrðu frá því nú rétt fyrir sex í kvöld að Norður-Kórea hefði lokað kjarnakljúfi sínum við Yongbyon í dag. Aðeins er beðið staðfestingar frá eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Erlent 14.7.2007 17:53
44 bílar skemmdust í eldsvoða í Sviss 44 bílar skemmdust í gríðarmiklum eldsvoða á einni stærstu tónlistarhátíð Sviss í dag. Lögregla þar í landi skýrði frá þessu. Hún er enn að rannsaka upptök eldsins og íkveikja hefur ekki verið útilokuð. Fimm slökkviliðsmenn slösuðust lítillega í baráttu sinni við logana. Erlent 14.7.2007 17:37
Þriðji maðurinn ákærður vegna sprengjutilræðanna í Lundúnum og Glasgow Breska lögreglan hefur ákært þriðja manninn í tengslum við sprengjutilræðin í Glasgow og Lundúnum. Dr. Sabeel Ahmed, 26 ára, frá Liverpool, hefur verið ákærður fyrir að búa yfir upplýsingum sem hefðu getað komið í veg fyrir hryðjuverk. Erlent 14.7.2007 17:16
Karíókí ógnar þjóðaröryggi Norður-Kóreu Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa fyrirskipað lokun karíókístaða sem og internetkaffihúsa þar sem leyniþjónusta landsins telur þetta tvennt ógna þjóðaröryggi. Samkvæmt flóttamönnum frá Norður-Kóreu er almenningur ekki mikið á þannig stöðum, sem flestir eru við landamæri Kína, heldur frekar viðskiptamenn erlendis frá. Erlent 14.7.2007 16:24
Bastilludagurinn haldinn hátíðlegur í dag Frakkar halda nú upp á þjóðhátíðardag sinn, Bastilludaginn. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, breytti út af vananum og leyfði hermönnum frá öllum löndum Evrópusambandsins að taka þátt í skrúðgöngu hersins. Erlent 14.7.2007 16:04
Tveir unglingspiltar ætluðu að myrða hundruð samnemenda sinna Tveir táningar voru í dag ákærðir fyrir að hafa ætlað að ráðast á skóla í úthverfi New York. Táningarnir eru 15 og 17 ára og voru báðir nemendur í skólanum. Sá yngri var sá sem öllu réði og skipulagði. Hann leitaði vel og lengi að vopnum á internetinu til þess að geta notað í árásinni sem átti að fara fram á níu ára afmæli atburðanna í Columbine skólanum, þann 20. apríl 2008. Erlent 14.7.2007 15:46
Maður handtekinn í tengslum við þrefalt morð í Manchester Lögreglan í Manchester á Englandi hefur handtekið 32 ára karlmann í tengslum við morð á þriggja manna fjölskyldu. Pierre Williams er atvinnulaus og verður yfirheyrður af lögreglunni á næstunni. Hann er grunaður um að hafa myrt Kesha Wizzart, 18 ára, móður hennar Beverley Samuels, 36 ára, og bróður hennar Fred, 13 ára. Erlent 14.7.2007 15:30
24 létu lífið og 29 særðust í árás í Pakistan 24 hermenn létu lífið og 29 særðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Árásarmaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefnum inn í bílalest hermanna. Önnur árás var gerð á hermenn í Pakistan í dag og í henni særðust tveir. Erlent 14.7.2007 15:12
Öryggisgæsla hert í Mogadishu Gríðarlega öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, þar sem á að halda sátta- og friðarfund á milli fleiri en eitt þúsund fyrrum stríðsherra, öldunga og stjórnmálamanna. Fleiri hundruð hermenn hafa verið kallaðir til borgarinnar til þess að sinna gæslu. Erlent 14.7.2007 14:32
Vilt þú gista í IKEA? IKEA í Noregi hefur ákveðið að leyfa fólki að gista í búðinni. Frá 23. júlí til 27. júlí fær almenningur tækifæri til þess að gista í öllum sýningarherbergjum í búðinni. Fólk getur valið úr brúðarsvítum eða lúxussvítu en henni fylgir morgunverður í rúmið. Svo geta aðrir gist í kojum nú eða fjölskylduherbergjunum. Erlent 14.7.2007 14:12
Sjö rænt í Nígeríu Vígamenn rændu í morgun sjö starfsmönnum dýpkunarfyrirtækis í suðausturhluta Nígeríu. Fólkinu var rænt í borginni Onitsha, sem er á bökkum Níger. Mannræningjarnir hafa sett fram beiðni um lausnargjald. Erlent 14.7.2007 13:50
Sádi-Arabía takmarkar völd trúarbragðalögreglu Innanríkisráðuneytið í Sádi-Arabíu hefur bannað trúarbragðalögreglu landsins að taka fólk í gæsluvarðhald þar sem undanfarið hefur fólk látið lífið í haldi þeirra. Einnig hefur þeim verið bannað að reyna ná fram játningum og framvegis verður trúarbragðalögreglan að afhenda borgaralegri lögreglu landsins fólk sem það telur hafa gerst brotlegt við lögin. Erlent 14.7.2007 11:42
Átta hermenn láta lífið í sjálfsmorðsárás Átta hermenn létu lífið og 15 slösuðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Þúsundir hermanna hafa verið fluttir á svæðið undanfarna daga til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar aðgerðir herskárra múslima gegn stjórnvöldum í landinu. Erlent 14.7.2007 11:28
Starbucks lokar útibúi sínu í Forboðnu borginni Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hefur lokað kaffihúsi sínu í Forboðnu borginni í Peking. Staðurinn opnaði árið 2000 og varð strax umdeildur. Safnverðir í Forboðnu borginni buðu Starbucks á að vera áfram en aðeins ef að þeir myndu fjarlægja öll merki og seldu einnig aðrar vörur. Því var hafnað og því lokaði kaffihúsið. Erlent 14.7.2007 11:20
Þrír milljarðar til höfuðs Osama bin Laden Öldungadeild Bandaríkjaþings ákvað í gær að tvöfalda þá upphæð sem sett hefur verið til höfuðs Osama bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, og er hún nú rúmir þrír milljarðar íslenskra króna. Þingmenn Demókrataflokksins sögðu Íraksstríðið draga úr getu Bandaríkjamanna til að berjast við Al-Kaída. Mistök Bush væru fyrst og fremst að ná ekki að fanga Osama bin Laden og rétta yfir honum. Erlent 14.7.2007 09:54
Rússar rifta samkomulagi við NATO um takmörkun á herafla í Evrópu Rússar hafa tímabundið sagt sig úr samkomulagi sem takmarkar fjölda herdeilda og þungavopna á ýmsum stöðum í Evrópu. Vladimir Putin, forseti Rússlands, skrifaði undir lög þess efnis nú í morgun. Erlent 14.7.2007 09:43
Hæsti maður heims hittir minnsta mann heims Hæsti maður heims, Bao Sjísjún, hitti í dag minnsta mann í heimi, He Pingping. Hæðarmunurinn á þeim er einn meter og sextíu og þrír sentimetrar. Pingping hefur sótt um að komast í heimsmetabókina sem minnsti maður í heimi. Erlent 13.7.2007 17:44
Íranar hleypa eftirlitsmönnum inn í landið Íranar hafa samþykkt að leyfa eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar að fylgjast með starfsemi og byggingu kjarnakljúfsins í Arak. Erlent 13.7.2007 17:42
Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk rétt hjá Manila í dag, höfuðborg Filippseyja. Herinn sagði að minnsta kosti 129 manns hafi verið bjargað sem voru um borð í ferjunni „MV Blue Water Princess," en þó séu það ekki staðfestar tölur. Þegar hermenn komu á vettvang lá ferjan á hlið í grunnu vatninu. Erlent 12.7.2007 16:38
Þriggja ára dreng rænt í Nígeríu Þriggja ára nígerískum dreng hefur verið rænt við borgina Port Harcourt sem stendur við ósa Níger-ánnar í Nígeríu. Aðeins eru fjórir dagar síðan að mannræningjar slepptu þriggja ára breskri stúlku úr haldi sem þeir höfðu rænt í sömu borg. Samkvæmt lögreglu á svæðinu er drengurinn sonur höfðingja á svæðinu í kringum borgina. Ekkert hefur heyrst af kröfum mannræningja. Erlent 12.7.2007 15:40
Sjö farast eftir sjálfsmorðsárás í brúðkaupi Sjö gestir í brúðkaupi lögreglumanns í Írak létust þegar maður sem gerðist boðflenna í brúðkaupinu sprengdi sjálfan sig í loft upp. Fjórir í viðbót slösuðust alvarlega. Ekki kemur fram hvort að brúðarhjónin hafi verið á meðal fórnarlamba sprengjunnar. Erlent 12.7.2007 15:37
Rice og Gates til Mið-Austurlanda í ágúst George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði á fréttamannafundi sínum í dag að hann ætlaði sér að senda varnarmálaráðherrann Robert Gates og utanríkismálaráðherrann Condoleezzu Rice í ferðalag um Mið-Austurlönd. Erlent 12.7.2007 14:57
Lögreglan í Rússlandi vill að flækingar séu fangelsaðir Lögreglan í Rússlandi vill endurlífga lög frá tímum Sovétríkjanna og fangelsa flækingja og betlara. Gagnrýnendur fordæma hugmyndina og segja hana færa Rússland aftur til alræðistíma fortíðarinnar. Flakkarar og betlarar eru algengir í Rússlandi og margir láta lífið af völdum kulda á veturnar. Erlent 12.7.2007 14:13
Bush ætlar að bíða eftir skýrslu Petraeus George W. Bush ætlar sér að bíða eftir skýrslu frá yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Írak áður en hann tekur ákvörðun um hvort að breytt verði um stefnu í Íraksstríðinu. Þá sagði hann að al-Kaída væri ekki jafn burðugt og það var fyrir árásirnar í Bandaríkjunum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot frá fréttamannafundi Bush í dag. Erlent 12.7.2007 13:46
Sjö alvarlega slasaðir eftir nautahlaup dagsins Sjö manns slösuðust alvarlega í nautahlaupi í Pamplona í morgun og nokkrir til viðbótar urðu sárir. Hlaupið entist í rúmar sex mínútur í stað rúmlega tveggja eins og vaninn er þar sem nautin skildust að, sneru við og gerðu í raun allt sem þau eiga ekki að gera. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir frá hlaupinu í morgun. Erlent 12.7.2007 13:10
Svört bráðabirgðaskýrsla um Írak Íröskum stjórnvöldum hefur aðeins tekist að ná innan við helmingi þeirra markmiða sem Bandaríkjaþing setti um leið og fé var veitt til að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þetta er niðurstaða bráðabirgðaskýrslu sem kynnt verður á Bandaríkjaþingi í dag. Enn fjölgar í hópi flokksfélaga Bush Bandaríkjaforseta sem vill að bandarískt herlið verði kallað heim. Erlent 12.7.2007 12:33