Erlent
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Forseti Austur-Tímor fundar með ráðherrum landsins Gusmao, forseti Austur-Tímor, átt í morgun fund með helstu ráðherrum í ríkisstjórn landsins. Þar var rædd skipan bráðabirgðastjórnar en Alkatiri, forsætisráðherra, sagði af sér í gær. Erlent 27.6.2006 10:03
Skæruliðar láta friðargæsluliða SÞ lausa Skæruliðar í Afríkuríkinu Kongó létu í morgun lausa tvo nepalska friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna sem þeir höfðu haft í haldi í mánuð. Fimm friðargæsluliðar eru þó enn í haldi skæruliðanna. Mennirnir sem fengu frelsi í morgun eru við ágæta heilsu. Erlent 27.6.2006 09:36
Krefjast þess að Guantanamo verði lokað Hópur mótmælenda kom saman í gær fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York til að krefjast þess að Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu verði lokað. Erlent 27.6.2006 08:44
Evrópublaðið fundar í dag vegna skýrslu um fangaflugs CIA Evrópuráðið kemur saman til fundar í dag til að ræða skýrslu rannsóknarnefndar ráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar. Þar verður meðal annars hlýtt á vitnisburð manna sem segjast hafa sætt pyntingum þegar þeir voru í haldi Bandaríkjamanna. Erlent 27.6.2006 09:31
3 tonn af kókaíni gerð upptæk Lögreglan í Kólumbíu sýndi fjölmiðlum í gær tæplega þrjú tonn af kókaíni sem hún gerði upptæk á dögunum. Talið er að flytja hafi átt allan farminn til Evrópu. Erlent 27.6.2006 08:10
Olmert fer ekki að kröfum mannræningja Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísrael, neitaði í morgun að láta palestínska fanga lausa í skiptum fyrir ísraelska hermanninn sem herskáir Palestínumenn rændu í fyrradag. Erlent 27.6.2006 07:59
Raunverulegt sprengiefni Sænska lögreglan hefur staðfest að efnið sem bundið var um mitti grátandi Norðmanns í Stokkhólmi á sunnudaginn var virkt sprengiefni. Málið þykir allt hið kynlegasta og var Norðmaðurinn, sem er á þrítugsaldri, settur í geðrannsókn eftir að sprengjubeltið var leyst af honum. Erlent 26.6.2006 22:07
Óvopnaður Íraki myrtur Tveir hermenn hafa verið ákærðir vegna morðs á óvopnuðum Íraka nálægt borginni Ramadi í febrúar. Þetta upplýsti bandaríski herinn um helgina. Erlent 26.6.2006 22:07
G-8 gagnrýni skort á lýðræði Mikhaíl Kasjanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, hvetur leiðtoga G-8 ríkjanna til að gagnrýna rússnesk stjórnvöld fyrir þá þróun í átt frá lýðræði sem hann segir hafa átt sér stað. Erlent 26.6.2006 22:07
Gróðurhúsaáhrifin af mannavöldum Bandaríska vísindaakademían kynnti fyrir skemmstu niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem Bandaríkjaþing hafði óskað eftir, sem sýna að hitinn á jörðinni hefur ekki verið hærri í að minnsta kosti tvö þúsund ár. Hlýnunin undanfarna áratugi á sér engin söguleg fordæmi seinasta árþúsund, að því er fram kemur í niðurstöðunum. Erlent 26.6.2006 22:07
Pyntingar niðurlægja alla sem láta þær viðgangast Evrópusambandið hvatti í gær öll ríki til þess að undirrita alþjóðasamning gegn pyntingum. Í yfirlýsingu Evrópusambandsins segir að pyntingar séu ekki aðeins "grimmilegar, ómannúðlegar og niðurlægjandi" fyrir hvern þann sem fyrir þeim verður, heldur einnig fyrir alla sem fremja slíkan verknað og líka fyrir þau samfélög sem "láta sér lynda slíka óhæfu." Erlent 26.6.2006 22:07
Krefst rannsóknar á morði Jan Eliasson, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hvetur stjórnvöld í Sómalíu til að rannsaka með hraði morðið á sænska myndatökumanninum Martin Adler. Utanríkisráðherrann fordæmdi morðið og sagði að erlent fjölmiðlafólk væri augu alþjóðasamfélagsins í landinu. Erlent 26.6.2006 22:07
Syngur ekki góða spænsku George W. Bush Bandaríkjaforseti kann ekki nóg í spænsku, að sögn talsmanns hans í Hvíta húsinu. Fyrir vikið getur hann ekki sungið spænsku útgáfuna af bandaríska þjóðsöngnum, sem er kölluð "Nuestro himno." "Forsetinn talar spænsku, en ekki nógu vel," sagði Scott McClellan, talsmaður forsetans. Erlent 26.6.2006 22:07
Hafna nýrri stjórnarskrá Tillögu fyrrverandi ríkisstjórnar Ítalíu að víðtækum stjórnarskrárbreytingum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór í gær og fyrradag. Erlent 26.6.2006 22:07
Dönsuðu af fögnuði Forsætisráðherrann Alkatiri lét undan þrýstingi og sagði af sér. Nóbelsverðlaunahafinn Jose Ramos-Horta segir stutt í nýja ríkisstjórn. Erlent 26.6.2006 22:07
Útilokar með öllu að semja Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, útilokar allar samningaviðræður við herskáa Palestínumenn sem hafa ungan ísraelskan hermann í haldi sínu. Erlent 26.6.2006 22:07
Koma upp nýju eldflaugavarnarkerfi Yfirvöld í Japan og Bandaríkjunum hafa komið sér saman um að setja upp PAC-3 eldflaugar á herstöð Bandaríkjanna á eyjunni Okinawa í Japan. Ákvörðunin var tekin í ljósi meintra tilrauna Norður-Kóreumanna til að skjóta á loft eldflaug í tilraunaskyni. Erlent 26.6.2006 22:07
Fátæk börn í boltagerð Alþjóðleg barnaverndarsamtök reyna nú að beina athygli heimsbyggðarinnar frá heimsmeistarakeppninni í fótbolta og að fátækum börnum í Indlandi sem strita við að handsauma boltana við hörmuleg vinnuskilyrði. Innlent 26.6.2006 22:13
Mona Lisa fær rödd Síðustu fimm hundruð árin hefur Móna Lísa brosað sínu leyndardómsfulla brosi án þess að mæla orð af munni. Þangað til nú. Erlent 26.6.2006 17:42
Sprengjan var ekta Norðmaðurinn, sem fannst gyrtur sprengjubelti á bílastæði í einu af úthverfum Stokkhólms í gær, kom til Svíþjóðar fyrir helgi til að innheimta fíkniefnaskuld. Erlent 26.6.2006 17:46
Skógarbjörninn skotinn Björninn Bruno, sem þvælst hefur um fjallahéruð Bæjaralands undanfarnar vikur, var felldur í dag. Erlent 26.6.2006 17:50
Skæruliðarnir setja fram kröfur Ísraelsk stjórnvöld undirbúa víðtækar hernaðaraðgerðir gegn palestínskum skæruliðum sem í gær tóku ísraelskan hermann í gíslingu. Þeir segja að engar upplýsingar verði gefnar um afdrif hans fyrr en palestínskar konur og börn verði látin laus úr fangelsum Ísraela Erlent 26.6.2006 17:39
George Bush eldri á leiðinni til Íslands George H. W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur þekkst boð forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar um að koma í heimsókn til Íslands 4.-7. júlí næstkomandi. Innlent 26.6.2006 18:01
Tveir drengir særðust í sprengjuárás Tveir drengir særðust þegar sprengjuárás var gerð á bílalest nálægt bandrískri herstöð í Bagram, norður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun. Að sögn afganskra stjórnvalda var um sjálfsvígssprengjuárás að ræða og árásarmaðurinn sá eini sem lést. Erlent 26.6.2006 13:37
Alkatiri segir af sér Miri Alkatiri, forsætisráðherra Austur-Tímor, hefur sagt af sér embætti svo hægt verði að tryggja frið í landinu. Þetta tilkynnti hann óvænt á blaðamannafundi í höfuðborginni Dili í morgun. Forsætisráðherrann fráfarandi hefur verið gerður ábyrgur fyrir mannskæðum átökum í landinu síðustu vikur. Erlent 26.6.2006 12:20
Grimmilegum hefndaraðgerðum hótað Ísraelsk stjórnvöld hóta grimmilegum hefndaraðgerðum verði ungur ísraelskur hermaður, sem herskáir Palestínumenn rændu í gær, ekki látinn laus þegar í stað. Spenna hefur magnast við landamærin að Gaza-svæðinu síðasta sólahringinn vegna málsins. Erlent 26.6.2006 12:15
22 fórust í flóðum á Indónesíu Að minnsta kosti tuttugu og tveir fórust í flóðum á Indónesíu um liðna helgi en þar hefur rignt töluvert að undanförnu. Rigningartímabil stendur nú yfir og verða þá oft aurskriður og flóð á Indónesíu. Erlent 26.6.2006 10:59
Gefur 2.800 milljarða til góðgerðarmála Bandaríski milljarðamæringurinn Warren Buffett, annar ríkasti maður í heimi, hefur ákveðið að gefa jafnvirði rúmlega 2.800 milljarða íslenskra króna til góðgerðarmála. Buffett hefur áður sagt að stærstum hluta auðæfa sinna yrði varið til góðra verka eftir dauða sinn. Erlent 26.6.2006 10:41
Buffett setur auð sinn í styrktarsjóð Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett ætlar að gefa 37 milljarða dollara, jafnvirði 2.800 milljarða íslenskra króna, til velgjörðasjóðs Bill Gates, stofnanda hugbúnaðarrisans Microsoft. Þetta er meirihluti auðæfa Buffetts en eigur hans eru metnar á 44 milljarða dali eða rúma 3.300 milljarða króna. Viðskipti erlent 26.6.2006 10:33
Þrumuveður í Washington og nærliggjandi svæðum Björgunarsveitarmenn í Washington og á nærliggjandi svæðum í Bandaríkjunum hafa haft í nógu að snúast síðasta sólarhringinn en þar hefur rignt töluvert og þrumuveður haldið vöku fyrir íbúum. Bjarga þurfti nokkrum ökumönnum ofan af bílum sínum þar sem stefndi í að þeir færu á kaf þar sem flætt hefur. Erlent 26.6.2006 10:32