Mál Jeffrey Epstein

Fréttamynd

Davos-toppur hættir vegna Ep­stein-tengsla

Børge Brende sagði af sér sem forseti Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í dag vegna sambands hans við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn. Brende þrætti upphaflega fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein en annað kom í ljós þegar bandarísk skjöl voru birt nýlega.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Gögn um á­sökun konu á hendur Trump vantar í Ep­stein-skjölin

Lykilgögn sem tengjast ásökun konu á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta vantar í gagnasafnið sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur birt í tengslum við mál kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Konan gaf sig fram eftir að Epstein var handtekinn og sagðist hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu bæði Trumps og Epsteins á níunda áratugnum þegar hún var þrettán ára.

Erlent
Fréttamynd

Gengst við fram­hjá­haldi með tveimur rúss­neskum konum

Milljarðamæringurinn Bill Gates hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá fyrrverandi eiginkonu sinni með tveimur rússneskum konum, annars vegar briddsspilara og hins vegar kjarneðlisfræðingi. Bað hann starfsfólk sitt afsökunar á tengslum sínum við Jeffrey Epstein en tók þó fram að hann hefði ekki tekið þátt í neinu „ólöglegu“.

Lífið
Fréttamynd

Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni

Sænsk-bandarísk kaupsýslukona sendi Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninum, myndir af ungum og efnilegum konum sem hún var með í læri. Epstein valdi sér svo konur sem hann vildi hitta.

Erlent
Fréttamynd

Sendi­herra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein hand­tekinn

Peter Mandelson, fyrrverandi þingmaður og sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum, var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Andrew á Louvre

Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi.

Menning
Fréttamynd

Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og sam­særis­kenningum

Michelle Licata var sextán ára nemandi við Royal Palm Beach High School þegar vinkona hennar sendi henni skilaboð í tíma, skömmu fyrir jól árið 2004. Hún spurði hana hvort hún vildi vinna sér inn auka pening með því að nudda gamla menn. Licata sá fyrir sér að veita mönnum nudd á einhvers konar heilsustofnun eða hjúkrunarheimili og sagði já; hana langaði til að geta gefið öllum í fjölskyldunni sinni smá jólagjöf. Þegar vinkonan sótti Licata einn daginn var áfangastaður þeirra hins vegar hvorki spa eða heimili fyrir aldraða, heldur glæsivilla Jeffrey Epstein við 358 El Brillo Way, á Palm Beach í Flórída.

Erlent
Fréttamynd

Á­fram hús­leit á fyrra heimili Andrews

Breska lögreglan mun halda áfram húsleit sinni á fyrra heimili Andrews Mountbatten Windsor sem handtekinn var í gær grunaður um spillingu í opinberu embætti. Andrew bjó um árabil í Royal Lodge en var gert að flytja þaðan fyrr á árinu.

Erlent
Fréttamynd

„Mjög, mjög sorg­legt“

Donald Trump Bandaríkjaforseti var stuttorður þegar blaðamenn vestanhafs spurðu hann út í nýjustu vendingar í tengslum við mál Andrews fyrrverandi Bretaprins fyrr í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Andrew látinn laus

Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Epstein sem Drakúla endur­fæddur

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona ritar afar athyglisverða grein sem hún birtir á Vísi undir yfirskriftinni: Hvernig höfnum við blóðsugu-hagkerfi heimsins og sameinumst um uppvaxtar-hagkerfi. Hún telur Epsteinmálið tilefni til vakningar, sem reyndar langafi hennar hafði boðað fyrir margt löngu síðan.

Lífið
Fréttamynd

Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla

Eftir 22 ár með Ernu Solberg í broddi fylkingar tekur Ine Eriksen Søreide við formannsembætti í norska íhaldsflokknum Høyre. Ine er ein í framboði en næstu vikur munu reyna á nýja formanninn enda er enn mörgum spurningum um umfang sambands norskra stjórnmálamanna við Jeffrey Epstein ósvarað.

Erlent
Fréttamynd

Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls

Fyrrverandi Bretaprins er sakaður um að hafa nýtt stöðu sína sem opinber erindreki til að útvega vini sínum í bankageiranum trúnaðargögn sem hefðu getað nýst honum í fjárfestingum, einkum í tengslum við eftirmál íslenska bankahrunsins. Skömmu áður hafði hann fundað með forseta Íslands.

Erlent
Fréttamynd

Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir að þegar hún og Ólafur Ragnar Grímsson, eiginmaður hennar og fyrrverandi forseti, hafi hitt Jeffrey Epstein fyrir um 25 árum hafi þau snúið við og gengið út úr herberginu hið snarasta. Hún segist hafa haft slæma tilfinningu fyrir honum.

Innlent
Fréttamynd

Jagland á­kærður fyrir spillingu

Þorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, var ákærður fyrir spillingu og húsleit gerð á heimili hans í morgun. Hann vildi ekki tjá sig við fjölmiðla en fjallað hefur verið um tengsl Jagland við Jeffrey Epstein, bandaríska barnaníðinginn, undanfarna daga.

Erlent
Fréttamynd

Jagland sviptur frið­helgi

Evrópuráðið svipti Þorbjörn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóra sinn, friðhelgi gegn saksókn í kjölfar ásakana um tengsl hans við Jeffrey Epstein. Jagland sætir nú sakamálarannsókn í Noregi fyrir spillingu.

Erlent
Fréttamynd

Nafn­greindi sex mögu­lega sam­verka­menn Epstein á þinginu

Ro Khanna, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins, nafngreindi sex mögulega samverkamenn Jeffrey Epstein á þingfundi í gær, eftir að hann og Thomas Massie, þingmaður Repúblikanaflokksins, fengu að sjá hluta Epstein-skjalanna óritskoðuð í dómsmálaráðuneytinu.

Erlent
Fréttamynd

Á­hrifa­miklir norskir erind­rekar rann­sakaðir vegna Epsteins

Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu.

Erlent