Innlendar
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 75 ›
Valur og Víkingur gerðu jafntefli Valur og Víkingur gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli í kvöld í lokaleik umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að leikurinn var hundleiðinlegur og fengu þeir 878 áhorfendur sem borguðu sig inn á völlinn afar lítið bitastætt fyrir peninginn í kvöld. Sport 20.8.2006 21:45
Mikilvægur sigur ÍBV - Keflavík lagði FH Leikjunum þremur sem hófust klukkan 18 í Landsbankadeild karla er nú lokið. Eyjamenn unnu mikilvægan 2-1 sigur á Grindvíkingum í Eyjum, Keflvíkingar skelltu Íslandsmeisturunum 2-1 á heimavelli sínum og KRingar lögðu Blika 1-0 á útivelli. Leikur Vals og Víkings hefst nú klukkan 20. Sport 20.8.2006 19:54
Jafnt í frábærum leik í Árbænum Fylkir og ÍA skildu jöfn 3-3 í frábærum leik í Árbænum í kvöld. Skagamenn fóru afar illa að ráði sínu í síðari hálfleiknum, því Heimir Einarsson kom þeim í 3-1 á 79. mínútu leiksins. Þeir Sævar Þór Gíslason og Haukur Ingi Guðnason jöfnuðu fyrir Fylki með tveimur mörkum á tveimur mínútum. Þrátt fyrir harða sókn Fylkis á lokamínútunum, tókst þeim þó ekki að tryggja sér sigurinn og Skagamenn því heppnir að tryggja sér stig eftir að hafa verið með leikinn í höndum sér. Sport 20.8.2006 18:47
Fylkir minnkar muninn Sævar Þór Gíslason er búinn að minnka muninn í 2-1 fyrir Fylki gegn Skagamönnum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Sævar Þór kom inná sem varamaður fyrir Christian Christiansen í fyrri hálfleik og hefur náð að setja svip sinn á leikinn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 20.8.2006 18:13
Skagamenn komnir í 2-0 Skagamenn eru komnir í 2-0 gegn Fylki í Árbænum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Bjarni Eggerts Guðjónsson skoraði annað mark Skagamanna beint úr aukaspyrnu á 32. mínútu með einstaklega glæsilegum hætti og kemur gestunum í góða stöðu. Áður hafði Guðjón Sveinsson komið Skagamönnum í 1-0. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 20.8.2006 17:34
Skagamenn komnir yfir Það tók Skagamenn aðeins um 6 mínútur að ná forystunni gegn Fylki í sjónvarpsleiknum á Sýn, en þar var að verki Guðjón Heiðar Sveinsson sem skoraði eftir snarpa sókn gestanna. Hægt er að fylgjast með gangi mála í leiknum á Boltavaktinni hér á Vísi. Sport 20.8.2006 17:10
Leikur Fylkis og ÍA að hefjast í beinni á Sýn Fyrsti leikurinn af fimm í Landsbankadeild karla í knattspyrnu er nú að hefjast, en það er viðureign Fylkis og ÍA í Árbænum. Skagamenn þurfa nauðsynlega á sigri að halda í dag, enda liðið í bullandi fallbaráttu. Leikurinn er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 20.8.2006 17:00
Piltalandsliðið fallið í B-deild Íslenska piltalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði sjöunda leik sínum í röð í A-deildinni á Evrópumótinu í dag þegar það lá fyrir Portúgölum 84-70. Þetta var sjöundi tapleikur liðsins í sjö leikjum á mótinu og endaði það í neðsta sæti og er fallið í B-deild. Örn Sigurðarson skoraði 20 stig fyrir íslenska liðið. Körfubolti 19.8.2006 18:48
Tap fyrir Tékkum og HM-draumurinn úti Íslenska kvennalandsliðið tapaði 4-2 fyrir Tékkum á Laugardalsvelli í dag í undankeppni HM í knattspyrnu og því ljóst að liðið kemst ekki á HM. Tékkar komust yfir strax í upphafi leiks, en eftir að íslenska liðið náði að komast yfir 2-1, hrundi leikur þess í síðari hálfleik. Sport 19.8.2006 17:59
Heiðar náði sér ekki á strik á lokahringnum Heiðar Davíð Bragason náði sér ekki á strik á lokadeginum á sænsku mótaröðinni í dag þegar hann lék á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hann lauk því keppni á fimm höggum yfir pari og hafnaði í 53. sæti á mótinu. Golf 19.8.2006 17:04
Jafnt í hálfleik á Laugardalsvelli Nú er kominn hálfleikur í leik Íslendinga og Tékka í undankeppni HM í knattspyrnu og er staðan jöfn 2-2. Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. Sport 19.8.2006 16:59
Fram í Landsbankadeild Fram tryggði sér í kvöld sæti í efstu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð þegar liðið lagði Þrótt að velli 1-0 á Valbjarnarvelli. Það var Chris Vorenkamp sem skoraði sigurmark Fram um miðbik síðari hálfleiksins. Tap Þróttar gæti átt eftir að reynast liðinu afar dýrt, því liðið er nú fimm stigum á eftir HK sem er í öðru sæti deildarinnar. Sport 18.8.2006 21:02
Heiðar á pari í Svíþjóð Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason er á pari eftir tvo fyrstu hringina á sænsku mótaröðinni í golfi sem fram fer á Haverdal vellinum. Heiðar lék á 71 höggi í dag eða einu höggi undir pari, en hann var á höggi yfir pari í gær. Heiðar er þó nokkuð langt frá efstu mönnum á mótinu. Golf 18.8.2006 14:20
Heiðar Davíð á höggi yfir pari Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason úr Kili lék fyrsta hringinn á sænsku mótaröðinni á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari í dag. Keppnin fer fram í Haverdal í Svíþjóð og er efsti maður eftir fyrsta dag á sex höggum undir pari. Golf 17.8.2006 20:43
Keppnin um Austurlandströllið hafin Í morgun hófst austur á Vopnafirði keppnin um titilinn Austurlandströllið, en þar keppa sín á milli sterkustu aflraunamenn landsins úr röðum IFSA Ísland. Þegar þetta er ritað eru jötnarnir að etja kappi í drumbalyftu á Mjóeyri á Eskifirði og lýkur dagskrá dagsins í Neskaupstað klukkan 18 þar sem keppt verður í dekkjaveltu við Norðfjarðarvöll. Sport 17.8.2006 16:08
Enn eitt tapið hjá U-16 Íslenska piltalandsliðið U-16 ára tapaði í dag sjötta leiknum sínum í röð í A-deild Evrópumótsins sem fram fer á Spáni þegar liðið lá fyrir sterku liði Grikkja 95-68. Grikkir höfðu yfir 36-25 í hálfleik. Sigmar Logi Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 14 stig. Sport 17.8.2006 15:37
Fyrsti sigur FH í sumar FH-stúlkur unnu í gærkvöld sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild kvenna þegar þær lögðu lið Þórs/KA á heimavelli sínum í Kaplakrika 3-2. Sigurinn dugði FH þó ekki til að komast upp úr botnsæti deildarinnar, en liðið situr á botninum ásamt norðanliðinu með 3 stig, en hefur lakari markatölu. Sport 16.8.2006 22:14
Markalaust í Austurríki U-21 árs landslið Íslands gerði markalaust jafntefli við Austurríki á útivelli í dag í leik liðanna í forkeppni EM. Íslenska liðið leikur í riðli með Austurríkismönnum og Ítölum, en hvert lið spilar aðeins tvo leiki í riðlinum og sigurvegari hans kemst í umspil um sæti í úrslitakeppninni. Íslenska liðið mætir því Ítalska hér heima 1. september. Sport 16.8.2006 17:11
Ísland upp um eitt sæti Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu færist upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Íslenska liðið var í 107. sæti fyrir leikinn við Spánverja í gær, en er nú í því 106. Þess má til gamans geta að spænska liðið er í sjöunda sæti listans eftir sem áður, en Brasilíumenn verma toppsætið á listanum. Ítalir eru í öðru sæti listans og Argentínumenn í því þriðja. Sport 16.8.2006 13:31
Fimm leikmenn í bann Aganefnd KSÍ kom saman í gær og úrskurðaði fimm leikmenn úr Landsbankadeild karla í leikbann. Guðmundur Sævarsson úr FH fékk tveggja leikja bann fyrir brottvísun sína í leik FH og Fylkis. Eyjamennirnir Páll Hjarðar og Paul Garner fengu eins leiks bann, líkt og Óðinn Árnason úr Grindavík og Jón Guðbrandsson úr Víkingi. Sport 16.8.2006 13:21
Ísland í 8. sæti eftir fyrri leikinn Ísland vann Lúxemborg 22-8 í fyrri leik dagsins á Evrópumeistaramótinu í Bridge. Ísland er í 8. sæti á mótinu með 150 stig og vantar aðeins 4 stig til að ná 6. sætinu sem gefur leikheimild á heimsmeistaramótinu í Bridge. Leikur Íslands og Spánar stendur nú yfir. Sport 16.8.2006 12:54
Markalaust jafntefli við Spánverja Íslendingar og Spánverjar skildu jafnir 0-0 í æfingaleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld. Íslenska liðið varðist sóknarlotum hærra skrifaðra andstæðinga sinna með ágætum og hefði með smá heppni geta skorað mark. Sport 15.8.2006 21:50
Markalaust í hálfleik á Laugardalsvelli Nú hefur verið flautað til hálfleiks í vináttuleik Íslendinga og Spánverja í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvelli, en enn hefur ekkert mark verið skorað í leiknum. Spánverjar tefla fram sókndjörfu liði í dag, en íslenska liðinu hefur tekist með ágætum að halda aftur af þeim það sem af er. Sport 15.8.2006 20:49
Jóhannes Karl nálægt því að skora Leikur Íslendinga og Spánverja er nú hafinn og það er Jóhannes Karl Guðjónsson sem hefur átt besta færi leiksins til þessa. Jóhannes reyndi ótrúlegt skot af um 60 metra færi sem Jose Reina náði naumlega að slá yfir spænska markið og þurfti að skipta um markmannshanska eftir tilþrifin. Þetta gerðist á 13. mínútu leiksins og skömmu síðar átti Luis Garcia gott færi við íslenska markið en Árni Gautur sá við honum. Sport 15.8.2006 20:16
Friðrik Ingi ráðinn framkvæmdastjóri KKÍ Friðrik Ingi Rúnarsson, sem verið hefur þjálfari meistaraflokks Grindavíkur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands. Friðrik Ragnarsson, fyrrum þjálfari Njarðvíkinga, hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari Grindvíkinga í stað nafna síns Rúnarssonar. Þetta kom fram í kvöldfréttum NFS. Sport 15.8.2006 16:21
Byrjunarlið Íslands klárt Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur valið byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Spánverjum á Laugardalsvelli í kvöld. Íslenska liðið spilar leikkerfið 4-4-2 og verða þeir Heiðar Helguson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson í fremstu víglínu. Sport 15.8.2006 18:13
Ísland í 13. sæti eftir fimm umferðir Íslendingar eru í 13. sæti eftir fimm umferðir af 33 í Evrópumótinu í Bridge. Íslendingar hafa fengið 80 stig af þeim 125 sem í boði voru. Ítalir eru efstir með 109 stig, Svíar koma næstir með 97,5 stig og Þjóðverjar eru í þriðja sæti með 93 stig. Sport 15.8.2006 10:33
Nýtt og betra gras.is Fótboltavefurinn Gras.is hefur opnað nýjan vef eftir miklar breytingar. Vefurinn hefur verið endurbættur frá grunni og nýjungum bætt við. Sem dæmi eru boltavaktin og draumadeildin komin á gras.is í samstarfi við Vísi. Sport 15.8.2006 09:38
Eiður Smári ekki með gegn Spánverjum Landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið gefið frí í vináttuleiknum gegn Spánverjum annað kvöld, en þessi ákvörðun var tekin í samráði við lækna og þjálfara landsliðsins. Eiður Smári er nú á fullu með liði sínu Barcelona sem leggur lokahönd á undirbúining sinn fyrir komandi leiktíð. Sport 14.8.2006 12:56
Þróttur leikur gegn KR 1. deildarlið Þróttar tekur á móti KR og Víkingar mæta Keflavík í undanúrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu en dregið var í undanúrslit VISA-bikars karla og kvenna á Hótel Loftleiðum í hádeginu. Í VISA-bikar kvenna mætast Breiðablik og Fjölnir og Valur og Stjarnan. Sport 1.8.2006 12:51