Íþróttir
229 230 231 232 233 234 235 236 237 … 334 ›
Wigan lagði Aston Villa Nýliðar Wigan báru sigurorð af Aston Villa 3-2 í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Wigan var skrefinu á undan allan leikinn og vann mikinn baráttusigur, sem heldur vonum liðsins um Evrópusætið á lífi enn sem komið er. Henry Camara skoraði tvö mörk fyrir Wigan og Jimmy Bullard eitt, en hjá Villa voru það Juan Pablo Angel og Liam Ridgewell. Sport 18.4.2006 20:57
Barcelona lagði AC Milan Barcelona vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á AC Milan á San Siro í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum meistaradeildarinnar. Það var Ludovic Giuly sem skoraði sigurmarkið með frábærum hætti eftir góðan undirbúning frá brasilíska snillingnum Ronaldinho. Barcelona er því með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn sem verður á heimavelli liðsins í Katalóníu á Spáni. Sport 18.4.2006 20:47
Shearer ætlar að taka sér gott frí Framherjinn Alan Shearer ætlar ekki að vinna sem þjálfari hjá liði Newcastle á næsta keppnistímabili þegar hann verður búinn að leggja skóna á hilluna, heldur ætlar hann að taka sér frí frá knattspyrnu í óákveðinn tíma. Sport 18.4.2006 20:32
Barcelona komið yfir Barcelona er komið í mjög vænlega stöðu í einvíginu við AC Milan, en Ludovic Giuly var rétt í þessu að koma Barcelona yfir á San Siro eftir glæsilega sendingu frá Ronaldinho. Markið er Börsungum gríðarlega mikilvægt, en þeir eiga síðari leikinn eftir á heimavelli. Markið kom á á 57. mínútu og var einstaklega vel að því staðið hjá Barcelona. Sport 18.4.2006 20:00
Markalaust á San Siro í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í fyrri viðureign AC Milan og Barcelona á San Siro í Mílanó í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en hvorugu liðinu hefur tekist að skora. Það var Gilardino hjá Milan sem komst næst því að skora þegar hann átti skot í stöngina á marki Barcelona. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 18.4.2006 19:39
Mido stefnir á að vera með gegn Arsenal Framherjinn Mido hjá Tottenham stefnir á að ná byrjunarliðssæti hjá liðinu fyrir leikinn gegn Arsenal um næstu helgi, en það er einhver mikilvægasti leikur Tottenham í háa herrans tíð. Mido hefur átt við erfið nárameiðsli að stríða og var hans sárt saknað í leiknum gegn Manchester United í gær. Martin Jol segir Mido líklega geta byrjað að æfa á fullu á næstu tveimur dögum og á von á að geta teflt honum fram gegn Arsenal um helgina. Sport 18.4.2006 19:25
Byrjunarliðin klár Nú styttist í að flautað verði til leiks í fyrri undanúrslitaleik AC Milan og Barcelona í Meistaradeildinni, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. AC Milan hefur unnið keppnina sex sinnum en Barcelona aðeins einu sinni. Milan hefur aldrei fallið úr keppni í undanúrslitunum. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn hefja leikinn mikilvæga á San Siro. Sport 18.4.2006 18:26
Einn leikur í kvöld Einn leikur verður á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, þegar Wigan tekur á móti Aston Villa. Wigan hefur gengið frekar illa að undanförnu og hefur ekki náð sigri í síðustu fjórum leikjum. Nýliðarnir eru þó talsvert fyrir ofan Villa í töflunni og vilja eflaust næla í sigur á heimavelli sínum í kvöld. Sport 18.4.2006 16:16
Orðinn hundleiður á spurningum um framtíð sína Thierry Henry brást hinn versti við á blaðamannafundi í dag þegar hann var enn eina ferðina spurður út í framtíð sína hjá Arsenal. Blaðamannafundurinn var hugsaður fyrir viðureign Villarreal og Arsenal í Meistaradeildinni, en þegar blaðamenn spurðu Henry út í framtíð hans hjá Arsenal, lét sá franski þá heyra það. Sport 18.4.2006 17:37
Carlsley áfrýjar rauða spjaldinu Lee Carlsley, leikmaður Everton, hefur ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem hann fékk í leiknum gegn Chelsea um páskahelgina. Stjóra Everton þótti spjaldið alls ekki sanngjarnt en ef spjaldið stendur, mun Carlsley missa af restinni af tímabilinu. Hann hefur ekki komið mikið við sögu í vetur vegna erfiðra meiðsla. Sport 18.4.2006 16:12
Svartsýnn á að Shearer nái sér Freddy Shepherd hjá Newcastle segist óttast að ferli Alan Shearer sé lokið eftir að hann meiddist á hné í leik gegn Sunderland um helgina, en bætir við að hann muni þó aldrei afskrifa mann eins og Shearer. Aðeins þrír leikir eru eftir af tímabilinu og það kemur væntanlega í ljóst á fimmtudag hvort fyrirliðinn hefur spilað sinn síðasta leik á ferlinum. Sport 18.4.2006 15:52
Hrafnsmessa á morgun Enn bætast við stórstjörnur á Hrafnssýninguna 19.apríl í Ölfushöllinni. Má þar nefna topp klárhestinn og glæsi stóðhestinn Leikni frá Vakursstöðum, knapi á Leikni er hinn ungi Valdimar Bergstad. Bræðurna; Eldjárn frá Tjaldhólum, knapi Guðmundur Björgvinsson og Borða frá Fellskoti, knapi á honum er Brynjar Jón Stefánsson. Það er ekki ofsögum sagt að þeir bræður séu í topp formi, “ glæsihestar”. Síðast en ekki síst má nefna að Hans Kjerulf er lagður af stað suður með hestagullið Laufa frá Kollaleiru og eina moldótta sem lyftir létt yfir vinkilinn. Sport 18.4.2006 15:43
Schumacher ákveður sig fljótlega Ross Brawn hjá Ferrari segir að Michael Schumacher muni að öllum líkindum taka ákvörðun um framtíð sína á allra næstu mánuðum, en mikið hefur verið rætt um hvort hann hætti að keppa eða gangi jafnvel til liðs við Renault. Sport 18.4.2006 15:12
Kirkland verður áfram ef liðið heldur sér uppi Markvörðurinn Chris Kirkland sem spilað hefur sem lánsmaður hjá West Brom í vetur segist vel geta hugsað sér að ganga til liðs við félagið til frambúðar, svo fremi sem það haldi sér í úrvalsdeildinni. Kirkland er leikmaður Liverpool, en hefur fengið að vita að hann sé ekki inni í myndinni sem aðalmarkvörður þar á bæ. Framtíð markvarðarins er því með öllu óráðin - því ekki er útlitið gott hjá liði West Brom í fallbaráttunni. Sport 18.4.2006 15:02
Cech ætlar að vera með gegn Liverpool Tékkneski markvörðurinn Petr Cech segist staðráðinn í að spila með liði sínu Chelsea gegn Liverpool í undanúrslitum enska bikarsins á laugardaginn, en hann þurfti að fara af velli meiddur á hné í deildarleik um páskana. "Ég skarst illa á fætinu í leiknum, en í ljós kom að þetta var ekkert alvarlegt svo ég er bjartsýnn á að geta spilað gegn Liverpool," sagði Cech. Sport 18.4.2006 14:56
Ætlar ekki að taka Ronaldinho úr umferð Carlo Ancelotti er mjög bjartsýnn á að hans menn í AC Milan nái að slá Barcelona út úr undanúrslitum Meistaradeildarinnar, en liðið er nú í þriðja sinn í undanúrslitum á síðustu fjórum árum. Ancelotti ætlar ekki að setja sérstakan mann til höfuðs brasilíska snillingsins Ronaldinho og segir varnarmenn sína fullfæra um að halda aftur af honum. Sport 18.4.2006 14:06
Nú þurfum við að sanna okkur Frank Rijkaard segir að öll lið gangi í gegn um það að þurfa að komast fram úr sér sterkari og reyndari liðum til að verða Evrópumeistarar og segir að nú sé kominn tími til fyrir sína menn í Barcelona að gera einmitt það gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30 í kvöld. Sport 18.4.2006 13:49
San Antonio tók efsta sætið í Vesturdeildinni Meistarar San Antonio tryggðu sér í nótt efsta sætið í Vesturdeildinni þegar liðið burstaði Utah Jazz á heimavelli sínum 115-82 og verður liðið því með heimavallarréttinn alla leið í úrslitin. Manu Ginobili skoraði 18 stig fyrir San Antonio og nýliðinn Deron Williams skoraði sömuleiðis 18 fyrir Utah. Sport 18.4.2006 13:03
Hesta og gæludýrakeppni hjá Íshestum á sumardaginn fyrsta Íshestar standa fyrir hesta og gæludýrakeppni sumardaginn fyrsta í höfuðstöðvum Íshesta í Hafnafirði. Framkvæmd á skemmti- og hátíðardagskrá þennan dag er í höndum Önnu Marínar Kristjánsdóttur fagmanns á sviði hunda og hesta. Dagskráin er með nokkuð hefðbundnu sniði eins og fyrri ár, þ.e.fjölbreytt fjölskyldudagskrá þar sem ýmislegt er í boði, en gaman er að segja frá því að í fyrsta skipti á Íslandi verður haldinn almenn gæludýrakeppni. Innlent 18.4.2006 12:50
Hungrið í hámarki Fyrri leikur stórliðanna AC Milan og Barcelona í undanúrslitum meistaradeildar Evrópu fer fram á Ítalíu í kvöld en leiksins er beðið af mikilli eftirvæntingu. Meiðsli eru í sóknarlínum beggja liða en Henrik Larsson fór meiddur af velli í leik Barcelona gegn Villareal í spænska boltanum á föstudag og getur ekki leikið í kvöld. Sport 17.4.2006 15:36
Ferill Shearer mögulega á enda Framherjinn Alan Shearer gæti hafa spilað sinn síðasta leik í úrvalsdeildinni á ferlinum, en hann meiddist á fæti í leik Newcastle og Sunderland í dag. Hann fer í myndatöku á morgun og þá verður skorið um hversu alvarleg meiðsli hans eru. Shearer sjálfur segist óttast að ballið sé búið, en hann hefur skorað 206 mörk í 404 leikjum fyrir Newcastle. Sport 17.4.2006 22:16
West Brom náði aðeins í eitt stig West Brom er þremur stigum frá því að komast upp að hlið Portsmouth og bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeilidnni í knattspyrnu eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við Bolton á heimavelli sínum í kvöld. Möguleikar West Brom eru þó ekki sérstaklega góðir þegar þrjár umferðir eru eftir. Sport 17.4.2006 22:05
Spurðu Loga Geirsson Vísir og Fréttablaðið bjóða lesendum sínum að spyrja handboltakappann, Loga Geirsson, spjörunum úr. Hvað hefur þú alltaf viljað vita um Loga? Skráðu þína spurningu hér að neðan og fylgdust síðan með á Vísi og Fréttablaðinu sunnudaginn 30. apríl þegar svör Loga verða birt. Hægt er að senda spurningar til miðnættis miðvikudaginn 26. apríl. Sport 17.4.2006 21:55
Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla þegar liðið lagði Skallagrím í Borgarnesi í fjórðu viðureign liðanna 81-60. Njarðvíkingar eru vel að titlinum komnir eftir að frábær varnarleikur var lykillinn að fyrsta sigri félagsins á Íslandsmótinu síðan árið 2002. Brenton Birmingham hjá Njarðvík var kjörinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins. Sport 17.4.2006 21:40
Öruggur sigur Chelsea Chelsea vann í dag öruggan 3-0 sigur á Everton á heimavelli sínum Stamford Bridge og er því komið með aðra höndina á Englandsbikarinn annað árið í röð. Frank Lampard, Didier Drogba og Michael Essien skoruðu mörk Chelsea í dag, en Lee Carlsley var rekinn af leikvelli hjá Everton í upphafi síðari hálfleiks í stöðunni 1-0 fyrir Chelsea. Sport 17.4.2006 15:57
Ekkert kampavín hjá Chelsea í dag Manchester United vann í dag góðan útisigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og kom þar með í veg fyrir að Chelsea gæti tryggt sér meistaratitilinn með sigri á Everton í dag. Tvö mörk frá Wayne Rooney á fyrsta hálftímanum komu United í veglega stöðu, en Jermaine Jenas minnkaði muninn fyrir heimamenn á 52. mínútu. Tottenham sótti hart að marki United það sem eftir lifði leiks, en varð að sætta sig við fyrsta tap sitt á heimavelli í átta mánuði. Sport 17.4.2006 14:02
King er úr leik hjá Tottenham Miðvörðurinn Ledley King spilar ekki meira með liði sínu Tottenham Hotspurs á leiktíðinni eftir að í ljós koma að hann brákaði bein á fæti sínum í viðskiptum við Duncan Ferguson hjá Everton á laugardaginn. Meiðslin setja stórt strik í reikninginn fyrir Tottenham í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni og það sama má segja um vonir leikmannsins um sæti í enska landsliðinu á HM í sumar. Sport 17.4.2006 08:26
Ljóst hvaða lið ná í úrslitakeppnina Los Angeles Lakers, Sacramento Kings og Chicago Bulls tryggðu sér í nótt sæti í úrslitakeppninni í NBA þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Þá vann Detroit 64. leik sinn í vetur sem er félagsmet og ljóst að liðið verður með heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina. Sport 17.4.2006 06:31
Meistaradeildin lykillinn að ákvörðun Henry Emmanuel Adebayor, félagi Thierry Henry hjá Arsenal, segist viss um að gengi liðsins í Meistaradeildinni á næstu vikum muni skera úr um það hvort Henry vilji verða áfram hjá félaginu eða fara eitthvað annað. Henry á enn eftir að framlengja samning sinn við Lundúnaliðið og um fátt annað hefur verið meira rætt á Englandi í vetur. Sport 16.4.2006 19:04
Scolari líklega út úr myndinni Brasilíski þjálfarinn Luiz Felipe Scolari verður tæplega einn þeirra sem koma helst til greina sem næsti þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu. Scolari, sem er núverandi þjálfari Portúgala, segist ekki ætla að taka neinar ákvarðanir um framtíð sína fyrr en að heimsmeistaramótinu loknu, en Englendingar hafa sem kunnugt er ákveðið að tilkynna nafn næsta þjálfa fyrir HM í Þýskalandi í sumar. Sport 16.4.2006 18:57