Íþróttir
212 213 214 215 216 217 218 219 220 … 334 ›
Ólöf María hafnaði í 36. sæti Íslandsmeistarinn Ólöf María Jónsdóttir hafnaði í 36.-44. sæti á Opna Spánarmótinu í golfi sem fram fór í Castellon um helgina. Ólöf lauk keppni á tveimur höggum yfir pari eftir að hafa leikið á 3 höggum yfir pari á lokadeginum. Sport 14.5.2006 20:57
Tryggvi búinn að skora tvö gegn KR Íslandsmeistarar FH eru ekki lengi að taka upp þráðinn frá því í fyrra, því liðið hefur náð 2-0 forystu gegn KR í vesturbænum. Hinn magnaði Tryggvi Guðmundsson skoraði bæði mörk Hafnfirðinganna á 26. og 37. mínútu leiksins, sem er sýndur í beinni á Sýn. Sport 14.5.2006 20:39
Hörður skoraði í sigri Silkeborg Hörður Sveinsson skoraði fyrsta mark Silkeborg í óvæntum 3-2 útisigri liðsins á meistudum FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Silkeborg hafnaði því í 8. sæti deildarinnar, en Kaupmannahafnarliðið sigraði í deildinni. Fótbolti 14.5.2006 20:04
KR-FH í beinni á Sýn Lokaleikur dagsins í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla hefst nú klukkan 20 á KR vellinum og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Segja má að hér sé á ferðinni fyrsti stórleikur sumarsins, en vesturbæingum hefur gengið vægast sagt illa með Hafnfirðinga undanfarin ár. Sport 14.5.2006 19:48
Bölvar "meindýrum" í skoska boltanum Vladimir Romanov notaði tækifærið eftir að lið hans varð bikarmeistari í gær til að viðra samsæriskenningar sínar um skosku úrvalsdeildina. Romanov segir það hneyksli að lið hans skildi ekki verða meistari og kennir um "meindýrum" eins og dómurum, umboðsmönnum og knattspyrnuyfirvöldum í landinu. Sport 14.5.2006 18:37
Nadal lagði Federer og jafnaði met Spænski tenniskappinn Rafael Nadal hafði betur gegn Roger Federer í úrslitaleik meistaramótsins í Róm sem lauk nú síðdegis. Þetta var 53. sigur Nadal í röð á leirvelli sem er metjöfnun. Federer hefur aðeins tapað tveimur leikjum á tennisvellinum í ár og bæði voru þau gegn hinum unga Nadal, sem hafði betur í dag 6-7 (0-7) 7-6 (7-5) 6-4 2-6 7-6 (7-5) í æsilegum úrslitaleik. Sport 14.5.2006 18:29
Grindvíkingar lögðu Skagamenn Grindvíkingar unnu glæsilegan sigur á Skagamönnum í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í dag 3-2, þar sem Jóhann Þórhallsson var hetja heimamanna og skoraði tvö mörk - hið síðara á 90. mínútu leiksins og tryggði það heimamönnum sigurinn. Sport 14.5.2006 17:59
Hatton lagði Collazo í frábærum bardaga Ricky Hatton mætti líklega einhverjum sterkasta andstæðingi sínum á ferlinum þegar hann lagði hinn örvhenta Luis Collazo naumlega í Boston Garden í nótt. Hatton er þar með orðinn heimsmeistari WBA meistari í veltivigt og sveik engann í fyrsta bardaga sínum í Bandaríkjunum sem sýndur var beint á Sýn í nótt. Sport 14.5.2006 17:09
Chelsea staðfestir áhuga sinn á Shevchenko Forráðamenn Chelsea hafa nú staðfest það í samtali við breska fjölmiðla að félagið hafi áhuga á úkraínska framherjanum Andriy Shevchenko hjá AC Milan og reyni væntanlega að fá hann í sínar raðir í sumar. Sport 14.5.2006 16:20
Keflvíkingar með fyrsta mark sumarsins Nú er kominn hálfleikur í fyrstu þremur leikjum sumarsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Það var Keflvíkingurinn Símun Samuelsen sem skoraði fyrsta mark sumarsins þegar hann kom Keflvíkingum yfir gegn ÍBV í Eyjum, en Bo Henriksen jafnaði síðar leikinn úr vítaspyrnu. Sport 14.5.2006 16:41
Ballack í raðir Chelsea á mánudag Nú hefur verið staðfest að Michael Ballack hjá Bayern Munchen muni ganga formlega í raðir Englandsmeistara Chelsea á mánudaginn, þegar haldinn verður sérstakur blaðamannafundur til að tilkynna komu hans. Jose Mourinho segist ánægður með þær viðræður sem hann hafi átt við þýska leikmanninn og fagnar jákvæðu hugarfari hans í garð vistaskiptanna. Sport 14.5.2006 15:48
Juventus meistari Juventus tryggði sér í dag Ítalíumeistaratitilinn í knattspyrnu, annað árið í röð, þegar liðið lagði Reggina 2-0 í lokaumferðinni þar í landi. Helstu keppinautar Juve í AC Milan unnu einnig leik sinn, en Tórínó-liðið hafði þriggja stiga forystu fyrir leikinn. David Trezeguet og Alessandro del Piero skoruðu mörk meistaranna í dag. Sport 14.5.2006 15:42
Alonso sigraði á heimavelli Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði örugglega í Spánarkappakstrinum sem fram fór í Barcelona í dag. Alonso leiddi frá upphafi til enda í dag og olli fjölmörgum stuðningsmönnum sínum engum vonbrigðum. Michael Schumacher hjá Ferrar hafnaði í öðru sæti og Giancarlo Fisichella hjá Renault varð þriðji. Sport 14.5.2006 15:09
Dallas komið í vænlega stöðu Dallas Mavericks hefur náð 2-1 forystu í einvígi sínu við meistara San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Í gær vann liðið 105-104 í æsispennandi leik og næsti leikur fer einnig fram á heimavelli Dallas. Sport 14.5.2006 14:51
Cleveland lagði Detroit Cleveland Cavaliers lagði Detroit Pistons 86-77 í nótt og minnkaði munninn í 2-1 í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. LeBron James skoraði 15 af 21 stigi sínu í fjórða leikhluta og hirti auk þess 10 fráköst og var með 10 stoðsendingar. Rip Hamilton var stigahæstur hjá Detroit með 22 stig. Sport 14.5.2006 14:47
Guðjón Þórðarson situr fyrir svörum Aðra hverju viku gefst lesendum Fréttablaðsins og Vísis.is tækifæri til að spyrja fólk úr heimi íþróttanna að því sem þeim lystir. Að þessu sinni er það Guðjón Þórðarson sem situr fyrir svörum en hann stýrir nú Notts County á Englandi. Guðjón hefur meðal annars stýrt Stoke og íslenska landsliðinu, sem hann segir að sé skemmtilegasta starf hans sem þjálfari. Sport 13.5.2006 14:36
Nistelrooy fyrir Diarra? Talsmaður franska stórliðsins Lyon segir að félagið hefði ekkert á móti því að krækja í Ruud van Nistelrooy í staðinn ef Manchester United hefði áhuga á að kaupa miðjumanninn sterka Mahamadou Diarra. Sport 13.5.2006 18:42
De Santis fer ekki á HM Ítalska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt FIFA að það sé hætt við að senda dómarann Massimo de Santis til keppni á HM eftir að ljóst var að hann væri viðriðinn stóra knattspyrnuhneykslið þar í landi. Aðstoðardómararnir sem áttu að fara með de Santis á HM hafa einnig verið settir út úr myndinni. Sport 13.5.2006 18:14
Federer og Nadal mætast í úrslitum í Róm Það verða Roger Federer og Rafael Nadal sem leika til úrslita á meistaramótinu í tennis sem fram fer í Róm, eftir að þeir lögðu andstæðinga sína í undanúrslitum í dag. Nadal er eini maðurinn sem hefur lagt Federer að velli á árinu og með sigri getur hann jafnað metið yfir flesta sigurleiki í röð á leirvelli. Sport 13.5.2006 18:36
Hearts bikarmeistari Úrvalsdeildarlið Hearts frá Edinborg varð í dag skoskur bikarmeistari í sjöunda sinn þegar liðið lagði 2. deildarlið Gretna í úrslitaleik eftir framlengingu og vítakeppni. Gretna-liðið hefur farið upp um deild tvö ár í röð og slapp við að mæta úrvalsdeildarliði í bikarnum í ár alla leið í úrslitin, þar sem heppnin var á bandi Hearts í vítakeppninni. Sport 13.5.2006 18:29
Skotar fögnuðu sigri Skotar tryggðu sér í dag sigur á æfingamótinu Kirin Cup í Japan, þrátt fyrir markalaust jafntefli í leiknum sem réði úrslitum á mótinu. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum en náðu ekki að nýta færi sín og því fögnuðu Skotarnir sigrinum. Sport 13.5.2006 18:25
Körfuboltaveisla um helgina á Sýn og NBA TV Það verður að venju mikið um dýrðir í NBA körfuboltanum um helgina og hægt verður að fylgjast með fjölda leikjanna á Sýn og NBA TV, en báðir leikir kvöldsins verða til að mynda í sjónvarpinu. Leikur Cleveland og Detroit verður sýndur á Sýn um klukkan 22 í kvöld og þá verður bein útsending á NBA TV síðar um miðnætti frá þriðja leik Dallas og San Antonio. Sport 13.5.2006 17:09
Biðum eftir vítakeppninni Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og maður bikarúrslitaleiksins í dag, sagði að sigurinn hefði verið einstakur fyrir sig. Þrátt fyrir hetjulega tilburði markvarðarins Jose Reina í lokin, var það Gerrard sem var maður leiksins og hann þakkaði sigurinn baráttuanda Liverpool-liðsins. Sport 13.5.2006 17:49
Óheppnin eltir Coulthard David Coulthard hafði ekki heppnina með sér í tímatökunum fyrir Spánarkappaksturinn í dag, en hann verður á morgun aðeins áttundi ökumaðurinn í sögunni til að taka þátt í 200 keppnum. Coulthard ók bíl sínum út af brautinni í dag og þarf að ræsa í næst síðasta sætinu á morgun. Sport 13.5.2006 17:34
Shevchenko er ekki til sölu Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að þangað til félaginu berst formleg beiðni frá frá leikmanninum sjálfum um að fá að vera settur á sölulista, sé Andriy Shevchenko hreinlega ekki til sölu. Sport 13.5.2006 16:31
Liverpool bikarmeistari Liverpool vann í dag enska bikarinn í knattspyrnu þegar liðið lagði West Ham í dramatískum leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakeppni. Þar var það markvörður liðsins Jose Reina sem var hetja dagsins þegar hann varði þrjár spyrnur West Ham-manna í vítakeppninni. Sport 13.5.2006 16:47
Ólöf aftur á pari Íslandsmeistarinn Ólöf María Jónsdóttir úr Keili lauk þriðja hringnum á opna Spánarmótinu á pari í dag og er því samtals á einu höggi undir pari. Ólöf er því í 18.-22 sæti keppenda á mótinu. Sport 13.5.2006 16:20
Wigan hafnar tilboði Tottenham í Chimbonda Wigan hefur sagt þvert nei við 3 milljón punda tilboði Tottenham í bakvörðinn knáa Pascal Chimbonda og stendur félagið fast á því að fá helmingi hærri upphæð en það fyrir leikmanninn. Chimbonda vill fara frá Wigan í sumar. Sport 13.5.2006 16:24
Kristján skoraði fyrir Brann Íslendingalið Brann sigraði Sandefjord 2-0 í fyrsta leiknum í norska boltanum í dag. Kristján Örn Sigurðsson skoraði annað marka Brann í leiknum, sem reyndar var nokkuð umdeilt. Ólafur Örn Bjarnason var einnig í liði Brann í dag, sem skaust í annað sæti deildarinnar með sigrinum. Sport 13.5.2006 16:11
Framlengt í Cardiff Úrslitaleikurinn í enska bikarnum í dag er að verða ansi sögulegur, en grípa þarf til framlengingar eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma er 3-3. Lengst af leit út fyrir að West Ham færi með sigur af hólmi í leiknum, en Steven Gerrard var enn og aftur hetja þeirra rauðklæddu þegar hann skoraði stórglæsilegt mark með viðstöðulausu skoti af 30 metra færi undir lokin. Sport 13.5.2006 15:47
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent