Viðreisn

Fréttamynd

Andar köldu milli Við­reisnar- og Miðflokksmanna

Sanna Magndalena Mörtudóttir hjá Vinstrinu er sá oddviti sem Reykvíkingar treysta best samkvæmt nýrri könnun. Sama könnun varpar einnig ljósi á það að kjósendum Miðflokksins og kjósendum Viðreisnar sé fremur illa við oddvita hvorum annarra, sem gæti reynst erfitt fyrir flokkana tvo ef þeir vilja að mynda saman meirihluta ásamt Sjálfstæðisflokknum.

Innlent
Fréttamynd

Vændiskaupendur verði nafn­greindir og þeim stungið í steininn

Meðal þess sem lagt verður upp með í landsáætlun dómsmálaráðuneytisins gegn kyndbundnu ofbeldi er að skoða hvort hægt verði að nafngreina vændiskaupendur þegar mál þeirra fara fyrir dómstóla. Auk þess verður unnið að því að þyngja refsingu þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt.

Innlent
Fréttamynd

Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Um daginn sá ég svona líka álitlega bifreið á bílasölu! Land Cruiser 100 sem var næstum jafn gamall og ég. Sem sérlegur áhugamaður um úr sér gengna jálka var ég vitaskuld hugfanginn. Mig hafði enda dreymt um ákkúrat svona drossíu í mörg ár. Verðið var sanngjarnt og þótt hann væri ekki fullkominn var hann bara skrambi góður. Allttént skömminni skárri en að fara ferða minna á tveimur jafnfljótum.

Skoðun
Fréttamynd

Rifjaði upp erfitt augna­blik frá 1994 til að skjóta á mót­herja

Regn­bogafánar og lausa­ganga flokks­gæðinga komu við sögu þegar odd­vitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum um­ræðum við kosninga­pall­borð frétta­stofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn upp fyrir Sjálf­stæðis­flokk og Fram­sókn bætir við sig

Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði í nýrri könnun Maskínu, líkt og í síðustu könnun. Það sem vekur hins vegar athygli er að Viðreisn fer upp fyrir Sjálfstæðisflokk og mælist næst stærst flokka. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn þrátt fyrir fylgisaukningu Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna.

Innlent
Fréttamynd

Stórasta Ár­borg í heimi?

Árborg er það sveitarfélag sem hefur vaxið hvað hraðast á undanförnum árum og íbúum fjölgað langt umfram áætlanir. Sú þróun sýnir að Árborg er eftirsóttur staður til búsetu, enda hvergi betra að vera. En örum vexti fylgja líka vaxtaverkir.

Skoðun
Fréttamynd

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík

Margt er líkt í stefnu flokkanna í leikskólamálum. Margir vilja tryggja systkinaforgang og heimgreiðslur og nær allir tala í sinni stefnu um að styrkja dagforeldrakerfið. Margir vilja auka svigrúm fyrirtækja og stofnana til að opna leikskóla. Nokkrir flokkar tala um hvernig á að auka mönnun og einhverjir tilgreina nákvæmlega hversu mörgum plássum á að fjölga á kjörtímabilinu.

Innlent
Fréttamynd

Frelsi kvenna er ekki vanda­málið

Ég elskaði að ganga með börnin mín þrjú. Elskaði að hugsa um þau sem ungabörn og elskaði þann dýrmæta fjölskyldutíma sem fylgir því að eignast börn. Að sama skapi þótti mér gott, og í raun nauðsynlegt, að komast aftur út á vinnumarkaðinn, taka fullan þátt í samfélaginu að nýju samhliða því sem ég sinnti fjölskyldunni.

Skoðun
Fréttamynd

„Komið þá með allt það sem gerðist síðast“

Forsætisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun þar sem tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Þingflokksformaður Viðreisnar sakar stjórnarandstöðuna um hræðsluáróður.

Innlent
Fréttamynd

„Var þetta ein­hver skets?“

Guðlaugur Þór Þórðarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hélt því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði ekki heyrt stakt orð í fyrirspurn sinni; svar hennar væri eitt það furðulegasta sem heyrst hafi í þingsal.

Innlent
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Segir Mið­flokkinn selja snákaolíu

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir Miðflokkinn selja snákaolíu með loforðum sínum um auknar heimgreiðslur til foreldra. Hún segir heimgreiðslur langtum stærra mál en Miðflokkurinn boði, þær muni til lengri tíma skerða tekjur mun meira en sem nemur ávinningi.

Innlent
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent
Fréttamynd

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.

Innlent
Fréttamynd

Snúum Reykja­vík við

Reykvíkingar kjósa nýja borgarstjórn eftir 24 daga. Í mínum huga snúast kosningarnar um næstu kynslóð Reykvíkinga. Velur unga fólkið að búa í höfuðborginni okkar? Er húsnæði hræðilega dýrt? Er gaman að stofna fyrirtæki? Er ég stanslaust á bið?

Skoðun
Fréttamynd

Dyflinarreglugerðin ekki af­numin þótt orða­lag breytist

Dómsmálaráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi til breytingar á útlendingalögum og lögreglulögum sem felur meðal annars í sér styttri kærufresti fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og skýrari stjórn á landamærunum. Formaður Miðflokksins segir frumvarpið fela í sér afnám Dyflinarreglugerðarinnar og aðlögun að Evrópusambandinu á einu erfiðasta sviðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Kominn tími til í Kópa­vogi

„Ég þarf bara einhvern þangað inn sem hlustar á bæjarbúa og gengur í verkin.“ Þetta heyri ég aftur og aftur í samtölum við Kópavogsbúa. Skilaboðin eru skýr: fólk vill bæjarfulltrúa sem hlusta - og ganga í verkin. Það er kjarninn í því sem Viðreisn í Kópavogi vill gera. Við viljum betra bæjarfélag þar sem almannahagsmunir ráða ferðinni, ekki sérhagsmunir.

Skoðun
Fréttamynd

Hækjubræður á þingi

Guðmundur Ingi Kristinsson, sem er utan flokka á þingi eftir að hann yfirgaf óvænt Flokk fólksins, lætur fjölmiðla ekki ná í sig. Hann gaf sér hins vegar tíma til að stilla sér upp ásamt Ingvari Þóroddssyni, þingmanni Viðreisnar, en þeir eru báðir á hækjum.

Innlent