

Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, segir það ekki hafa verið fyrsta val að slíta viðræðum Icelandair við Flugfreyjufélagið eftir að samningur var felldur í byrjun júlí.
Félagsmálaráðherra telur Icelandair hafa verið á gráu svæði þegar félagið sagði upp öllum flugfreyjum í miðri kjaradeilu.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var harðorður í garð verkalýðsforystunnar í viðtali á Sprengisandi í morgun.
Prófessor í afbrotafræði segir vaxandi stuðning við nýjar leiðir í baráttunni gegn fíkniefnum. Hann segir að það séu ekki einungis fíklar sem neyta fíkniefna en sú staðreynd sé hugsanleg fyrirstaða fyrir því að ganga alla leið í afglæpavæðingu fíkniefna.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tókust á um borgarlínuna og samgöngumál á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Viðhorf lögreglunnar til almennings hafi breyst töluvert frá því hún hóf störf sem lögreglustjóri á Ísafirði árið 2002 og þróunin sé stöðugt að breytast í rétta átt.
Halldór Friðrik Þorsteinsson stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðunum verður fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar í þættinum Sprengisandi sem hefst klukkan 10
Sóttvarnalæknir segir að hérlendis hafi skapast mikil þekking á kórónuveirunni sem nýtist heimsbyggðinni allri. Þar hafi Íslensk erfðagreining farið fremst í flokki.
Fimmtíu og sjö ný kórónuveirusmit hafa verið greind í Kína á síðasta sólarhring og tengist meirihluti þeirra, eða 36 matarmarkaði í Peking.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verður fyrsti Kristjáns Kristjánssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgunni sem hefst klukkan 10.
Ekki verður hægt að treysta því að molta sem unnin er úr úrgangi í gas- og jarðgerðarstöð Sorpu verði nothæf vegna þeirra aðferða sem notaðar eru í stöðinni segir umhverfisstjórnunarfræðingur sem segir margt athugavert í því hvernig hugmyndin um gas- og jarðgerðarstöð hefur verið framkvæmd.
Útvarpsþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar alla sunnudaga klukkan tíu.
„En að sama skapi, ófá börnin hafa brosað til manns, sem hafa þakkað manni fyrir, hafa verið vítamínsprauta sem maður fær í hjartað til að vega upp á móti þessum erfiðu hlutum sem maður upplifir.“
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að endurmeta þurfi takmarkanir á skólastarfi ef komi til annarrar bylgju kórónuveirufaraldursins. Staðreyndir sem lúti að börnum varðandi Covid, það að veiran smitist lítið milli barna, að börn verði lítið veik og þau smiti nánast ekkert, gætu orðið til að takmarkanir verði með öðrum hætti.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að ákvarðanir er varða heimsóknarbann á hjúkrunarheimilum þurfi að endurmeta ef komi til annarrar bylgju Covid-19.
Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar alla sunnudaga frá 10 til 12.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að það virðist sem svo að sum fyrirtæki, sem séu alls ekki í alvarlegum rekstrarvanda, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga ársfjórðungsuppgjörum og með því ætlað sér að ganga í augum á fjárfestum. Hann segir þó að óvissan hafi verið mikil og því að einhverju leyti skiljanlegt að fyrirtækin hafi sótt í hlutabótaleiðina.
Prófessor og sérfræðingur í smitsjúkdómum segir ólíklegt að hægt sé að aflétta mörgum hömlum sem settar hafa verið vegna kórónuveirufaraldursins fyrr en bóluefni er komið gegn veirunni.
Kristján Kristjánsson mun fá til sín góða gesti, þar á meðal Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra , Loga Einarsson formann Samfylkingarinnar og Halldóru Mogenssen formann þingflokks Pírata.
Koma mun til fjöldauppsagna hjá Icelandair strax eftir helgi. „Við verðum því miður að grípa til mjög erfiðra og mikilla aðgerða til að minnka útflæði fjármagns.“ Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Hagfræðingarnir Ásgeir Brynjar Torfason og Kristrún Frostadóttir voru meðal gesta Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi í morgun. Þar var efnahagsástandið rætt umbúðalaust. Hagfræðingarnir tveir voru sammála um að ríkið þurfi að gera meira fyrir fyrirtækin í landinu.
Komið hefur í ljós að hlutabótaleiðin mun ekki duga fyrir ferðaþjónustufyrirtæki þar tekjulausa tímabilið verður að líkum of langt. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Fimm útgerðarfélög af sjö hafa dregið kröfur sínar á hendur ríkinu vegna úthlutunar makrílkvóta til baka. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum heldur skaðabótakröfu sinni til streitu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, varar við því að íslenskir stjórnmálaflokkar reyni að nýta sér ástandið vegna kórónuveirufaraldursins í pólitískum tilgangi. Atvinnuvegaráðherra telur að daglegir upplýsingafundir drepi allt lýðskrum.
Mikið hefur verið rætt um raforkusamning Landsvirkjunnar við Rio Tinto síðustu vikur eftir að stjórnendur sögðust vera að skoða mögulega lokun álversins í Straumsvík.
Dr. Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, segir minni tekjudreifingu vera hér á landi samanborið við aðrar þjóðir.
Demókratar eru í erfiðri stöðu eftir forval flokksins í Iowa. Miklar tafir urðu á því að endanleg úrslit yrðu tilkynnt vegna misræmis í tilkynningu talna frá kjörfundunum. Donald Trump, Bandaríkjaforseti, var svo sýknaður af ákærum fyrir embættisbrot sem var nokkuð fyrirséð.
Sóttvarnarlæknir segir umfjöllun um Wuhan-kórónaveiruna ekki vera storm í vatnsglasi. Hana verði að taka alvarlega og deildarstjóri almannavarna tekur í sama streng.
Íslendingar eru skelfilegar eftirbátar Norðurlandaþjóðanna þegar kemur að heimahjúkrun segir varaformaður Velferðarnefndar. Með því að auka heimahjúkrun væri hægt að minnka fráflæðisvanda Landspítalans til muna og skapa þar með betri starfsaðstæður fyrir hjúkrunarfræðinga.
Greint var frá því í vikunni að stjórn Sorpu hafi ákveðið að senda framkvæmdastjóra félagsins í leyfi á meðan ástæður 1,4 milljarða króna framúrkeyrslu á áætluðum framkvæmdakostnaði vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og móttökustöðvar í Gufunesi (GAJA) væru til skoðunar.