Þjóðhátíð í Eyjum

Fréttamynd

„Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“

Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri.

Innlent
Fréttamynd

Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026

Birgitta Haukdal og Herra hnetusmjör eru höfundar og flytjendur lagsins „Flugeldar“ sem er Þjóðhátíðarlagið í ár. Þau frumfluttu lagið í Brennslunni á FM957 í morgun en það fangar eftirvæntinguna eftir því að mæta í Herjólfsdalinn.

Tónlist
Fréttamynd

Bjóða upp á tjald­svæði inni

Gestum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina mun nú standa til boða að tjalda innandyra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjóðhátíðargestir leita inn fyrir dyr Herjólfshallar með tjöldin meðferðis.

Innlent
Fréttamynd

Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna

Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni.

Lífið
Fréttamynd

Blysröð í anda þjóð­há­tíðar í stað brennu

Amma á Kársnesi sem saknar árlegrar áramótabrennu í Kópavogi hefur ákveðið að blása til svokallaðrar blysraðar í anda þjóðhátíðar í Eyjum á gamlárskvöld. Engar áramótabrennur eru á dagskrá í sveitarfélaginu í ár. Hún furðar sig á áhugaleysi Kópavogsbæjar á framtakinu, sem þjóni þeim tilgangi að fjölskyldur hafi eitthvað að gera milli matmálstíma og áramótaskaups á gamlárskvöld.

Lífið
Fréttamynd

Hand­tekin fyrir ölvunar­akstur eftir grænt ljós frá löggunni

Konu á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í gær var sagt að hún væri bær til að aka þegar hún blés í áfengismæli lögreglu við Landeyjahöfn en var handtekin vegna gruns um ölvunarakstur eftir að hafa blásið á næsta eftirlitspósti, nokkrum mínútum síðar. Hún reiknar með hárri sekt og að missa ökuréttindin. Aðalvarðstjóri segir ökumenn alfarið ábyrga í tilfellum sem þessu og að áfengismælar gefi einungis vísbendingu um vínandamagn. 

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var að venju haldin hátíðlega í Herjólfsdal. Þrátt fyrir leiðindaveður á föstudagskvöld virðist fólk hafa skemmt sér gríðarlega vel. Fjöldi tónlistarfólks steig á svið en án efa létu allir reyna á söngröddina í brekkusöngnum.

Lífið
Fréttamynd

Allir blása í Landeyjahöfn

Lögreglan á Suðurlandi fylgist með umferð í Landeyjahöfn en Þjóðhátíðargestir flykkjast nú í land. Enginn bílstjóri kemst af svæðinu án þess að vera athugaður af lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Herjólfur siglir í dag

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag samkvæmt áætlun. Fella þurfti niður síðustu tvær ferðir ferjunnar síðdegis í gær vegna „aðstæðna í höfninni“.

Innlent
Fréttamynd

Kven­fólkið í Eyjum bjargaði deginum

Tugir kvenna í Vestmannaeyjum komu þjóðhátíðargestum til hjálpar í nótt og þurrkuðu föt þeirra og sængur sem höfðu blotnað í óveðrinu sem gekk yfir eyjarnar. Gestir voru ánægðir með þjónustuna.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnu­dags

Þjóðhátíðarbrennan í Vestmannaeyjum verður haldin á morgun klukkan 22 þar sem henni var frestað var í gær vegna verðurs. Brennan verður því hluti af kvöldvökunni. Búið er að reisa nýtt danstjald í stað þess sem fauk í gær.

Innlent
Fréttamynd

Herjólfur siglir ekki meira í dag

Ófært er til Landeyjahafnar vegna aðstæðna í höfninni og falla því tvær síðustu ferðir Herjólfs niður í dag, klukkan 17 frá Vestmanneyjum og klukkan 18 frá Landeyjarhöfn.

Innlent
Fréttamynd

Mynda­syrpa úr Eyjum: „Út með kassann og á­fram gakk“

Slagviðri gekk yfir Vestmannaeyjar í gærkvöldi og í nótt og olli þar nokkrum usla. Þó nokkrir gestir leituðu skjóls í Herjólfshöllinni og fuku einhver tjöld. Þar á meðal hvít tjöld og bjórtjaldið og var öll dagskrá stöðvuð, að stóra sviðinu undanskildu.

Lífið
Fréttamynd

„Það var tölu­vert verra veður en spáin sagði“

Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir veðrið í Eyjum á miðnætti hafa verið töluvert verra en veðurspáin sagði. Vindurinn hafi tekið nokkur hvít tjöld semog bjórtjaldið. Því var öll dagskrá stöðvuð nema á stóra sviðinu. Nú sé verið að taka til og meta aðstæður.

Innlent
Fréttamynd

Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna ó­veðurs

Hætt var við að kveikja í brennunni á Fjósakletti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í nótt vegna veðurs. Þá var stóra danstjaldið fellt til að forða því frá foki og veitinga- og tónlistartjöldin í fremri hluta Herjólfsdal rýmd til að tryggja öryggi.

Innlent
Fréttamynd

Þjóð­há­tíð í Eyjum: Far­þega­fjöldi í Herjólfi komi á ó­vart

Þjóðhátíð í Eyjum var sett í gær með árlegu húkkaraballi. Jónas Guðbjörn Jónsson formaður Þjóðhátíðarnefndar segir vel hafa gengið í gær og segir að Eyjamenn séu vel búnir undir veðrið. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir farþegafjölda koma á óvart, ekkert rof verði á ferðum Herjólfs. Skipuleggjendur Einnar með öllu á Akureyri segjast búast við margmenni.

Innlent
Fréttamynd

Skýrara hvar besta veðrið verður um helgina

Verslunarmannahelgin er nú gengin í garð. Veðurfræðingur segir líkur á að tjöld muni fjúka í Eyjum í nótt, góðu fréttirnar séu hinsvegar þær að veðrið eigi að ganga hraðar yfir en áður hafi verið spáð. Tekið sé að skýrast hvar besta veðrið verður um helgina. 

Innlent