Vinnumarkaður

Fréttamynd

Öllum heil­brigðis­full­trúum landsins sagt upp

Vegna tilfærslu á ábyrgð heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hefur öllum 76 heilbrigðisfulltrúum landsins verið sagt upp. Þeir hafa fengið loforð um endurráðningu en ekki er búið að bjóða neinum nýtt starf hjá stofnununum sem taka við eftirlitinu. 

Innlent
Fréttamynd

Ró á vinnu­markaði krefst skýrra leikreglna

Kjarasamningar voru gerðir á sínum tíma með ákveðnum forsendum. Launafólk tók þá meðvitaða áhættu að ganga til hóflegra launahækkana á sama tíma og verðbólga var mikil og óvissa mikil um þróun vaxta og verðlags. Í staðinn átti að skapa sameiginlegan ramma þar sem launafólk, atvinnurekendur og opinberir aðilar legðu sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Skoðun
Fréttamynd

Septem­ber án niður­stöðu

Snemma í mars sl. varð ljóst að forsendur kjarasamninga væru ekki eins líklegar til að halda og almennt hafði verið talið. Verðbólga var á uppleið. Gjaldskrár hins opinbera höfðu hækkað, verðhækkanir fyrirtækja voru svo gott sem daglegt brauð og ekkert bólaði á langþráðri tiltekt í húsnæðismálum, sem eru stærsti orsakavaldur verðbólgunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann

Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sjái fyrir endann á upp­sögnum

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir hápunkti atvinnuleysis ekki hafa verið náð en staðan á vinnumarkaði komi þó ekki á óvart. Árstíðabundin sveifla sé meiri núna en síðustu ár en fjöldi þeirra sem sagt hafi verið upp verði ekki ljós fyrr en eftir mánaðamót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Á áttunda tug starfs­manna Netapp sagt upp

Öllum starfsmönnum Netapp á Íslandi hefur verið sagt upp en Vísir greindi frá því upphafi mánaðarins að starfsemi fyrirtækisins hér á landi væri í uppnámi og óvissa um störf. Sjötíu og fimm starfsmenn störfuðu á skrifstofu Netapp á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rúm­lega tuttugu sagt upp hjá ÍAV

Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Upp­sagnir í Arion banka

Um tuttugu starfsmenn munu hætta störfum hjá Arion banka í septembermánuði, flestir í dag. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka í samtali við fréttastofu. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki að byrja á núlli“

Ríkissáttasemjari segir mikilvægt að hafa í huga að ekki sé verið að byrja á núlli í viðræðum Félags íslenskra flugvirkja og Icelandair en fyrsti fundur deiluaðila eftir að verkfallsaðgerðum var aflýst hófst klukkan tíu. 

Innlent
Fréttamynd

„Það er skil­greiningin á því að pissa í skóinn sinn“

Formaður VR telur þær aðgerðir sem ríkisstjórnin boðar í þeim tilgangi að ná hallaleysi verðbólguhvetjandi og segir það hina raunverulegu skilgreiningu á að pissa í skóinn sinn. Hún segir meiri líkur en minni á að samningum verði sagt upp fyrir þann 8. október.

Innlent
Fréttamynd

Meira um at­vinnu­leysi: „Tæki­færin eru líka mörg á lands­byggðinni“

Að sögn Geirlaugar Jóhannsdóttur, ráðgjafa og stjórnendamarkþjálfa hjá Hagvangi, eru um átta þúsund manns í atvinnuleit í augnablikinu. Sá hópur sem telur til fólks sem hefur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði telur að jafnaði innan við tvö þúsund manns. Enda atvinnuleysi almennt lágt hlutfallslega á Íslandi miðað við víða erlendis.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Segja upp tveimur sér­fræðingum

Tveimur sérfræðingum í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið sagt upp störfum vegna aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar. Þetta gerist í framhaldi af uppsögnum í dómsmálaráðuneytinu í síðustu viku.

Innlent
Fréttamynd

Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta

„Ég er mjög ánægður og stoltur af samningsaðilum að hafa komist að þessari niðurstöðu,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, um samkomulag Flugvirkjafélags Íslands við Icelandair um að aflýsa verkfallsaðgerðum sem hófust í nótt. Til stóð að setja lög á verkfallið en hann segir þó ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta.

Innlent
Fréttamynd

Flug­virkjar af­lýsa verk­falli

Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Vísi. 

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Verk­falls­að­gerðum flug­virkja af­lýst

Verkfall flugvirkja stóð í um ellefu klukkustundir en var aflýst rétt fyrir hádegi. Icelandair aflýsti fjölda flugferða áður en Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair komust að samkomulagi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðs­lega fokking erfitt og það má vera það“

„Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Munu ekki sam­þykkja frekari hækkun launa

Stjórn Samtaka atvinnulífsins vill að núverandi kjarasamningar haldi út samningstímann. Það sé farsælast fyrir þróun verðlags og vaxta. Hins vegar hafna þau viðbrögðum við forsendubresti kjarasamninganna sem feli í sér frekari kostnaðarauka.

Innlent
Fréttamynd

Upp­sagnir í Stjórnar­ráðinu

Nýlegar uppsagnir í ráðuneytum senda skilaboð um að stjórnvöld séu ábyrg og hiki ekki við að ganga á undan með góðu fordæmi þegar þau boða víðtækar aðhaldsaðgerðir.

Skoðun
Fréttamynd

Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“

Talsmaður Fagfélaganna segir að farið verði fram á verulegar launahækkanir félagsmanna í kjaraviðræðum sem framundan eru í vetur, félagsmenn séu í bullandi launarýrnun samkvæmt könnun. Plan A sé þó að Samtök atvinnulífsins komi með útspil svo ekki þurfi að fara í hart og hið opinbera hækki ekki gjöld og álögur.

Innlent
Fréttamynd

Segja kröfulista Icelandair tefja samninga

Sáttasemjari hefur hvatt fulltrúa Icelandair til að leggja áherslu á færri mál í kjaraviðræðum við flugmenn, að sögn samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Nefndin telur umfangsmikinn kröfulista félagsins hindra framgang viðræðnanna.

Innlent