Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands var undirritaður á Hólum í Hjaltadal í dag. Með þessu verður Háskólinn á Hólum aðildarháskóli að HÍ og ber nú nafnið Háskóli Íslands á Hólum. Innlent 29.6.2026 21:15
Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Landeigandi að Fossalaug og Reykjafossi hafa lokað fyrir aðgengi að svæðinu. Enginn ein sérstök ástæða sé fyrir lokuninni en tekur eigandinn fram að ekki sé í boði að rukka fyrir þjónustu og firri sig ábyrgð á svæðinu. Innlent 29.6.2026 18:26
Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Undirbúningur Landsmóts hestamanna er á lokametrunum, en búist er við allt að átta þúsund gestum, þar á meðal fjölda útlendra áhugamanna um íslenska hestinn. Mótssvæðið er sagt tilbúið fyrir þá hundruð hesta sem koma fram í keppni og sýningu, en samningaviðræður við veðurguðina standa enn yfir, að sögn framkvæmdastjóra mótsins. Innlent 28.6.2026 21:02
„Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Tíu ára sonur Elísu Óskar Ómasdóttur og átta ára frændi hans römbuðu á torkennilegan hlut í vikunni við Miklavatn hjá Gili í Skagafirði. Elísa vissi fyrst ekki hvað var um að ræða en eftir að hún leitaði á netinu brá henni heldur í brún þegar niðurstöðurnar gáfu til kynna að um pólska eða þýska sprengju væri að ræða. Innlent 20. maí 2026 06:32
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18. maí 2026 12:02
Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkur hafa hafið óformlegar meirihlutaviðræður í Skagafirði. Verði af því samstarfi lýkur um tuttugu ára samfelldri sögu Framsóknarflokksins í meirihluta í sveitarfélaginu. Innlent 18. maí 2026 10:01
Lokatölur í Skagafirði: Byggðalistinn vinnur stórt en meirihlutinn heldur Byggðalistinn bætti við sig fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur velli. Þessir síðarnefndu skiptast þó á einum fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 02:06
„Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjársvik sem beindust að bróður hans. Á árunum 2016 til 2021 sveik maðurinn út vörur úr verslunum Kaupfélags Skagfirðinga, það eru Skagfirðingabúð, Verslun Eyri og Bifreiðaverkstæði kaupfélagsins. Það gerði hann með því að skuldfæra vörur á viðskiptareikning sem hann hafði vitneskju um. Innlent 14. maí 2026 18:02
Gjöld fyrir frístund rokið upp Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent. Innlent 13. maí 2026 10:04
Að fljóta sofandi að feigðarósi? Kosningar eru krossgötur. Þetta eru tímamót þar sem við þurfum að spyrja okkur stórra spurninga og ég ætla að byrja á þeirri spurningu sem brennur á mér. Er Skagafjörður að fljóta sofandi að feigðarósi? Skoðun 6. maí 2026 13:45
Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Sigfús Pétursson, tenór og Álftagerðisbróðir, lést á sunnudag á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Greint er frá andláti hans á vef Feykis. Þar kemur fram að hann var fæddur 23. apríl 1943 og hafi verið nýorðinn 83 ára. Útför Sigfúsar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 15. maí. Lífið 5. maí 2026 22:39
Hólastóllinn Til allra velunnara Hólastaðar! Senn líður að ögurstund þar sem yfirvöld véla þessa stundina með fjöregg Háskólans á Hólum. Skoðun 28. apríl 2026 11:00
Hólar í hjartastað Staðurinn tekur á móti okkur með opinn faðm. Þvílík staðarsýn. Þar gengur allt svo snilldarlega upp. Byggingafræðilegt meistaraverk! Stundum er talað um þessa mynd sem framhliðina á póstkorti. Þarna á bakvið er heilt þorp, háskólaþorp. Í merki Háskólans á Hólum kemur fram ártalið 1106 og stafurinn H eins og hann birtist okkur í Guðbrandsbiblíu. Skoðun 25. apríl 2026 11:32
Horfumst í augu við staðreyndir Hvernig verður umfjöllun um rekstur sveitarfélags að skemmtilegu lesefni? Skoðun 22. apríl 2026 16:03
Drengurinn kominn heim til sín Drengur á fjórða aldursári sem ekið var á fyrir utan söluskála Olís í Varmahlíð í Skagafirði fyrir rúmum tveimur vikum hefur verið útskrifaður af Landspítalanum. Hann er kominn heim í faðm föður síns og móður. Innlent 13. apríl 2026 14:37
Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Drengurinn sem varð fyrir bíl við söluskála í Varmahlíð hefur verið útskrifaður af gjörgæslu og liggur nú á almennri sjúkradeild. Móðir drengsins hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Innlent 7. apríl 2026 12:20
Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Drengur á fjórða ári er á gjörgæsludeild Landspítalans eftir umferðarslys sem varð við söluskála Olís í Varmahlíð í gær. Innlent 30. mars 2026 16:31
Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Slysið sem varð í námunda við söluskála í Varmahlíð síðdegis í gær er komið á borð rannsóknarnefndar samgönguslysa. Innlent 30. mars 2026 13:45
Syrtir að í sögu Hóla í Hjaltadal Þessi hugsun hefur síðasta árið gerst áleitin, horfandi upp á umhirðuleysi og niðurlægingu hinnar ytri ásýndar Hólastaðar. Nú virðist einnig vegið þungt að innri gerð háskólasamfélagsins á Hólum. Skoðun 30. mars 2026 12:32
Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Alvarlegt umferðarslys varð í Varmahlíð síðdegis í dag. Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, fullorðinn einstakling og barn, við söluskála Olís. Innlent 29. mars 2026 19:11
Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna umferðarslyss við Varmahlíð. Innlent 29. mars 2026 17:44
Of stór biti að kyngja án íbúakosningar „Ég er mjög óánægður með þá ákvörðun meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar að veita ekki íbúum möguleika á að kjósa um menningarhús,“ segir Daniel Þór Gunnarsson sem hugðist með undirskriftasöfnun þrýsta á um íbúakosningu sem sveitarstjórn Skagafjarðar sló út af borðinu á miðvikudag. Innlent 27. mars 2026 15:19
Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Einar Einarsson, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar, lét á fundi hennar í gær færa til bókar að það verði „gleðidagur“ þegar starfsemi hefst í fyrirhuguðu menningarhúsi á Sauðárkróki. Meirihlutinn felldi síðan tillögu um íbúakosningu um bygginguna sem Einar segir að verði „glæsileg menningarmiðstöð.“ Innlent 26. mars 2026 11:10
Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Sveitarstjórn Skagafjarðar fjallar í dag um fyrirhugaða undirskriftasöfnun vegna byggingar umdeilds menningarhúss á Sauðárkróki. Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalista, segist vona að söfnunin verði samþykkt átakalaust. Innlent 25. mars 2026 13:03