Skóla- og menntamál „
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 136 ›
„Það er enginn sem verndar son okkar“ Foreldrar níu ára drengs í Kópavogi segjast ráðalausir gagnvart stöðugu líkamlegu og andlegu einelti sem sonur þeirra hafi orðið fyrir í skólanum undanfarið eitt og hálft ár. Þau lýsa alvarlegum barsmíðum af hálfu samnemenda sonarins en segja að skólayfirvöld aðhafist ekkert þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Þau bíða svara frá Barnavernd Kópavogs. Innlent 27.4.2024 07:07
Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram Hópur háskólanema kom saman í veðurblíðunni í gærkvöldi og sló upp tjöldum fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands til stuðnings Palestínu. Lögregla vísaði hópnum á brott en forsvarsmaður hans segir það hafa verið gert af mestu vinsemd. Innlent 26.4.2024 10:40
Segir borgarstjóra óttalegan vettling Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir vettlingagjörninginn hafa átt að vekja athygli á erfiðri stöðu foreldra ungabarna í Reykjavík. Gjörningurinn hafi ekki átt að vera innlegg í kjarabaráttu leikskólakennara og flokkurinn hafi aldrei boðað töfralausnir í málaflokknum. Innlent 24.4.2024 23:58
Segir lág laun leikskólakennara mýtu Borgarfulltrúi Framsóknar segir það mýtu að leikskólakennarar séu á lágum launum. Þeir séu á sambærilegum launum og lögfræðingar hjá borginni. Innlent 24.4.2024 14:02
Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Stjórn Félags leikskólakennara tekur ekki undir yfirlýsingar stjórnmálafólks þar sem boðaðar eru „skyndilausnir sem engu skila“. Í nýrri ályktun stjórnar félagsins segir að engin formleg vinna í tengslum við kjarasamninga sé í gangi varðandi skipulagningu skólastarfs í leikskólum og því síður vinna í gangi að skoða að taka fimm ára börn í grunnskóla. Innlent 24.4.2024 09:13
Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Þátttaka reykvískra grunnskólabarna í mótmælum á opinberum vettvangi á skólatíma skal afgreidd sem „óheimil fjarvist“ og vera skráð sem slík. Á sama tíma er eitt af leiðarljósum menntastefnu borgarinnar „barnið sem virkur þátttakandi“ þar sem virkni barna og lýðræðisleg þátttaka í leik og starfi er talin mikilvæg leiðarljós í menntastefnu. Innlent 24.4.2024 08:58
Leikskólamál eru forgangsmál Leikskólastigið, sem er hið fyrsta skólastig samkvæmt lögum, er oft í umræðunni vegna skorts á leikskólaplássum og mönnunarvanda. Minna fer fyrir umræðu um það faglega og framúrskarandi starf sem þar fer fram og þar er sannarlega af nógu að taka þrátt fyrir fyrrnefnda annmarka og í raun ótrúlegt að svo sé. Það má þakka gríðarlegri seiglu og dugnaði starfsfólks leikskóla um land allt. Skoðun 23.4.2024 22:31
Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 15:55
Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann. Innlent 23.4.2024 13:20
Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Háskólaráðherra hefur skipað Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor Háskólans á Akureyri. Áslaug, sem var ein fimm umsækjenda um stöðuna, hefur verið aðstoðarrektor háskóla í Maine í Bandaríkjunum undanfarin fimm ár. Innlent 23.4.2024 12:51
Fjögurra milljarða króna tekjur á ári af spilakössum Tekjur Íslandsspila og Happdrættis Háskóla Íslands af spilakössum árið 2023 námu rétt tæpum fjórum milljörðum króna og hefur upphæðin farið vaxandi úr tveimur milljörðum árið 2020. Innlent 22.4.2024 19:25
Sjö sóttu um embætti skólameistara Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi. Innlent 22.4.2024 17:17
Það verður ekki bæði sleppt og haldið Lít yfir kaffistofuna. Fjórir bollar hafa dottið úr vinnu til lengri eða skemmri tíma vegna bugunar (hálft til tvö ár). Tveir eru á „góðri“ leið með að skella á gólfið. Skoðun 22.4.2024 15:30
Enginn í 9. bekk skildi setninguna „hjartað dælir blóði“ Eðvarð Hilmarsson, grunnskólakennari og stjórnmálafræðingur, segir meira fjármagn vanta í grunnskólakerfið. Kennarar þurfi auk þess betri viðmið svo að betri yfirsýn fáist á getu nemenda. Allt að 90 prósent nemenda í hverfaskólanum hans eru ekki með íslensku sem móðurmál. Eðvarð vill breyta ýmsu með framboði sínu til formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Innlent 22.4.2024 11:19
Stuðningur barna í grunnskóla- hvar liggur vandinn? Fyrir nokkrum árum var tekið það skref að búa til kerfi sem heitir samræmd móttaka flóttafólks. Þetta voru mikilvæg skref til að samræma þjónustu og gera hana betri, skilvirkari og á jafnréttis grunnvelli. Í þeirri vinnu var mjög margt gert vel þegar kemur að félagsþjónustu. Skoðun 22.4.2024 08:31
MA vann MORFÍs Lið Menntaskólans á Akureyri bar sigur úr býtum í MORFÍs, Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, þetta árið. Úrslit fóru fram á föstudagskvöld í Háskólabíó. Lífið 21.4.2024 16:29
Menntakerfið - lykill að inngildingu Breytt samfélagsgerð kallar á breyttar áherslur hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það getur varðaði fjölbreyttara samfélag, fjölmenningu eða hvers kyns aðrar breytingar sem heimurinn er að ganga í gegnum og þær áskoranir sem þeim fylgja. Skoðun 21.4.2024 15:01
„Þurfum að breyta kerfinu okkar, það tekur því miður tíma“ Barnamálaráðherra kveðst vera meðvitaður um vanda einhverfra barna í skólakerfinu og langþreytta foreldra þeirra. Breyta þurfi kerfinu en kerfisbreytingar taki tíma og allir þurfi að leggja hönd á plóg. Innlent 21.4.2024 14:20
Breiðholt brennur Oft eru glæður áður en það verður bál og fólk hristir hausinn yfir því að enginn hafi áttað sig á aðstæðum áður en illa fór. Við höfum samt valið, við getum byggt upp góða framtíð í stað þess að þurfa að deyfa elda. Skoðun 20.4.2024 21:01
Ráðaleysi í grunnskólum og hvar í fjandanum er Mary Poppins? Ég segi það oft og af innlifun, að ég elska vinnuna mína, enda starfa ég sem grunnskólakennari á yngsta stigi, þar sem einlægnin ræður ríkjum og árangur starfsins er sýnilegur. Skoðun 20.4.2024 16:30
25 þjóðerni í Grundaskóla á Akranesi Það er búið að vera meira en nóg að gera hjá nemendum og starfsfólki Grundaskóla á Akranesi síðustu daga því þar voru haldnir fjölmenningardagar en nemendur frá tuttugu og fimm löndum eru í skólanum. Einn nemandi kemur frá Arúba, sem er eyja í Karíbahafi. Innlent 20.4.2024 14:31
Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Móðir níu ára einhverfrar stúlku hefur tvívegis tilkynnt sig til barnaverndar í örvæntingafullri tilraun til að fá aðstoð fyrir dóttur sína. Á tímabili var vanlíðan stúlkunnar slík að hún missti lífsviljann. Innlent 19.4.2024 19:30
Skapandi ónákvæmni tveggja hagfræðinga Rannsókn nokkurra hagfræðinga á áhrifum breytts námstíma í framhaldsskólum vakti verulega athygli. Eftir því sem næst verður komist hefur rannsóknin ekki enn verið farið í gegn um vísindalega ritrýningu eða verið birt í ritrýndu tímariti. Vonandi er þess þó ekki langt að bíða. Skoðun 19.4.2024 13:30
Má brjóta lög? Í lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, sem tóku gildi 1. júlí 2019, kemur fram í 14. grein: „ Að lágmarki 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda kennara“. Skoðun 19.4.2024 10:01
Grunnskóli á krossgötum Á dögunum hélt Sveitarstjórnarráð VG ráðstefnu um menntamál, sem bar heitið Máttur menntunar. Má segja að erindin sem lutu að grunnskólanum hafi verið tvö. Annars vegar erindi Ragnars Þórs Ragnarssonar grunnskólakennara í Norðlingaskóla, Menntun og mannvit á krossgötum: Um áhrif gervigreindar á skóla og samfélag. Skoðun 19.4.2024 08:00
Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Skólaforðun einhverfra barna er kerfislægt vandamál í skólum en það liggur ekki hjá fjölskyldum barnanna. Þetta segir verkefnastjóri hjá Einhverfusamtökunum sem bendir á að opin rými líkt og hefðbundnar skólastofur séu „skynrænt helvíti“ fyrir einhverfa og heilsuspillandi fyrir umrædd börn. Örvænting þeirra sem séu föst í þessum aðstæðum sé algjör. Innlent 18.4.2024 13:31
Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Á næsta skólaári munu leik- og grunnskólabörn úr Grindavík sækja skóla næst sínu heimili og safnskólar verða lagðir af. Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir um tímamót að ræða en Innlent 18.4.2024 11:31
Kennarar – á hraðbraut í kulnun Á ráðstefnunni „Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar“ sem Kennarasamband Íslands hélt í Hörpu 9. apríl 2024 var farið yfir niðurstöður viðhorfs- og þjónustukönnunar KÍ. Skoðun 18.4.2024 10:31
Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna Einstæð móðir einhverfrar stúlku brann út og þurfti að segja upp vinnunni til þess að geta annast dóttur sína. Hún segir stjórnvöld verða að gera betur fyrir einhverf börn og foreldra þeirra, álagið sé í raun ómanneskjulegt. Innlent 17.4.2024 19:30
Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að leggja af safnskóla fyrir leik- og grunnskólabörn bæjarins. Á næsta skólaári munu öll börn sækja skóla sem næst sínu heimili og þurfa foreldrar og forráðamenn að sækja þar um skólavist. Innlent 17.4.2024 16:39