Fréttir Stuðningsmenn al-Sadrs mótmæla fundi Malikis með Bush Ráðherrar og þingmenn sem hliðhollir eru sjíaklerknum Muqtada al-Sadr hafa sagt sig úr ríkisstjórn Íraks og hætt þátttöku í starfi írakska þingsins til þess að mótmæla fundi forsætisráðherrans Nouris al-Malikis með George Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu. Erlent 29.11.2006 14:57 Hafði afskipti af manni sem skemmdi eigin bíl Lögreglan í Reykjavík fær oft óvenjuleg mál á sitt borð og í gær kom eitt slíkt upp í höfuðborginni. Þá hafði lögrela afskipit af karlamanni sem var að vinna skemmdir á bíl. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn var sjálfur eigandi bílsins en lögregla segir ekki vitað hvað honum hafi gengið til. Innlent 29.11.2006 14:34 Vilja að afgreiðslu RÚV-frumvarps verði frestað Stjórn Alfreðs, félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, skorar á forystumenn Framsóknarflokksins að fresta afgreiðslu frumvarps um Ríkisútvarpið um óákveðinn tíma eða á meðan málið er rætt betur innan flokksins. Innlent 29.11.2006 14:21 Var Stonehenge heilunarmiðstöð ? Breskur prófessor í fornleifafræði hefur sett fram þá tilgátu að hið fornfræga mannvirki Stonehenge hafi í upphafi verið lækningastaður, hvert menn komu til þess að fá bót meina sinna. Helstu samlíkinguna sé að finna í kraftaverkastaðnum Lourdes, í Frakklandi. Erlent 29.11.2006 14:16 Íslendingar taka upp stjórnmálasamband við Líberíu Íslendingar hafa tekið upp stjórnmálasamband við Afríkuríkið Líberíu. Fastafulltrúar landanna hjá Sameinuðu þjóðunum undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í New York í gær. Líbería er í Vestur-Afríku með strönd að Atlantshafi og þar búa um 3,5 milljónir manna. Innlent 29.11.2006 13:58 Bogi hættir hjá Icelandic Group Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group hf., hefur ákveðið að láta af störfum. Starfslok hans verða um miðjan desember.Bogi hefur gegnt starfinu frá því í júní 2004. Viðskipti innlent 29.11.2006 13:58 Blaðamaður reyndi að hlera bresku konungsfjölskylduna Blaðamaður breska slúðurblaðsins News of the World játaði fyrir rétti, í dag, að hafa reynt að hlera síma bresku konungsfjölskyldunnar. Erlent 29.11.2006 13:52 Reyndu að hafa hraðbanka á brott með sér Lögregla leitar nú óprúttinna manna sem reyndu í nótt að hafa hraðbanka í útibúi Landsbankans að Klettshálsi í Reykjavík á brott með sér. Mennirnir höfðu náð að losa hraðbankann og drösla honum út úr anddyri útibúsins en þar virðast þeir hafa gefist upp enda eru hraðbankar níðþungir. Innlent 29.11.2006 13:42 Varar við afnámi styrkja í landbúnaði Valdimar Einarsson, ráðgjafi á Nýja-Sjálandi, varar við afleiðingum þess að afnema styrkjakerfi íslensks landbúnaðar og að fella niður innflutningshömlur á erlendum landbúnaðarafurðum. Þetta kom fram í erindi hans á morgunverðarfundi Bændasamtaka Íslands sem haldinn var undir yfirskriftinni "Á að vera landbúnaður á Íslandi?" á Hótel Sögu í morgun. Innlent 29.11.2006 13:29 Pálmatrjám fækkað í Los Angeles Mikinn hroll hefur sett að íbúum Los Angeles vegna þess að borgaryfirvöld hafa ákveðið að fækka stórlega pálmatrjám í borginni. Þau hafa löngum verið talin meðal helstu sérkenna hennar. Erlent 29.11.2006 13:26 Flestir fyrrverandi starfsmenn komnir með vinnu Flestir fyrrverandi starfsmanna Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli eru komnir með aðra vinnu. Fimmtíu og sex fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins, sem búsettir eru á Suðurnesjum, eru ekki komnir með aðra vinnu. Innlent 29.11.2006 11:31 Talin hafa sett barn sitt í örbylgjuofn Bandarísk kona hefur verið handtekin vegna gruns um að hún hafi myrt mánaðargamalt barn sitt með því að setja það í örbylgjuofn. Engir ytri áverkar sáust á barninu en sum líffæra þess voru hins vegar illa brennd og þykir það benda til að það hafi verið myrt á þennan óhugnanlega hátt. Móðirin neitar öllum ásökunum. Erlent 29.11.2006 12:20 Saudi-Arabía tilbúin að fara í stríð Saudi-Arabía er reiðubúin að beita öllu sínu afli, hvort sem er í peningum, vopnum eða oíu til þess að koma í veg fyrir að sjía múslimar í Írak kúgi og myrði súnní múslima, þegar Bandaríkjamenn byrja að flytja herlið sitt frá landinu. Erlent 29.11.2006 12:53 Gæði íss ófullnægjandi í 62 prósentum tilvika Örverufræðileg gæði íss úr vél voru ófullnægjandi hjá 62 prósentum fyrirtækja samkvæmt könnun sem gerð var á vegum matvælaeftirlits umhverfissviðs Reykjavíkur. 22 prósent fyrirtækja voru með fullnægjandi niðurstöður og 16 prósent fengu senda athugasemd. Innlent 29.11.2006 12:48 Hisbolla vilja taka völdin í Líbanon Erlent 29.11.2006 12:44 Hægt að stöðva framkvæmdir fyrirtækja ef starfsmannaleigur veita ekki upplýsingar Samkvæmt nýju frumvarpi félagsmálaráðherra verður hægt að stöðva framkvæmdir hjá fyrirtækjum ef starfsmannaleigur sem þau skipta við sinna ekki upplýsingaskyldum sínum. Innlent 29.11.2006 12:11 Sjúkraflugvél Landsflugs ekki í Eyjum í gærkvöld Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi til að sækja alvarlega veikan sjúkling til Vestmannaeyja þar sem sjúkraflugvél Landsflugs var ekki í Eyjum þegar til átti að taka. Innlent 29.11.2006 12:05 Hald lagt á átta kíló af kókaíni það sem af er ári Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handtekinn í Leifsstöð með stærstu kókaínsendingu sem fundist hefur í fórum eins manns til þessa. Tollgæslan hefur lagt hald á samtals átta kíló af kókaíni það sem af er árinu eða áttfalt meira en allt árið í fyrra. Innlent 29.11.2006 11:59 Aukin framlög til endurreisnar og þróunar í Afganistan Íslensk stjórnvöld hyggjast auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan auk þess sem standa á að flugflutningum í þágu þeirra bandalagsríkja sem hafa liðsafla í sunnanverðu Afganistan. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Ríga í Lettlandi í dag. Innlent 29.11.2006 11:47 Erfitt að stjórna verðbólgu í litlum hagkerfum Það er erfiðara er að hafa stjórn á verðbólgu í litlum hagkerfum líkt og á Íslandi en í stórum hagkerfum. Þetta segir í nýrri vinnuskjali sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag. Viðskipti innlent 29.11.2006 11:37 Ryanair með fjórðungshlut í Aer Lingus Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur aukið við hlut sinn í írska innanlandsflugfélaginu Aer Lingus og á nú fjórðung í félaginu. Dermont Mannion, forstjóri Aer Lingus, staðfesti þetta í gær. Ryanair vinnur að óvinveittri yfirtöku á flugfélaginu. Viðskipti erlent 29.11.2006 11:08 Viðræður við Dani og Kanadamenn um samstarf hefjast á næstu vikum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í morgun fund með Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs um samstarf landanna í öryggis- og varnarmálum í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ríga í Lettlandi. Innlent 29.11.2006 11:04 Og hafðu það Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur bannað útflutning á Ipod og plasma-sjónvörpum til Norður-Kóreu og er þetta liður í refsiaðgerðum vegna kjarnorkubrölts leiðtoganna. Erlent 29.11.2006 10:53 HB Grandi tapaði 1 milljarði króna Útgerðarfélagið HB Grandi tapaði rúmum einum milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður félagsins á þriðja fjórðunig ársins nam hins vegar rúmum 1,5 milljörðum króna samanborið við 585 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 29.11.2006 10:25 NATO færir út kvíarnar Erlent 29.11.2006 10:16 Evrópusambandið refsar Tyrkjum Evrópusambandið hefur ákveðið að fella niður átta kafla í viðræðunum um aðild Tyrklands að sambandinu. Þetta er í refsingarskyni fyrir að Tyrkir hafa enn ekki fallist á að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur. Erlent 29.11.2006 10:04 Páfi á slóðir Maríu meyjar Benedikt páfi sextándi ætlar í dag að heimsækja staðinn þar sem María mey dvalist síðustu æviár sín. Páfi er nú í opinberri heimsókn í Tyrklandi. Erlent 29.11.2006 08:03 Bush segir Al-Qaeda bera ábyrgð á Bush Bandaríkjaforseti segir Al-Qaeda samtökin bera ábyrgð á árásinni í Írak í síðustu viku, þar sem um tvö hundruð manns létu lífið. Bush er nú er staddur á fundi Atlantshafsbandalagsins í Riga í Lettalandi. Erlent 29.11.2006 07:21 Börnin eiga að njóta forgangs Kofi Annan ávarpaði í dag öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og sagði þar frá því að í átökunum í Mið-Austurlöndum væru börn farin að verða hermenn. Hann talaði um nauðsyn þess að koma í veg fyrir þessa þróun og bætti við að flestir flóttamenn á átakasvæðum væru konur og börn. Erlent 28.11.2006 23:21 NATO-ríki lofa aukinni þátttöku í Afganistan Á ráðstefnu Norður-Atlantshafs Bandalagsins (NATO) lofuðu aðildarríki því að leyfa herliðum sín í Afganistan að taka þátt í bardögum en George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lagt mikla áherslu á málið fyrir ráðstefnuna. Erlent 28.11.2006 23:01 « ‹ 292 293 294 295 296 297 298 299 300 … 334 ›
Stuðningsmenn al-Sadrs mótmæla fundi Malikis með Bush Ráðherrar og þingmenn sem hliðhollir eru sjíaklerknum Muqtada al-Sadr hafa sagt sig úr ríkisstjórn Íraks og hætt þátttöku í starfi írakska þingsins til þess að mótmæla fundi forsætisráðherrans Nouris al-Malikis með George Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu. Erlent 29.11.2006 14:57
Hafði afskipti af manni sem skemmdi eigin bíl Lögreglan í Reykjavík fær oft óvenjuleg mál á sitt borð og í gær kom eitt slíkt upp í höfuðborginni. Þá hafði lögrela afskipit af karlamanni sem var að vinna skemmdir á bíl. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn var sjálfur eigandi bílsins en lögregla segir ekki vitað hvað honum hafi gengið til. Innlent 29.11.2006 14:34
Vilja að afgreiðslu RÚV-frumvarps verði frestað Stjórn Alfreðs, félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, skorar á forystumenn Framsóknarflokksins að fresta afgreiðslu frumvarps um Ríkisútvarpið um óákveðinn tíma eða á meðan málið er rætt betur innan flokksins. Innlent 29.11.2006 14:21
Var Stonehenge heilunarmiðstöð ? Breskur prófessor í fornleifafræði hefur sett fram þá tilgátu að hið fornfræga mannvirki Stonehenge hafi í upphafi verið lækningastaður, hvert menn komu til þess að fá bót meina sinna. Helstu samlíkinguna sé að finna í kraftaverkastaðnum Lourdes, í Frakklandi. Erlent 29.11.2006 14:16
Íslendingar taka upp stjórnmálasamband við Líberíu Íslendingar hafa tekið upp stjórnmálasamband við Afríkuríkið Líberíu. Fastafulltrúar landanna hjá Sameinuðu þjóðunum undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í New York í gær. Líbería er í Vestur-Afríku með strönd að Atlantshafi og þar búa um 3,5 milljónir manna. Innlent 29.11.2006 13:58
Bogi hættir hjá Icelandic Group Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group hf., hefur ákveðið að láta af störfum. Starfslok hans verða um miðjan desember.Bogi hefur gegnt starfinu frá því í júní 2004. Viðskipti innlent 29.11.2006 13:58
Blaðamaður reyndi að hlera bresku konungsfjölskylduna Blaðamaður breska slúðurblaðsins News of the World játaði fyrir rétti, í dag, að hafa reynt að hlera síma bresku konungsfjölskyldunnar. Erlent 29.11.2006 13:52
Reyndu að hafa hraðbanka á brott með sér Lögregla leitar nú óprúttinna manna sem reyndu í nótt að hafa hraðbanka í útibúi Landsbankans að Klettshálsi í Reykjavík á brott með sér. Mennirnir höfðu náð að losa hraðbankann og drösla honum út úr anddyri útibúsins en þar virðast þeir hafa gefist upp enda eru hraðbankar níðþungir. Innlent 29.11.2006 13:42
Varar við afnámi styrkja í landbúnaði Valdimar Einarsson, ráðgjafi á Nýja-Sjálandi, varar við afleiðingum þess að afnema styrkjakerfi íslensks landbúnaðar og að fella niður innflutningshömlur á erlendum landbúnaðarafurðum. Þetta kom fram í erindi hans á morgunverðarfundi Bændasamtaka Íslands sem haldinn var undir yfirskriftinni "Á að vera landbúnaður á Íslandi?" á Hótel Sögu í morgun. Innlent 29.11.2006 13:29
Pálmatrjám fækkað í Los Angeles Mikinn hroll hefur sett að íbúum Los Angeles vegna þess að borgaryfirvöld hafa ákveðið að fækka stórlega pálmatrjám í borginni. Þau hafa löngum verið talin meðal helstu sérkenna hennar. Erlent 29.11.2006 13:26
Flestir fyrrverandi starfsmenn komnir með vinnu Flestir fyrrverandi starfsmanna Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli eru komnir með aðra vinnu. Fimmtíu og sex fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins, sem búsettir eru á Suðurnesjum, eru ekki komnir með aðra vinnu. Innlent 29.11.2006 11:31
Talin hafa sett barn sitt í örbylgjuofn Bandarísk kona hefur verið handtekin vegna gruns um að hún hafi myrt mánaðargamalt barn sitt með því að setja það í örbylgjuofn. Engir ytri áverkar sáust á barninu en sum líffæra þess voru hins vegar illa brennd og þykir það benda til að það hafi verið myrt á þennan óhugnanlega hátt. Móðirin neitar öllum ásökunum. Erlent 29.11.2006 12:20
Saudi-Arabía tilbúin að fara í stríð Saudi-Arabía er reiðubúin að beita öllu sínu afli, hvort sem er í peningum, vopnum eða oíu til þess að koma í veg fyrir að sjía múslimar í Írak kúgi og myrði súnní múslima, þegar Bandaríkjamenn byrja að flytja herlið sitt frá landinu. Erlent 29.11.2006 12:53
Gæði íss ófullnægjandi í 62 prósentum tilvika Örverufræðileg gæði íss úr vél voru ófullnægjandi hjá 62 prósentum fyrirtækja samkvæmt könnun sem gerð var á vegum matvælaeftirlits umhverfissviðs Reykjavíkur. 22 prósent fyrirtækja voru með fullnægjandi niðurstöður og 16 prósent fengu senda athugasemd. Innlent 29.11.2006 12:48
Hægt að stöðva framkvæmdir fyrirtækja ef starfsmannaleigur veita ekki upplýsingar Samkvæmt nýju frumvarpi félagsmálaráðherra verður hægt að stöðva framkvæmdir hjá fyrirtækjum ef starfsmannaleigur sem þau skipta við sinna ekki upplýsingaskyldum sínum. Innlent 29.11.2006 12:11
Sjúkraflugvél Landsflugs ekki í Eyjum í gærkvöld Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi til að sækja alvarlega veikan sjúkling til Vestmannaeyja þar sem sjúkraflugvél Landsflugs var ekki í Eyjum þegar til átti að taka. Innlent 29.11.2006 12:05
Hald lagt á átta kíló af kókaíni það sem af er ári Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handtekinn í Leifsstöð með stærstu kókaínsendingu sem fundist hefur í fórum eins manns til þessa. Tollgæslan hefur lagt hald á samtals átta kíló af kókaíni það sem af er árinu eða áttfalt meira en allt árið í fyrra. Innlent 29.11.2006 11:59
Aukin framlög til endurreisnar og þróunar í Afganistan Íslensk stjórnvöld hyggjast auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan auk þess sem standa á að flugflutningum í þágu þeirra bandalagsríkja sem hafa liðsafla í sunnanverðu Afganistan. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Ríga í Lettlandi í dag. Innlent 29.11.2006 11:47
Erfitt að stjórna verðbólgu í litlum hagkerfum Það er erfiðara er að hafa stjórn á verðbólgu í litlum hagkerfum líkt og á Íslandi en í stórum hagkerfum. Þetta segir í nýrri vinnuskjali sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag. Viðskipti innlent 29.11.2006 11:37
Ryanair með fjórðungshlut í Aer Lingus Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur aukið við hlut sinn í írska innanlandsflugfélaginu Aer Lingus og á nú fjórðung í félaginu. Dermont Mannion, forstjóri Aer Lingus, staðfesti þetta í gær. Ryanair vinnur að óvinveittri yfirtöku á flugfélaginu. Viðskipti erlent 29.11.2006 11:08
Viðræður við Dani og Kanadamenn um samstarf hefjast á næstu vikum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í morgun fund með Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs um samstarf landanna í öryggis- og varnarmálum í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ríga í Lettlandi. Innlent 29.11.2006 11:04
Og hafðu það Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur bannað útflutning á Ipod og plasma-sjónvörpum til Norður-Kóreu og er þetta liður í refsiaðgerðum vegna kjarnorkubrölts leiðtoganna. Erlent 29.11.2006 10:53
HB Grandi tapaði 1 milljarði króna Útgerðarfélagið HB Grandi tapaði rúmum einum milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður félagsins á þriðja fjórðunig ársins nam hins vegar rúmum 1,5 milljörðum króna samanborið við 585 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 29.11.2006 10:25
Evrópusambandið refsar Tyrkjum Evrópusambandið hefur ákveðið að fella niður átta kafla í viðræðunum um aðild Tyrklands að sambandinu. Þetta er í refsingarskyni fyrir að Tyrkir hafa enn ekki fallist á að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur. Erlent 29.11.2006 10:04
Páfi á slóðir Maríu meyjar Benedikt páfi sextándi ætlar í dag að heimsækja staðinn þar sem María mey dvalist síðustu æviár sín. Páfi er nú í opinberri heimsókn í Tyrklandi. Erlent 29.11.2006 08:03
Bush segir Al-Qaeda bera ábyrgð á Bush Bandaríkjaforseti segir Al-Qaeda samtökin bera ábyrgð á árásinni í Írak í síðustu viku, þar sem um tvö hundruð manns létu lífið. Bush er nú er staddur á fundi Atlantshafsbandalagsins í Riga í Lettalandi. Erlent 29.11.2006 07:21
Börnin eiga að njóta forgangs Kofi Annan ávarpaði í dag öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og sagði þar frá því að í átökunum í Mið-Austurlöndum væru börn farin að verða hermenn. Hann talaði um nauðsyn þess að koma í veg fyrir þessa þróun og bætti við að flestir flóttamenn á átakasvæðum væru konur og börn. Erlent 28.11.2006 23:21
NATO-ríki lofa aukinni þátttöku í Afganistan Á ráðstefnu Norður-Atlantshafs Bandalagsins (NATO) lofuðu aðildarríki því að leyfa herliðum sín í Afganistan að taka þátt í bardögum en George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lagt mikla áherslu á málið fyrir ráðstefnuna. Erlent 28.11.2006 23:01