Dómsmálaráðherra fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar frá Bíldudal yfir í Stykkishólm í gær. Hann kveðst hafa verið að heimækja embætti dómsmálaráðuneytis á Vestfjörðum og farið yfir á Snæfellsnes í sömu erindagjörðum. 21.4.2022 13:54
Meirihluti Svía vill í NATO Meirihluti Svía er hlynntur aðild að Atlantshafsbandalaginu samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þetta er í fyrsta sinn sem meirihluti íbúa hefur verið fylgjandi aðild að bandalaginu. 21.4.2022 13:24
Þorgerður Laufey vill áfram leiða Félag grunnskólakennara Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, mun áfram gefa kost á sér til að gegna embætti formanns. Hún var kjörin formaður félagsins árið 2018 en formannskosning fer fram að nýju í byrjun maí. 21.4.2022 12:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Lögregla hafði í morgun í annað sinn afskipti af unglingspilti í tengslum við leitina að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í fyrradag, að sögn móður hans. Drengurinn sem lögregla hafði afskipti af er alls ótengdur málinu en ríkslögreglustjóri harmaði að drengurinn hefði dregist inn í málið í gær. 21.4.2022 12:01
Í beinni: Samfylkingin í Reykjavík kynnir kosningaáherslur í Gamla bíói Samfylkingin í Reykjavík kynnir í dag áherslur sínar fyrir borgarstjórnarkosningar. Borgarbúum er boðið til fundar í Gamla bíói kl. 12.30 þar sem boðið verður upp á músík, grín og stuttar ræður. 21.4.2022 12:00
Bretlandsdrottning fagnar 96 ára afmæli Elísabet önnur drottning Bretlands fagnar 96 ára afmæli í dag. Hún hyggst eyða deginum með fjölskyldu og vinum á býli í Norfolk í Englandi. 21.4.2022 11:38
Elskaði Ísland en tröllin komu á óvart Leikkonan Kaley Cuoco segist yfir sig hrifin af Íslandi. Hún heimsótti landið ásamt tökuliði í desember síðastliðnum og segir að „tröllaárátta“ Íslendinga hafi komið henni á óvart. Skilti með myndum af tröllum hafi verið út um allt land. 21.4.2022 10:59
Lokanir í miðborginni í dag Vegna Víðavangshlaups ÍR verða takmarkanir eða lokanir á umferð frá klukkan 10.30 til 13.15 í miðborg Reykjavíkur í dag. Hlaupið hefst í Pósthússtræti og endar á sama stað. 21.4.2022 08:55
Vaktin: Pútín með líf íbúa Mariupol í sínum höndum Borgarstjóri Mariupol segir Vladímír Pútín Rússlandsforseta hafa líf íbúa Mariupol í sínum höndum. Úkraínskir hermenn berjast enn í borginni þrátt fyrir yfirlýsingar Rússa um að borgin hafi verið frelsuð. 21.4.2022 07:42
Pantaði mat á veitingastað og gat ekki borgað Karlmaður pantaði mat á veitingastað í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 23 í gærkvöldi en þegar rukka átti manninn gat hann ekki borgað fyrir veitingarnar. Lögregla var kölluð á staðinn og leysti úr málinu. 21.4.2022 07:22