Ríkið leigði húsnæði undir flóttafólk án samráðs við sveitarfélag Íslenska ríkið hafði ekki samráð við sveitarfélagið Árborg þegar tekin var ákvörðun um að leigja Kumbaravog á Stokkseyri. Sveitarfélagið telur staðsetninguna óheppilega. 25.10.2022 22:35
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. 25.10.2022 22:14
Vill komast í samband við fleiri foreldra dvergvaxinna barna Í dag er alþjóðlegur dagur dvergvaxinna. Kristín Ósk Bjarnadóttir vakti athygli á málinu í Reykjavík síðdegis í dag en dóttir hennar, Hildur, er með dvergvöxt. Kristín Ósk vill komast í samband við fleiri foreldra dvergvaxinna barna. 25.10.2022 21:33
Fimm ný ríkisstörf á Akureyri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hyggst flytja fimm opinber sérfræðistörf til Akureyrar. Nýtt teymi verður stofnað í bænum og 21 stöðugildi verða á skrifstofum stofnunarinnar á Akureyri. Ráðherra fagnar fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. 25.10.2022 21:13
MAST neitaði að selja vanrækta hesta Matvælastofnun neitaði að samþykkja kauptilboð í hesta sem endað hafa í vörslu stofnunarinnar vegna vanrækslu. Stofnunin segir að lagaheimild fyrir kaupunum sé ekki til staðar og hyggst halda áfram að slátra hestum sem enda í vörslu stofnunarinnar, bregðist eigendur ekki við. 25.10.2022 20:00
Gripin með mikið magn af OxyContin í leggöngunum Pólsk kona var gripin í Leifsstöð með tæplega fimm hundruð töflur af ávana- og fíknilyfinu OxyContin í leggöngunum í apríl síðastliðnum. Fíkniefnasmyglið fór fram í félagi við annan mann og voru þau bæði dæmd í nokkurra mánaða fangelsi. 25.10.2022 19:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmenn tókust harkalega á um stöðu fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra segir stefna í að fjörutíu sinnum fleiri sæki um vernd á þessu ári en í fyrra. Stjórnarandstöðuþingmenn sökuðu ráðherra um brot á ýmsum lögum. 25.10.2022 18:01
Átján brottvísanir barna á þessu ári Útlendingastofnun hefur tekið átján ákvarðanir um brottvísun barna til Grikklands það sem af er ári. Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest allar ákvarðanirnar. Kallað hefur verið á lögreglu í sextán tilfellum. 25.10.2022 17:46
Stækka álverið á Grundartanga fyrir sextán milljarða Áætlað er að stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga muni kosta sextán milljarða. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum ljúki árið 2024. 25.10.2022 17:15
Bandaríkjamenn saka Kínverja um njósnir Bandaríkjamenn hafa sakað þrettán kínverska ríkisborgara um njósnir og ólögleg afskipti. Dómsmálaráðherra greindi frá meintum tilraunum Kínverja á blaðamannafundi í dag. 24.10.2022 23:28