Vilja skjóta 23 eldflaugum á smástirni Kínverskir vísindamenn vilja senda 23 Long March 5 eldflaugar, þær öflugustu sem framleiddar eru í Kína, til að kanna hvort hægt sé að nota þær til að breyta stefnu smástirna. Markmið vísindamannanna er að komast að því hvort hægt væri að bjarga jörðinni með þessum hætti, ef smástirni stefndi á plánetuna okkar. 7.7.2021 14:03
Hraunflæðið séð úr geimnum: Eldgosið í Fagradalsfjalli í forgrunni hjá BBC Blaðamaður Breska ríkisútvarpsins (BBC) birti í morgun grein á vef miðilsins þar sem fjallað er um gervihnetti, gervihnattamyndir og sérstaklega ratsjárgervihnetti sem notaðir eru til að vakta hreyfingar jarðarinnar, jökla og annarra jarðfræðilegra fyrirbæra. 7.7.2021 13:00
Forseti Haítí skotinn til bana á heimili sínu Jovenel Moïse, forseti Haítí, er sagður hafa verið myrtur í árás í nótt. Hópur vopnaðra manna er sagður hafa rutt sér leið inn á heimili hans í Port-au-Prince í nótt og skotið forsetann til bana og sært Martine Moise, eiginkonu hans, sem sé nú á sjúkrahúsi. 7.7.2021 10:06
Litlar sem engar líkur á að finna fólk á lífi Líkamsleifar átta manns fundust í gær í rústum fjölbýlishúss sem hrundi nýverið í bænum Surfside í Flórída. Enn er rúmlega hundrað manns saknað og ráðamenn sem stýra björgunarstörfum í rústunum virðast telja litlar líkur á því að finna fólk á lífi í rústunum. 7.7.2021 09:05
Ferðaþjónustan að lifna við: „Það eru allir eins og beljur á vorin“ Ferðaþjónustan á Íslandi er að lifna við þó enn séu tiltölulega fáir ferðamenn á ferð og flugi um landið. Pétur Gauti Valgeirsson, fyrrverandi formaður Leiðsagnar stéttarfélags leiðsögumanna, segir umsvifin aukast mun hraðar en hann hafi talið. 7.7.2021 06:00
Segir að Japan muni aðstoða Taívan verði gerð innrás Taro Aso, aðstoðarforsætisráðherra Japans, segir nauðsynlegt fyrir Japani að koma Taívan til aðstoðar, auk Bandaríkjanna, geri Kínverjar innrás í eyríkið. Þetta sagði hann í gær og hafa ummælin þegar vakið mikla reiði í Peking. 6.7.2021 14:39
Hvetur foreldra, kennara og aðra til að vakta ungmenni og tilkynna þau til lögreglu Lögreglan í Hong Kong hefur handtekið níu manns vegna meintrar hryðjuverkaógnar. Meðal hinna handteknu eru sex krakkar í menntaskóla en fólkið er fimmtán til 39 ára. Lögreglan segir þau hafa leigt hótelherbergi til að framleiða þar sprengjur og markmið hópsins hafi verið að gera sprengjuárásir á skotmörk í borginni. 6.7.2021 11:49
Segja virkni bóluefnis Pfizer minnka Ísraelar segjast hafa mælt samdrátt í virkni bóluefnis Pfizer gegn Covid-19. Sérstaklega varðandi það að koma í veg fyrir smit og að smitaðir sýni einkenni. Bóluefnið komi þó áfram vel í veg fyrir alvarleg veikindi. 6.7.2021 10:45
Yfirgáfu stærstu herstöðina í skjóli nætur Síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu Bagram herstöðina, þá stærstu í Afganistan, um miðja nótt og án þess að segja nýjum afgönskum yfirmanni herstöðvarinnar frá því. Afganskir hermenn uppgötvuðu ekki að þeir væru einir fyrr en nokkrum klukkustundum síðar. 6.7.2021 09:20
Kynntu fyrirhugaðar stofnvegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu Betri samgöngur ohf. og Vegagerðin halda í dag fund þar sem farið verður yfir þær stofnvegaframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á höfuðborgarsvæðinu næstu árum. Um er að ræða kynningarfund um stofnvegaframkvæmdir Samgöngusáttmálans og verður streymt frá fundinum í beinni útsendingu. 6.7.2021 09:16