Allison Mack dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir kynlífsþrælkun Allison Mack, fyrrverandi leikkona sem er þekktust fyrir þættina Smallville, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir aðkomu hennar að kynlífs-sértrúarsöfnuðinum Nxivm (borið fram Nexium). Hún játaði árið 2019 að hafa aðstoðað Keith Raniere, forsvarsmann „sjálfshjálparhópsins“ að finna konur og halda þeim í kynlífsþrælkun. 30.6.2021 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld verður fjallað um hóp kvenna, sem telur á þriðja tug, sem hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini hér á landi. Umboðsmaður segir um grafalvarlegt mál að ræða og að hann fylgist grannt með stöðu mála. 30.6.2021 18:00
Ráðgátan um metan á Mars enn óleyst Vísindamenn Geimvísindastofnana Bandaríkjanna og Evrópu (NASA og ESA) telja sig nærri því að leysa ráðgátuna um metan á Mars, þó stórum spurningum sé enn ósvarað. Allt frá því gasið greindist fyrst á plánetunni rauðu hafa vísindamenn leitað að uppruna þess, sem gæti mögulega verið lífverur eða hitavirkni neðanjarðar. 30.6.2021 07:00
Varar við borgarastyrjöld í Afganistan Austin Miller, herforingi og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, varaði í dag við því að Afganar stæðu frammi fyrir erfiðum tímum og mögulega borgarastyrjöld. Leiðtogar ríkisins og aðrir öflugir hópar þurfi að taka höndum saman og berjast gegn Talibönum í kjölfar brottfarar bandarískra hermanna frá landinu. 29.6.2021 23:05
Ólafía fékk inngöngu í starfsnám eftir tveggja ára baráttu Ólafía Kristín Norðfjörð hefur fengið inngöngu í starfsnám í lögreglufræðum hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Það er eftir tæplega tveggja ára baráttu gegn því að notkun lyfseðilsskyldra lyfja sé útilokandi þáttur við inntöku. 29.6.2021 21:21
Fékk skilaboð frá nauðgara sínum sem stendur nú frammi fyrir handtöku Lögregluþjónar í Pennsilvaníu í Bandaríkjunum gáfu í dag út handtökuskipun gegn manni fyrir meinta nauðgun árið 2013. Nærri því átta ár eru síðan kona fór til lögreglunnar og sagði manninn hafa nauðgað sér en hann varð aldrei ákærður. Fyrir um ári síðan fékk hún skilaboð frá manninum sem hófust á orðunum: „Svo ég nauðgaði þér.“ 29.6.2021 20:31
„Grensársvegur“ verður ekki lengi uppi Búið er að panta nýtt götuskilti eftir að stafsetningarvilla á nýju götuskilti við Grensásveg kom í ljós. Mistökin hafa vakið mikla athygli netverja á undanförnum sólarhring. 29.6.2021 18:42
Eiga ekki von á ákæru gegn Trump, enn sem komið er Lögmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, funduðu í dag með saksóknunum á skrifstofu ríkissaksóknara Manhattan. Markmið þeirra var að koma í veg fyrir að fyrirtækið verði ákært í tengslum við langvarandi rannsókn á starfsemi þess. Einn lögmannanna segir að ekki sé von á því að Trump sjálfur verði ákærður, enn sem komið er. 28.6.2021 23:01
Virði Facebook fer yfir billjón dali Virði hlutabréfa fyrirtækisins Facebook er orðið meira en billjón dalir (1.000.000.000.000). Það er um 123,8 billjónir króna. Hlutabréfin tóku mikið stökk á mörkuðum vestanhafs undir kvöld eftir að dómari gerði, í bili, útaf við lögsókn Fjármálaeftirlits Bandaríkjanna og hóps ríkissaksóknara gegn Facebook fyrir meint samkeppnisbrot. 28.6.2021 21:43
Byggingarfulltrúi sagði húsið sem hrundi í „mjög góðu ástandi“ Björgunarsveitar- og slökkviliðsmenn í Miami í Bandaríkjunum vonast enn eftir því að finna fólk á lífi í rústum fjölbýlishúss sem hrundi óvænt í síðustu viku. Enginn hefur þó fundist á lífi nema skömmu eftir að húsið hrundi. Enn er 151 manns saknað en búið er að finna og bera kennsl á lík tíu manns. 28.6.2021 20:29